Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Side 13

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Side 13
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987. 13 Neytendur greinilega á uppleið Útgjöldin Kæra neytendasíða! Þá er páskamánuðurinn liðinn með tilheyrandi fermingum, kosn- ingum og öðrum látum. Mesti hasarinn genginn jdir sem betur fer. Matarkostnaðurinn varð kr. 18.615,20, annar kostnaður tæp 50 þús. kr., sennilega í lágmarki hjá okkur. Skattar voru rúmlega 27 þús- und, síminn rúmlega 3 þúsund og hiti rétt rúml. 2 þúsund kr. Klipping upp á 595, sem er ekki mikil hækk- un, bensín 1900, bamaskór á eins árs tæpar 1500 hjá Steinari Waage sem gefur jj% staðgreiðsluafslátt. And- litssnyrting kr. 1600 og fótsnyrting á 1000 kr. Þetta er greinilega allt á uppleið. Raddir neytenda Gjald til Sálarrannsóknafélagsins kr. 1000, Sólheimapennar kr. 400. Happdrætti Slysavamafélagsins kr. 800. Það er sjálfsagt að styrkja happ- drætti sem eru til styrktar hjálpar- sveitum eða líknarfélögum en ég er orðin dálítið þreytt á hinum og ég hef heyrt fólk kvarta undan því hve margir fjölskyldumeðlimir á sama heimili fá senda miða. Aðalfundur ritara á Þingholti kr. 1.115. Glæsi- legt. Ég keypti afmælisgjöf um daginn handa herra hjá P&O. Þeir eru af- skaplega almennilegir og liprir. Mæli með þeim. Sem betur fer em skuldahréfin að fjara út. Með rigningarkveðju, Ingibjörg. Avocado góður í margt Ávöxturinn avocado er góður í ýmsa rétti. Hann er mjög dýr en ef ykkur langar til að „froðsa“ svolítið er allt í lagi að láta það eftir sér svona endrum og eins. Búa má til ágætt álegg úr avocado. Þetta er gott ofan á kex og hrökk- brauð og þá ekki notað annað „smjör“. Skerið einn avocado í tvennt og flar- lægið steininn. Skafið ávöxtinn úr hýðinu og stappið með safa úr einni sítrónu. Saltið síðan með venjulegu salti og bætið einu pressuðu hvítlauks- hólfi út í. Það getur verið gott að láta karsa eða hakkaða steinselju út á. Ef svolitlu vatni er blandað saman við ávaxtamaukið er komin fyrirtaks salatsósa. Hafið hugfast þegar þið notið avocado að láta flysjaðan ávöxtinn í sítrónusafa. Þannig heldur hann rétt- um lit. Annars verður hann brúnn eins og epli og bananar. Og ekki má gleyma að geta þess að upp af avocadosteini vex ljómandi skemmtileg planta. Sniðugt er að planta avocadosteinunum með kannski tveggja vikna millibili. Þá Avocado er góður ofan á kex og hrökkbrauð, einnig sem salatsósa, fyrir utan að hann er tilvalinn sem forréttur, t.d. með rækjum. færðu plöntur af mismunandi stærðum sem fallegt er að raða saman. Þpgar þið veljið ykkur avocado er gott að vita að ávöxturinn er full- þroskaður þegar hann gefur aðeins eftir þegar þrýst er á hann með fingrin- um. -A.BJ. ) BLAÐAUKI ALLA LAUGARDAGA BÍLAMARKAÐUR DV er nú á fuHrí ferð Nú getur þú spáð í spilin og valið þér bíl í ró og næði. Blaðauki með fjölda auglýsinga frá bílasölum og bílaum- boðum ásamt bílasmáauglýsingum D V býður þér ótrúlegt úrval bíla. Auglýsendur athugið! Auglýsingar í bílakálf þurfa að berast í síðasta lagi fyrir kl. 17.00 fimmtudaga. Smáauglýsingar í helgarblað þurfa aó berast fyrir kl. 17 föstudaga. Síminn er 27022. KENNARAR Að Reykholtsskóla í Biskupstungum vantar kennara næsta vetur. Í boði er ódýrt og gott húsnæði. Leitið upplýsinga hjá skólastjóra í símum 99-6830 og 99-6831 eða hjá formanni skólanefndar í síma 99-6863. BLAÐBERAR ÓSKAST Á NESKAUPSTAÐ Uppl. hjá umboðsmanni í síma 7229. NÁKVÆMNI-DUGNAÐUR Við leitum að stundvísri, líflegri stúlku, 20-25 ára, með þægilegt viðmót og góða islensku- og vélritunarkunn- áttu. Vinnutími kl. 13-17. Við bjóðum bjartan og góðan vinnustað og góðan starfsanda. Skriflegar umsóknir sendist auglýsingadeild DV fyrir laugardaginn 23. maí merktar „FRAMTÍÐ - DUGNAÐUR 323". SÖLUMAÐUR ÓSKAST Reglusaman og ábyggilegan sölumann vantar á bíla- sölu. Upplýsingar gefnar á staðnum fimmtudaginn 21.5. milli kl. 9.30 og 11.30. BÍLATORG NÓATÚN 2 - SlMI 621033 BORGARNESHREPPUR Sveitarfélög - Verktakar Til sölu er TURNER 64 sláttuvél fyrir opin svæði. Vélin er lyftutengd, með 1,70 m vinnslubreidd og nær ónotuð (ca 10 vinnustundir). Upplýsingar hjá Áhalda- húsi, s. 93-7389, og á skrifstofu hreppsins, s. 93-7224. Sveitarstjórinn í Borgarnesi. fjOlbrautaskúunn BREIÐHOLTI FRÁ FJÖLBRAUTASKÓLANUM í BREIÐHOLTI Skólaslit verða í Bústaðakirkju föstudaginn 22. maí og hefjast klukkan fjögur síðdegis. Allir nemendur dagskóla og öldungadeildar, er lokið hafa prófum á þriggja og fjögurra ára brautum, komi á skólaslitin. Þannig skulu allir nemendur, er lokið hafa áföngum sjúkraliða, matartækna, matarfræðinga, sveinsprófs, sérhæfðu verslunarprófi og stúdentsprófi, taka á móti prófskírteinum við skólaslitin. Foreldrar, aðrir ættingjar svo og velunnarar skólans eru velkomnir í Bústaðakirkju kl. 16.00 föstudaginn 22. maí. Skólameistari.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.