Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1986.
3
r>v
Svikahrappur á
sveimi í borginni
- slær menn um 1000 kall tíl að redda sprungnu dekki
Svikahrappur er nú á sveimi í
borginni sem notar nokkuð einfalda
aðferð til að kría 1000 krónur út úr
mönnum. Hann gengur inn í fyrir-
tæki og verslanir og biður menn
endilega að lána sér 1000 krónur svo
hann geti reddað sprungnu dekki á
bíl sínum sem standi fyrir utan þar
sem hann hafi gleymt veski sínu
heima.
DV veit af þremur aðilum á Vest-
urgötu og Garðastræti sem hafa
fallið fyrir þessu enda kemur maður-
Háskóli
á Akureyri
Alþingi samþykkti þá tillögu i]ár-
veitinganeíhdar við lokaafgreiðslu
fjárlaga að veita 5 milljónum króna
„til að undirbúa og hefja háskóla-
kennslu á Akureyri".
Áður hafði verði gert ráð fyrir 1.250
þúsund krónum til undirbúnings há-
skólakennslu þar.
-KMU
inn mjög vel fyrir, er á aldrinum
30-35 ára, klæddur mokkakápu með
virðulegt geithafursskegg.
Hann segist ætla að koma strax
aftur og borga lánið og gefúr hann
upp nafh og símanúmer ef hann
skyldi „gleyma því. DV er kunnugt
um að eitt símanúmeranna var á
ferðaskrifstofu og annað á lögfræði-
stofu og á hvorugum staðnum hafði
nokkur heyrt mannsins getið eða
þess nafns sem hann gaf upp.
Einn þeirra er fallið hafa fyrir
manninum sagði í samtali við DV
að hann hefði heyrt af komu hans í
næstu verslun við sig þar sem hann
bar upp þetta erindi. Verslunarmað-
urinn bauðst þá einfaldlega til að
keyra hann með dekkið á næsta
verkstæði. Þáði maðurinn það og
fóru þeir út og gengu um en engan
fundu þeir bílinn. Hvarf maðurinn
þá á brott en var svo ósvifinn að
koma aftur skömmu seinna í sömu
verslun með sömu sögu en þá viðbót
að hann næði ekki dekkinu af og
bað hann nú um 1000 krónur fyrir
leigubíl heim. Verslunarmanninn
grunaði þá að viðkomandi væri ekki
með hreint mjöl í pokahominu og
rak hann út.
Sá sem DV talaði við sagði greini-
legt að svikahrappurinn væri að
spila á að náungakærleikurinn væri
aldrei meiri en á þessum tíma árs.
-FRI
Ríkið hættir gæðamati á ferskRski
Frumvarp sjávarútvegsráðherra
um að leggja niður ferskfiskmat hjá
Ríkismati sjávarafúrða varð að lög-
um á laugardag. Lögin taka gildi um
áramót.
Breytingin felur það í sér að gæða-
mat á ferskum fiski verður í höndum
kaupenda og seljenda. Eru hags-
munasamtök sammála um að þessi
leið skuli farin.
Rísi ágrciningur milli kaupenda
og seljenda um gæðaflokkun fisks
má leita úrskurðar Ríkismatsins.
Við lokaafgreiðslu málsins á Al-
þingi kom fram gagnrýni, meðal
annars frá Bimi Dagbjartssyni,
Sjálfstæðisflokki, á það hve hratt
þetta mál færi í gegnum þingið. Skúli
Alexandersson, Alþýðubandalagi,
sagði meðferð málsins með eindæm-
um og vildi fr-esta gildistöku fram á
næsta sumar.
-KMU
Fréttír
Orsök
slyssins ókunn
Enn er óljóst hver er hugsanleg or-
sök þess að Tjaldur ÍS-116 fórst í
Isafjarðardjúpi hinn 19. desember síð-
astliðinn. En í gær var kannað með
neðansjávarmyndavél hvort til dæmis
togvírinn hefði verið úti sem hugsan-
lega hefði getað valdið slysinu. Einnig
átti að reyna að sjá verksummerki á
bátnum er gæti gefið til kynna hvað
hefði komið fyrir og hvort lík mann-
anna væru í bátnum. Leitin er í
biðstöðu þangað til búið er að kanna
það. Ef svo reynist ekki verður strax
hafist handa aftur og munu þá hjálpar-
sveitir skáta og félagar úr slysavama-
félaginu á Isafirði ganga fjörur í
grennd við slyssstað.
I DV á laugardaginn var mishermt
um þá sem var saknað og eru aðstand-
endur beðnir velvirðingar á þeim
mistökum. En Víkingur Hermannsson
er 29 ára og lætur eftir sig eiginkonu
og 3 böm.
Kolbeinn Gunnarsson lætur eftir sig
eignkonu og 2 böm.
Eldur laus
í plastgerð
Bruni varð í Plastgerð Suðumesja
hf., Bolafæti 9 í Njarðvík, snemma á
sunnudagsmorgun. Það var um
klukkan 7.30 sem eldsins varð vai't.
Sem betur fer urðu engin slys á mönn-
um en skemmdir urðu allvemlegar.
Upptök eldsins em ennþá ókunn en
máhð er í rannsókn. ME
„JOLATILBOÐ
FJOLSKYLDUNNAR
FRA PANASONIC
Nú, þegar fjölskyldan slær saman í
eina veglegajólagjöf, er mlkið atriði ad
vanda valið. Á tímum gylliboða er
nauðsynlegt að staldra við og hugsa
sig vel um, því nóg er framboðið og
ekki vantar hástemmdu lýsingarorðin.
Við viljum þess vegna benda ykkur á
Panasonic sem vænlegan kost,
sérstaklega þegar það er haft í huga,
að Panasonic myndbandstækin fara
sigurför um heiminn og eru í dag
lang-mest keyptu tækin. Einnig má
minna á, að sem stærsti myndbands-
tækjaframleiðandi heims, eyða þeir
margfalt meiri peningum í rannsóknir
og tilraunir en nokkur annar framleið-
andi. Það þarf því engum að koma á
óvart að samkvæmt umfangsmestu
gæðakönnun sem framkvæmd hefur
verið hjá neytendasamtökum í sjö
V-Evrópulöndum varð niðurstaðan sú,
að myndbandstækin frá Panasonic
biluðu minnst og entust best allra
tækja. Þessar staðreyndir segja meira
en hástemmt auglýsingaskrum.
Jólatilboð á NV-G7 frá
37.850,-
m
^JAPIS
BRAUTARHOLT 2 SiMI 27133