Dagblaðið Vísir - DV - 31.10.1986, Síða 24
36
FÖSTUDAGUR 31. OKTÓBER 1986.
Smáauglýsingar - Sími 27022 Þverholti 11
Austurbrún. 2ja herb. íbúð í háhýsi til
leigu. Tilboð sendist DV, merkt „Stór-
kostlegt útsýni“.
Til leigu herbergi í Hlíðunum. Uppl. í
síma 15073 eftir kl. 18. .
' ■ Húsnæöi óskast
Ung hjón, 26 og 28 ára, með ‘A árs
barn, óska eftir 3ja til 4ra herb. íbúð
í mið- eða vesturbænum sem allra
fyrst. Góðri umgengni heitið ásamt
skilvísum greiðslum. Fyrirfram-
greiðsla möguleg. Uppl. í síma 621468
á kvöldin og um helgar.
Ung reglusöm hjón með tvö börn, 2ja
og 6 ára, óska eftir 3-4 herb. íbúð í
Kóp., allir fjarverandi á daginn í skól-
um og vinnu, fyrirframgr. möguleg,
og/eða öruggar mánaðargr. Allar
frekari uppl. gefnar í síma 42526 á
—-kvöldin og um helgar.
Kópavogur. Okkur bráðvantar íbúð í
Kópavogi sem allra fyrst, til greina
kemur heimilishjálp ef óskað er. Fyr-
irframgr. og meðmæli. Sími 44596.
Læknir, nýkominn utan at landi, óskar
eftir 3-4ra herb. íbúð sem fyrst. Fjögur
í heimili. Reglusemi og öruggar
greiðslur. Uppl. í síma 28257 eða 71256.
23 ára stúlka í háskólanámi óskar eftir
herbergi á leigu, með eldunar- og bað-
aðstöðu, eða leigja íbúð með öðrum,
helst í miðbænum eða nálægt Háskól-
anum, heimilisaðstoð kemur til
greina. Uppl. í síma 19695.
27 ára karlmaður, nýkominn úr námi
erlendis, óskar eftir einstaklings- eða
2ja herb. íbúð. Mjög góðri umgengni,
reglusemi og skilvísum greiðslum
heitið, einhver fyrirframgreiðsla ef
óskað er. Uppl. í síma 31158.
Húseigendur, athugið. Höfum leigjend-
ur að íbúðum, sérstaklega 2-3 herb.,
einnig að öðru húsnæði. Opið kl. 10_
17. Húsnæðismiðlun Stúdentaráðs HÍ,
sími 621080.
26 ára reglusaman blaðamann og
kennara bráðvantar 2ja herb. íbúð til
leigu, öruggar greiðslur og góð um-
gengni. Uppl. í síma 34612 eftir kl. 14.
Athugið! 26 ára skóladreng bráðvantar
einstaklingsíbúð. Lofa öllu sem aðrir
lofa og stend við það. Uppl. í síma
18122 eftir kl. 18.
Breiðholt. Reglusöm hjón með eitt
barn óska eftir 2ja-3ja herb. íbúð til
leigu frá 1. des., góðri umgengni heit-
ið. Uppl. í síma 75747 eftir kl. 18.
Tvær ungar stúlkur óska eftir 2-3 herb.
íbúð, einhver fyrirframgr. og öruggar
mánaðargreiðslur Uppl. í síma 97-8328
og 99-6052.
Einhleypur maður óskar eftir einstakl-
ings- eða 2 herbergja íbúð. Uppl. í síma
71158.
Vantar tveggja herb. íbúð, helst í mið-
bænum, engin fyrirframgreiðsla,
reglusemi. Sími 34970.
Einstæða 2 barna móður, sem er í námi,
vantar tilfmnanlega íbúð, helst í Ár-
bæjarhverfi (þó ekki skilyrði). Ein-
hver fyrirframgreiðsla og öruggar
mánaðargreiðslur. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-1559.
Hjúkrunarfræðingur, sem starfar á
Borgarspítalanum, óskar eftir 2ja-3ja
herb. íbúð til leigu sem fyrst. Uppl. í
síma 651806 eftir kl. 16.
■ Atvinnuhúsnæði
Óskum eftir að taka á leigu 60-100 m2
vinnuaðstöðu fyrir ljósmyndavinnu.
Símar 622463, 621871 eða 33424 eftir
kl. 17.
Til leigu 60 ferm, 3 herb. og snyrting á
jarðhæð. Sími 40239.
