Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Blaðsíða 18
18
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
fþróttir
Nýr stjóri
hjá Bróssum
Brasilíska knattspyrnusam-
bandið hefur loks fundið eftir-
mann fyrir Tele Santana sem það
fékk til að taka við brasilíska
landsliðinu sem „neyðarúrræði"
fyrir heimsmeistarakeppnina í
Mexíkó í sumar.
Hinn nýi herra landsliðsins
heitir Jair Percira og er þekktur
í heimalandi sínu og víða sem
þjálfari og fyrrum knattspyrnu-
maður. -klp-
Sú sænska
gerði það
gott í
golfinu
Svíar hafa ekki aðeins verið að
gera það gott í keppni atvinnu-
manna i golfi í Evrópu í ár heldur
einnig í keppni atvinnukvenna.
Sérstiiklega er það þó ein stúlka
sem það gerir. Hún heitir Lotta
Neuman og er þetta hennar fyrsta
ár í þessum mótum. Samtals hefur
hún fengið í verðlaunafé á þessu
keppnistímabili yfir 33 þúsund
sterlingspund liðlega tvær
milljónir ísl. króna.
Varð hún önnur tekjuhæsta
konan í keppni þeirra kvenna
sem hafa atvinnu af þvi að leika
golf í Evrópu í ár. Sú sem varð
tekjuhæst var breska stúlkan
Laura Davies sem vann sér inn
36.377 pund á árinu.
Síðasta keppni kvennanna í ár
var í síðustu viku á La Manga á
Spáni. Fyrir þá keppni var Lotta
búin að hala inn mest af aurum.
En í þessu móti varð hún í 26.
sæti og fékk lítið fyrir það. Laura
v'arð aftur á móti í 1. sæti í mót-
inu og fékk 3.750 pund fyrir. Það
nægði henni til að komast upp
fyrir þá sænsku. -klp-
Norman efstur í USA
Ballesteros í Evrópu
Skarphéðinn
• Ingrid Kristiansen.
Hlaupið fyr-
ir peninga
Það má segja að það séu peningur í
hverju skrefi hjá þeim sem best standa sig
í hlaupum í heiminum í dag. Einna mestur
er peningurinn hjá þeim sem allir halda
að séu tandurhreinir áhugamenn og koma
ffú löndum þar sem íþróttaforustan sver
og sárt við leggur að hjá þeim sé ekki til
neitt annað en áhugamennska.
Eitt þessara ianda er Noregur og einn
þeirra fjölmörgu hlaupara, sem keppirsem
áhugamaður hvar sem er en fær greitt
stórfé fyrir að keppa, er norska hlaupa-
drottningin Ingrid Kristiansen.
I Dagblaðinu norska var sagt frá því á
dögunum að Ingrid þeirra gæti unnið sér
inn liðlega 150 þúsund dollara og jafnvel
enn meira en það ef hún sigraði í Chicago
maraþonhlaupinu en það fór fram í
Chicago um síðustu helgi.
Blaðið sagði að hún fengi 40 þúsund
dollara fyrir það eitt að mæta í mótið.
Hún fengi aðra 40 þúsund dollara fyrir
að sigra í mótinu. Þá fengi hún 25 þúsund
dollara ef hún bætti met Joan Benoit, sem
var 2:21.21 og ef hún bætti sitt eigið met,
sem er 2:21.06, fengi hún 50 þúsund doil-
ara að auki..
Ekki tókst þeirri norsku að ná í alla
þessa dollarahrúgu í þetta sinn. Að sjálf
sögðu sigraði hún í hlaupinu - og fékk
sína 40 þúsund dollara fyrir það - og hin
40 þúsundin fyrir að mæta. En hún missti
af 25 þúsundunum og 50 þúsundunum því
tími hennar í þessu hiaupi - vegalengdin
42,195 km - var 2:27.09. Engu að síður er
það nokkuð gott kaup fyrir um tveggja
og hálfrar klukkustundar langt hlaup að
fá 80 þúsund dollara og halda samt enn
áhugamannaréttindunum. -klp-
Nú er stærstu atvinnumannamót-
unum í golfi á þessu keppnistímabili
lokið. Keppnistímabilinu í Evrópu
lauk um síðustu helgi með Portugal
Open og aðeins eru nokkur minni
húttar mót - í það minnsta hvað
verðlaunaféð snertir eftir í Banda-
ríkjunum.
í gær var gefinn út listinn yfir þá
kylfinga sem hafa unnið sér inn
mestu upphæðirnar á þessu keppnis-
tímabili sem eru ekki neinir smáaur-
ar. Skiptir upphæðin sem þessir
menn vinna sér inn á einu keppnis-
tímabili milljónum íslenskra króna.
Það sést best á þessum lista hér á
eftir en þar eru skráð nöfnin og upp-
• Greg Norman frá Astralíu er ekki
á flæðiskeri staddur peningalega.
9. Bernhard Langer.......337.300
10. John Mahaffey.........375.672
Allir þessir menn nema Greg
Norman (Ástralíu) og Bernhard
Langer (V-Þýskalandi) eru
Bandaríkjamenn.
