Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Síða 8
8
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Útlönd
Mósambik:
Þrjár borgir
á valdi
skæruliða
Hægrisinnaðir skæruliðar í
Mósarabik tilkynntu i gær að þeir
heíðu tekið á sitt vald þrjár borgir
í austurhluta landsins. Einnig til-
kynntu þeir að þeir hefðu orðið
að bana 400 hermönnum síðast-
liðna viku. Sjálfir sögðust þeir
hafa misst átta menn.
Yfirvöld hafa ekki staðfest þess-
ar upplýsingar og sendifulltrúar
halda að þær séu orðum auknar
en skæruliðar hafa barist við
stjómina í Mósambik i áratug.
Árásimar, sem gerðar hafa verið
í þessum mánuði, virðast vera þær
alvarlegustu hingað til og hafa
skæmliðar tilkynnt að þeir muni
láta meir til sín taka í kjölfar
dauða Samora Machel, forseta
Mósambik, en hann lést i flugslysi
þann 19. október.
Skæmliðamir hafa einnig til-
kynnt að þeir muni gera árásir í
nágrannalandinu Zimbabwe vegna
stuðnings þess við stjórnina í
Mósambik. Áætlað er að 12.000
hermenn frá Zimbabwe séu nú í
Mósambik.
Móðgandi
ummæli á
fyrsta-
dagsumslagi
Sameinuðu þjóðimar hafa tekið
úr umferð umslög með fyrsta-
dagsstimpli og frímerki tileinkað
Kólumbíu þar sem fram kom að
ein af aðaltekjulindum þjóðarinn-
ar væri eiturlyf. Er frímerkið eitt
af mörgum í seríu sem ef til vill
verður tileinkuð öllum aðildarríkj-
um Sameinuðu þjóðanna.
Á umslaginu með frímerkinu
stóð að landbúnaður væri aðalat-
vinnuvegur landsins og aðallega
væri lögð áhersla á kaffi, kókaín
og maríjúana. Fulltrúi Kólumbíu
hjá sameinuðu þjóðunum mót-
mælti harðlega þessum orðum og
sagði þau vera móðgun við þjóð
hans.
Umslagið með útgáfudagsstimpl-
inum var framleitt af einkafyrir-
tæki en þó svo að það hafi verið
tekið úr umferð er hætta á að
nokkur umslög hafi lent hjá einka-
aðilum. Má þá gera ráð fyrir að
hátt verð fáist fyrir þau hjá söfnu-
rum.
Ákærðir fyrir
morðtilraun
á Pinochet
Fimm skæruliðar, sem hand-
teknir voru í Chile i síðastliðinni
viku, voru í gær ákærðir fyrir til-
raunina til að ráða Augusto
Pinochet af dögum og fyrir morðið
á fimm lífvörðum hans.
Pinochet slapp næstum ómeidd-
ur er skæruliðar réðust á bílalest
þá er hann ferðaðist í frá sveita-
setri sínu þann 7. september
síðastliðinn. ÞjóðfrelsLshreyfing
Manuel Rodriguez lýsti yfir ábyrgð
á tilræðinu en neitar að skærulið-
amir, sem handteknir voru í
síðastliðinni viku, séu meðlimir
hreyfingarinnar. Samkvæmt upp-
lýsingum yfirvalda tóku 24
skæruliðar þátt í árásinni.
í gær vom einnig handteknir 250
stúdentar eftir að lögreglan hafði
hindrað atkvæðagreiðslu í kosn-
ingum um leiðtoga stúdenta við
háskóla.
Andóf bælt niður
við Kankok háskóla
Þúsundir her- og lögreglumanna kveða niður þriggja daga blóðugt andóf námsmanna við háskóla í Suður-Kóreu
Öryggissveitir í Suður-Kóreu réð- ingar á háskólalóð Kankoks þriggja daga blóðugt andóf yfir átta
ust í birtingu í morgun inn í bygg- háskólans í Seoul og bmtu niður hundmð námsmanna við skólann er
Námsmenn mótmæla stjórnarstefnunni og standa andspænis öryggissveitum í fullum skrúða á háskólasvæð-
inu í Seoul skömmu áður en þeir herskáustu á meðal námsmanna létu til sín taka og hernámu byggingar
á Kankok háskólasvæðinu.
staðið hefur undanfama þrjá daga.
Til mikilla átaka kom er sjö þús-
und her- og lögreglumenn réðust til
inngöngu í húsakynni þau á há-
skólalóðinni er námsmenn hafa
haldið í herkví undanfama daga.
Köstuðu námsmenn bensín-
sprengjum, grjóthnullungum og
hverju öðru lauslegu að öryggis-
sveitum er þær rýmdu byggingamar
og, að sögn sjónarvotta, handtóku
óeirðaseggina alla með tölu.
