Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Side 3
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. 3 DV Hradfvystihús Ólafsvíkur: Ulboðið hljóðar upp á áttfalt nafnvirði Tilboðsgjaíi í meirihluta hlutabréfa í Hraðfrystihúsi Ólafsvíkur hefur boð- ið 40 milljónir króna fyrir 52% hluta- bréfanna. Allt hlutafé Hraðfiystihúss- ins er 9.331.200 krónur, þar af eru eigin bréf 361.948 krónur. Þegar eigin bréf eru dregin frá heildarupphæð hlutafj- árins er eftir 8.969.252 krónur. Fyrir meirihluta ,þess, eða 4.660.200 krónur, eru boðnar 40 milljónir en það er rúm- lega áttfalt nafhvirði. í tilboðinu segir að greiðslur fari fram á tíu árum og verði upþhæðin verðtryggð og beri 3% ársvexti. Tilboðið stendur til 14. ágúst næstkomandi. Það var sagt í DV á laugardag að það væru heimamenn sem hygðust selja sinn hluta í fyrirtækinu. Svo mun þó ekki vera að undanskildum Guð- mundi Bjömssyni framkvæmdarstjóra en hann mun vera stærsti einstaki hluthafi í fyrirtækinu. Guðmundur er ásamt mönnum búsettum utan Ólaf- svíkur að selja sinn hlut. Mikil leynd hefur verið yfir því hver sé tilboðsgjafi. DV hefur fengið stað- fest að það muni vera Ólafur Gunnars- son, framkvæmdastjóri Sölumiðstöðv- ar hraðfiystihúsanna, en hann var áður framkvæmdastjóri hjá Síldar- vinnslunni í Neskaupsstað. -sme Orsök slysa á þjóðvegum Útafakstur algengastur í skýrslu, sem Vegagerð ríkisins hefur sent frá sér, um umferðarslys á þjóðvegum, kemur fram að algeng- asta orsök umferðarslysa er útaf- akstur. Em þeir alls 40% allra slysa á þjóðvegunum í fyrra. Alls var til- kynnt um 413 útafakstra. Næstal- gengasta orsökin var akstur aftan á bifreið, 197 tilfelli eða 19%. Þriðja algengasta orsökin var þegar ekið var á hlið bifreiðar, 191 tilfelli eða 18%. Ef aðeins em skoðuð þau óhöpp sem valda meiðslum er útafakstur algengastur, sem fyrr. Fjöldi tilfella er 150 og er það 60% slysatilfella. Útafakstur er því langalgengasta slysatilfellið á síðastliðnu ári. Aðrar orsakir slysa em langtum sjaldgæf- ari en útafakstur. Næst kemur þegar ekið er framan á bifreið en þannig slysatilfelli vom 26 eða 11% allra slysa á þjóðvegum landsins í fyrra. -sme Fréttir Enn eru risnar deilur um Sæbólsiand Sæbólsland í Kópavogi: Deilur risa á ný Deilur hafa risið á ný vegna sölu til Kópavogskaupstaðar á Sæbólsl- andi. I fyrra var dæmt í bæjarþingi Kópavogs að samningur um solu á landinu væri ekki löglegur. Málinu hefúr verið vísað til Hæstaréttar. Það em erfingjar Þórðar heitins Snæbjömssonar á Sæbóli sem deila í þesau málL Nú hefúr nýr angi af deilunni ris- ið. Nýlega úthlutaði Kópavogsbær lóðmni að Helgubraut 12 en sú lóð er í SæbólslandL Lóðinni hafði áður verið úthlutað en skilað inn aftur. Garðar Sveinsson, en hann er sonur Sveins Þórðarson sem stefhdi mól- inu fyrir bæjarþingið, sagði að fyrir hönd foður síns væri hann afar óán- ægður með að lóðinni skyldi úthlut- að áður en málið yrði tekið fyrir í Hæstarétti. Hann sagðist ekki vera sáttur við að Kópavogsbær segðist borga þeim ef bærinn tapaði máhnu, hann sagðist telja að lóðin væri í eigu dánarbúsins samkvæmt dómi undirréttar. Bjöm Þorsteinsson, bæjarritari í Kópavogi, sagði það rétt vera að búið væri að úthluta lóðinni, það hefði verið gert 2. júlí. Bjöm sagði að dómurinn í undirrétti hefði ekk- ert með úthlutun bæjarins að gera, um væri að ræða deilu á milli erf- ingja en ekki við Kópavogsbæ. Bjöm sagði að það væri annað mál að bæjæyfirvöld yrðu að fylgast vel með þessu máli þar sem Kópavogs- bær tengist því óneitanlega. En deilan sjálf væri hins vegar innan fjölskyldunnar. Garðar Sveinsson sagði að sér kæmi á óvart sá mikli hraði sem verið hefði við úthlutun lóðarinnar. Fljótlega eftir að hann hefði gert athugasemdir við auglýsingu þar sem lóðin var auglýst hefði lóðinni verið úthlutað með óvenju hraðri afgreiðslu. -sme ERÞETTA EKKI RÉTTA SPOLAN FYRIRÞIG Ef þú hefur áhuga á að myndbandstækið þitt endist betur er mikið atriði að spólurnar, sem þú notar, séu í háum gæðaflokki. Er þá bæði átt við bandið sjálft og kassann utan um. PAIMASONIC PREMIUM STD myndbandsspólan sameinar báða þessa gæðaþætti og er því kjörinn valkostur þeirra sem vilja meiri upptöku - gæði og betri endingu tækjanna. VERÐ AÐEINS KR. 595. 5? WJAPIS BRAUTARHOLT 2 SlMI 27133

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.