Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Síða 14
14 FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986. Frjálst, óháð dagblaö Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖIMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÖLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJANSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjórar: JÓNAS HARALDSSON og ÓSKAR MAGNÚSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFANSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, Umbrot, mynda- og plötugerð: HILMIR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 500 kr. Verð í lausasölu virka daga 50 kr. - Helgarblað 60 kr. Bráðabirgðasamningar? Margir verkalýðsforingjar mæla með því, að upp úr áramótum verði aðeins gert bráðabirgðasamkomulag um kjaramálin. Þetta hefur verið samþykkt í trúnaðar- mannaráði Dagsbrúnar og kann að verða samþykkt nú á sunnudag á almennum Dagsbrúnarfundi. Þessi hug- mynd virðist eiga mikið fylgi í Verkamannasambandinu, sem er aðalsambandið innan Alþýðusambandsins. Meðmælendur bráðabirgðasamnings segja, að ekki verði unnt að treysta á núverandi ríkisstjórn í samning- unum, vegna þess að kosningar séu á næsta leiti. Ríkisstjórnin kunni að fara frá og ný að taka við eftir kosningarnar. Ríkisstjórnin gegndi talsverðu hlutverki í síðustu samningum, aðallega í því formi að sam- þykkja að leggja fram þann pakka, sem aðilar vinnu- markaðarins báðu um. Nú segja meðmælendur skammtímasamnings, að ekki sé á treystandi, að ný rík- isstjórn stæði við það, sem núverandi stjórn byði. Vissulega eru ríkisstjórnarflokkar í kosningaskapi ekki hinir beztu aðilar að kjarasamningum. En margt kemur til. Núverandi ríkisstjórn er ekki líkleg til að ýta undir verðbólgusamninga, sem mundu kollvarpa stefnu henn- ar og eyða þeim árangri, sem náðst hefur í efnahagsmál- um. Núverandi ríkisstjórn getur ekki boðið gull og græna skóga. Hún situr uppi með meira en tveggja milljarða nalla á fjárlögum fyrir næsta ár. Hún getur því ekki boðizt til annars en að auka fjár- lagahallann, ef hún býður eitthvað, meðan hún hefur ekki styrk til að skera ríkisbáknið niður á móti. Staða stjórnarflokkanna mundi hríðversna í kosningunum, ef þeir lentu að nýju í verðbólgufeni. Líkurnar eru því þær, að áhrif þessarar ríkisstjórnar á samningana yrðu ekki til bölvunar. Bæði atvinnurekendur og launþegar tala í ályktunum um, að í kjarasamningunum verði fyrst og fremst að draga úr launamisrétti, til dæmis milli kvenna og karla. Forseti Alþýðusambandsins ræðir, að hækka þurfi kauptaxta og færa þá nær hinum launahvetjandi kerf- um. Ríkisstjórnin virðist einnig þeirrar skoðunar, að svigrúmið á næsta ári beri að nota til að leiðrétta launa- misrétti en ekki til teljandi almennrar kauphækkunar. Vinnuveitendasambandið bendir á, að lagt verði af stað um áramótin með 4-5 prósenta aukningu kaupmáttar milli ára. Aðalatriðið sé að varðveita þann mikla árang- ur. Þetta ætti að gefa til kynna, að unnt yrði að semja um meginatriði, án þess að beðið yrði nýrrar ríkisstjórn- ar. Sama stjórn kann að sitja áfram eftir kosningar. Geri hún það ekki, sýnir reynslan, að riokkuð langvinn stjórnarkreppa yrði líkleg. Formenn flokkanna mundu