Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1987, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 18.02.1987, Síða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 18. FEBRÚAR 1987. Útlönd Aldraður Dublinar-búi skilar atkvæði sinu í gær, en það stefndi í að minnsta kosti 75% kjörsókn fyrir kvöldmatarleytið en kjörstöðum var lokað klukkan nju - Símamynd Reuter Mikil kjörsókn í ívsku kosningunum Það var mikil örtröð á kjörstöðum á Irlandi í gær þar sem gengið var til þingkosninga í írska lýðveldinu (suðurhluta landsins). Þótt sól væri á lofti var samt kalt í veðri en kjós- endur létu það ekki á sig fá. Síðdegis höfðu 45% þeirra. sem voru á kjörskrá, þegar skilað at- kvæði sinu og var húist við því að kjörsókn mundi fara yfir 75% áður en kjörstaðir lokuðu klukkan níu í gærkvöldi. Aðalkeppinautamir, FitzGerald forsætisráðherra og Haughey leið- togi Fianna Fail, voru í hópi þeirra fyrstu sem kusu í Dublin í gærmorg- un. Báðir hafa tvívegis verið forsæt- isráðherrar, en skoðanakannanir síðustu vikna hafa bent til þess að Haughey mundi hafa sigur að þessu sinni vegna óánægju fólks með ástandið í efhahagsmálunum. Allra síðustu kannanir bentu þó til þess að það forskot, sem Haughey hafði áður í fylgiskönnunum, hefði minnk- að. FitzGerald kom á óvart um helgina með því að bjóða Framsóknarkröt- um (Progressive democrats) kosn- ingabandalag um uppbótarþingsæt- in. Er það eins konar hræðslubanda- lag, því að fylgiskannanir höfðu bent til þess að Fianna Fail, flokkur Haugheys, mundi fá hreinan meiri- hluta. Framsóknarkratar eru flokkur, sem stofhaður var fyrir fjórbin mán- uðum af mönnum er klufu sig út úr flokki Fianna Fail. Leiðtogi þeirra, Desmond O’Malley, höfðaði í síðustu kosningaræðum sínum aðallega til óráðinna kjósenda, en kannanir höfðu gefið til kynna að um 20% kjósenda hefðu ekki gert upp hug sinn. Forsætisráðherra írska lýðveldisins, dr. Garret Fitz- Gerald, og eiginkona hans, Joan (sem er fötluð), voru meðal þeirra fyrstu sem skiluðu atkvæði sínu í kjörkass- ana í þingkosningunum í gær. -Simamynd Reuter Leiðtogi stjórnarandstöðunnar, Charles Haughey, sting- ur atkvæðaseðli sínum í kjörkassann í Dublin. Honum og flokki hans, Fianna Fail, er spáð sigri. - Símamynd Reuter Mynd um Palmemorðið færðtil í dagskrá KD VHhjálmsean, DV, Osló: Sænska sjónvarpið hefúr ákveðið að færa til í dagskrá sovéska heimildamynd um morðið á Olof Palme. Ætlunin hafði verið að sýna myndina 28. febrúar til minningar um að ár var liðið frá Palme- morðinu. Það varð til þess að bandarískir stjómarerindrekar mótmæltu að mynd- in yrði sýnd þá enda er í henni gefið í skyn að bandaríska leyniþjónustan CIA standi á bak við morðið. Sænska sjón- varpið tók í upphafi mjög illa í kvartanir Bandaríkjamanna og sagði óskiljanlegt að þeir reyndu að vera með ritskoðun í Svíþjóð. Nú hefúr það hins vegar gerst að sænska sjónvarpið hefur ákveðið að færa myndina til í dagskránni svo hún verði ekki sýnd á eins viðkvæmum tíma og áður var gert ráð fyrir. Komið hefúr fram að Claes Palme, bróðir Olofs, hafi einnig beitt sér fyrir því að myndin yrði sýnd á ársafmæli Palmemorðsins. Sænskir nýnasistar dæmdir Gurmlaugur A. Jónssan, DV, Lundi: Tveir félagar nýnasista í Svíþjóð vom á mánudag dæmdir í tveggja mánaða fangelsi, meðal annars fyrir skemmdar- verk er þeir höfðu unnið á graffeit gyðinga í Gautaborg. Höfðu þeir brotið Qölda legsteina og skrifað margs konar andgyðinglegan áróður á legsteina og veggi. Einnig var þeim gefið að sök að hafa kastað bensínsprengju að húsi innflytj- endafjölskyldu í Gautaborg. I því tilfelli komst rétturinn þó að þeirri niðurstöðu að brotið væri fymt. Samtök nýnasista í Svíþjóð kalla sig Norræna ríkisflokkinn og hafa verið allmikið í sviðsljósmu undanfarin ár þótt félagar samtakanna séu einungis taldir vera nokkrir tugir. Prestur braut sjöunda boðorðið Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmaimahcfa: Umvafinn bleikum lökum og með hettu úr gardínuefni kom maður inn í banka í Horsens á Jótlandi. Var hann vopnaður hnífi og byssu er síðar reyndist vera leikfangabyssa. Gjaldkeri bankans varð afar hrædd- ur og afhenti hinum skrúðklædda ræningja strax 219 þúsund danskar krónur. Ræninginn hljóp út úr bank- anum og á eftir honum hlupu starfs- maður bankans og einn viðskiptavin- ur. Eftir nokkur hlaup fengu mennimir tveir hálfgert áfall. Ræninginn kastaði af sér klæðunum og reyndist ræning- inn þá vera fyrrverandi sóknarprestur á staðnum. Lögregla handtók prestinn skömmu síðar og við yfirheyrslur kvaðst hann hafa framið ránið vegna mikilla fjárhagsörðugleika. Ekki hafði verið hægt að fá lán í banka og því ekki annað að gera en brjóta sjöunda boðorðið. Hlaut prestur fjögurra vikna gæsluvarðhaldsdóm. Umsjón: Guðmundur Pétursson

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.