Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Síða 15
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
15
Svo undramargt er ógert enn
Afmælisþingi Þroskahjálpar er
nýlokið. 10 ár eru ekki langur tími,
en þó það drjúg vegferð að baki, að
full ástæða er til þess að líta annars
vegar um öxl og reyna að fanga þá
framtíðarsýn, sem fólk vill bezta.
Landssamtökin þroskahjálp ætti
ekki að þurfa að kynna, en að þeim
standa aðildarfélög alls staðar að af
landinu, styrktarfélög, foreldrafélög
og félög fagfólks. Allt er þetta fólk
þama samankomið til að vinna að
framþróun í málefniun þroskaheftra
á öllum sviðum, afla þeim réttinda,
hjálpar og hlutgengi í þjóðfélaginu
framar öðm.
Áfangasigrar
Á þessu afmælisþingi var litið til
baka um áratug og máske vel það,
og ekki fór milli mála að allir vom
sammála um það, að fjölmargir
áfangasigrar hefðu náðst, áfangar
að lokamarki, sem einnig var fúll-
ljóst, að enn er víðs fjarri, enda
spuming um það, hvort þessi barátta
fram á við á að taka enda, því ætíð
má betur gera í margri grein, þó
hver sigur sé sætur. Foreldrar
þroskaheftra, sem þama lýstu sinni
skoðun, sögðu marga múrana enn
þá sömu og fyrir tíu árum, þó marga
hefði náðst að mola einnig.
Sannarlega hefðu raddir þessa
fólks þurft að óma í eyrum enn fleiri
og nema sem beztan samhljóm hins
breiða fjölda, sem em aðeins lítt
meðvitaðir áhorfendur að ótrúlegum
erfiðleikum þessa fólks.
Merkasta framlagið á þessu lands-
þingi vom frábærlega vel unnar
skýrslur þeirra Bjama Kristjánsson-
ar, forstöðumanns á Akureyri, og
Friðriks Sigurðssonar, atvinnu-
málafulltrúa svæðisstjómar Reykja-
ness. Þar er bmgðið upp ljósum og
auðskildum myndum af ástandi og
þróun mála, m.a. og ekki hvað sízt
hlut samfélagsins til þessara mála
nú og áður, sem og athyglisverðum
samanburði við aðra félagslega
þjónustu í landinu og ekki hvað sízt
samanburði við Norðurlöndin og
nöturlegri staðreyndum þar fyrir
okkur, sem þó þykjumst þekkja til,
KjáOarirm
Helgi Seljan
alþingismaður
fyrir Alþýðubandalagið
en okkur hafði í raun órað fyrir.
Hins ber þó að geta að þessi mála-
flokkur var miklu lengur vanræktur
hér á landi en hjá frændþjóðum okk-
ar og eimir þar rækilega eftir. En
þó okkur finnist ótalmargt hafa
áunnizt og í fjölmörgu orðið miklar
framfarir þessi síðustu ár, m.a. bæði
ákveðin jákvæð viðhorfsbreyting og
allt önnur vinnubrögð, byggð á gjör-
ólíkum lausnum fyrir hina þroska-
heftu, þá veldur þessi skýrsla því að
við megum réttilega enn bera kinn-
roða af ýmsum samverkandi ástæð-
um. Hér eru ekki tök á að gera þessu
nein tæmandi skil en aðeins skal
gripið á því sem mest var sláandi
og enn og aftur komið að því megin-
máli, sem varðar fjármagn til þessa
málaflokks. Fyrst eru talnaupplýs-
ingar um íbúðarrými, en viðmiðun
þar er 1973. Fjöldi íbúa á heimilum
fyrir þroskahefta 1973 var 369 en
1985,435. Hér er ekki öll sagan sögð.