þá, hver af öðrum, fikta við að reyna að bræða saman stjórn. Þetta er okkar reynsla. Það gæti tekið langan tíma að koma saman nýrri ríkisstjórn, kannski mánuði. Lagfæring launa til að draga úr misrétti má ekki bíða. Þeir sem vilja aðeins bráðabirgðasamkomulag eru í pólitískum leik, sem launþegum yrði dýr. Eða eru ein- hverjir tilbúnir að bíða framundir mitt ár, eftir því að einhver ný ríkisstjórn bjóði eitthvað nýtt til lausnar kjarasamningum? í fyrsta lagi er ólíklegt, að slík stjórn byði eitthvað nýtt. í öðru lagi situr hvaða stjórn sem er uppi með fjárlagahallann mikla á næsta ári. Haukur Helgason. „Þess verður að krefjast að að þvi komi aö sú tæknikunnátta og sá dugnaður við lausn erfiðra verkefna, sem sérstakiega sannaðist að til væri hjá Landssímanum í sambandi við lausn mála í vikunni fyrir fund þeirra Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík, verði notaður til aö bæta úrelt og rangnefnt sjálfvirkt simakerfi víöa út um land.“ Úrelt Irfæð við heiminn Landssími Islands minntist 80 ára afmælis síns um síðustu mánaðamót. Um svipað leyti leysti Landssíminn og starfefólk hans vel af hendi alla þjónustu í sambandi við fund þeirra Gorbatsjovs og Reagans. Það hvað Landssíminn stóð sig vel í sambandi við leiðtogaíundinn mun í hugum margra vera staðfesting á þvi að sím- inn geti leyst verkefrii sín vel af hendi og sú prófraun hafi verið stofhuninni verðug afmælisgjöf. í sambandi við 80 ára afmælið gaf Póst- og símamálastofnunin út bækl- ing, „Lífæð við heiminn", til kynn- ingar á þróun og starfeemi fyrirtækisins. Þar stendur m.a.: „Fyrstu sjálfvirku símstöðvamar vom opnaðar í Reykjavík og Hafh- arfirði 1932. Árið 1950 bættist við sjálfvirk símstöð á Akureyri. 1960 vom teknar í notkun sjálfvirkar sím- stöðvar í Keflavík og nágrenni og vom þær með nýrri og ömggari veljurum, svokölluðum hnitvelj- urum. Um svipað leyti var gerð áætlun um sjálfvirkt simakerfi sem náði til allra helstu þéttbýlisstaða landsins og var hún framkvæmd á árunum 1965-76. Samkvæmt sér- stökum lögum frá 1981 hófust síðan framkvæmdir í -strjálbýli við að tengja síma allra landsmanna sjálf- virka símakerfinu. Þeim lauk á afmælisárinu 1986. Þá vom síðustu handvirku símamir teknir úr notk- un, en þeir vom í daglegu tali kallaðir sveitasímar." (Feitletrað Sk.Al.) Framkvæmdum er ekki lokið Hér er mikið sagt. Staðreyndin er nefnilega sú að framkvæmdum við sjálfvirkt símakerfi er hvorki lokið „til allra helstu þéttbýlisstaða" né í strjálbýlinu. Frá því „sjálfvirkt" símakerfi var, eins og sagt er, komið upp til þétt- býlisstaða á Vesturlandi hefur þetta kerfi aldrei nýst á þann hátt að hægt hafi verið að grípa til þess á svipaðan hátt og á Reykjavíkur- svæðinu, þ.e. að hægt hafi verið að nota símann án langrar yfirlegu til að ná sambandi við aðal þjónustu- og verslunarsvæði landsins og stundum jafnvel við næsta nágrenni. Sá sem hefur ætlað að nota þetta sjálfvirka kerfi hér á Reykjavíkur- svæðinu til að hafa símasamband vestur hefur lent í því sama. Við höfum beðið eftir því ár frá ári að „línum verði fjölgað", „komið verði upp nýjum tækjum" og línum hefur fjölgað og ný tæki hafa verið sett upp en ekkert hefur breyst nema þá kannski í nokkra daga eftir slíkar