Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Qupperneq 10

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Qupperneq 10
10 MÁNUDAGUR 23. MARS 1987. Útlönd Réttarhöld aldarinnar út af eitruðu matarolíunni „Réttarhöld aldarinnar" kalla Spánverjar málaferlin, sem he§ast um næstu mánaðamót og eru flutt út af óhugnanlegum dauðsföllum á Spáni íyrir sex árum, ]>egar hundruð Spánverja létust af völdum matar- eitrunar sem kennd var eitraðri matarolíu. 400-650 dóu Samkvæmt skýrslum þess opin- bera létust 386 manneskjur af völdum þá óþekktrar veiki sem helst varð rakin til óneysluhæfrar matar- olíu. En samkvæmt tölum saksókn- arans varð olían 650 manns að aldurtila og olli síðan 25 þúsund til viðbótar ýmsum miska vorið 1981. Sækjendur halda því fram að þessi ósköp hafi verið að kenna „repjuol- íu“, sem unnin er úr fræjum repju- jurtarinnar, en hún hefur verið mikið notuð til iðnaðar á Spáni og þá blönduð eða drýgð með fleiri efn- um. Vegna þess hve ódýrari hún hefur verið hjá götusölum ýmsum, hefur fólk í fátækari hverfum Madrid og annarra borga á Spáni glapist á að kaupa repjuolíuna til nota sem matarolíu. Viðsjárverð „repjuolían", þynnt og blönduð efnum, þannig að hun var einvörðungu brúkleg til iðnaðarþarfa, var samt seld á strætum og torg- um og efnaminna fólk freistaðist, kaupverðsins vegna, að kaupa hana sem matarolíu. Þessi telpa er eitt af fórnardýrum matarolíueitrunarinnar á Spáni sumarið 1981. Hún varð að vera lengi i gipsi til þess að mjaðmirnar færu ekki einlægt úr liði. Myndin var tekin 1984 af Yolanda þá níu ára. Símamynd Reuter Enn ekki fullsannað að olían hafi verið sjúkdómsvaldurinn Eitrunareinkennin eða sjúkdóm- urinn birtist í ýmsum myndum. T.d. lungnakrankleika, öldrunarein- kennum, vigtartapi, geðrænum truflunum og röskun á ónæmisvöm- um líkamans. En fram til þessa hefur vísindamönnum ekki tekist að færa nema líkindasannanir fyrir því að repjuolían hafi verið hinn raun- veralegi valdur að veikindunum. Þykir því enn leika vafi á því til hvers megi rekja veikindin. Á sakabekknum í réttarhöldunum sitja um 40 karlar og ein kona. Þetta era olíuinnflytjendur, eimarar, dreif- ingaraðilar og fleiri sem ákærðir hafa verið fyrir allt frá svindli og brotum á heilbrigðislögum til lík- amsmeiðinga og manndráps. Sak- sóknari og fulltrúar hans krefjast refsinga sem nema alls yfir 100 þús- und ára fangelsi fyrir sérhvem átta aðalsakbominganna. Þó er því sett 30 ára hámark, sem einn maður má afplána í fangelsisvist á Spáni. Það er búist við því að réttar- höldin taki að minnsta kosti fimm mánuði. Rannsóknarskýrslur fylla marga hlaða og era yfir 250 þúsund vélritaðar síður. Alls hafa skýrslur verið teknar af 2.500 manns og þar á meðal Felipe Gonzalez forsætisráð- herra og hundraðum læknasérfræð- inga. Þeir, sem eiga um sárt að binda af völdun olíueitrunarinnar, þykja eiga litlar vonir til skaðabóta hjá sakbomingum. Meiri vonir þykja liggja í því ef heilbrigðisyfirvöld yrðu sótt til einhverrar ábyrgðar í málinu því að ríkissjóður ætti að geta greitt einhverjar bætur en eng- in skaðabótamál hafa enn verið höfðuð gegn opinberum aðilum. Hækkun jensins nýjasta hiyllingssagan í Japan Hækkun jensins er orðin vinsæl- asta hryllingssagan í Japan. Á síðastliðnum tveimur árum hefúr jenið hækkað um fjörutíu prósent gagnvart dollamum og era útlend- ingar hræddir með sögum um melónur á fjöratíu dollara stykkið. Ekki verða þeir glaðari við að frétta að akstur með leigubifreið frá flug- vellinum að hótelinu, sem þeir ætla að gista á, getur farið upp í hundrað og tuttugu dollara og að mánaðar- leigan fyrir íbúð, hannaða að kröfum Vesturlandabúa, sé