Tvær byggingar á háskólalóðinni
er námsmenn héldu í tvo daga eru
stórskemmdar eftir átökin, og aðrar
þrjár byggingar er einnig vom her-
teknar af námsmönnum em sagðar
rústir einar.
Á meðan öryggissveitimar gerðu
atlögu sína sveimuðu lögregluþyrlur
yfir háskólalóðinni og vörpuðu nið-
ur táragassprengjum. Á sama tíma
umkringdu' sérstakir óeirðavagnar
með háþrýstibúnum vatnsbyssum
háskólabyggingamar er sprautuðu
vatni á óeirðaseggina.
Ekki var ljóst í morgun hvort orð-
ið hefði mannfall í árás öryggissveit-
anna, né um íjölda særðra, en að
sögn sjónarvotta mun töluvert hafa
orðið um meiðsl í átökunum.
Segir sekt Hasenfus
fyrirfram
Enrique Sotelo Borgen, sérlegur
verjandi Eugene Hasenfus, banda-
ríska flugmannsins er skotinn var
niður yfir Nicaragua fyrir skömmu og
ákærður hefur verið af sandinistfyrir
að hafa stundað vopnaflutninga til
contra skæmliða á vegum bandarísku
leyniþjónustunnar CIA, fordæmdi í
morgun sérstakan alþýðudómstól er
skipaður hefur verið til að kveða upp
dóm yfir skjólstæðingi sínum og kvað
hann þegar hafa ákveðið að dæma
Hasenfús sekan.
Borgen fordæmi einnig sönnunar-
gögn þau er lögð hafa verið fram af
saksóknara Nicaragua, er að sögn
ákveðna
yfirvalda eiga að sanna aðild og
ábyrgð CLA á flugi Hasenfus með vopn
og vistir til contra skæruliða.
Alþýðudómstóllinn, er skipaður hef-
ur verið til að kveða upp dóm yfir
Hasenfus, tekur fyrir sakamál í Nic-
aragua er tengjast borgarastríðinu í
landinu er geisað hefur undanfarin
fimm ár. í slíkum réttarhöldum fer
málflutningur fram í formi ritaðra
yfirlýsinga málsaðila og sakboming-
um yfirleitt ekki leyft að verja sig
sjálfir en búist er við því að Hasenfús
verði heimilað að taka til máls í réttin-
um á morgun, málstað sínum til
varnar.
Enrique Sotelo Borgen, verjandi flugmannsins Hasenfus, fordæmdi málatil-
búning alþýðudómstóls Nicaragua í morgun og kvað hann þegar hafa ákveðið
sekt skjólstæðings sins.
Sendiherra Sýrlands, Haydar Assad, sem rekinn var frá Bretlandi vegna
meintrar aðildar að tilraun til sprengjutilræðis.
Astralía gætir
hagsmuna Bretlands
Ástralía hefur tekið að sér að gæta
hagsmuna Bretlands í Sýrlandi efitir
stjómmálaslitin sem áttu sér stað í
síðastliðinni viku.
Utanríkisráðherra Ástralíu, Bill
Hayden, tilkynnti að Bandaríkin,
Kanada og þjóðir Evrópubandalags-
ins hefðu einnig átt viðræður við
vfirvöld í Ástralíu. Sagði hann að
Bretlandi gætti hagsmuna Ástralíu
í mörgum löndum væri hann á-
nægður að geta org;5 að liði.
Bretland sleit stjc3 málasambandi
við Sýrland eftir að § rdaninn Nezar
Hindawi var dæmcc fyrir að hafa
reynt að koma sprU.gju um borð í
ísraelska farþegaþotu. Við yfir-
heyrslumar kom fram að sendiráð
Sýrlands og sýrlenska leyniþjónust-
an væm viðriðin tilraunina.
Souphanovong
sagði af sér
Prins Souphanovong, forseti Laos
undanfarin ellefú ár, sagði af sér emb-
ætti í morgun af heilsufarsástæðum,
að því er fréttastofa landsins segir í
morgun.
Souphanovong er nú orðinn 77 ára
gamall og hefur ekki gengið heill til
skógar að undanfomu.
Fyrrum aðstoðarforsætisráðherra,
Phoumi Vongvichit, hefur að sögn
fréttastofunnar tekið við forsetavaldi
í landinu.
Prins Souphanovong, leiddi Pathet
Lao þjóðfylkinguna er aðhyllist kom-
múnisma til sigurs í Laos árið 1975,
eftir tveggja áratuga blóðuga baráttu
gegn franskri nýlendustefnu og kon-
ungsveldi er naut stuðnings stjóríf-
valda á Vesturlöndum.