Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 17

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 17
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. 17 I>V Verslunarmannafélagið: Félag Lesendur fyrir gólftuskur á svertingjalaunum? Guðbjörg Bjamadóttir segir: Launamálin finnst mér hafa lent í algjörum ólestri hjá VR síðan þeir tóku upp á því að hafa einungis eitt launaþrep. Þetta þýðir í raun það að starfsaldurshækkanir sem áður tiðk- uðust koma ekki á launin og gefur þetta atvinnurekendum aukið færi á því að traðka á stafsfólkinu. Sé mitt dæmi tekið er ég einstæð móðir með tvö böm og þrjátíu og fimm þúsund krónur á mánuði í laun fyrir dagvinnu. Ef ætlast er til þess að af þessu sé greidd húsaleiga - tuttugu og fimm til þrjátíu þúsund em vinsæl- ar tölur á húsaleigumarkaðnum - og síðan bamaheimilispláss fyrir bæði bömin geta allir séð að dæmið gengur ekki upp. Alltaf er verið að staglast á því að menn eigi að vinna minna og vera meira með bömunum en þetta kerfi gefur launafólki harla lítið færi á því. Til þess að framfleyta þriggja manna fjölskyldu er nauðsynlegt fyrir mig að vinna þrefalda vinnu og sjá þá allir hversu vel er búið að foreldrum og bömum þeirra við þessar aðstæður. Það væri strax í áttina að taka upp gamla kerfið í sambandi við starfsald- urshækkanir og þá leiddi það kannski tif þess að eitthvað væra metin þau störf sem menn inna af hendi á vinnu- stað - í stað þess að núna er litið á starfsmenn sem eins konar gólftuskur á dæmigerðum svertingjalaunum. Hún er ekki lengur á gólfinu þessi heldur komin upp um alla veggi - hefur kannski hækkað í launum nýlega. Oliver North: JÁRNSMÍÐAVINNA Okkur vantar menn í almenna járnsmíða- vinnu. Mikil vinna í boði fyrir góða menn. GARÐASMIÐJAN/GALAX Lyngási 15, Garðabæ. Sími 53511. miMn SKAMMTÍMAVISTUNIN ÁLFALANDI 6 Starfsmann vantar í eldhús frá 1. ágúst. Um er að ræða hlutastarf á vöktum. Upplýsingar veitir forstöðu- maður í síma 32766. PANTANIR SÍMI13010 . nnci/ii/nwn i nnjwritjo i« HÁRGREIÐSLUSTOFAN KLAPPARSTÍG 29. SÚÐAVÍK DV óskar eftir að ráða umboðsmann í Súðavík. Upp- lýsingar hjá umboðsmanni í síma 94-6928 og af- greiðslu DV, Reykjavík, sími 91-27022. Gáfnaljós með englavængi Konráð Friðfinnsson skrifar: Ólafur norðurljós er guðdómlegur maður. Ólafur stjömuljós heillaði fólkið í landi tækifæra, peninga og 32 sjónvarpsstöðva upp úr skóm og bux- um nýverið. Ó, hann er svo sannfær- andi, stundi kvenfólkið með herping í maganum, er goðið opnaði þverrifuna. Ólafur gáfhaljós ber englavængi undir skyrtunni og er þessa stundina ímynd alls hins góða er einn mann má prýða. Eins og t.d. sannsögli, áreiðanleika og heiðarleika. Réttlátur er hann talinn með eindæmum og hvorki lemur né heldur framhjá kellingunni. Um slíkt er ég handviss. Ólafur norðurljós má ekkert aumt sjá ellegar heyra án þess að rétta fram sína hjálpfúsu hönd. Hverra manna er hann, þessi útsend- ari drottins allsherjar sem vikið er að? Ekki treysti ég mér í það stórvirki að útfæra þann sálm allan. Enda þekki ég mannfjandann ekkert, sem betur fer. I föðurlandi sínu kvað sveinninn ungi hlýða nafninu Oliver North og vera undirforingi (hvað svo sem það stöðutákn annars þýðir) í bandarísku vígamaskínunni og tengjast með ein- hverjum óskiljanlegum hætti írans- vopnasöluhneykslinu, sem um þessar mundir gandríður strætum og hfbýlum þar vestra ásamt heimsbyggð allri. Málið sem er um það bil að velta stóln- um hans Reagans forseta um koll með hann sitjandi í (þ.e.a.s. Reagan). Ekki er að spyija að tortryggni og efasemdum í mér flesta daga. Sér í lagi þegar fólk verður á einni nóttu algott - ef mér leyfist að nota það orða- lag - eins og virðist með nefhdan North. Því var aulinn sá ama ekki fyrir langalöngu búinn að greina þjóð- inni frá ólöglegum viðskiptaleiðum þjóðanna tveggja, er honum var full- kunnugt um frá byrjun, að sögn? Oliver North skyldi þó ekki hafa freist- ast til að þiggja undir borðið lítinn og nettan bankareikning í Sviss? En af góðmennsku og hjartagæsku einni við frú og böm ákveðið að halda kjafti um málið þrátt fyrir yfimáttúrlegan heiðarleika. En lífið er hverfult og svikult. Og öllum getur orðið á í mess- unni. Einnig Ólafi skósóla nr. 47. Hugsið ykkur líðan einfeldningsins. Reyndar telja gárangar vestursins margtuggðan aðila vænlegasta leik- araefni sem Hollywoodborg getur nú státað af. Ætíð era gárungamir samir við sig. Samviskulausir með öllu. Enn er möguleiki á að fá betra umtal eða lof frá þegnum? Nei, ekki að mínu mati. Að verða Hollywoodtrúður er hápunktur tilverannar. OLAFSVIK DV óskar eftir að ráða umboðsmann í Ólafsvík. Upp- lýsingar hjá umboðsmanni í síma 93-6243 og af- greiðslu DV, Reykjavík, sími 91-27022. BLAÐAUKI FYRIR VERSLUNARMANNAHELGiNA um ferðalög og mótstaði helgarinnar kemur út miðvikudaginn 29. júlí. AUGLYSENDUR ATHUGIÐ! Þeir sem áhuga hafa á að auglýsa vöru sína og þjónustu í þessum blaðauka hafi samband sem fyrst - í síðasta lagi fimmtudaginn 23. júlí. AUGLYSINGADEILD, ÞVERHOLTI 11, sími 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.