Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Síða 4
4
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Stjómmál____________
Ágreiningur milli
stjómarflokkanna
- atriði í fjáriagafhimvarpinu komu okkur á óvart, segir Guðmundur Bjamason
Ágreiningur er milii stjómarflokk-
anna um ýmsa þætti í fjárlagafrum-
varpinu. Guðmundur Bjamason,
varaformaður fjárveitinganeíndar,
sagði á Alþingi í gær að sum atriði í
frumvarpinu hefðu komið þingmönn-
um Framsóknarflokksins nokkuð á
óvart þegar Þorsteinn Pálsson fjár-
málaráðherra lagði það fram.
Stærsta ágreiningsmálið er skerðing
á tekjum framkvæmdasjóðs Ríkisút-
varpsins um 100 milijónir króna.
„Mér er ekki kunnugt um að þessi
hugmynd hafi nokkum tíma verið
rædd í þingflokki framsóknarmanna
og tel ég ekki líklegt að hún verði
samþykkt þar,“ sagði Guðmundur.
Sagði hann síst tíma til þess nú að
ráðast á tekjustofna Ríkisútvarpsins,
veikja með því undirstöðumar og
draga úr möguleikum þess að gegna
sínu mikilvæga hlutverki.
Áform fjármálaráðherra um að
fresta framkvæmdum við áfengisversl-
un í Mjóddinni, þar sem KRON keypti
nýlega kjörbúð, en opna vinbúð í Hag-
kaupshúsinu nýja næsta sumar, hafa
einnig skapað úlfúð meðal stjómar-
flokkanna.
„Þykir mér einsýnt að þar sem
samningar um framkvæmdir í Mjódd-
inni em í raun tilkomnir miklu fyrr
en kaup á verslunarhúsnæði í Kringl-
unni, eða árið 1977, hljóti að vera
óhjákvæmilegt að halda þeim fram-
kvæmdum áfram og komi tii greina
að fresta einhveijum framkvæmdum,
þá hljóti það að verða við verslunina
í Kringlunni svokölluðu,“ sagði Guð-
mundur.
Viðbótarskerðing á tekjum Jöfnun-
arsjóðs sveitarfélaga upp á 130 millj-
ónir króna, tilfærsla skólakostnaðar,
þar á meðal vegna skólaaksturs, frá
ríki til sveitarféiaga, er einnig ágrein-
ingsmál milli stjómarflokkanna.
Guðmundur sagði framsóknarmenn
líta svo á að ef ekki næðist samkomu-
lag við sveitarfélögin um þessa
verkefnatilfærslu þurfi aftur að hækka
fjárveitingu til Jöfnunarsjóðsins um
þessar 130 milljónir króna.
Fleiri atriði, eins og flutningur Hót-
el- og veitingaskóla íslands til Laugar-
vatns og sú einhliða ákvörðun
menntamálaráðherra að leggja niðui'
nokkra hússtjómarskóla, ætla einnig
að reynast framsóknarmönnum tor-
melt. -KMU
Embættismenn i fjármálaráðuneytinu fylgdust með umræðum þingmanna. DV-mynd: GVA.
Þorsteínn Pálsson fjármálaráðherra:
Aðhalds gætt án þess að
öxin sé reidd til höggs
„Þessi ríkisstjóm hefur á ferli sínum
gætt aðhalds án þess að reiða öxina
til höggs. Þetta frumvarp endurspeglar
þau sjónarmið," sagði Þorsteinn Páls-
son fjármálaráðherra er hann mælti
fyrir fjárlagafrumvarpinu á Alþingi í
gær.
„Það mikilvægasta við fjárlaga-
frumvarpið er þetta:
Það skilar okkur vemlega áleiðis
að hallalausum ríkisrekstri, þótt því
marki verði ekki náð á næsta ári.
Það tryggir jafnframt heldur minni
þátt hins opinbera í þjóðarbúskapnum
og veitir öðrum þar með meira svigr-
úm.
Jafhframt markar það þau mikils-
verðu þáttaskil að opinberir aðilar em
nú i fyrsta skipti í áraraðir að grynnka
á erlendum skuldum.
Þjóðhagsstofnun gerir einnig ráð
fyrir því að jöfnuður, eða því sem
næst, geti náðst í viðskiptum við önn-
ur lönd á næsta ári. Með minnkandi
halla er þannig stefnt að áframhald-
andi jafnvægi í efiiahagsmálum.
