Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Page 6
6
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Viðskipti
Hvað er fiskmarkaður?
Ekki er víst að allir viti hvað fisk-
markaður er eða réttara sagt hvað þar
fer fram og hvemig þar er unnið, en
mikið er nú rætt um að setja upp slík-
an markað hér á landi. Áratugahefð.
er fyrir fiskmörkuðum í Bretlandi og
Þýskalandi og hefur þar þróast upp
kerfi sem án efa er eitt það besta sem
hægt er að setja upp.
Á þessum fiskmörkuðum hefst vinna
mjög snemma. Um miðja nótt hefst
undirbúningur að sjálfu uppboðinu
sem vanaiega fer fram á bilinu 5-8 að
morgni. Segja má að allt sé búið upp
úr kl. 8, nema að þrífa salinn.
Teikningin, sem hér fylgir, sýnir
hvemig hlutimir ganga fyrir sig á fisk-
markaðnum’ í Hamborg en hann er
eins upp byggður og aðrir þýskir fisk-
markaðir. -S.dór.
Miklar breytingar á fasteignaverði ffá ágúst til september:
Verð á einbýlishúsum hækkar um 13 prósent
Miklar hækkanir urðu á söluverði
íbúða í fjölbýlishúsum nú í haust og
námu hækkanir á milli mánaðanna
Peningamarkaður
VEXTIR (%) hæst
Innlán óverðtryggð
Sparisjóðsbækur óbundn- 8-9 Lb
Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 8,5-10 Ab.lb. Vb
6 mán. uppsögn 9,5-13,5 Vb
12 mán. uppsögn 11-14 Ab
Sparnaður- Lánsréttur
Sparað í 3-5 mán. 8-13 Ab
Sp. i 6 mán. og m. 9-13 Ab
Ávisanareikningar 3-7 Ab
Hlaupareikningar 3-4 Lb.Sb
Innlán verðtryggð Sparireikningar
3ja mán. uppsögn 1-1.5 Sp
6 mán.uppsögn 2,5-3,5 Lb
Innlán með sérkjörum 8-16
Innlán gengistryggö
Bandaríkjadalur 5-7 Ab
Sterlingspund 8,75-10.5 Ab.Vb
Vestur-þýsk mörk 3.5-4 Ab
Danskarkrónur 7,5-9 Ib
Útlán óverðtryggð
Almennir vixlar(forv) 15,25 Allir
Viðskiptavixlar(forv.)(1) kge Allir
Almcnn skuldabréf(2) 15,5 Allír
Viðskiptaskuldabréf(1) kge Allir
Hlaupareikningar(yfirdr) 15,25 Allir
Utlán verðtryggð Skuldabréf
Að2.5árum 4 Allir
Til lengri tima 5 Allir
Utlán til framleiðslu
ísl. krónur 15
SDR 7.75
Bandarikjadalir 7.5
Sterlingspund 12,75
Vestur-þýsk mörk 6.25
Húsnæðislán 3.5
Lifeyrissjóðslán 5
Dráttarvextir 27
VÍSITÖLUR
Lánskjaravisitala 1509 stig
Byggingavísitala 281 stig
Húsaleiguvisitala Hækkaði 9% 1. okt.
HLUTABRÉF
Söluverð að lokinni jöfnun m.v. 100 nafnverðs.
Almennar tryggingar 111 kr.
Eimskip 216 kr.
Flugleiðir 152 kr.
Hampiðjan 131 kr.
Iðnaðarbankinn 98 kr.
Verslunarbankinn 97 kr.
ágúst og september 8,1%. Jafnframt
er talið að um enn meiri hækkanir
hafi verið að ræða á einbýlishúsum á
höfuðborgarsvæðinu og íbúða utan
þess og benda fyrstu upplýsingar til
þess að þar sé hækkunin um 13% á
milli áðurgreindra mánaða. Þessar
upplýsingar koma fram í fréttabréfi
Fasteignamats ríkisins. \
Ásamt því að verð íbúða hækkaði
versnuðu greiðslukjör og í september
var staðgreiðsluverð blokkaríbúða í
Reykjavík 30,1% hærra en gildandi
fasteignamat. Hins vegar var þessi
munur aðeins 12,2% í apríl síðastliðn-
um þegar söluverðið var hvað lægst.
Þetta jafngildir um 16% hækkun
íbúðaverðs á þessum fimm mánuðum.
Ásamt því að söluverð hækkaði ver-
snuðu greiðslukjör og hækkaði
útborgun úr 70,4% af söluverði íbúða
í fjölbýli í 74,9% milli mánaðanna
ágúst og september og segir í frétta-
bréfinu að lengi hafi útborgun ekki
verið jafnhá. Þessar breytingar á fast-
eignaverði og greiðslukjörum má
rekja til fyrirheita um hækkun fast-
eignalána með tilkomu nýrra laga um
Húsnæðisstofhun ríkisins að því er
fram kemur í fréttabréfinu og hafi
umræður þar um skapað „væntingar“
á fasteignamarkaðinum og aukið eftir-
spum.
í fréttabréfinu kemur enn fremur
fram að þegar miklar verðhækkanir
verða, á skömmum tíma á fasteigna-
markaðinum kemur einnig fram
óregla á söluverði. Er tekið dæmi um
hækkanir á söluverði íbúða í fjölbýli
í september og kemur þar fram að
verðið á slíkum íbúðum hefur hækkað
um liðlega 15% fyrstu vikuna en
nokkrar sveiflur urðu á verði þennan
mánuðinn. -ój
01 og gosdiykkir:
Samdráttur
milli ára
f „hagsveifluvog iðnaðarins",
sem er könnun á stöðu íslensks
iðnaðar og Félag íslenskra iðnrek-
enda og Landssamband iðnaðar-
manna gefa út, kemur fram að
vöxtur er í nær öllum greinum ís-
lensks iðnaðar. Það stingur }>ó í
augu að í framleiðslu öl og gos-
drykkja er samdráttur hjá öllum
sem svara í könnuninni milli 2.
