Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 37

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 37
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. Breska leikkonan Joan Collins mæt- ir ásamt lögfræðingi sinum til fundar sem haldinn var til að reyna að leysa deilur þeirra fyrrum hjóna, Collins Og Holms. Simamynd Reuter Stríðið heldur áfram Joan Collins, Peter Holm, lögfræð- ingar þeirra og dómari reyndu á tveggja klst. löngum fundi að komast að samkomulagi í deilu hjónanna en mistókst. Þegar Holm kom út af fundinum kallaði hann yfir mann- fjöldann sem beið. „Ekkert sam- komulag náðist. Það besta sem þau buðu var ekkert. Ég sé fram á mikið stríð.“ Collins og Holm skiptust ekki á orðum á meðan á fundinum stóð en augnaráð þeirra var banvænt. Réttarhöld munu fylgja í kjölfar þessa fundar þar sem dæmt verður um kröfu Holms um rúmlega 3 millj- ónir króna mánaðarlega sem tíma- bundinn stuðning og einnig kröfu hans í húseign sem Collins segist vera búin að selja. Gitte virðist bara skemmta sér vel, svona frí og frjáls, og ekki er annað að sjá en henni finnist bara gaman að fá orð I eyra. Simamynd Reuter Orð í eyra Hin danska leikkona Brigitte Niel- sen brosir út að báðum eyrum við orð og kossa ítalska leikstjórans Pip- pos Baudo. Gitte náði sér fljótt upp úr sorginni vegna skilnaðarins við Sylvester Stallone og flaug til Ítalíu þar sem hún tók þátt í sjónvarps- þætti fyrir sjónvarpsstöðina Canale-5 í Róm þann 17. júlí. 37 ■ Svidsljós Málaralist á Rivieruimi Simamynd Reuter Alltaf berst eitthvað nýtt frá frönsku Rivierunni og stjömuströndinni við St. Tropez. Þessi skælbrosandi stúlka þjónaði hlutverki sem fyrirsæta og léreft fyrir hinn franska málara, Saint Seauvage. Hann málaði á líkama hennar búninga fyrirliðanna í hjólreiðakeppninni frægu, Tour de France. Lesendum til glöggvunar er aðalliturinn í „fötun- um“ gulur en rendur í hvítum, rauðum og -bláum lit skreyta ermar og læri. Simamynd Reuter Nútímaprinsessur sitja ekki lengur á baunum og svoleiðis drasli heldur velja sér skriðdreka, byssutæki og tól. Anna Bretaprinsessa lenti í því að keyra skriðdreka í 2ja daga opinberri heimsókn sinni til V-Berlínar nú fyrir stuttu. Hún hlýðir hér með brennandi áhuga á útskýringar undirliðsforingjans Keith Meakin. Prinsessan varð þó fyrir því óhappi fyrr í ferðinni að keyra skriðdrekann yfir næsta bíl. Hún virðist þó ekkert láta svoleiðis smáatvik hafa áhrif á sig og heldur lærdómnum áfram, staðráðin í að gera betur. Ólyginn sagði... ' Olli North hefur verið hafinn til skýjanna í Bandaríkjunum og almenn- ingur þar lítur á hann sem hetju og frækinn dáðamann. Hann var fjórum sinnum heiðraður fyrir frækna fram- göngu í Víetnamstríðinu. Og hér kemur frægasta hetjusag- an: Olli hafði verið tekinn til fanga og var færður í víet- namskt fangelsi lengst inni í landi. Hann lét þó ekki deigan síga heldur gerði sér lítið fyrir og braust út úr rammgerðu fangelsinu. Með einn gaffal að vopni æddi hann svo áfram yfir stokka og steina og hvað sem fyrir varð. 7 eða 8 Víet- namar lágu í valnum en Olli komst heilu og höldnu aftur yfir víglínuna með gaffalinn sinn. Robert Redford, hinn fimmtíu ára gamli hjarta- knúsari, var sæmdur nafn- bótinni heiðursdoktor við háskólann í Colorado fyrir stuttu. Þetta var heilmikil hátíð og mikið um dýrðir. Robert tók hrærður við titlinum og þakkaði fyrir sig með virktum. Þessar móttökur voru öðruvísi en hann á að venjast frá skól- anum því fyrir rétt rúmum þrjátíu árum féll hann svo illa á prófunum að honum var sparkað. Michael Jackson 4 «• þoldi ekki þegar systir hans, Janet Jackson, kom fram í sviðsljósið. Hann óttaðist mjög að hún myndi með tímanum skyggja á hann en það er það versta sem fyrir hann gæti komið. Hann varð einnig alveg vitlaus yfir þeim andlitsaðgerðum sem hún lét gera á sér. Því ekki getur hann hugsað sér að hún verði fal- legri en hann. Hann hefur nú hálfgrafið stríðsöxina og talar nú aftur við systur sína. Það á þó eftir að koma í Ijós hvort hann stendur við blíðyrðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.