Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987.
33-
Fólk í fréttum
Grétar Haraldsson
lögfræðingur
Grétar Haraldsson lögfræðingur,
sem hefur verið spurður álits um
greiðsluerfiðleika meðferðarstoín-
unarinnar Von Veritas í Danmörku,
er fæddur í Reykjavík 6. mars árið
1935. Hann varð stúdent frá V.í. árið
1955 og lauk lögfræðiprófi frá H.Í.
árið 1960. Hann var fulltrúi hjá borg-
ardómaranum í Reykjavík 1960-1961
og síðan fulltrúi hjá Friðrik Guð-
jónssyni útgerðarm. Hann varð
héraðsdómslögmaóur árið 1962. For-
eldrar hans eru Guðmundur Harald-
Ur, fasteignasali í Rvík, f. 15. febrúar,
1906, Guðmundsson trésmíðameist-
ara í Rvík Egilssonar. Móðir Grétars
er Þórunn Marta, f. 12. júní 1913,
Tómasdóttir, b. og hreppstjóra á
Barkarstöðum í Fljótshlíð, f. 10. júlí
1854, d. 16. desember 1923, Sigurðs-
sonar, b. og hreppstjóra á Barkar-
stöðum, f. 17. júlí 1810, d. 23.
nóvember 1892, ísleifssonar. Móðir
Tómasar á Barkarstöðum var Ingi-
björg, systir Tómasar Sæmundsson-
ar Fjölnismanns, prófasts á
Breiðabólstað í Fljótshlíð. Móðir
Þórunnar Mörtu var Margrét, f. 5.
desember 1873, d. 29. janúar 1935,
Ámadóttir, b. og hreppstjóra á
Reynifelli á Rangárvöllum, f. 30.
apríl 1824, d. 25. júlí 1891, Guð-
mundssonar b. á Keldum á Rangár-
völlum, f. 23. nóvember 1794, d. 12.
apríl 1883, Brynjólfssonar b. og
hreppstjóra í Vestri-Kirkjubæ á
Rangárvöllum, f. 1759, d. 24. desemb-
er 1841, Stefánssonar b. og hrepp-
stjóra í Árbæ á Rangárvöllum, f. 2.
mars 1723, d. 29. október 1801,
Bjamasonar, b. og hreppstjóra á
Víkingslæk á Rangárvöllum, f. 1679,
d. 1757, Halldórssonar. Meðal systk-
ina Margrétar Ámadóttur var Jónas
b. á Reynifelli, faðir Helga, læknis
og alþingismanns á Stórólfshvoli, og
afi Einars Ágústssonar, fv. ráðherra.
Meðal systkina Þómnnar Mörtu,
Grétar Haraldsson lögfræðingur,
móður Grétars, vom Sigurður, b. og
oddviti á Barkarstöðum, faðir Daða
b. sem þar býr nú.
Bragi Jens
Steinarsson
Bragi Jens Steinarsson. vararík-
issaksóknari er óneitanlega í sviðs-
ljósinu eftir að Sakadómur
Reykjavíkur heíúr dæmt ríkissak-
sóknara vanhæfan í Hafskipsmál-
inu. Bragi er fæddur 14. mars 1936.
Foreldrar hans em Steinarr Stefán,
verslunarstjóri í Rvík, f. 7. apríl 1896,
Stefánssonar kennara í Spónagerði
i Amameshreppi, f. 26. júní 1872, d.
11. apríl 1944, Marzsonar b. í Sam-
túni í Kræklingahlíð í Eyjafirði, f.
6. maí 1834, d. 16. nóvember 1905,
Kristinssonar Madsens, stýrimanns
frá Danmörku. Móðir Stefáns kenn-
ara var Margrét Stefánsdóttir, b. á
Björgum i Hörgárdal, Halldórsson-
ar. Móðir Steinars var Sigríður
Manasesdóttir. Móðir Braga er Ása,
f. 26. janúar 1895, Sigurðardóttir,
útvegsbónda á Hjalteyri, Sigurðs-
sonar.
Bragi lauk stúdentsprófi frá V.í. árið
1956 og lögfræðiprófi frá H.í. árið
Bragi Jens Steinarsson vararíkis-
saksoknari.
1962. Hann varð fulltrúi hjá sak-
sóknara ríkisins 1962, deildarstjóri
þar 1965 og skipaður saksóknari við
embættið 1976. Hann var settur
vararíkissaksóknari 1977. Hann hef-
ur jafnframt verið starfsmaður
alþingis frá 1962-1980.
Kona hans er Ríkey Rikarðsdóttir
hjúkmnarfræðingur.
DV Afrnæli
Friðrik Jónasson
80 ára er í dag Friðrik Jónasson
kennari, Sigtúni 27, Reykjavík,
Foreldrar hans em Jónas Eiríksson,
skólastjóri á Eiðum, f. 17. júní 1851,
d. 19. ágúst 1924. Móðir hans var
Helga, f. 10. nóvember 1871, d. 3.
nóvember 1958, Baldvinsdóttir, b. í
Viðvík á Langanesströndum, Guð-
mundssonar.