Á heimilum, sem störfuðu 1973, hefur
íbúum fækkað um 44. Ný heimili
eftir 1973 eru hins vegar alls 18 með
110 íbúum. Stórstofhanastefnan er
því á undanhaldi, en raunaukning
íbúðarrýma er þó aðeins 66. Gleði-
legasta staðreyndin eru sambýlin
með 92 íbúa nú, en voru 5 1973.
Lögboðin framlög skert
Alvarlegast alls í skýrslunni er
meðferðin á Framkvæmdasjóði fatl-
aðra, þar sem uppbygging nýrra
heimila ræðst. Athyglisverðastur er
munur á milli þeirra ára, sem fyrri
sjóðir giltu, þ.e. áranna 1980-1983,
og svo eftir að Framkvæmdasjóður
fatlaðra tók við með stórauknum
verkefnum 1984-1986. Framlög til
framkvæmda 1980-1983, námu á ári
að meðaltali 157 millj. að raungildi,
en árin 1984-86 aðeins 94 millj. Rík-
isvaldið hefur skert svo gífúrlega
lögboðin framlög þessi ár, að óhugn-
anlegt er, en óhrekjandi þó.
Athygli skal vakin á ártölum og
ríkisstjómum á þessum árabilum, og
haldi menn þvi svo fram að það sé
sama hver fer með fjármálavöld og
fjármagnsskiptingu'i landinu. Þess-
ar tölur segja meira en margar
ræður. Oftlega hefur verið réttlætt,
hversu framkvæmdasjóður hefúr
verið skertur með stóraukningu fjár-
magns til rekstrar nýrra stofnana
og víst eru verkefhin fleiri og fjöl-
þættari. Hins vegar kemur í ljós að
raunveruleg breyting hvað varðar
nýjar stofhanir og þjónustu frá 1980
er ekki nema um 84% á fjárlögum
1985 og fyirlög ársins 1986 breyta
engu stórkostlegu um þetta, því mið-
ur. Aukningin er áugljós, en miklu
minni en jafnvel kunnugir hefðu
haldið. Þetta rakti ég raunar í fjöl-
miðlum í fyrra eftir dæmalausar
yfirlýsingar ráðherra um margfold-
un fjár til þessara mála. Skýrslan
nú sannar mál mitt óþyrmilega.
ísland neðst á blaði
Þó kom fátt eins illa við þingfull-
trúa og beinn samanburður við
útgjöld til þjónustu við aldraða og
öryrkja sem hlutfall af vergri þjóðar-
framleiðslu. Þar erum við 1983 neðst
á blaði með 0,2%, Norðmenn 0,5%,
Finnar 0,8%, Svíar 2,2% og Danir
3,4%. Og sízt hafa síðustu ár bætt
um betur. Þessar sláandi tölur ættu
að segja úrtöluafturhaldi frjáls-
hyggjunnar þá sögu, sem ætti að
duga því til að þegja um bruðl og
sóun samfélagslegra verðmæta í
„óarðbæra" þjónustu, eins og kenn-
ing þeirra segir þeim að kalla
þjónustu þessa eðlis.
Von mín er sú að skýrsla þeirra
Bjama og Friðriks eigi eftir að hljóta
verðuga og mikla kynningu, svo sem
hún á skilið. En ffarnar öðru er mér
þó ljós sú staðreynd sem einum af
stofhendum Þroskahjálpar, að þrátt
fyrir ýmislegt, sem áunnizt hefur, er
þó undramargt ógert enn. Tölurnar
úr skýrslunni, kaldar staðreyndim-
ar, kalla á okkur og knýja til enn
djarfari sóknar í þessum málaflokki,
sem má aldrei vera hornreka'í vel-
ferðarþjóðfélagi því sem meginþorri
þjóðarinnar vill að hér sé haldið
uppi af fullri reisn.
Helgi Seljan.
