Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Side 31

Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987. 31 Sandkom Vilhjálmur Egilsson. Vilhjálmur styður Sigurbjöm Við sögðum frá því hér í Sandkomi um daginn að margir ungir sjálfstæðismenn hefðu hug á því að styðja Árna Sigfússon til formennsku í SUF. Núverandi formaður, Vilhjálmur Egilsson, mun ekki gefa kost á sér til áfram- haldandi setu í stólnum. Nú þykir hins vegar ljóst að það stefni í sæmilegustu átök um formennskuna. Sigurbjörn Magnússon er nefnilega mættur til leiks í framboðs- slaginn með mannafla á bak við sig. Og Vilhjálmur, fráfar- andi formaður, er sagður styðja hann í baráttunni. Þá segja aðrir stuðningsmenn Sigurbjörns að keppinautur- inn, Ámi, hafi í nógu að snúast sem borgarstjómar- fulltrúi þótt hann fari ekki að bæta á sig fleiri blómum. Þeir leggja einnig áherslu á að þeir vilji yngri mann til forystu í SUS. Þingmenn í sumarönnum Nú er sá tími sem þingmenn eiga frí frá bjástri og amstri í þingsölum. Flestir þeirra hverfa á heimaslóðir og sinna sínum verkefnum þar. Frétta- mönnum bregður því sannar- lega við að geta ekki náð sambandi við þá þegar á þarf að halda. Gott dæmi um þetta gerðist á DV í gærmorgun. Þá hringdi einn blaðamanna austur að Seljavöllum og spurði eftir Agli Jónssyni þingmanni. En aldrei þessu vant var afar erf- itt að ná í þingmanninn því hann var úti í fjósi að mjólka. Svona er nú lífið og raunar er það spuming hvort opin- berir embættismenn ættu ekki allir sem einn að fá sér farsíma í fjósið. Annað eins hefur nú gerst. Egill Jónsson. Kengúran káta íslendingar sitja yfirleitt ekki auðum höndum ef þeir komast til útlanda. Eru marg- ar sögur sagðar af framtaks- semi þeirra. Hér kemur ein sem er jafnsönn og guðspjöll- in. Nokkrir landar brugðu sér til Ástralíu. Þar ákváðu þeir að fara í safariferð og leigðu sér öflugan j eppa í slarkið. Hentust þeir af stað í ryk- mekki og linntu ekki látunum fyrr en þeir óku yfir kengúru sem ætlaði að skjótast yfir veginn. Félagarnir hentust út úr jeppanum til að athuga hvað komið hefði fyrir. Lá þá keng- úran hreyfingarlaus á vegin- um. Við eftirgrennslan komust ferðalangamir að þeirri niðurstöðu að hún væri steindauð. Þeir fóm nú að gantast með dýrið, setja sig í veiðistelling- ar, stíga ofan á það með annarri löppinni og fagna sem sannir veiðimenn. Lét hópur- inn mynda sig í hinum ýmsu stellingum með kengúruna. Einn félaganna sló þó öll met. Hann náði í leðurjakk- ann sinn, tróð kengúmnni í hann og lét hana standa upp- rétta sér við hlið. Kallaði hann til félaganna að taka nú mynd ársins. En þá vildi ekki betur til en svo að kengúran lifnaði skyndilega við, sleit sig af manninum og hoppaði í burtu í leðuijakkanum þar sem geymdur var farseðili, vega- bréf og gjaldeyrir eigandans. Aðeins í Hafnarfirði Margir hafa þjónað lund sinni í gegnum tíðina með því að segja svokallaða Hafnar- fjarðarbrandara. Eftirfarandi atvik, sem gæti allt eins flokk- ast undir Hafnarfjarðarbrand- ara, átti sér stað í kosningun- um. Ung kona í Hafnarfirði dreif sig á kjörstað í Lundaskóla til að kjósa. Hún hafði ekki gert upp hug sinn þegar hún mætti á staðinn. Það ætlaði hún að gera í kjörklefanum. En þegar hún var orðin ein með sjálfri sér bak við tjöldin í kjörklef- anum vissi hún ekki fyrr til en þau sviptust til hliðar og inn kom eldri maður með Luxolampa í hendinni. Konan brást ókvæða við og spurði manninn hvað hann væri eiginlega að vilja inn í kjörklefann. Hann kvaðst hafa verið beðinn að setja upp lampann þann ama og hygðist ljúka því af. Ekki fer sögum af því á hvaða lista atkvæði kjósandans féll en ákvörðunin mun hafa verið tekin í nokkru hasti eins og nærri má geta. Ólafur E. Friðriksson. Ólafur hættir Fréttastofa Stöðvar 2 missir á næstunni einn af sínum bestu fréttamönnum. Sá er Ólafur E. Friðriksson. Ólafur hefursagtuppenekkiervitað hvað hann fer að gera þegar hann yfirgefur stöðina. Umsjón: Jóhanna S. Sigþórsdóttir. Hluti nemenda annars stigs við skólaslitin. Ómar Garðarsson, DV, Vestmannaeyjum: Stýrímannaskólanum í Vestmannaeyjum slitið sl. laugardag Stýrimannaskólanum í Vest- mannaeyjum var