Eiríkur, b. á Skriðuklaustri, f. 11.
desember 1811, d. 10. október 1860,
Arasonar vinnumanns, Arasonar.
Móðir Eiríks var Guðríður Bjama-
dóttir, b í Flögu í Breiðdal, Þórarins-
sonar. Systir Bjama var Kristín,
móðir Kristjáns í Teigargerði, föður
Þórarins á Núpi á Berufjarðar-
strönd, föður Jóns á Strýtu í
Hamarsfirði, föður Finns listmálara
og Ríkharðs Rebekk myndskera.
Móðir Jónasar var Þóra, f. 1815, d.
22. júlí 1870, Ámadóttir, b. á Knap-
peyri í Fáskrúðsfirði, Stefánssonar.
Móðir Þóm var Hallgerður Gríms-
dóttir, Ormssonar prests í Keldna-
þingum, Snorrasonar. Bróður
Vigfúsar, prests á Valþjófsstað, afa
Vigfúsar prests á Ási í Fellum, Gutt-
ormssonar, afa Guttorms Pálssonar,
skógarvarðar á Hallormsstað, föður
Hjörleifs alþingismanns.
Bræður Friðriks, samfeðra, em
Halldór kennari, Jón Gunnlaugur
kaupmaður, faðir Jónasar, fram-
kvæmdastjóra Síldar- og fiskimjöls-
verksmiðjunnar hf. í Rvík, og
Guðlaugs, skrifstofustjóra hjá
Vinnuveitendasambandinu, Bened-
ikt, kaupmaður á Seyðisfirði,
Þórhallur, hreppstjóri á Breiðavaði,
Gunnlaugur bankagjaldkeri á Seyð-
isfirði og Emil Brynjólfúr, símritari
á Seyðisfirði.
s
Friðrik Jónasson kennari.
Ingunn
Þorsteinsdóttir
90 ára verður í dag Ingunn Þor-
steinsdóttir, Broddanesi í Fells-
hreppi, Strandasýslu. Hún er dóttir
Þorsteins, b. og jámsmiðs, í
Hrafriadal við Hrútaljörð, f. 17. júní
1859, d. 19. október 1931, Helgason-
ar, b. í Gröf í Bitm, f. 28. október
1808, d. 26. júlí 1871, Guðmundsson-
ar. Móðir Þorsteins var Ragnhildur
Þorsteinsdóttir. b. i Tungugröf,
Tungusveit, Isakssonar. Móðir Ing-
unnar var Helga, f. 12. ágúst 1853,
d. 2. nóvember 1931, Sigurðardóttir
kirkjusmiðs á Hólmavík, f. 14. ágúst
1828, d. 3. júní 1917, Sigurðssonar,
b. á Felli í Kollafirði, f. 26. febrúar
1801, d. 11. mars 1884, Bjömssonar.
Móðir Helgu var Guðbjörg Helga-
dóttir. Meðal systkina Helgu,
samfeðra, vom Stefán, skáld frá
Hvítadal, og Guðbjörg, móðir Árna
símamanns, föður Nínu Bjarkar,
skálds og rithöfúndar.
Maður Ingunnar var Guðbrandur
Benediktsson kennari á Broddanesi,
f. 16. janúar 1887, d. 29. september
1979.
70 ára
70 ára er í dag Sveinn Bjarnason,
Einifelli, Stafholtstungnahreppi.
60 ára
60 ára er í dag Garðar Sigurðsson,
Neðsta-Hvammi, Þingeyrarhreppi,
V estur-ísafj arðarsýslu.
60 ára er í dag Unnur Áskelsdóttir,
Skálpagerði, Öngulsstaðahreppi,
Eyjafirði.
50 ára
50 ára er í dag Rúnar Pétursson
vélstjóri, Reynigrund 28, Akranesi.
50 ára er í dag Halldór Ólafsson,
Hvassabergi 6, Hafnarfirði.
50 ára er í dag Elsa Fanney Péturs-
dóttir, Grundargötu 20, Eyrarsveit.
50 ára er í dag Eðvarð Karl Ragn-
arsson, Heiðarhrauni 20, Grinda-
vík.
50 ára er í dag Björgvin Elíasson
húsasmiður, Dalsbyggð 15,
Garðabæ.
50 ára er í dag Kristín Sveinbjörns-
dóttir, Rauðagerði 57, Reykjavík.
40 ára
40 ára er í dag Sólrún Geirsdóttir,
Keilufelli 28, Reykjavík.
40 ára er í dag Hrafnhildur Gunn-
arsdóttir, Krókahrauni 10, Hafnar-
firði.
40 ára er í dag Björn Magnússon,
Sævangi 19, Hafnarfirði.
40 ára er i dag Elínborg Pálsdóttir,
Safamýri 93, Reykjavík.
40 ára er í dag Hörður Runólfsson,
Hvannhólma 14, Kópavogi.
40 ára er í dag Birgir Þór Jónsson,
Efstalandi 18, Reykjavík.
40 ára er í dag Sigrún Guðnadóttir,
Miðási 2, Raufarhöfn.