„En þó okkur finnist ótaimargt hafa áunnist og í fjölmörgu orðið miklar
framfarir þessi síðustu ár, m.a. bæði ákveðin jákvæð viðhorfsbreyting og
allt önnur vinnubrögð, byggð á gjörólíkum lausnum fyrir hina þroskaheftu,
þá veldur þessi skýrsla því að við megum réttilega enn bera kinnroða af
ýmsum samverkandi ástæöum."
„Ríkisvaldið hefur skert svo gífurlega lög-
boðin framlög þessi ár, að óhugnanlegt er,
en óhrekjandi þó.“
Bandalag jafnaðarmanna lifir
Á þeim stutta tíma sem liðinn er
frá brotthlaupi flugumanna annarra
flokka og ýmissa óþurftarmanna
innan Bandalags jafnaðarmanna
höfum við sem eftir stöndum innan
forustusveitar BJ fundið fyrir ótrú-
legum stuðningi hins almenna
borgara og fengið að finna hjá fólki
siðgæðisvitund sem fyrirlítur allt
samningamakk sem viðgengst hjá
stjórnmálamönnum í skúmaskotum
og dimmum bakherbergjum.
Eru stjóramál einkamál fjór-
flokksins og hagsmunagæðinga
hans? Við skulum minnast þess að
íslensk stjómmál eru að stórum
hluta orðin að atvinnu einstakra
hagsmunagæslumanna, öðru nafni
þingmanna fjórflokksins, með mikil
fjárráð og hinn almenni borgari hef-
ur sífellt minni áhrif á gang lands-
mála.
í reynd hefur það sýnt sig að þó
upp komi hæfir einstaklingar og fólk
með nýjar hugmyndir þá eiga við-
komandi erfitt uppdráttar og enda
oftar en ekki sem embættismenn
hagsmunagæslunnar.
Það er skelfilegt til þess að vita
að ýmsir hópar, sem myndast hafa
og eru óháðir allri flokkspólitík og
hafa ýmis réttlætismál á sínum
snærum, samanber hópinn um jafn-
rétti á milli landshluta, Sigtúns-
hópinn o.fi. o.fl., skuli ekki ná meiri
árangri en að vekja upp umræður
um skamman tíma og fá nokkur lof-
orð stjómmálamanna sem síðan er
stungið ofan í skúffú og látin ryk-
falla og gleymast að lokum þar.
Þessi og ótalmörg dæmi önnur
sýna okkur bandalagsfólki og sanna
að þessu kerfi þarf að breyta en því
miður verður kerfinu ekki breytt
nema innan frá, það er með stjóm-
kerfisbreytingu.
Innan regnhlífar Bandalags jafn-
aðarmanna er vítt til allra átta og
bandalagsfólk er áhugafólk um pól-
itík og hugsjónafólk með margar
hugmyndir sem geta breytt íslensku
þjóðfélagi til hins betra. Við lítum
niður á stjómmálamenn sem hafa
flokks- og eiginhagsmuni að leiðar-
ljósi en gleyma einstaklingnum. Því
skorar Bandalag jafnaðarmanna á
einstaklinga um land allt sem hafa
áhuga á siðferði og réttlæti í stjóm-
málum að koma til liðs við Bandalag
jafnaðarmanna.
Ný forusta
I kjölfar fundar, sem varð þess
valdandi, sökum eiginhagsmuna og
einræðistilhneiginga Guðmundar
Einarssonar og Stefáns Benedikts-
sonar, að þorri fundarmanna lagði
niður störf fyrir BJ, komu saman
nokkrir aðilar úr fomstusveit BJ
saman til fundar í Hainarfirði.
Niðurstaða þess fundar varð eftir-
farandi:
1. U.þ.b. helmingur landsnefndar,
aðili úr fyrrverandi landsnefnd og
öll framkvæmdanefnd BJ ákváðu
að halda áfram störíúm þar til
landsfundur verður haldinn og
ákveður nýja fomstu fyrir Banda-
lag jafriaðarmanna.
2. Fundurinn vítti frammistöðu
hinna pólitísku fulltrúa Banda-
lags jafnaðarmanna.
