Dagblaðið Vísir - DV - 20.05.1987, Side 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt, krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta- ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
skot, sem birtist eða er notað í DV, greiðast 1.500 Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Auglýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
MIÐVIKUDAGUR 20. MAi 1987.
Burðarþoli
bygginga
ábótavant
„Eftirlitið er ekki í lagi. Þetta er
neikvæð þróun miðáð við þá tækni
sem byggingariðnaðurinn býr yfir í
dag.“ Þetta sagði Alexander Stefáns-
son félagsmálaráðherra m.a. þegar
kynnt var skýrsla um burðarþol
bygginga sem félagsmálaráðuneytið
hefur látið gera.
Við gerð skýrslunnar var óskað
eftir teikningum af tíu byggingum.
Þau gögn sem fengust voru mismun-
andi að gæðum, allt frá því að engin
gögn voru til staðar og upp í vel
gerð greinargóð teikningasett. Hús
í könnunina voru valin með þeim
hætti að farið var um Reykjavík og
valin hús sem virtust vafasöm hvað
burðarþol varðaði við fjTstu sýn.
Að auki voru valin nokkur hús sem
vonast var til að væm í lagi án frek-
ari athugunar.
Ekkert húsanna tíu stenst að öllu
leyti settar kröfur. Þetta kemur
skýrt fram í könnuninni. Einnig vek-
ur sérstaka eftirtekt hvað mikill
skortur virðist vera á gögnum hjá
byggingafulltrúanum í Reykjavík.
Könnunin náði til verslunar-, iðn-
aðar-, skrifstofu- og skólahúsnæðis.
Slík könnun hefur ekki enn verið
framkvæmd á íbúðarhúsnæði. -sme
Kvennalisti
vill lögbinda
lágmarkslaun
Kvennalistinn er nú að láta reikna
fyrir sig hvað það kostar ef lág-
markslaun yrðu lögbundin. Búast
þær við niðurstöðum fyrir lok vik-
1 komandi stjómarmyndunarvið-
ræðum verður hækkun lægstu launa
meginkrafa Kvennalistans. Vilja
konumar lögbinda lágmarkslaun ef
önnur ráð duga ekki til að tryggja
öllum þær tekjur sem almennt sé
viðurkennt að þurfi til framfærslu.
Kvennalistakonur gera ráð fyrir
að upphæðin sem miðað verður við
liggi á bilinu 36 til 45 þúsund krón-
ur. Setjist þær í ríkisstjóm vilja þær
byija á því að hækka laun ríkis-
starfsmanna svo og elli- og örorkulíf-
eyri upp að þessu marki. -KMU
LOKI
Það hefur verið
hrossahlátur
í þýska tollinum!
Islendingur smyglaði
stóðhesti úr landi
- skipti á stéðhestinum og geldingi rétt áður en hrossunum var skipað út
Islenskur hrossasali smyglaði
stóðhesti úr landi á dögunum þegar
300 hross frá íslandi voru flutt með
skipi til Þýskalands. Hann fór þann-
ig að þessu að hann lét skoða 20
hross sem hann var með og fékk
bréf upp á það að ailt væri í lagi.
En rétt áður en hrossunum var skip-
að út skipti hann á stóðhesti og
geldingi sem hann hafði verið með
í hópnum og kom stóðhestinum úr
landi. Stóðhesturinn, sem hann flutti
út, er ekki í hópi frægra hesta hér á
landi.
Sérstakt leyfi þarf frá landbúnað-
arráðuneytinu ef menn ætla að flytja
stóðhesta til útlanda. Aukinheldur
þarf að greiða 20% skatt af stóð-
hestum sem fluttir eru út og 10%
skatt af hryssum en ekkert slíkt
gjald er lagt á útflutning geldinga.
Þessi hrossasali á í fjárhagserfið-
leikum og skuldar mönnum vítt um
landið fyrir hross sem hann hefúr
fengið frá þeim og flutt út. En frá
faglegu sjónaimiði er hann sagður
hafa unnið gott starf varðandi kynn-
ingu á íslenska hestinum og ræktun
hans í Þýskalandi.
Verið er að reyna að fá manninn
til að bæta fyrir þetta brot sitt og
hefúr hann ekki verið kærður vegna
þessa, hvað sem verður. Vilja menn
í lengstu lög reyna að ná sáttum í
málinu.
