Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Síða 14
14
MÁNUDAGUR 23. MARS 1987.
Menning
Notkun hennar á stórum, gjaman
endurteknum „frum“-einingum sver
sig í ætt við naumhyggjuna (mínímal-
ismann) en sjálf samsetning verkanna
er með byggingarsniði konstrúktífis-
mans með alla parta afhjúpaða og
samsuðuna sömuleiðis.
Mörg verk Gerðar Helgadóttur eru
einmitt af þessari sömu konstrúktíf-
ísku fjölskyldu.
En þótt skúlptúrar Hansínu virðist
við fyrstu sýn vera einföld og kórrétt
afstraktverk er ekki allt sem sýnist.
Ekki þarf mikið ímyndunarafl eða til-
færslur á sjónarhomi til að greina í
þeim beinar og óbeinar tilvísanir í
dularfullar byggingar: tumleikhús,
dýflissur, hof eða bara húsin í draumi
okkar allra.
Þar með em mörg þessara verka
beint framhald á skúlptúr-húsum þeim
sem Hansína hefur unnið í góðmálma.
Húsagerðarlist af þessu tagi má
hæglega rekja til súrrealista, sem
byggðu borgarvirki og hallir í lands-
lagi drauma sinna, sjá til dæmis de
Chirico og Giacometti.
Kröftug nánd
En það verður að segja Hansínu til
hróss að hún hamrar sjaldan á þessu
byggingalega líkingamáh heldur lætur
hún sérþarfir skúlptúrsins ganga fyrir,
hrynjandi þráðanna í rýminu og sam-
stillingu meginþátta.
Öll þessi atriði ganga á endanum
upp í hinum loftbomu skúlptúrum
Hansínu, þessum búrum fyrir drauma,
gefa þeim nauðsynlegt margræði og
kröftuga nánd.
Ekki þykir mér verk Hansínu fara
sérlega vel á göngum Kjarvalsstaða.
Það er engu líkara en skænislegir
veggimir og gólfilísamar éti þaú með
húð og hári nema þau sem standa á
stöllum.
Sömuleiðis er greinilegt að blá-
klæddur skúlptúr firemst í ganginum,
sá hinn sami og var á afstraktsýning-
unni, þarfnast meiri lofthæðar.
En hér er vel af stað farið, vonandi
verður framhaldið eftir því.
Hansína Jensdóttir - Skúlptúr, vír, 1986.
Hansina Jensdóttir-Tveir skúlptúrar, vír & bl. efni, 1986.
Búr fyrir
drauma
Skúlptúrar Hansínu Jensdottur að Kjarvalsstöðum
Meðan menn hafa verið önnum
kafiiir að fylgjast með þvi sem hefur
verið að gerast í „nýja“ málverkinu
og öðm málverki á íslandi hefur mik-
ill uppgangur í hérlendum skúlptúr
farið fyrir ofan garð og neðan hjá flest-
um. Þessi skúlptúr er eins fjölbreyti-
legur og listamennimir sjálfir, sjá
keramíkskúlptúra Rósu Gísladóttur,
Sóleyjar Eiríksdóttur, Borghildar
Óskarsdóttur og Guðnýjar Magnús-
dóttur, forynjur/maskínur Brynhildar
Þorgeirsdóttur, steinhögg Páls Guð-
mundssonar, samsett verk Jóns
Sigurpálssonar, konseptskúlptúra
Ingólfs Amar Amarsonar, samtíning
Kristins G. Harðarsonar, trélágmyndir
Huldu Hákonardóttur, prímitífa hausa
Gunnars Amar, steinsteypur ívars
Valgarðssonar, fígúratífar samsetn-
ingar Steinunnar Þórarinsdóttur og
konstrúktífar stemmur Ólafs Sveins
Gíslasonar - og em þá ekki allir mark-
verðir þrívíddarlistamenn af yngri
kynslóð upp taldir.
Hansína Jensdóttir er enn ein grein-
in á þessum gróskumikla meiði. Hún
á ekki langt að sækja listfengi sitt því
faðir hennar, Jens Guðjónsson, er
þekktur töframaður á sviði góðmálma
og undir handarjaðri hans hefur
Hansína eflaust þróað með sér bæði
formskyn og verksvit.
í framhaldi af því er óneitanlega
freistandi að sjá í vírþráðum hennar
tengsl við heföbundið íslenskt víra-
virki en það er sennilega óskhyggja.
Byggingarsniö
Hansína var við framhaldsnám í
Calgary í Kanada, fyrst íslenskra
listamanna, að ég best veit.
Ekki veit ég hvers konar skúlptúr
þeir ástunda í Kanada en verk Hans-
ínu grundvallast á haglegri samræm-
ingu þriggja meginþátta í nútíma-
skúlptúr, nefrúlega naumhyggju,
konstrúktífisma og súrrealískri mynd-
sýn.
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfsson
Kjörbók Landsbankans-Góð bók
ISrir bjarta framtíð L
Landsbanki
Islands
Banki allra landsmanna
-ai