fimmtán þúsund dollarar. Ætlaðar útlendingum En Japanir og þeir útlendingar sem hafa dvalið lengi í landinu segja þessar hryllingssögur, eins og marg- ar aðrar framleiðsluvörur Japans, ætlaðar útlendingum. „Þetta er í raun og vera ekki alveg svona dýrt,“ er haft eftir Cheryl Richmond sem kennir ensku í Tokyo. Cheryl, sem er frá Toronto í Kanada, segist eyða um sex dollurum á dag í mat þó svo að hún borði úti einu sinni á dag. Kaupir hún þá rétt dagsins sem sam- anstendur af núðlum eða svínakjöti, grænmeti, súpu og tei. f morgunverð fær hún sér aðeins kaffi og á kvöld- in lætur hún brauðsneiðar nægja. Cheiyl greiðir þrjú hundrað tutt- ugu og sex dollara á mánuði í leigu fyrir tveggja herbergja sólríka íbúð. Fyrir að „blaðra“ ensku við Japana í fjöratíu stvmdir á viku fær hún sextán hundrað þrjátíu og fimm doll- ara á mánuði. Þrátt fyrir að hún eyði svolitlu fé í skemmtanir og hafi farið í ferðalög til Thailands, Kanada og Indónesíu segist hún hafa lagt til hliðar rúmlega þrjú hundrað dollara á mánuði sem hún hefur sent heim til Kanada. Tokyo enginn prúttmarkaður Það er svo sem enginn sem heldur því fram að Tokyo sé einhver mark- aður þar sem hægt sé að prútta en þeir sem hafa búið þar lengi sjá enga ástæðu til þess að eyða milli tvö þúsund og fimmtán þúsund dollurum á mánuði í leigu eins og erlend fyrir- tæki gera fyrir starfsmenn sína. Fyrirtækin era þó ekki á sama máli. Segjast þau verða að borga þetta verð til að fá besta fólkið til þess að koma þeim á markað í Japan. Tals- menn IBM gefa þá skýringu að ekki sé hægt að ætlast til að fólk flytji frá New York eða Sydney og minnki við sig þægindin. Borgar fyrirtækið leigu fyrir þrjú hundrað og fimmtíu útlendinga í Tokyo. ‘ Ferðamönnum fækkar Könnun heíúr leitt í ljós að fyrir kaupsýslumenn er Tokyo dýrasta borg í heimi. Eyðir hver þeirra að meðaltali um þrjú hundrað dollurum á dag. Menn á viðskiptaferðalagi eiga ekki margra kosta völ en ferða- menn, sérstaklega frá Evrópu, era famir að heimsækja sólríkari og ódýrari lönd í Asíu. Ferðamálaráð Japans upplýsir að heimsóknir er- lendra ferðamanna hafi minnkað um ellefu og hálft prósent á síðasta ári. Og þeir sem komu gerðu hvað þeir gátu til þess að spara og kom það aðallega niður á verslun. Hefur ferðamálaráðið í Japan gefið út bækling þar sem bent er á hvem- ig ferðast megi í landinu á sem hagkvæmastan hátt en í fyrra eyddu ferðamenn að meðaltali hundrað áttatíu og einum dollará á dag. Kemst af með 30 dollara á dag Scott Periy, verðandi enskukenn- ari frá Auckland á Nýja-Sjálandi, getur gefið ferðamönnum enn betri spamaðarráð. Hann gistir á hóteli fyrir viðkomufarþega. Þar deilir hann örlitlu, óupphituðu herbergi með öðrum fyrir tæpa tíu dollara á sólarhring. „Við megum ekki vera á hótelinu milli klukkan tíu á morgn- ana og fjögur á daginn. En það er þrifið á hverjum degi og búið um rúmin,“ segir hann. Perry hefur ein- sett sér að komast af með um þrjátíu dollara á dag í Tokyo á meðan hann er að leita sér að vinnu. Snæðir hann núðlur í hádeginu fyrir tvo og hálfan dollara en stundum er hann á eyðslubuxunum. Fer hann þá á veit- ingastað þar sem hægt er að borða pizzu, eins mikið og maður getur í sig látið á tveimur klukkustundum, fyrir þrjá og hálfan dollara. Umsjón: Ingibjörg Bára Sveinsdóttir og Guðmundur G. Pétursson Nýsjálendingurinn Scott Perry lifir á núðlum I dýrustu borg heims, Tokyo. Segist hann komast af meö þrjá- tíu dollara á dag og þykir það vel af sér vikiö þar sem meðalkostnaður viðskiptamanna á ferðalagi þar er þrjú hundruð dollarar á dag. - simamynd Rauter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.