-S.dór
Tveir á slysadeild
Laust eftir klukkan ellefu í gærkvöld varð nokkuð harður árekstur á horni Laugavegar og
Baronsstigs. Tveir farþegar annarrar bifreiðarinnar voru fluttir á slysadeild. Töluvert tjón varð
a báðum bílunum. -sme/DV-mynd S
Danskir sjó-
liðargerausla
Danska varðskipið Ingolf liggur nú
í Reykjavíkurhöfn. Hluti áhafnar
skipsins gerði mikinn usla í Reykjavík
í gær. Tveir sjóliðanna stálu nýrri
Mercedes Benz bifreið við Skipholt í
gær. Ökuferð þeirra varð stutt og af-
drifarík. Þeir lentu í hörðum árekstri
á Breiðholtsbraut um klukkan 20.30 í
gærkvöld. Ökumaður bílsins, sem varð
fyrir þeim, sá strax að Danimir vom
ekki með sjálfum sér svo hann tók
lykilinn úr stolna bílnum, svo Danirn-
ir kæmust hvergi.
Báðir bílamir em nokkuð mikið
skemmdir. Benzinn skemmdist mikið
á hægri hlið. Danimir sátu enn í
fangageymslu nú í morgun. Að sögn
lögreglunnar vom þeir óviðræðuhæfir
sökum ölvunar.
Einn sjóliði til viðbótar var settur í
fangageymslu. Hann sótti einn
skemmtistað borgarinnar í gærkvöldi.
Kom hann seint og var ósáttur þegar
loka átti skemmtistaðnum og greip þá
til hnífs og ógnaði viðstöddum. Það
tókst að afvopna manninn og færa
hann í hendur lögreglu. -sme
Flugumferðarstjórar:
Verkfallsboðun
Lögregla til hófuðs dónanum
Borgarráð samþykkti, á fundi sín-
um í gær að beína þeim tilmælum
til iögreglunnar að eftirlit við Hvas-
saleitisskóla verði aukið. Er þetta
gert í framhaldi af óskum foreidra í
hverfinu sem óttast mjög mann sem
gyrðir niður um sig fyrir framan
börn og dreifir klámblöðum. Þá
verður einnig athugað hvaða um-
bætur má gera á lóð Hvassaleitis-
skóla þar sem há girðing hefur verið
helsta skjól „Hvassaleitisdónans“
eins og hann hefúr verið nefiidur.
Samtök foreldra í hverfinu hafa
krafist þess að umrasdd girðing verði
rifin, lækkuð eða í það minnsta grisj-
uð. Ef borgaryfirvöld sjá sér ekíti
fært að verða við þeim kröíúm ætla
foreldramir sjálfir að rífa girðing-
-EIR
kærð til
Félagsdóms
Veðrið á morgun:
Vest- og
norðvest-
læg átt
Á fimmtudaginn verður hæðin
áfram fyrir Suðurlandi og vindur
því vest- og norðvestlægur, gola
eða kaldi. Dálítil súld norðvestan-
lands en þurrt annars staðar. Hiti
verður á þilinu 8-16 stig.
Fjármálaráðuneytið hefúr kært
verkfallsboðun Félags flugumferðar-
stjóra 25. maí til Félagsdóms. Kæran
er byggð á þeim forsendum að flugum-
ferðarstjórar megi ekki fara í verkfall
þar eð þeir sinni öryggisgæslu. Hefur
Félagi flugumferðarstjóra verið birt
stefna vegna þessa.
Talið er að Félagsdómur taki málið
fyrir í lok þessarar viku enda á verk-
fallið að skella á næsta mánudag.
Lögffæðingur flugumferðarstjóra fékk
frest til að skila greinargerð þar til á
morgun, fimmtudag.
Meðan Félagsdómur íjallar um mál-
ið liggja samningaviðræður að sjálf-
sögðu niðri. -S.dór
Háskólinn á Akureyri: A
Forstöðumaður láðinn ;
Jón G. Hauksson, DV, Akureyri:
Haraldur Bessason, prófessor í ís-
lenskum fræðum við Manitobahá-
skóla, hefur verið ráðinn forstöðu-
maður háskólans á Akureyri.
Skrifstofustjóri hefur verið ráðinn
Bárður Halldórsson. Enn er eftir að
ráða í starf brautarstjóra í iðnrekstr-
arfræði.