DV Andlát
Hallmar Freyr Bjarnason lést í
Landspítalanum þriðjudaginn 21.
júlí.
Skúli Ingvarsson, Nýbýlavegi 15,
Kópavogi, andaðist í Borgarspítal-
anum 22. júlí.
Bergþóra Guðmundsdóttir frá
Seyðisfirði andaðist á Elli- og hjúk-
runarheimilinu Grund 21. júlí.
Páll Jónsson frá Isafirði andaðist
að dvalarheimilinu Hrafnistu mið-
vikudaginn 22. júlí.
Friðrik K. Sigfússon tollvörður.
Miðgarði 18, Keflavík. varð bráð-
kvaddur 21. júlí.
Gunnar Valgarður Kristjánsson
andaðist í sjúkrahúsinu Húsavík
17. júlí.
Sveinn H. Þórðarson. fyrrver-
andi skattstjóri, Ölduslóð 9.
Hafnarfirði. andaðist að morgni 22.
júlí.
Svava Kristjana Ragnarsdóttir
andaðist í Landspítalanum 21. júlí.
Þorsteinn Benedikt Finnbogason
16. júlí andaðist Þorsteinn Benedikt
Finnbogason vélstjóri, Gmndargötu
4, ísafirði.
Hann var fæddur 22. október 1909,
sonur Finnboga, b. og útvegsmanns
á Litlabæ í Ögurhreppi, f. 16. októb-
er 1855, d. 19. apríl 1948, Péturssonar
Zars, sjómanns að Múla í Nauteyrar-
hreppi, f. 8. janúar 1832, Halldórs-
sonar. Móðir hans var Soffia
Bjargey, f. 30. maí 1869, d. 17. apríl
1945, Þorsteinsdóttir, b. að Hrafna-
björgum í Ögurhreppi, f. 14. október
1844, d. 8. mars 1880, Einarssonar,
b. að Eyri við Skötufjörð, f. 21. maí
1816, d. 21. júlí 1899, Magnússonar.
Meðal systkina Þorsteins var Jón,
b. á Garðsstöðum í Ögurhreppi, faðir
Jóns Auðuns, alþingismanns á
Garðsstöðum, föður Auðar Auðuns
ráðherra og Jóns Auðuns dómpróf-
asts. Meðal systkina Soffíu var
Einar, b. á Eyri i Skötufirði, faðir
Baldvins, forstjóra í Rvík, og Karít-
asar, móður Níelsar P. Sigurðssonar
sendiherra. Meðal systkina Þor-
steins em Pétur, b. að Litlabæ,
Sigríður, kona Ólafs Elíssonar tré-
smiðs, Kristján, Jóna, kona Sigþórs
Jóhannssonar, sjómanns í Rvík, og
Steinunn, kona Jóhannesar Ólafs-
sonar, skrifstofustjóra í Rvík.
Ásgeir Bjamason
Ásgeir Bjamason. framkvæmda-
stjóri yfirstjómar mannvirkjagerðar
á Landspítalalóðinni, andaðist 19.
júlí.
Hann var fæddur 8. maí 1926 og var
framkvæmdastjóri Geðvemdarfé-
lags Islands og sá síðar um mann-
virkjagerð á Landspitalalóðinni.
Kona hans er Kristín Vilhjálms-
dóttir, framkvæmdastjóra í Rvík.
Ámasonar, og eiga þau fjögur böm.
Foreldrar hans vom Bjami, fram-
kvæmdastjóri Vélsmiðjunnar
Héðins, f. 28. apríl 1897, d. 9. desemb-
er 1938 Þorsteinssonar, jámsmiðs i
Rvík., f. 9. júli 1864, d. 7. júlí 1940,
Jónssonar, sjómanns í Litla Seli i
Rvík. Jónssonar, og konu hans, Guð-
rúnar Guðmundsdóttur, b. í Vatns-
koti, Þorsteinssonar.
Móðir Bjama var Guðrún, f. 24.
október 1867, d. 16. ágúst 1939,
Bjamadóttir, útvegsbónda í Bakka-
koti á Seltjamamesi, Kolbeinssonar,
og konu hans, Margrétar Illugadótt-
ur.
Systkini Bjama vom Ásgeir verk-
fræðingur, faðir Sigríðar héraðs-
dómslögmanns, konu Hafsteins
Baldvinssonar lögfræðings, og móð-
ur Ásgeirs Hannesar Eiríkssonar,
varaþingmanns og kaupmanns í
Rvik., og Ragnheiðar Guðrúnar,
konu Guðmundar H. Garðarssonar
alþingismanns. Meðal annarra syst-
kina Bjama em Hlín, kona Gísla
Jónssonar alþingismanns, foreldra
Þorsteins, forstjóra Coldwaters, föð-
ur Þorsteins verkfræðings.
Móðir Ásgeirs var Jóhanna Vil-
helmína Olsen, f. 3. janúar 1903, d.
21. nóvember 1960, dóttir Guðmund-
ar Olsen, kaupmanns og slökkviliðs-
stjóra í Rvík., og konu hans
Francisku Juliane Bemhöft.