Geymsla fyrir eina bifreið óskast í u.þ.
b. 4 mán., frá 1. nóv. ’86 til 1. mars
’87, lögð er áhersla á þrifalega um-
gengni í geymslunni. Uppl. í síma
16640.
Verslunarhúsnæði. Til leigu 75 fm
verslunarhúsnæði á götuhæð nálægt
Laugaveginum. Góðir gluggar, laust
fljótlega. Hafið samband við auglþj.
DV í síma 27022. H-1538.
Lítil heiidverslun óskar eftir 1-2 skrif-
stofuherbergjum. Hafið samband við
auglþj. DV í síma 27022. H-1577.
■ Atvinna í boði
Spennandi starf í nýju fyrirtæki. Einn
af viðskiptavinum okkar vantar
starfsmann til þess að hafa umsjón
með efnisvinnslu, sníðagerð, sauma-
skap, gæðaeftirliti og pökkun í nýju
fyrirtæki. Nánari uppl. gefur auglýs-
ingastofan Gott fólk, Ármúla 15, sími
39600.
Kona eða maður óskast til að gæta
sjúklings hálfan daginn 2-3svar í viku
eftir samkomulagi. Uppl. í síma 41530.
Beitingarmenn óskast til starfa í Hafn-
arfirði. Uppl. í síma 52376.
Okkur vantar hressa stúlku á kaffiter-
íu, vaktavinna. Uppl. í síma 12940.
Óskum eftir að ráða stúlkur til fram-
leiðslustarfa nú þegar. Unnið í bónus.
Mjög góðir launamöguleikar. Hafið
samband við auglþj. DV í síma 27022.
H-1492.
Plastiðnaður. Vel staðsett iðnfyrirtæki
óskar eftir stúlkum á tvískiptar vakt-
ir. Góðir tekjumöguleikar. Uppl. í
síma 27542 milli 10 og 17.
Kleppsvegur. Kona óskast til að sjá
um ræstingu á sameign í fjölbýlis-
húsi, mæting 1-2 í viku. Uppl. í síma
686204 eftir kl. 19.
Skalli, Hafnarfirði. Okkur vantar röska
ög ábyggilega stúlku til starfa strax.
Uppl. á staðnum milli kl. 17 og 19.
Skalli, Reykjavíkurvegi 72.
Oskum að ráða starfskraft allan dag-
inn, einnig starfskraft einu sinni í
. viku. Uppl. í Veislumiðstöðinni, Lind-
argötu 12, og í síma 10024.
Vantar goff starfsfólk til afgreiðslu-
starfa í matvöruverslanir hálfan og
allan daginn. Uppl. hjá ráðningar-
þjónustu Kl, Húsi verslunarinnar, 6.
hæð.
Komandi kjarasamningar:
Frestað til vors?
Þeirrí hugmynd vex fylgi að gera bráðabirgðasamninga um áramót
Karl Bjarkason, járnamaður á Húsavík, bindur í nýja byggingu sýsluskrif-
stofunnar og lögreglustöðvarinnar. Rúllunni snúið, virinn utan um, það er
járn i járn í nýju lögreglustöðina. DV-mynd JGH
DV á Húsavík:
Jám í jám hjá löggunni
Um næstu áramót renna kjara-
samningar verkalýðsfélaganna og
VSÍ út, sem og samningur BSRB og
ríkisins. Enn hefur verkalýðshreyf-
ingin ekki mótað endanlegar kröfur,
en foringjar hennar hafa nefnt eitt
og annað sem þeir telja að nást verði
fram í komandi samningum. Þröstur
Ólafsson, hagfræðingur Dagsbrúnar,
leggur til að um áramót verði aðeins
gerðir bráðabirgðasamningar en
beðið til vors eftir að ný ríkisstjóm
taki við völdum og við hana verði
síðan samið á svipuðum nótum og í
febrúarsamningunum.
Þröstur sagði í samtali við DV að
þessari hugmynd sinni hefði verið
heldur vel tekið og hún hefði m.a.
verið rædd í trúnaðarmannaráði
Dagsbrúnar og fengið jákvæðar
undirtektir. Á sunnudaginn kemur
verður félagsfundur í Dagsbrún um
kjaramálin og þar verður þessi hug-
mynd rædd.
Karl Steinar Guðnason, varafor-
maður Verkamannasambandsins,
hefur opinberlega tekið undir hug-
mynd Þrastar, sem bendir til þess
að innan Verkamannasambandsins
eigi hugmyndin stuðning
Halldór Bjömsson, varaformaður
Dagsbrúnar, segir hugmyndina góða
en hann segist efast um að hún sé
framkvæmanleg. Segist hann efast
um að VSÍ ljái máls á þessu og að
það þurfi tvo til þegar um samninga
sé að ræða.