Evrópa:
Steve. Ballesteros, Spáni..346.558
J. Maria Olazabal, Spáni...195.558
Howerd Clarl, Bretlandi....174.319
Ian Woosnam, Bretlandi.....159.971
Gordon Brand, Bretlandi....152.029
Mark McNulty, Zimbabe......144.897
Rodger Davis, Ástralíu.....136.462
Anders Forsbrand, Svíþjóð..121.129
Ronan Rafferty, Bretlandi..114.879
Gordon Brand jr., Bretlandi ...112.453
Vert er að geta þess að keppnis-
tímabilið í Evrópu er mun styttra en
i Bandaríkjunum og verðlaunaféð oft
ekki eins hátt þar.
Það sem vekur mesta athygli á
þessum Evrópulista er gott gengi
Svíans Anders Forsbrand en þó mest
frábær árangur hins unga Spánverja
Jose-Maria Olazabal.
Þetta var hans fyrsta ár sem at-
vinnumaður í golfi. Hann vann sér
atvinnumannaréttindin með því að
sigra í keppninni eða skólanum sem
þeir Ragnar Ólafsson og Sigurður
Pétursson tóku þátt í á Spáni sl.
haust. Þaðan komust þeir efstu í at-
vinnumennskuna. Olazabal var spáð
glæstri framtíð í íþróttinni en enginn
átti von á þessum árangri hjá honum
strax á fyrsta ári. -klp-
hæðin sem þeir bestu höfðu á árinu.
Þarna er aðeins um verðlaunafé úr
mótum að ræða. Þar fyrir utan hafa
þessir menn annað eins ef ekki meira
í tekjur fyrir auglýsingar og annað
er varðar golfið og fleira.
Þeir tekjuhæstu eru þessir, upp-
hæðin er í bandarískum dollurum.
Bandaríkin:
1. GregNorman............653.2%
2. Bob Tway.............647.780
3. Payne Stewart........535.389
4. Andy Bean............491.939
5. Dan Pohl.............461.130
6. Hal Sutton...........429.434
7. Tom Kite.............394.164
8. Ray Floyd............390.508
•Severiano Ballesteros þénaði
mest allra kylfinga í Evrópu.
I
I
„Botnliðið í deildinni
„iyefviixxefxu jl iavíjvuuj-jí sagði í texta með þessai
Það skýrir sig að sjálfeögðu þegar maður veit hvaðan myndin og textinn kemur
jafnvel íþróttafréttamenn, oft i léttu skapi. Textinn er heldur ekkert rangur. 1
Irlandi og varð í neðsta sæti í írsku kvennadeildinni í hurling sem er sérstök i
• Það er munur að geta migið standandi eða hvað? Þessi mynd var tekin fyrir knattspyrnuleik í Laugardalnum í haust
og sýnir vel það aðstöðuleysi sem fyrir hendi er og ekki sér fyrir endann á. Hvemig hefði farið ef kvenfólk hefði átt hlut
að máli? DV-mynd Gunnar Sverrisson
réð ekki
við Kjartan
Bikarinn hvarf
og hesturinn lést
Frægt varð þegar styttunni sem
veitt var heimsmeisturum í knatt-
spyrnu var stolið hér um árið. Hún
fannst og önduðu þá allir knatt-
spyrnuáhugamenn um allan heim
léttar.
Nú hefur annarri frægri styttu ve-
rið stolið. Er það hinn frægi „Chelt-
enham Golf Cup" en það eru fínustu
verðlaun sem veitt eru í hestahlaup-
um á öllum Bretlandseyjum.
Gripurinn, sem er um 25 sm hár
og úr skíragulli, var í varðveislu
hefðarfrúarinnar í County Water-
ford Hill á írlandi. Var hann hjá
henni eftir að hestur hennar, Dawn
Run, hafði unnið þennan eftirsótta
grip í mars sl.
Ekki kemur til þess að hann vinni
hann aftur - þó svo að gripurinn, sem
metinn er á yfir 16 þúsund sterlings-
pund, komi aftur í leitirnar. Dawn
Hill lést á hlaupabrautinni 1 París í
júlí sl. eftir að hafa hálsbrotnað við
fall yfir hindrun.
-klp-
„Kjartan Busk var illviðráðanleg-
ur,“ ságði Torfi Rúnar Kristjánsson,
þjálfari Skarphéðinsmanna, eftir tap
gegn HK í karladeildinni í blaki á
Laugarvatni í gærkvöldi.
Kópavogspiltar sigruðu 3-0; 15-11,
15-11 og 15U3. I lokahrinunni höfðu
Sunnlendingamir lengst af yfirhönd-
ina en töpuðu á endasprettinum.
I fyrrakvöld steinlágu Víkingar íyrir
meisturum Þróttar nokkuð óvænt.
Þróttur sigraði 3-0; 15-10, 15-8 og
15-4. Búist hafði verið við meiri mót-
spymu af hálíú Víkinga, sem annars
hafa byrjað veturinn mjög vel.
-KMU