ársfjórðungs* 1985 og 2. ársfjórð-
ungs 1986.
Þegar skýringar á þessu var leit-
að voru svörin á þá leið að ekki
hefði orðið samdráttur í fram-
leiðslu og sölu á gosdrykkjum en
aftur á móti er samdráttur í sölu
á íslensku öli. Ástæðan er mjög
harðnandi samkeppni við innflutt
léttöl.
Þá mun einnig hafa orðið
minnkun í sölu á ávaxtadrykkjum
framleiddum hér á landi. Kemur
þar fleira en eitt til. í fyrstii lagi
var mikil uppsveifla í sölu þeirra
1985 en þá var verið að markaðs-
setja þessa vöru og mikið auglýst.
{ annan stað hefúr samkeppnin
harðnað með innflutningi á er-
lendum ávaxtasafa sem seldur er á
afar hagstæðu verði.
Að sögn Hjartar Hjartar, hag-
fræðings Félags íslenskra iðnrek-
enda, má segja að hvað varðar
ávaxtadiykkina og ölið standi
framleiðendurþess nú friimmi fyrir
svipuðu vandamáli og sælgætis-
iðnaðurinn fyrir nokkrum árum í
samkeppni við innflutninginn.
Sælgætisiðnaðurinn mætti sam-
keppninni af hörku og hefui’ nú
rétt sinn hlut og það ættu öl- og
ávaxtadrykkjaframleiðendur að
geta líka. -S.dór.
Góð ávöxtun í víxlaviðskiptum bankanna:
Ná yfir 40
prósent ávöxtun
í 15 prósent
verðbólgu
(1) Við kaup á viðskiptavíxlum og við-
skiptaskuldabréfum, útgefnum af
þriðja aðila, er miðað við sérstakt
kaupgengi, kge. (2) Vaxtaálag á skulda-
bréf til uppgjörs vanskilalána er 2%
bæði á verðtryggð og óverðtryggð lán.
Skammstafanir: Ab = Alþýðubankinn,
Bb = Búnaðarbankinn, Ib = Iðnaðar-
bankinn, Lb = Landsbankinn, Sb =
Samvinnubankinn, Úb = Útvegsbank-
inn, Vb = Verslunarbankinn,
Sp = Sparisjóðirnir.
Nánari upplýsingar um peninga-
markaðinn birtast í DV á fimmtu-
dögum.
Ávöxtunarkröfur bankanna í víxla-
viðskiptum eru frá því rúmlega 33%
og upp fyrir 40% þegar miðað er ann-
ars vegar við algenga, almenna víxla
og hins vegar við algenga viðskipta-
víxla. Hraði verðbólgunnar er nú um
15%, mældur til árs, og þeir vextir sem
bankamirgreiða á iimlán gefa 13-19%
ársávöxtun. Víxlaviðskipti virðast því
vera þokkalega arðbær.
Útvegsbankinn gerir hæsta ávöxt-
unarkröfú bæði varðandi almenna
víxla og viðskiptavíxla en Lands-
bankinn þá lægstu, samkvæmt
samanburði sem birtur er í Tíðindum
Vinnuveitendasambandsins.
Borin eru saman víxillán í fimm
bönkum, Búnaðarbanka, Landsbanka,
Verslunarbanka, Iðnaðarbanka og
TJtvegsbanka. I útreikningi á vaxta-
töku af 50.000 króna viðskiptavíxli til
25 daga tekur Landsbankinn 36,4%,
miðað við ár, en Útvegsbankinn er
nokkru hæstur með 40,6%. 2-3% lægri
ávöxtun er á almennu víxlunum.
f Tíðindum VSÍ er einnig greint frá
mismunandi meðferð bankanna á
föllnum viðskiptavíxlum. Meginregl-
an virðist vera sú að þessir vixlar eru
gjaldfærðir á seljendur víxlanna með
áfollnum dráttarvöxtum mismörgum
dögum eftir að þeii gjaldfalla. Þannig
getur ávöxtun bankanna á víxilkaup-
afé næstum tvöfaldast í sumum tilvik-
um, eins og DV hefúr raunar greint
frá áður.
Þá eru vanskilavíxlar í einhverjum
tilvikum gjaldfærðir á hlaupareikn-
inga seljenda, jafnvel þótt reikning-
amir fari þá yfir heimild. -HERB
Um 120 tonnum af síld var landað úr Valdimar Sveinssyni i Eyjum fyrir
helgi. Myndin er tekin við löndunina. DV-mynd Ragnar S.
Vestmannaeyjar:
Fyrsta sfldin
Kagnar Siguijónsson, DV, Vestaeyjunr
Valdimar Sveinsson kom fyrir
helgina til Vestmannaeyja með 120
tonn af síld. Þetta er fyrsta síldin sem
berst á land í Eyjum á þessari vertíð.
Síldin veiddist í Norðfjarðarflóan-
um en þangað er um það bil sólar-
hringssigling frá Eyjum. Hún fór
bæði í salt og frystingu og var skipt
á milli stöðvanna. Þær hefur sárlega
vantað hráefni til vinnslu í haust
þannig að vinna hefur fallið niður
af þeim sökum. Ef rætist úr mark-
aðsmálum má gera ráð fyrir að
ástandið lagist fljótlega hjá frysti-
húsunum.