Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.1987, Síða 27
43
MÁNUDAGUR 23. MARS 1987.
dv Sandkom
Gunnar Þórðarson.
Norðurljós
sigrar?
Úrslitin í sönglagakeppn-
ifini liggja fyrir í kvöld. Við
hér fyrir norðan, á Akureyri,
trúum mörg því að lagið hans
Gunna Þórðar, Norðurljósin,
sigri. Sumir veðja hins vegar
á Mezzo-piltana og lagið
þeirra, Lífið er lag. Eins á
Valgeir Guðjónsson með
Sofðuvært.
Annars virðist ungviðið í
Gagganum á Akureyri vera
með það á hreinu hvaða lag
sigri. Eftir að öll lögin höfðu
verið kynnt á miðvikudags-
kvöldið ku lagið Mín þrá eftir
Jóhann G. hafa hljómað á
göngum gaggans með viðeig-
andi tilþrifum. Tjaldstemmn-
ingin var sumsé í hámarki.
Denna-keppn-
in
Ungir framsóknarmenn láta
mjög til sín taka i hinni hörðu
kosningabaráttu sem er fram-
undan. Aðalframlag þeirra er
Denna-keppnin en það er
keppni framhaldsskólanna í
popptónlist.
1 auglýsingum á Akureyri
sögðu frammaramir ungu að
Denni væri pólitískur og spil-
aði á miðjunni. Og að sjálf-
sögðu er Denni mikill poppari.
Forsvarsmaður keppninnar
sagði í viðtali á Akureyri, um
tiiurð Dennanafnsins, að
Denni væri jú lítill karl sem
byggi í okkur öllum. Hann
væri alltaf hress og vildi okk-
ur vel. „Svo eigum við náttúr-
lega Denna i forsætisráðherr-
anum,“ sagði forsvarsmaður-
inn.
Þarf nokkum að undra að
fylgið hrynji af Denna með
svona kosningabaráttu?
Húsá
Húsavík
Þau virðast ekki auðseljan-
leg húsin á Húsavík. Iþrótta-
fréttamaður Dags, Kristján
Kristjánsson, á þar hús sem
hann hefur auglýst með mynd
og öllu tilheyrandi hvern ein-
asta dag sl. einn og hálfan
mánuð. En ekkert gengur.
Ástæðan er einfaldlega sú að
mörg hús em til sölu enda
heitir staðurinn Húsavík.
Þingeyskt
loft
Áfram með Húsavík. Það fór
fyrir brjóstið á Víkurblaðinu
að forseti bæjarstjórnarinnar,
Katrín Eymundsdóttir, skyldi
láta hafa það eftir sér í viðtali
að „í framtíðinni er markmið-
ið meðal annars að gera
Húsavík að LITLUM ferða-
mannabæ".
Nei, markmiðið er sko ekki
lítill ferðamannabær, sagði
Víkurblaðið. Þó það nú væri.
Davíð og
Bruce
Springsteen
Skrifandi um poppara þá
var Davíð Scheving sólkóngur
í forstjórapoppi á Bylgjunni á
dögunum. Davíð er mikill
klassíker en þegar kom að
rokkinu var það engin spurn-
Davið Scheving.
ing að Bruce Springsteen er í
uppáhaldi hjá Davið. Reyndar
kallaði sólkóngurinn hann
Brúsaskegg sem er gott orð.
Prestar hætta
að rífast
Þá hefur hið háa Alþingi
afnumið prestskosningar
nema tveir þriðju hlutar sókn-
arbarna óski kosninganna.
Þetta var ekki sniðugt hjá
Alþingi því fáar kosningar eru
eins rosalega spennandi og
prestskosningar og munn-
söfnuðurinn í hávegum
hafður.
Nastí
auglýsing
Hún var nastí auglýsingin
frá Stöð 2 í DV á fimmtudag-
inn. Gerður var samanburður
á dagskrá ríkissjónvarpsins og
Stöðvar 2 þennan dag og stilli-
myndinni frægu stillt upp á
móti atriði úr góðri bíómynd
stöðvarinnar. i flennifyrirsögn
stóð: „Tværólíkardagskrár."
Þetta kallar maður að vera
nastí.
