Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Page 16
16
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Spumingin
Hvernig leggst
veturinn í þig?
Drífa Tryggvadóttir nemi: Eg held
bara vel enn sem komið er, það er
allavega allt í lagi með veðrið.
Svanhvít Sigurgeirsdóttir af-
greiðsludama: Hann leggst vel í mig,
veðrið er búið að vera mjög gott það
sem af er.
Ragna Stefánsdóttir bókasafnsfræð-
ingur: Byrjunin er mjög góð, þannig
að ég er mjög sátt við þetta.
Dóra Ósk Halldórsdóttir setjari: Ég
er mjög ánægð með veðráttuna eins
og er og vona bara að veðrið haldi
áfram að vera svona gott.
Erla Viðarsdóttir skrifstofumaður:
Ágætlega það sem af er.
Sigurður Þorsteinsson smiður: Mér
líst mjög illa á veðrið og finnst mér
það ekki næstum því eins gott og það
hefur verið undanfarin ár.
Lesendur
Flokkaskipti þingmanna
Þingmenn BJ ganga i nýjan fiokk á miðju kjörtímabili án samráðs við kjósendur sina.“
Halldór Kristjánsson skrifar:
Guðmundi Guðmundssyni og öðr-
um ámóta til leiðbeiningar skrifa ég
fáein orð. Hann nefnir ýmsa þing-
menn sem skipt hafa um flokk.
Fæstir þeirra færðu sig milli flokka
sitjandi á þingi á miðju kjörtímabili.
Áki Jakobsson bauð sig fram fyrir
Alþýðuflokkinn nokkrum árum eftiy
að hann var þingmaður Sameining-
arflokks alþýðu, Sósíalistaflokksins.
Ásgeir Ásgeirsson bauð sig fram ut-
an flokka 1934. Bjöm Jónsson bauð
sig fram fyrir Frjálslynda og vinstri
menn 1971. Gils Guðmundsson var
þingmaður Þjóðvamarflokksins og
bauð sig fram fyrir Alþýðubandalag-
ið eftir að Þjóðvamarflokkurinn var
úr sögunni. Hannes Jónsson bauð
sig fram fyrir Bændaflokkinn 1934
þegar sá flokkur var stofnaður að
frumkvæði þeirra er yfirgáfu Fram-
sóknarflokkinn. Héðinn Valdimars-
son var einn af stofnendum
Sameiningarflokks alþýðu þar sem
hann vildi sameina Alþýðuflokkinn
og Kommúnistaflokkinn. Karvel
Pálmasson færði sig heldur aldrei á
milli flokka á miðju kjörtímabili.
Þá er enginn eftir'af þeim mönnum
sem Guðmundur nefndi nema
Hannibal Valdimarsson. Hvað sem
annars verður sagt um stjómmála-
feril hans henti það hann aldrei að
hlaupa úr þeim flokki sem hafði
kosið hann á þing og ganga til liðs
við annan flokk áður en kjörtíma-
bili lauk. Upphlaup hans og pólítísk
vistaskipti vom einkum í sambandi
við kosningar.
Enginn þessara manna hefur gefið
fordæmi þess sem nú hefur hent
þingmenn Bandalags jafhaðar-
manna. Þeir buðu sig fram fyrir
sérstakan flokk,. gegn öllum öðrum.
Þegar eitt þing er eftir að kjörtíma-
bili ganga jseir í einn hinna flokkana
án þess að hafa nokkurt samráð við
flokkssamtök sín.
Alltaf er hugsanlegt að flokkar
klofni vegna ágreinings um stefhu
eins og henti Framsóknarflokkinn í
árslok 1933 og Alþýðuflokkinn 1938.
Þá geta einstakir þingmenn ekki
fylgt hvorum tveggja.
Hitt er einsdæmi að þingmönnum
stjórmálaflokks hafi órðið það til
ráðs að ganga þegjandi og hljóða-
laust á miðju kjötímabili í annan
flokk án alls samráðs við kjósendur
sína. Allt annað væri að koma í
framboð fyrir nýjan flokk þegar þar
að kemur.
Þjónustan góð í Bókasafni Garðabæjar
Anna Kristjánsdóttir hringdi:
Ég vil mótmæla kröftuglega umsögn
frá 5653-1928 er birtist í DV 24. októb-
er og kvartar um lélega þjónustu í
Bókasafni Garðabæjar. Ég hef notað
safnið frá því að það var stofnað og
alltaf fengið fyrsta flokks þjónustu.
Veit ég að þetta er mjög vinsæl stofn-
un hér í bæ og einnig mikið notuð og
eru flestir mjög ánægðir með þjón-
ustuna er þar er boðið upp á.
íslendingar
eru sídrukknir
sérvitnngar
iigur
lsland var á alfra vörum er leið-
togafundurinn stóð yfir. Er náttúr-
lega mjög gott hvað við íslendingar
fengum góða auglýsingu á landi og
þjóð vegna fundarins. Én það leiðin-
lega við þetta allt var að dvöl hersins
á Islandi skyggði á allar umræður
fólks um landið. Raunin er sú að í
augum Bandaríkjamanna er ísland
baua herstöð og þar að auki illa
þokkuð herstöð þar sem hermenn-
imir verða að fara úr einkennis-
búningunum sínum til að fara ferða
sinna utan herstöðvarinnar. ísland
er ekki skynjað af Bandaríkjamönn-
um sem sjálfstæð þjóð heldur sem
illa þokkað útvirki, byggt sídrukkn-
um sérvitringum. Staðreyndin er sú
að öllum er í nöp við þetta kalda
virki á útjaðri heimsins.
Sem sé, Bandaríkjamenn sjá Island
aðeins með augum hersins. Kom það
greinilega í ljós í útvarpi og blaða-
viðtölum við bandarískan almenn-
ing núna síðustu vikumar. Það má
kannski til sanns vegar færa að þjóð
með útlendan her í landi sínu til
þess að annast vamir landsins er
bara pínulítið sjálfstæð. Svo að Kan-
amir hafa að nokkm rétt fyrir sér
er þeir líta ekki á ísland sem þjóð
heldur sem illa þokkaða herstöð.
„ísland var mikið til umræðu vegna leiðtogafundarins."
„íþróftaþættirnir á Stöð 2 mættu vera fjölbreyttari."
Stöð 2
Þ.G. skrifar:
Jæja, nú get ég ekki orða bundist
lengur eftir að hafa horft á íþróttaþátt
Stöðvar 2. Frá því að íþróttir hófust á
þessari nýju sjónvarpsstöð hefur vest-
ur-þýskur fótbolti ráðið þar ríkjum.
Ég vonaði nú að loksins þegar Stöð 2
færi að sýna fþróttir yrðu þær kannski
öriítið fjölbreyttari en íþróttimar hjá
RÚV en samkvæmt öllu er fram er
komið virðist raunin ætla að verða
önnur. Mér finnst Stöð 2 hafa sýnt
með þessu að íþróttaþátturinn hjá
þeim getur ekki einu sinni staðið und-
ir nafni enda em fleiri greinar innan
íþróttasambandsins en fótbolti. Þar
má til dæmis nefna sund, handbolta
og körfubolta, svo ekki sé minnst á
frjálsar íþróttir. Eftir að búið er að
koma þessu á framfæri vona ég bara
að stöðvarmenn sjái sig um hönd og
sýni fleiri íþróttagreinar.
Annars er ég mjög ánægð með Stöð
2 og vil þakka stöðinni fyrir hina stór-
góðu myndaflokka eins og Miami Vice
og teiknimyndimar skemmtilegu um
góða drauginn Kaspar.