Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 22.12.1986, Qupperneq 25
MÁNUDAGUR 22. DESEMBER 1986. 25 Menning I sagna- sjó Helga Halldórsdóttr frá Dagverðará: ÖLL ERUM VIÐ MENN Útgefandi Skuggsjá 1986. Ein þeirra mörgu minningabóka sem komið hafa út núna fyrir jólin gengur undir naihinu ÖU erum við menn, og höfundurinn er rúmlega áttræð kona, Helga Halldórsdóttir írá Dagverðará á Snæfellsnesi, systir Þórðar sem sagði svo hressilega írá mannlegri náttúru þar á nesinu und- ir handarjaðri Lofts Guðmundssonar fyrir allmörgum árum. En ellimerkin eru ekki áberandi hjá þessari öldnu konu, nema helst þau að hún lætur móðan mása. En hún er svo stórfróð sögukona og stálminnug að fengur er að flestu sem hún lætur þama á blað. En þó er örlæti hennar á sögumar í mesta lagi. En Helga frá Dagverðará er af- bragðssögukona að málfæri og skýrleik. Hér em ekki aðeins mirrn- ingar hennar sjálfrar raktar, heldur gerir hún sér lítið fyrir og endurseg- ir sögur foreldra, afa og ömmu og ýmissa jafnaldra þeirra frá öldinni sem leið. Hún setur meira að segja ömmusögumar á svið með orða- skiptum og lýsingum eins og hún hefði verið sjálf nærstödd. Minningar tveggja alda Margar þessara sagna hefur hún numið af vörum eldra fólks bam að aldri og telur sig muna þær svo vel að ekki haggist. Minni Helgu er vafalaust frábært, en varla trúi ég öðm en margt hafi hún ort upp eða lagað svolítið í hendi, þótt kjarni og tilefni sé oftast rétt. Af þessu leiðir, að þetta em minn- ingar þriggja eða fjögurra kynslóða og tveggja alda að minnsta kosti, og ég man ekki eftir annarri minninga- bók í svipinn þar sem höfundur færist slíkt í fang og rekur minning- ar með sama sniði og sínar eigin um tveggja alda skeið. Þama koma við sögu frægir föm- menn og skáld frá öldinni sem leið, og höfúndur lýsir fundum við þá jafh-náið eftir móður sinni eða öðr- um skyldmennum og hún hefði sjálf setið andspænis þeim. Nefria má kempumar Guðmund dúllara, Leimlækjar-Fúsa, Sigurð Breiðfjörð, Símon Dalaskáld og Ásgrím Hellna- prest. Snoturlega hagmælt Tímaskilin milli þessara og fleiri manna frá síðustu öld og þeirra sem Helga kynntist sjálf og hefúr margt að segja af, em óglögg vegna þess að frásagnarhátturinn er svo líkur. Þá em í þessum minnum ógrynni skáldskapar frá fyrri tíð, þar á meðal vísur og kvæði eftir Helgu sjálfa, og fer ekki milli mála að hún hefúr verið og er snoturlega hagmælt og jafnvel mætti kalla hana vel skáld- mælta. Bókmenntir Andrés Kristjánsson Margar sögur em þama bráðvel sagðar og færðar í stílinn með orð- ræðum milli sögufólks, rétt eins og þær hefðu gerst fyrir nokkrum árum, þótt þær séu frá öldinni sem leið. Nefiia má sem dæmi „Kaupavinna móður minnar í Skagafirði", en sú saga er svo nákvæmlega sögð í öllum smáatriðum að furðu gegnir og orða- skipti fólks óspart tíunduð með gæsalöppum. Þó má kynlegt kalla, að bærinn sem dvalið var á um sumarið er ekki nefndur, þótt fjöldi fólks þaðan úr sveit gangi ljóslifandi með nöfiium í sögunni. Þetta vekur grun um, að höfúndur vilji síður að slóðin sé rakin á vettvang, og sagan sé kannski eitthvað ýkt eða færð í stíl. En þetta er líklega óþörf tor- tryggni. Með augu og eyru opin Þama er sagt frá fjölda fólks með mjög lýsandi hætti á þann veg að láta atvik, tilsvör og viðbrögð, ekki síst smáskrítin eða gamansöm, leiða persónuna fram ljóslifandi, en þetta verður einnig þjóðlífs- og þjóðhátta- saga. Segja má að nær öll bókin sé safn slíkra smáminna, oftast bráð- skemmtilegra, sérstæðra og kími- legra, jafnvel mörg á hverri þessara 400 blaðsíðna. Bókin er þvi bráðskemmtileg af- lestrar og fróðleg mjög um menn og ÉG DREKK EKKI í DAG Eg drekk ekki i dag /J Auðunn Blöndal ! v*"l SkAldsafla. roynsiusaga eftir Auðun Blöndal Reynslusaga alkó- hólista, skáldsgasem aðgrunnitil byggist ásönnumatburðum úr lífi höfundar. Þetta er mannbæt- andi saga, holl lesn- ing þeim, sem Bakkus sækir að, og spennandi saga af ástum og ævintýrum. Skjaldborg hf. HÓLMGARÐI 34 - REYKJAVÍK - SÍMI 31599 aldarfar á heimaslóðum höfúndar. Safn alþýðuvísnanna frá liðinni tið er líka góð björgun úr glatkistunni, því að margar þeirra munu ekki vera annars staðar á prenti. Helga frá Dagverðará hefur haft augu og eyru opin á lífsleiðinni og kann sannarlega orð að hneigja til frásögu sinnar þegar hún rekur gamimar úr minnistölvu sinni. Hví- líkur sagnasnjór. A.K. REFSKA eftir 'ristjánf]. Gunnarsso Sönn fslendingabók—Ný Bandamannasaga Refska er saga úr samtíðinni sem dulbúin er í gervi fornsögu og lýsir fornald- arfólki í íslensku vandamálaþjóðfélagi. I Refsku er m.a. fjallað um: • Landshornagoða og smágoða. • Eflingu byggðar í óbyggðum. • Þjóðráð, bjargráð og snjallræði sem Óbyggðasjóður kostar. • Uppreisn mósokkanna gegn karlrembusvínum. • Kvennafund í Almannagjá. • Goðorðsvöld Guðríðar Óspaksdóttur. • Útburðbarna. • Vistun gamalmenna í Kjarreyjarklaustri. • Þjóðflokkinn Krýsa sem eru huldumenn í landinu. • Kusa, foringja verkþræla, og Sólstöðusaminginn. • Skipti á skíru silfri fyrir flotsilfur. • Inngöngu allsherjargoðans í félag Bílduberga. • Gorm konung gerska og guðinn Lenimax. • Hróald helga í Hvítramannalandi og Nýja sáttmála. • Drekabæli í Strympunesi. • Almenna múrgoðafélagið og Höll múrgoða. Margt fleira ber á góma í þessari sönnu lygisögu sem sögð er af íþrótt stílist- ans og uppfull af gráglettinni fyndni. Bók sem talað verður um og allir þurfa að lesa. Refska er sagan um refskuna í íslenskri samtíð. Bökaúígöfa /HENNING4RSJÓÐS Skálholtsstíg 7, Reykjavík—Sími 621
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.