Heimir Pálsson.
Það þokaðist
Hún er ægilega hvimleið,
klisjan, það þokaðist, sem
ætíð er sögð eftir mönnum sem
standa í samningaviðræðum.
Að sjálfsögðu sagði Heimir
Pálsson kennari að þokast
hefði „í rétta átt“ í samtali við
DV sl. mánudag. Og það þok-
aðist svo sannarlega því
kennarar hækkuðu kröfur
sínar síðar um daginn, allt fór
í hnút og menn sáu ekki
hvernig ætti að leysa deiluna
íallri þokunni.
Þanniger
að deyja
„Þannig er að deyja" segir
einhver Göran Grip, yfirlækn-
ir í Svíþjóð, í þýddri grein
Dags sl. fimmtudag. Það er
ekki hægt að segja annað en
að þessi Göran Grip sé athygl-
isverður læknir.
Umsjón:
Jón G. Hauksson.
Stokkseyri:
Grunnskólinn
byggður upp
Sohn Ólafesan, DV, Stdkkseyii:
Á vegum Stokkseyrarhrepps er nú
unnið að uppbyggingu grunnskólans
þar. Forgangsverkeíhi í uppbygging-
unni er stórbætt handavinnuaðstaða
auk þess sem komið verður upp að-
stöðu til kennslu í heimilisfræðum.
Foreldrafélagið hefur á undanfom-
um árum safhað fé til ýmissa tækja-
kaupa fyrir skólann og á næstunni
stendur félagið að tölvukaupum ásamt
hreppnum. Með tölvukaupunum er
ætlunin að kynna unga fólkinu þessi
undratæki nútímans.
Skólastjóri grunnskólans á Stokks-
eyri er Theódór Guðmundsson.
Grunnskólinn á Stokkseyri var reistur 1950. Á næstunni ætia nemendur skól-
ans að efna til starfsdags og fegra þá skólann og næsta umhverfi.
DV-mynd Sölvi
SANDBLÁSTURSKASSAR
fyrir verkstæði.
173.782,00
* yf*,
#
Verð kr.
án ssk.
=■ I. Erlingsson h/f, varahlutir,
jjj Ármúla 36 (Selmúlamegin), sími 688843.
Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f.
Spíssadísur
og glóðarkerti
í flestar teg.
!
■
NEW NATURAL COLOUR TIIM M r A IHII
"m^pTflNNFflRÐl
UIL_______Jlll
PEARLIE tannfarðinn fæst loksins á islandi. Pearlie er EKKI tannkrem, heldur TANNFARÐI (TOOTH MAKE-UP). Gefur aflituðum tönnum, tann-
fyllingum og gervitönnum NÁTTÚRULEGA HVÍTA áferð. Notaö af fyrirsætum og sýningarfólki. Einfalt í notkun, pensiað á á fáeinum augnablikum.
Rannsakað á efnafræðistofnun; skaðlaust heilsu notenda, skaðlaust tönnupi. PÓSTSENDUM (póstkrafa) UM LAND ALLT OG REYKJAVÍK. Send-
iö auglýsinguna i heilu lagi, útfyllta hér að neðan:
VINSAMLEGA SENDID MER_
Nafn-----------------
stk. PEARLIE tannfarða.
Heimili.
Verö:kr.
490,-
Póstnr___________________Stöð------------------------------—--------------------------------------------------
EDA HRINGID i SÍMA (91)611659, simsvari allan sólarhringinn, og pantið slmleiðis hvort sem þér búið i Reyk|avik eða á landsbyggðinni.
SENDIST TIL:
PEARLIE UMBOÐIÐ, SKÓLABRAUT 1. BOX 290, 171 -SELTJARNARNES. (91)6-11-6-59
Miðstöðvarmótorar, 12
og 24 V, rafmagnsmið-
stöð, 12 V.
Kveikjuhlutir í allar teg,
Gott verð. Vönduð vara
Forþjöppur og varahlutir, viðgerðarþjónusta.
■—■ I. Erlingsson h/f, varahlutir,
Ármúla 36 (Selmúlamegin), sími 688843.
H Viðgerðarverkstæði TURBÓ s/f.