Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. 7 Fréttir Friðaður afréttur: Margra ára til- raunastarf eyðiiagt „Þama er íjögurra ára tilrauna- starf að miklu leyti unnið fyrir gýg. Þetta rúmlega 200 ha. stóra og af- girta hólf á Auðkúluheiðinni, sem kalláð er Lurkur, var algerlega Mð- að fyrir sauðfó frá 1983-85 og síðustu tvö sumur hefur verið leyfð tak- mörkuð beit þama en tilraunir með þetta svæði voru í gangi á beitar- þoli og samanburði á gróðurástandi á heiðinni í kring,“ sagði Ingvi Þor- steinsson, deildarstjóri hjá RALA, en á umræddu svæði var rifin niður rafinagnsgirðing fyrr í þessum mán- uði og yfir þúsund íjár vom þar á beit þegar komið var að um síðustu helgi. „Það átti að hleypa 80 kindum inn á svæðið þann 20. júli og var búið að merkja féð sérstaklega. Síðan átti að smáauka beitina eftir því sem liði á sumarið. Núna er svæðið hins veg- ar allt að verða uppétið og frekari rannsóknir er ekki hægt að gera þar í sumar en ýmislegt hefur komið í Ijós á þessum tíma sem við höftun rannsakað svæðið. Verst er að vita til þess að menn skuli gera þetta og láti ekki girðinguna í Mði, jafiivel höldum við að fé hafi verið etóð inn í afréttinn. Það er hins vegar ómögu- legt að komast að því hver gerði þetta.“ Ingvi sagði að flern Mðuð hólf væru á Auðkúluheiði þar sem gerðar væru tilraunir með hvaða lámarks- magn af áburði væri hægt að komast af með í uppgræðslu. „Þessi hólf hafa fengið að vera í Mði, enda væri mun alvarlegra ef slikt væri ekki þar sem það getur skipt milljón- um varðandi kostnað við land- græðslu hvernig niðuratöður af þessum rannsóknum verða.“ -BTH Jeep Corpoiation í Bandaríkjunum: Varar við óprúttnum sölumönnum Laxá í Aðaldal fengsæl asta veiðiáin - en Þverá sækir á „Þetta hefur verið einkennilegt sum- ar, fyrst komu góð skot, svo minnkaði vatnið í mörgum ám og laxinn er enn- þá fyrir utan þær margar, en núna, þegar aðeins hafa komið skúrir, batnar þetta og veiðimenn vona að smálaxinn sé í að koma í ríkara mæli, margir Veiðivon Gunnar Bender veiðimenn hafa farið laxlausir og það gerðist með mig um daginn í Dölunum enda spiluðu menn mest brids inni í veiðihúsisagði veiðimaður um það sem af er sumri í veiðinni. Núna, þegar langt er liðið á júlímán- uð og veiðitíminn í hámarki, er rétt að líta á hvaða veiðiár eru efstar og komum við með sjö efstu ámar. Laxá í Aðaldal er ennþá efst með 1151 laxa, næst kemur Þverá (Kjarrá) í Borgar- firði með 1092 laxa og eru þessar tvær langefstar. Verður spennandi að fylgj- ast með slag þeirra næstu daga því Þverá hefur heldur betur sótt í sig veðrið. Langá á Mýrum er með 622 laxa, Norðurá í Borgarfirði með 616 laxa, Vatnsdalsá kemur næst 602 laxa og svo koma Laxá í Kjós 575, Laxá á Ásum 555 og Elliðaámar 550. „Það má eiginlega segja að stórlax- inn bjargi þessu einkennilega lax- veiðisumri en fiskurinn kemur vonandi í enn ríkara mæli næstu daga,“ sagði veiðimaðurinn að lokum. □liðaámar Rjúfa 550 laxa múrinn „Við vorum að koma úr Langadalsá í ísafjarðardjúpi og fengum 4 laxa, sá stærsti var 13 pund,“ sagði Grímur Jónsson er við spurðum frétta af Langadalsá sem hann leigir ásamt fleirum. „Það er kominn 21 lax úr ánni og hann er 16 pund sá stærsti." Elliðaámar em komnar i 550 laxa og hefur veiðin verið góð síðustu daga, fluguveiðin hefur gefið vel og fluguúr- valið fjölbreytilegt, svo sem Green Butt, Teal and Black, Blue Charm, Sweep, Doctor og Black Zulu svo ein- hveijar séu nefndar sem laxinn hefúr tekið. Tejarinn er að komast í 1400 laxa og fróðir menn telja að um 2000 laxar séu í allri ánni og er það gott. Veiðin hefur verið mjög góð í Víði- dalsá síðustu daga og er áin komin í 495 laxa og þetta em miklir drekar sem veiðast, mest 12 til 20 punda fiskar. -G. Bender „Þetta skeyti kemur að utan frá fyrirtækinu í Bandaríkjunum vegna ónæðis sem þeir hafa orðið fyrir. Fólk hefur verið bæði að hringja og skrifa héðan út af ábyrgð sem ekki er til,“ sagði Ludvig Hvanndal, sölustjóri hjá Agli Vilhjálmssyni hf. Bandaríska fyrirtækið Jeep Corpor- ation, sem framleiðir meðal annars Cherokee, Wagoneer, Wrangler og Eagle bílategundimar, hefur nú sent frá sér bréf þar sem viðskiptavinir þess em varaðir við óprúttnum sölu- mönnum hérlendis. Segir