Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Page 9
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
9
Utlönd
securon
5Q
Nokkur ólöglegra frímerkja er Samstödumenn hafa að undanförnu gefið út i
Pollandi. Efst frímerki með mynd Lech Walesa Samstöðuleiðtoga og annað
þar sem hernám Sovétmanna í Afganistan er fordæmt og samúð lýst yfir með
skæruliðum frelsissveitanna. Frímerkið í miðju sýnir hönd af beinagrind teygja
sig í átt frá Sovétríkjunum yfir pólsku landamærin, merktri JOÐ-131, er táknar
geislavirkt efnasamband er myndast við kjarnaklofnun í úrani og er að finna
i geislavirku ryki. Með þessu eiga Samstöðumenn við Tsérnóbyl-kjarnorkuslys-
ið og streymi geislavirkra efna inn fyrir pólsk landamæri en pólskur almenning-
ur á hættusvæðum vissi ekkert um slysið fyrr en fréttir fóru að birtast f
vestrænum fjölmiðlum. Annað frímerki að neðan sýnir afmyndaða mynd af
Jaruselski hershöfðingja. Neöstu tvö frímerkin bera myndir af sovéska andófs-
manninum Andrei Sakharov og konu hans Elenu Bonner er lengi hafa barist
fyrir brottfararleyfi frá Sovétrikjunum.
POCZTA
NtgZALEZNA
niezaleZna
zt
n»9«m M AZOWSZE Ö4
POCZTA
Andóf og fyrirlitning
endurspeglast
í frímerkjunum
Ólögleg Samstöðufrímerki seljast vel í Pollandi og eru eftirsótt af söfríurum
POLSKA
ÖRYGGISBELTIFRÁ
Frjáls og óháð verkalýðsfélög Sam-
itöðu í Póllandi eru ekki í dauðateygj-
miim þrátt fyrir að vera ólögleg og
itöðuga baráttu yfirvalda er knésetja
vilja starfsemi þeirra í eitt skipti fyrir
öll.
Vikuritið Time fjallar í nýjasta hefti
sínu um sérstæða og ólöglega frí-
merkjaútgáfu Samstöðumanna í
Póllandi og hvemig ágóði af útgáfunni
er notaður til að fjármagna enn frek-
ari prentun og útgáfu rita á vegum
Samstöðu sem bannað er að gefa út í
Póllandi.
Hugvitssamir Sámstöðumenn hafa á
síðustu sex árum gefið út fjölmörg
ólögleg frímerki í landinu þar sem lít-
ið er gert úr kommúnistaflokki lands-
ins og ríkisstjóm Jaruselskis
hershöfðingja, auk þess sem ítök Sov-
étmanna í landinu em fordæmd.
Venjulegast er upplag frímerkjanna
fimm til tiu þúsund eintök og oft kom-
ast þau í umferð með hjálp samvinnu-
þýðra starfsmanna póstþjónustunnar
er senda þau áfram með tilheyrandi
póststimpli.
Sérstaklega hafa frímerki með mynd
Jóhannesar Páls páfa verið vinsæl og
merki með afskræmdri mynd Jams-
elskis hershöfðingja.
FYRIR FRAMSÆTI, AFTURSÆTI, BARNABELTI, BURÐARRUMSFESTINGAR
OG RALLBELTI.
VARA
ú\ IrA /i
# , w
HLIITIR
SIÐUMULA 3
0 3 7 2 7 3
Sænski jafhaðaimannaflokkurinn:
Skylduaðild
afnumin?
Gurmlaugur A Jónssom, DV, Lundi;
Stjóm sænska jafnaðarmanna-
flokksins ákvað í gær að fara fram
á það við landsþing flokksins að
skylduaðild verkalýðshreyfingar-
innar að flokknum vrði afnumin.
Ekki er þó ætlunin að þetta gerist
í einu vetfangi en árið 1991 á breyt-
ingin að vera komin í kring. Þá eiga
bara einstaklingar að vera félagar í
flokknum en ekki eins og nú er,
heilar deildir verkalýðshreyfingar-
innar.
Skylduaðildin hefur sætt mikilli
gagnrýni og hafði Lars Wemer, for-
maður vinstri flokksins - kommúnis-
tanna, hótað að leggja fram
frumvarp í þinginu í haust gegn
skylduaðildinni og það frumvarp
hefðu borgaralegu flokkarnir að
sjálfeögðu stutt.
Til að forðast slíkan álitshnekki
hafa jafhaðarmenn nú orðið fyrri til
og boðað þessa breytingu. Það er
fullvíst að yfirlýsing flokksstjómar
jafnaðarmanna nægi til þess að
vinstri flokkurinn - kommúnistamir
hætti við frumvarp sitt.
ALLT
AFSLATTUR
AF FUAVARNAREFNUM
ALLT AÐ
AFSLATTUR
AF MALNINGU
OPIÐ
KL. 8-18 VIRKA DAGA
KL. 10 - 16 LAUGARDAGA
2 góðar byggingavöruverslanir.
Austast og vestast í borginni
Stórhöfða, sími 671100
v/Hringbraut, sími 28600.