slitið síðastliðinn laugardag. Skólinn hefur starfað frá árinu 1964. Friðrik Ásmundsson er skólastjóri Stýrimannaskólans en hann og Sigurgeir Jónsson eru fastir kennarar við skólann en auk þeirra eru tíu stundakennarar. Samtals voru við skólann í vetur 36 nemendur. Þar af voru sjö á svokölluðu undanþágunámskeiði sem gefur réttindi á allt að 80 tonna skip. Á fyrsta stigi voru ellefu nem- endur. Hæstu einkunn á fyrsta stigi fékk Stefán Guðmundsson frá Húsavík. Á öðru stigi voru fimmtán nemendur og þar var Birgir Þ. Guðmundsson úr Garðinum með hæstu einkunn, 9,15. Birgir fékk fjölda viðurkenninga og verðlauna fyrir frábæran námsárangur. Margt gesta var við skólaslitin, má þar nefna áhöfn björgunar- skipsins Sæbjargar sem er í Vestmannaeyjum þessa dagana. Haraldur Henrýsson, forseti Slysa- varnafélags Islands, flutti ávarp og rakti sögu þess að Sæbjörgin er nú í eigu Slysavarnafélagsins. Einnig má geta þess að skólanum bárust margar gjafir og árnaðaróskir. í lok skólaslitanna voru bornar fram veitingar. -sme Fréttir Alþýðuskólinn á Eiðum: Sófhuðu fyrir bíl handa félaga sínum Aima IngöHsdóttir, DV, Egilsstööum: í Alþýðuskólanum á Eiðum er öflugt félagslíf fyrir 120 nemendur, sem nú stunda þar nám, undir handleiðslu formanns nemendafélagsins. Sá atburður átti sér stað að nemandi einn hugðist bregða sér á Egilsstaði og kaupa sér bifreið sem hann og gerði. Hann hélt heim á leið í nýja ökutækinu sínu og hugðist sýna félög- um sínum það. Eftir að 20 mínútur voru liðnar frá því að nemandinn skrifaði undir afsal bifreiðarinnar vildi ekki betur til en svo að hann missti stjóm á bílnum sem fór út af veginum og valt. Bíllinn varð ónýtur en strákur sté út heill á húfi ásamt farþega sem skrámaðist. Það var því guðs mildi að ekki fór verr. Er nokkrir nemendur voru að Ijúka ræðunámskeiði með mælskukeppni skömmu síðar vatt sér einn í ræðustól og sagði söguna um drenginn sem brá sér bæjarleið til bílakaupa. Augu allra beindust að formanni nemendafélags- ins sem seig hægt og hljótt niður í sæti sitt. En fljótt skipast veður í lofti. Ræðumaður breytti um stíl, hætti við að segja söguna í smáatriðum en til- kynnti þess í stað að nemendur og kennarar hefðu nurlað saman nokkr- um krónum og bað fyrrverandi bíleig- anda að ganga til sín og taka við þeim. Formaður nemendafélagsins stóð upp, gekk að pontu og trúði þessu greini- lega ekki. Honum var sagt að hann væri 22 þúsund krónum ríkari og hann hvattur til þess að fá sér annan bíl. Formanninum varð tregt um mál, sennilega í fyrsta skipti í sögu félags- ins sem formaðurinn veit ekki hvað hann á að segja. Á eftir dundu á hon- um kossar og handabönd, greinileg merki um trausta og sanna vináttu þar sem allir nemendurnir létu í ljós feginleik yfir að hafa heimt félaga sinn lifandi úr ökuferðinni miklu. Nokkrir nemendur í vélfræði ásamt kennara sínum, Valtý Sæmundssyni. DV-mynd Gunnar Hjaltason Grunnskolinn á Reyðarfirði: Vélfræði kennd sem valgrein Vigfus Ólafeson, DV, Reyðaifirði: Nemendum 9. bekkjar grunnskólans á Revðarfirði hefur að undanförnu verið boðin sem valgrein kennsla í vélfræði. Það eru 12 ár síðan bvijað var á þessu. Fvrstu árin var þetta til- raunakennsla en er fviir löngu orðinn fastur liðui' í skólastarfinu. Sérstök kennslustofa er notuð og eru þar ýmsir hlutir úr bílum. enda kennsl- an fvrst og fremst miðuð við að nemendm- læri umhirðu og meðferð bifreiða. Það er álit ökukennara að þeir unglingar sem þessarar fræðslu hafa notið standi betur að vígi þegar þeir læra á bíl heldur en hinfr sem ekki hafa numið vélfræði. Blaðamenn og lög- fræðingar funda Sameiginlegur fundur Blaóamannafélags íslands og Lögfræðingafélags íslands var haldinn á laugardaginn. Umræðuefni fundarins var réttaröryggi og fjölmiðl- ar. Eirikur Tómasson hæstaréttarlögmaður er í ræðupúlti á meðtylgjandi mynd, til vinstri sitja Ómar Valdimarsson, blaðamaður og formaður BÍ, Þórir Odds- son, vararannsóknarlögreglustjóri ríkisins, og Lúðvik Gissurarson, blaðamaður og varaformaður BÍ. Til hægri eru Hallur Hallsson blaðamaöur og Jónatan Þórmundsson prófessor. -baj DV-mynd KAE

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.