aðgerðir. Menn hafa spurt. Em tæknimál illa á vegi stödd hjá KjaUariim Skúli Alexandersson alþingismaður Alþýðubandalagsins Landssímanum, áætlanagerð illa unnin? Að svo sé er í sumum tilfell- um slegið föstu. Margt gert vegna leiðtoga- fundarins Svo kemur afmæli og leiðtoga- fundur. Það kemur ekki annað fram en allt sé í lagi hjá þessari stofnun. Hún gerir jafhvel það sem kalla mætti kraftaverk. Þorvarður Jónsson, yfirverkfræð- ingur Pósts og síma, segir t.d. í viðtali við Morgunblaðið um það hvað síminn stóð sig vel í sambandi við leiðtogafundinn: „Það stóð aldrei á þjónustu okkar og þeir sem hennar nutu vom mjög ánægðir með dugnað starfefólks okkar sem hefur staðið sig með mik- illi prýði. Erlendu fréttamennimir em kröfuharðir og hafa komið víða og þeir sögðust sjaldan eða aldrei hafa fengið jafnsnögga úrlausn allra mála. Talsímarásum um Skyggni var fjölgað úr 220 í um það bil 300, urn 600 leigulínur vom tengdar milli Is- lands og annarra landa. Sjálfvirkum línum til Bandaríkjanna var fjölgað úr 48 í 54 og auk þess var símasam- böndum breytt með þeim hætti að hringja mætti til Bandaríkjanna um London og þannig bættust við 32 lín- ur vestur um haf og því vom alls opnaðar þangað 86 línur. Þessi breyting var í undirbúningi fyrir fundinn og svo vildi til að henni var lokið fyrir hann, en breytingin er til frambúðar. í Reykjavík vom pantað- ar 800 sjálfvirkar línur og settar upp og auk þess 100 á Keflavíkurflug- velli. Þá var sett upp mikið af beinum samböndum milli staða í Reykjavík og milli Keflavíkurflug- vallar og Reykjavíkur, meðal annars 4 víra samband, bæði fyrir útvarp og talsendingar með sjónvarpi auk sjónvarpssambands með örbylgju. Þá vom sett upp 17 30 rása stafræn fjölrásatæki til að tengja saman ýmis svæði og lagðir ljósleiðara- strengir til að auka afkastagetu símakerfisins." Landsbyggðin þarf kraftaverk En það bar lítið á tæknikunnátt- unni eða kraftaverkum gagnvart símnotendum á landsbyggðinni, a.m.k. á Vesturlandi. Þess verður að krefjast að að því komi að sú tækni- kunnátta og sá dugnaður við lausn erfiðra verkefha, sem sérstaklega sannaðist að til væri hjá Lands- símanum í sambandi við lausn mála í vikunni fyrir fund þeirra Reagans og Gorbatsjovs í Reykjavík, verði notaður til að bæta úrelt og rang- nefnt sjálfvirkt símakerfi víða út um land. Eftirfarandi er haft eftir Jóni A. Skúlasyni, fyrrv. póst- og símamála- stjóra, og haft að lokaorðum áður- nefhds bæklings Póst- og símamála- stofiiunar, „Lífæð við heiminn". „Póstur og sími er byggður upp fyrir fjármagn frá notendum sjálfúm sem eru allir landsmenn. Má þvf með sanni segja að Póstur og sími sé stofnun allra landsmanna. Stofnunin á að vera vinur sem enginn kemst hjá að blanda geði við, séum við minnug orða Hávamála um þann vin sem við trúum vel og förum að finna oft.“ Það er kannski of mikið sagt að þessi lokaorð bæklingsins séu öfug- mæli. Mér finnst að þau lýsi frekar ósk en að verið sé að segja frá stað- reyndum - mætti sú ósk verða að veruleika. Skúli Alexandersson. „Menn hafa spurt. Eru tæknimálin illa á vegi stödd hjá Landssímanum, áætlana- gerð illa unnin? Að svo sé er í sumum tilfellum slegið föstu.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.