Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Page 36
36
MIÐVIKUDAGUR 20. MAÍ 1987.
Sviðsljós
Ólyginn
sagði...
á sem kunnugt er von á fjórða
barni sínu og segist að þessu
sinni ætla að njóta þess út í
ystu æsar. Hún var lengi ein-
stæð móðir með þrjár dætur á
sínu framfæri en giftist fyrir
skömmu norska milljónaranum
Arne Næss. Þau eiga samtals -
þegar væntanlegt kríli er með-
talið - ein sjö börn og ætla að
láta þar við sitja. Arne var reynd-
ar lengi í sambandi við unga
leikkonu en það gekk ekki
vegna þess að hún vildi leggjast
í barneignir þvert gegn vilja millj-
ónarans. Eitthvað annað viðhorf
hefur kappinn til fjölgunar með
Diönu og er nú heimilið allt á
öðrum endanum við að und-
irbúa fæðingu barnsins.
Jane Russel
gerir það ekki endasleppt. Nú
hefur henni tekist að finna heim-
ili fyrir þrjátíu og fimm þúsund
foreldralaus börn og slapp hún
með að ættleiða sjálf þrjú þeirra.
Jane varð heimsfræg fyrir leik
sinn á móti Marilyn Monroe í
kvikmyndinni Karlmenn kjósa
Ijóskur og segir hún það vera
sína uppáhaldsmynd ennþá.
Jane sökk síðar í fen vímuefna-
neyslunnar en er komin á fætur
aftur og önnum kafin við að
sinna sínum áhugamálum. Jane
er ekkert á því að gefast upp
við heimilissöfnun fyrir munað-
arleysingja og hefur starfsemi
leikkonunnar vakið athygli langt
út fyrir Bandaríkin.
Boy George
grét af gleði þegar nýjasta platan
hans, Everything I Own, komst
á toppinn á breska vinsældalist-
anum. Kappinn sagði þetta eins
og að rísa upp frá dauðum en
síðastliðið haust var hann hrein-
lega afskrifaður sem ólæknandi
herólnneytandi. Platan er reynd-
ar endurgerð annarrar slíkrar frá
árinu 1974 en nú er Boy kom-
inn á fulla ferð í vinnu aftur og
sigtar á nýja plötu. Það er LP-
platan Sold sem er í gerjun núna
og ef fíkniefnin ná ekki I skottið
á karli má búast við útkomu
plötunnar á næstu mánuðum.
Þau fara í flugið
RlncrlpiAir iit.clrrifa nnlfltmm cinnnm clrrnfact IVÍprSfirlcrianrii FíV.m\mHir fnlr ....
Flugleiðir útskrifa nokkrum sinnum
á ári verðandi flugfreyjur og flugþjóna.
Fimmtán voru útskrifaðir á síðasta
námskeiði en samtals koma til starfa
fjörutíu og tveir þetta vorið. Sífellt
fleiri karlmenn sækja um starfið þótt
að þessu sinni hafi einungis tveir út-
skrifast. Meðfylgjandi DV-myndir tók
BG af hópnum sem bættist í tölu flug-
fólksins og yfirleitt er þama um að
ræða námsfólk sem hefúr störf við sum-
arafleysingar í upphafi - en allmargir
eiga síðan eftir að dvelja allmörg ár í
stéttinni.
Einum nemendanna - Astu Margréti Guðlaugsdóttur - afhentir hátiðlega pappir- Hress hópur flugfreyja og flugþjóna sem tekinn er til starfa hjá Flugleiðum.
ar um að hún hafi staðist tilsettar kröfur. Sitjandi eru Guðmundur Snorrason
deildarstjóri og Sæmundur Guðvinsson blaðafulltrúi en Guðmundur Pálsson
framkvæmdastjóri sér standandi um framkvæmdina.
Rita Hayworth látin
Ein dáðasta leikkona stríðsáranna
- Rita Hayworth - lést í Hollívúdd á
föstudagskvöldið. Hún varð sextíu
og níu ára gömul.
Banamein hennar var Alzheimer-
sjúkdómurinn og hafði leikkonan
barist við mikil veikindi áratugum
saman.
Rita gekk fimm sinnum í hjónaband
og einn eiginmannanna var milljón-
arinn Aga Khan. Með honum átti
hún dótturina Yasmin sem reyndist
móður sinni stoð og stytta í hinum
erfiðu veikindum siðari æviáranna.
Ritu hlotnaðist meðal annars sá
vafasami heiður að mynd hennar var
fest við aðra sprengjuna sem grand-
aði Hirosima. Hún þótti alla ævi
einstaklega fógur og fyrirmynd jafn-
aldra kynsystra sinna um víða veröld.
Meðfylgjandi Reutermyndir sýna
Ritu ásamt sínum nánustu á hinum
ýmsu þrepum æviferilsins.
Hún þótti ein fegursta kona heims og á timum siðari heimsstyrjaldarinnar
voru myndir af þessari iturvöxnu ungu konu uppi um alla veggi í herbúðum
bandamanna.
Þær mæðgurnar voru mjög nánar alla tið - Rita og dóttir hennar Yasmin
Kahn fyrir tiu árum á heimili þeirra í Beverly Hills. Þetta er ein siðasta
myndin sem til er af henni því þegar veikindin tóku að ágerast voru mynda-
tökur ekki leyfðar og leikkonan hvarf von bráðar af sjónarsviðinu.
Leikkonan gekk fimm sinnum í hjónaband. Til vinstri með fjórða eigin-
manninum Dick Haymes og til hægri með þeim fimmta - James Hill.
Rita með dótturina Yasmin i fanginu.