3. Fordæmt var brotthlaup fyrrver-
andi þingmanna BJ og skorað á
þá að segja af sér þingmennsku
til að hægt yrði að kalla inn vara-
Kjallariim
Alfreð Guðmundsson
þingmenn til setu á Alþingi og
endurreisnar þingflokks Banda-
lags jafriaðarmanna.
4. Ákveðið var að stefna að fram-
boði Bandalags jafnaðarmanna í
öllum kjördæmum í komandi al-
þingiskosningum.
Starf landsnefndar og fram-
kvæmdanefndar
Nú að þremur vikum liðnum er
hægt að tala um sjáanlegan árangur
af starfi landsnefndar og fram-
kvæmdanefndar.
I fyrsta lagi má nefna erindi frá
landsnefnd og framkvæmdanefnd BJ
til forseta sameinaðs Alþingis um
í framkvæmdanefnd
Bandalags jafnaðarmanna
„Við skulum minnast að íslensk stjórnmál
eru að stórum hluta orðin að atvinnu ein-
stakra hagsmunagæslumanna, öðru nafni
þingmanna fjórflokksins,...“
beiðni til Alþingis um að farið verði
að stjórnarskrá og lögum um að fyrr-
verandi þingmenn BJ hverfi af
Alþingi og varaþingmenn verði kall-
aðir inn til að hægt verði að endur-
reisa þingflokkinn. Svar hefur ekki
borist frá forseta en við væntum
svars innan tíðar.
I öðm lagi væntum við þess að fjár-
munir, bókhaldsgögn og lausafjár-
munir, sem eru undir höndum
þingmanna Alþýðuflokksins, verði
afhent formanni framkvæmdanefnd-
ar BJ þessa dagana.
í þriðja lagi eru húsnæðismál BJ
komin í lag og skrifstofa BJ að
Templarasundi 3, Reykjavík, er tek-
in til starfa og verður þar framvegis
svarað í símum 21399 og 21833.
í fjórða lagi hefur verið ákveðið
að halda opna almenna umræðu-
fundi á fimmtudagskvöldum kl. 20
og vinnufundi eftir hádegi á laugar-
dögum.
í síðasta lagi er í öðm bréfi til for-
seta sameinaðs Alþingis bent á að
félag Alþýðuflokksins hefur helgað
sér þingflokksherbergi Bandalags
jafnaðamianna.
í framhaldi af því er sú ósk borin
upp í bréfinu að herbergið verði rýmt
og það falið umsjá þingvarða, enda
mun koma til endurreisnar þing-
flokks BJ komi varaþingmenn inn.
Framboðsmál
Nú þegar núverandi fomstusveit
Bandalags jafnaðarmanna hefúr af-
greitt af höndum sér brotthlaups-
menn og flugumenn annarra flokka
þykir rétt að greina frá framboðs-
málum.
Kjördæmisráð í Reykjaneskjör-
dæmi hefur lagt fram fullskipaðan
fi'amboðslista fyrir næstu alþingis-
kosningar.
Framboðsmál í Revkjavík, á Norð-
urlandi vestra, Norðurlandi eystra
og Suðurlandi em í fúllum gangi og
em aðilar úr BJ innan þessara
svæða komnir með drög að fram-
boðslistum.
Ákveðið hefur verið að nokkrir
félagar úr fomstusveit BJ fari í
ferðalag um flest kjördæmi landsins
og em félagar og stuðningsmenn BJ
í öllum kjördæmum beðnir að hafa
samband við skrifstofu BJ í Reykja-
vik.
Alfreð Guðmundsson.
„...bandalagsfólk er áhugafólk um pólitík og hugsjónafólk, með margar
hugmyndir sem geta breytt íslensku þjóðfélagi til hins betra. Við lítum niður
á stjórnmálamenn sem hafa flokks- og eiginhagsmuni að leiðarljósi..."