Þetta frumvarp er ekki dæmigert
fyrir fjárlagafrumvörp Sem lögð em
fram á síðasta vetri fyrir kosningar. í
því em engin ábyrgðarlaus yfirboð,
hvorki útgjalda- né tekjumegin. Ég
ætla að láta stjómarandstöðunni eftir
að mæla fyrir ábyrgðarleysi sínu. Það
er létt verk, en ekki að sama skapi
merkilegt, að æsa upp nýjar útgjald-
akröfur og kalla á skattalækkanir sem
ekki er möguleiki á að hrinda í fram-
kvæmd við núverandi aðstæður,"
sagði Þorsteinn. -KMU
Eiður Guðnason, Alþýðuflokki:
Hættulegt
þenslufrumvarp
„Þótt frumvarpið sé þenslufrum-
varp og hættulegt og allt annars
eðlis en hæstvirtur fjármálaráðherra
lætur í veðri vaka þá er það líka
íhaldsfrumvarp vegna þess að það
vottar ekki fýrir nýjum hugmynd-
um,“ sagði Eiður Guðnason, formað-
ur þingflokks Alþýðuflokksins.
„Frumvarpið boðar ekki neina
nýja stefnu er horfi til framfara eða
búi í haginn fyrir komandi ár og þá
kjarasamninga sem í vændum em.
Það mótar ekki efnahagshorfumar
að einu eða neinu leyti.
Það er jafnvel svo að þeim ár-
angri, sem náðst hefur í margum-
ræddri baráttu við verðbólguna,
kann nú að vera stefnt í hættu.
Árangri sem fyrst náðist vegna
fóma almennings, þegar kaupgetan
var skert svo um munaði og al-
þýðuheimili fundu fyrir. Árangri sem
náðist meðal annars vegna þess að
raunsæi og skynsemi réðu ferðinni
í samningamálum hjá verkalýðs-
hreyfingunni. Árangri sem náðist
vegna þess hve viðskiptakjör okkar
bötnuðu feiknarlega, með lækkuðu
olíuverði og hækkantii afurðaverði
erlendis.
Þetta er því miður ekki það frum-
varp þar sem verkefhum er raðað í
forgangsröð þannig að hægt sé að
segja að brýnustu verkefnin sitji í
fyrirrúmi.
Enn er hér lagt til að verja hundr-
uðum milljóna til að styrkja útflutn-
ing landbúnaðarvara og niðurgreiða
landbúnaðarvörur heimafyrir. f mál-
efnum landbúnaðarins stefnir enn
sem fyrr í óefhi. Vegna þess að það
er ekki tekið á vandanum. Bændur
og neytendur bera skarðan hlut frá
borði meðan milliliðimir hafa allt
sitt á hreinu.
Og það vantar sannarlega sitt af
hveiju í gjaldahlið þessa frumvarps.
Þar er margt í þoku og Ijóst, að ekki
sé sterkar til orða tekið, að þetta
frumvarp ber þess ýmis merki að það
em kosningar í vændum.
Það er ámælisvert að tekjuhlið
þessa frumvarps er í mjög svo veiga-
miklum atriðum byggð á lagabreyt-
ingum, sem á þessu stigi em aðeins
ráðgerðar og sem þingheimur veit
ekkert um á þessu stigi.
Frumvarpið er gloppótt og götótt,
ófrágengið og endasleppt í veiga-
miklum málaflokkum. Niðurstöðu-
tölur frumvarpsins em markleysa.
Þær eiga eftir að taka miklum breyt-
ingum,“ sagði Eiður. -KMU
Ragnar Arnalds, Aiþýðubandalagi:
Stefna frumvarpsins
er andfélagsleg
„Ef nefha ætti eitt orð sem lýsir
þessu frumvarpi, þá er það að stefha
þess er andfélagsleg," sagði Ragnar
Amalds, formaður þingflokks Al-
þýðubandalagsins.
„Fjárlagafrumvarpið boðar að
áfram verður mikil óstjóm á flármál-
um ríkisins.
Enn ætlar ríkisstjómin að taka
rísastóran óreiðuvíxil til að fleyta
sér fram yfir kosningar þrátt fyrir
gífurlegan halla á fjárlögum þriðja
árið í röð.
Ríkisstjómin ætlar að skilja eftir
sig uppsafnaðan halla þessara
þriggja ára sem nemur að minnsta
kosti 6.000 milljónum króna, vanda
sem komandi ríkisstjóm er ætlað að
leysa með aðstoð skattgreiðenda.
Varla þarf að segja neinum að
þetta verður Ijótasti viðskilnaður
íslenskrar ríkisstjómar frá upphafi.
Þetta frumvarp færir skattgreið-
endum vondar fréttir.
Tekjuskattur einstaklinga, sem
hækkaði um 600 milljónir króna á
þessu ári - þrátt fyrir hástemmd lof-
orð í gagnstæða átt - lækkar aðeins
sem nemur hálfri þessari hækkun.