Ásmundur Stefánsson, forseti ASl,
telur að það geti verið vafasamt að
semja við ríkisstjóm sem aðeins á
eftir að sitja í nokkra mánuði. Ekki
þá nema með því móti að draga
stjómarandstöðuna til ábyrgðar í
slíkum samningum. Ásmundur segir
að það liggi ljóst fyrir að þrennt sé
mikilvægast í komandi kjarasamn-
ingum. I fyrsta lagi að afnema lægstu
kauptaxta til að hækka laun þeirra
lægst launuðu, færa taxtana að
greiddu kaupi og að auka fasta hlut-
ann í kaupaukakerfinu. Hann telur
þetta líklegast til að skila láglauna-
fólki auknum hlut. I öðm lagi að
minnka launamun karla og kvenna
og að minnka launamun milli lands-
byggðarinnar og Reykjavíkursvæð-
isins. I könnun kjararannsóknar-
nefhdar hafi þessi munur komið afar
skýrt fram. „Ég tel að þeir samning-
ar, sem gerðir verði í vetur, verði
að taka á þessum atriðum. Afstaða
til þess hvort samið verður til langs
eða stutts tíma hlýtur að ráðast af
efnislegu innihaldi samninganna,"
sagði Ásmundur Stefánsson. Hann
bætti því við að þessum atriðum
hefði ítrekað verið frestað í kjara-
samningum en slíkt geti ekki gengið
lengur.
Á miðstjómarfundi í ASl sl. mið-
vikudag var einmitt samþykkt að
leggja áherslu á í komandi samning-
um að bæta kjör kvenna á vinnu-
markaði og taka á launamismuni
þeim sem ríkjandi er í þjóðfélaginu.
Kristján Thorlacius, formaður
BSRB, sagði að bandalagið væri
ekki farið að móta sínar kröfur enn
og væri beðið niðurstöðu úr launa-
könnun, sem BSRB hefur verið að
láta framkvæma. Varðandi það
hvort bíða eigi með samninga eftir
nýrri ríkisstjóm sagði Kristján að
hann hefði sagt það áður að hann
óttaðist alltaf afstöðu ríkisstjómar
sem væri í kosningaham.
Frekari tíðinda er að vænta af
sviði kjarasamninga upp úr miðjum
nóvember, þegar samböndin fara að
funda um endanlegar kröfur í kom-
andi kjarasamningum.
-S.dór.
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri;
„Þetta er ágætt núna, en jámabind-
ingar em viðbjóður í rigningu," sagði
járnamaðurinn Karl Bjarkason, þrít-
ugur Tjörnesingur, búsettur á Húsa-
vík.
Hann var að binda jám í bita nýrrar
byggingar á Húsavík, húss sýsluskrif-
stofunnar og lögreglustöðvarinnar.
Nú aðeins jám og mótauppsláttur, en
eftir rúm tvö ár fallegt hús á tveimur
hæðum.
Þennan dag var fremur kalt, en bót
í máli að sólin var að gægjast fram.
Daginn áður vatnsveður, um nóttina
frysti, og því bölvaður krapi úti.
„Ég hef heyrt að það fari um 13 tonn
af jámi i húsið, en þú ættir að spyija
verktakann til að fá nákvæma tölu,“
sagði Karl.
DV á Húsavík:
Völsungar skiptu um
þökur á vellinum
^2 ,
Jón G. Haukssan, DV, Akureyri:
Skipt var um þökur á hluta knatt-
spymuvallarins á Húsavík í haust.
Vanir menn, Völsungar, á velli, þeir
klámðu dæmið á aðeins tveimur helg-
um. Létt verk. Allt var unnið í sjálf-
boðavinnu og tóku um 50 manns á
öllum aldri þátt i þökuvinnunni.
Sem kunnugt er leikur Völsungur í
1. deild í knattspymu næsta sumar,
eftir að hafa sigrað í 2. deild síðastlið-
ið sumar. Geysilegur knattspymuá-
hugi ríkir nú á Húsavík og em
strákamir í Völsungi staðráðnir í að
standa sig næsta sumar eins og það
síðasta.
Vanir menn, Völsungar, á velli. Um 50 manns á öllum aldri tóku þátt i þöku-
vinnunni.
Þeir Sigurjón Sigurðsson, t.v., og Halldór Bjarnason sveifluðu þökunum með
leikni. Hressir menn og að sjálfsögðu fór „græna hliðin upp“.
Myndir Vikurblaðið