í bréfinu að með ósiðlegri sölustarísemi og auglýs- ingum hafi þeir skapað ringulreið á markaðnum hérlendis og arðrænt við- skiptavininn. I bréfinu segir að eini fullgildi dreif- andi Jeep bifreiða, varahluta, þjónustu og ábyrgðar á Islandi sé Egill Vil- hjálmsson hf. „Sérhvert annað fyrir- tæki, sem auglýsir fullkomna verksmiðjuábyrgð á Jeep-bifreiðum, er viljandi að leitast við að blekkja yður, sjálfan viðskiptavininn. Þau hafa ekki heimild til að gera það og geta ekki staðið við verksmiðju- ábyrgðina. Gætið yðar á seljendum þessum." Ludvig sagði að mikið væri um að bílar væm seldir sem n>ár en væm í raun notaðir og mikið keyrðir. Fólk héldi að það væri að gera góð kaup með því að kaupa af þessum mönnum en tæki síðan skellinn ef illa færi, um stórar upphæðir væri að ræða og því ætti ekki að flana að neinu. „Hinir og þessir em að selja notaða bíla með ábyrgð frá verksmiðjunum sem síðan er ekki til. Við sitjum síðan uppi með fólk sem kemur hingað og við vitum ekki hvemig við eigum að leysa þeirra mál,“ sagði Ludvig Hvanndal. -JFJ Valgerður F. Baldursdóttir glimir við lax í Laxá í Aðaldal fyrir nokkru og hún á hlut i veiði árinnar en alls er kominn 1151 lax þar á land og margir vænir. Steingrímur Hermannsson fékk einn 24 punda fyrir nokkru. DV-mynd Ámi B. Afhotagjöldin: Hægt að greiða með Eurocard Handhafar Eurocard-korta geta framvegis borgað afhotagjöld út- varps og sjónvarps með kreditkort- inu sínu, eftir samning sem Kreditkort hf. og Ríkisútvarpið hafa gert sín á milli. Einnig er hægt að borga gjaldfallnar skuldir með EURO-KREDIT afborgunum, eflár nánara samkoraulagi við Rítósút- varpið. Þeir handhafar, sem vilja nýta sér þessa þjónustu, geta fyllt út sérstakt eyðublað sem fylgir Eurocard frétt- um um næstu mánaðamót eða hringt til innheimtudeildar Ríkisútvarpsins og gefið upp númerið á kreditkortinu sínu. Kreditkort h£ hefur einnig gert samkomulag við Rafmagnsveitu Reykjavíkur um að handhafar Eurocard-korta geti borgað raf- magns- og hitareikninga með kredit- kortinu sínu. -BTH GLÆSIVAGNAR Mazda 626 200 GLX COUPE árgerð 1983, ekinn aðeins 40 þús. km, sjálf- skiptur, vökvastýri, rafmagn í rúðum, útvarp/segulband, grjót- grind, sílsalistar, dráttarkúla, skipti koma til greina á ódýrari bifreið. Verð 410 þús. BMW 728i árgerð 1983, ekinn aðeins 44 þús. km, einn eigandi frá upp- hafi, 6 cyl., 5 gíra, vökvastýri, topplúga, álfelgur o.ll., litur brún- sans, skipti koma til greina á ódýrari bifreið, einnig má ath. með skulda- bréf. Verð 970 þús. Nissan Patrol disil, styttri gerð, ár- gerð 1985, ekinn aðeins 39 þús. km, 5 gira, vökvastýri, útvarp/segul- band, varadekksfesting að aftan, brettakantar o.fl., ýmis skipti koma til greina, einnig greiðsla með skuldabréli. Verð 950 þús. Honda Prelude EX árgerð 1984, ek- inn 42 þús. km, 5 gíra, vökvastýri, topplúga, litur brúnsans, skipti koma til greina á ódýrari bifreið, einnig greiðsla með skuldabréfi. Verð 570 þús. Sýnishorn úr söluskrá: Subaru 1800 station 4x4 árgerð 1987, ekinn aðeins 1 þús. km, 5 gira, vökvastýri, útvarp/segulband, centr- allæsingar, rafmagn f speglum, hátt og lágt drif, litur silfur, engin skipti. Verð 650 þús. Nissan Laurel SGL dísil árgerð 1986, ekinn aðeins 18 þús. km, 6 cyl., sjálf- skiptur, vökvastýri, rafmagn í rúðum og læsingum, útvarp/segulband, skipti koma til greina á nýlegum japönskum jeppa. Verð 950 þús. Opið laugardaga kl. 10-17.30. Honda Accord EX árgerð 1984, ek- inn 48 þús. km, vökvastýri, sjálf- skipting, 4ra þrepa, vökvastýri, topplúga, centrallæslngar, útvarp/ segulband, 12 ventla vél, litur rauður, skipti koma til greina á ódýr- ari bifreið. Verð 530 þús. KAUPENDUR/SELJENDUR, ATHUGIÐ: MIKIÐ ÚRVAL BIFREIÐA OG GREIÐSLUKJÖR VIÐ FLESTRA HÆFI: TEG. VERÐ ÁRG. ÍÞÚS. Celica200Twin Cam 1986 860 Charade 1987 360 Cherokee Pioneer disil 1985 980 Cherry 1500 GL 1986 370 Citröen BX14E 1987 550 Colt 1500 GLX 1985 370 Coltturbo ECI 1984 480 Corolla 1300 1985 340 Corolla1300DX 1987 440 Escort 1300 1987 460 Galant1600GLX 1983 360 Lada Sport 1987 390 Mazda 323 1987 450 VÆNTANLEGIR KAUPENDUR ATH: MIKIÐ ÚRVAL NÝLEGRA BIFREIÐA A SÖLUSKRÁ. VERÐ VIÐ FLESTRA HÆFI.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.