En áfram munu stórfyrirtæki og
eignamenn njóta góðs af hriplekum
skattalögum með margvíslegum
smugum og ástæðulausum undan-
þágum, sem skerða tekjur ríkissjóðs
sennilega um álíka upphæð og halla-
rekstrinum nemur.
Ekki vantar örlætið í þetta frum-
varp þegar gæluverkefni ríkisstjóm-
arinnar eiga í hlut.
Verslunareigendur í nýja Hag-
kaupshúsinu fú þær góðu fréttir að
varið verði 40 milljónum króna i
nýtt útibú Áfengisverslunarinnar
þar á staðnum til að auka aðsóknina
í húsið.
Og flugstöðin nýja fær 500 milljón-
ir króna.
Hins vegar er efni frumvarpsins
vont fyrir sveitarfélögin sem svipt
em 300 milljóna króna tekjum.
Vond tíðindi fyrir landsbyggðina
almennt, fyrir bændur vegna rým-
andi niðurgreiðslna og 30% boðaðr-
ar hækkunar á áburðarverði næsta
vor, fyrir námsmenn, bæði hvað
varðar Lánasjóðinn og dreifbýlis-
styrki til framhaldsskólanema.
Vond tíðindi fyrir húsbyggjendur
með 300 milljóna króna lækkun
framlags til byggingarsjóða.
Vond tíðindi fyrir alla þá sem
leggja áherslu á jafnréttismál og fé-
lagsleg verkefni, eins og til dæmis
birtist í helmings niðurskurði á
framlögum til leikskóla og dag-
heimila," sagði Ragnar. -KMU
Kristín Halldórsdóttir, Kvennalista:
Þeir sem landið erfa horfa fram á þungbæra skuldadaga
„Því er þeim mun meiri ástæða til
að undrast það, og andmæla því, að
ríkisstjómin skuli ekki sjá efni til þess
að auka kaupmátt launa svo nokkm
nemi á næsta ári,“ sagði Kristín Hall-
dórsdóttir, Kvennalista.
„Og þeim mun meiri ástæða er til
að vekja enn og oftarathygli á hrika-
legum hallarekstri ríkissjóðs og
þungbærum vaxtagjöldum, sem væm
þó þungbærari ef ekki nyti þeirrar
vaxtalækkunar, sem orðið hefur á er-
lendum lúnum.
Enn mega þeir, sem landið erfa,
horfa fram á þungbæra skuldadaga.
Almennt launafólk gerir þá kröfii til
stjómenda landsins að þeir reyni að
reka þjóðarbúið af ábyrgð og sann-
gimi. Vonbrigði þess em margvísleg
og er því þó hreint ekki alltaf kunn-
ugt um þær raunir sem skattpening
þess hendir.
Reiknað er með hálfum öðrum millj-
arði í halla á næsta ári. Er þó deginum
ljósara að sá halli er vanáætlaður,
bæði hvað varðar launaliði og ýmsa
aðra liði.
Þrátt fyrir þetta allt saman sér ríkis-
stjómin engin önnur ráð til að afla
tekna á móti, nema það eitt að leggja
gjald á innfluttar olíuvörur. Er það
réttlætt með því að ríkissjóður hafi í
engu notið lækkunar olíuverðs á und-
anfömum mánuðum og sé nú röðin
komin að honum að njóta góðærisins
af þessum sökum.
Slík fullyrðing er að sjálfsögðu röng.
Ríkissjóður hefur sparað umtalsverðar
fjárhæðir á lækkun olíu- og bensín-
verðs.
Ég tel þessa álagningu varhuga-
verða, að ekki sé meira sagt, þar sem
hér er ráðist að einni af mikilvægustu
forsendum fyrir því góðæri, sem um
er rætt, og sumir hafa reyndar orðið
minna varir við en aðrir.
Ráðherramir halda að sjálfsögðu áfram
að bruðla með fé í vafasamar fjárfesting-
ar og þeir hafa gefist upp á að halda
rekstrargjöldum ríkissjóðs í skeQum.
Þetta er sú mynd sem við blasir í
góðærinu og menn skulu ekki gleyma
því að við erum ekki aðeins að vísa
hallanum í úr til framtíðarlausnar
heldur er hann til viðbótar við halla
undanfarinna ára, svo að nú er það
dæmi komið í um sex milljarða í mín-
us. Það er heldur ófögur mynd og
ófagur vitnisburður um störf og stefnu
núverandi ríkisstjómar."
Um helmings niðurskurð á fjárveit-
ingum til byggingar dagvistarstofn-
ana, úr tæpum 40 milljónum króna í
fyrra niður í 20 milljónir nú, sagði
Kristín:
„Þetta nær auðvitað ekki nokkurri
átt. Verður því ekki trúað að meiri-
hluti Alþingis samþykki þennan
fáranlega og ósanngjama niður-
skurð.“ -KMU