Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 40
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 62-25-25. Fyrir hvert frétta-
skot, sem birtist eða er notað i DV, greiðast 1.500
krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greið-
ast 4.500 krónur. Fullrar nafnleyndar er gætt.
Við tökum við fréttaskotum allan sólarhringinn.
Ritstjórn - Augiýsingar - Áskrift - Dreifing: Sími 27022
Frjálst,óháð dagblað
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987.
Deilur um fullvirdisrett:
Dóms að
vænta fljótlega
„Ég byggi kröfu mína á því að ég
sé eini löglegi eigandi þessarar vöru.
Þetta snýst um eignarrétt á því kjöti
sem lagt var inn á fullvirðisréttinn."
sagði -Jón bóndi á Skarfshóli í Vest-
ur-Húnavatnssýslu
Jón vill fá 297 kíló af kindakjöti í
A-flokki og 33 kíló af kjöti í B-flokki
til baka en hann hefúr ekki fengið
greitt fyrir þetta kjöt sem hann þó
lagði inn á fullvirðisréttinn hjá
Verslun Sigurðai- PáLmasonar á
Hvammstanga. Munnlegur mál-
flutningur fór frani á sýsluskrifstof-
unni á Hvammstanga í fyrradag en
dómari er Jón ísberg. Dómur er
væntanlegur fljótlega.
-JFJ
Neskaupstaður:
Skutu heimilis-
ketti í görðum
..Það var íbúi á hæðinni fyrir neð-
an okkur sem vaknaði við skothvell
um kl. 2 aðfaranótt síðasta mánu-
dags og þegar hann leit út í garð sá
hann að búið var að skjóta köttinn
okkar og maður var að taka hann
upp. .“ sagði Halla Sigurðardóttir.
sem býr í Neskaupstað, og lenti í því
óláni ásamt nokkrum öðrum bæj-
arbúum að kötturinn hennar var
skotinn í misgripum fyrir villikött.
Þar á meðal var heimilislæða sem
var nýbúin að eiga kettlinga.
Tildrög málsins eru þau að 9. júlí
sl. birtist í blaðinu Austurlandi aug-
lýsing um að villiköttum vrði eytt á
Neskaupstað næstu nætur og voru
bæjarbúar beðnir um að halda kött-
um sínum inni á meðan. „Ég harma
mjög að þessi misskilningur skuli
hafi komið upp og viðurkenni að
þetta var ekki auglýst á nógu mark-
vissan hátt.“ sagði Ásgeir Magnús-
son. bæjarstjóri í Neskaupstað, um
málið. „Við réðum í verkið reynda
skyttu sem vann þetta næstu daga
eftir 9. júlí -en einnig síðustu mánu-
dagsnótt því kvartanir höfðu borist
um að villikettir væru enn á ferli.“
-BTH
ÓVENJU LÁGT VERÐ
0PIÐ TIL KL. 16.00
Á LAUGARDÖGUM
■lilw
Smiðjuvegi 2, Kópavogi
Símar 79866, 79494.
LOKI
Þeir eru herskáir
í Litla-Rússlandi
Fíkniefnamálið í Kaupmannahöfn:
Tveir íslendingar
handteknir í Malmo
Lögreglan í Kaupmannahöfh telui'
að tvö kíló af amfetamíni hafi verið
flutt yfir til Svíþjóðar í tengslum við
íslendinginn sem handtekinn var f
Kaupmannahöfn á mánudaginn með
1,3 kfló af amfetamíni. f framhaldi
af þessu máli voru tveir íslendingar
handteknir í Malmö í fyrradag, ann-
ar 44 ára og hinn 24 ára, og með
þeim einn 34 ára HoLlendingur. Hef-
ur danska fíkniefnalögreglan farið
fram á að mennimir verði framseldir
yfir til Kaupmannahafhar.
íslendingamir, sem handteknir
vom í Malmö, hafa báðir komið við
sögu hjá fíkniefnalögreglu hér á
landi áður. Sá yngri hefúr verið bú-
settur í Malmö um nokkurt skeið.
Ekki fannst amfetamín við leit hjá
þeim en þeir eru grunaðir um að
hafa flutt það með sér í miklu magni
frá Hollandi.
Að sögn Reynis Kjartanssonar hjá
fíkniefnadeild lögreglimnar hefúr
þeim ekkí borist beiðni frá dönsku
lögreglunni um aðstoð við rannsókn
þessa máls og' ekki virðist sem það
tengist aðilum hér á landi.
Sagði Reynir að það mesta sem
lögreglan hefði fúndið afamfetamíni
í einu hér á landi væru 750 grömm.
Verð á grammi hériendis er uni 4.500
krónur en i Danmörku um 350-400
danskar krónur en þar hefúr það
hríðlækkað í verði upp í síðkastið
vegna mikils framboðs. -BTH
Það eru mörg verkin sem þarf að vinna yfir sumarið. Ljósmyndari DV náði mynd af þessari stúlku þar sem hún
vann með meitli og hamri við að losa glugga á Rúgbrauðsgerðinni í Borgartúni og var ekki annað að sjá en að
henni færist verkið fagmannlega úr hendi.
DV-mynd JAK
Jóhann í efsta
sæti á milli-
svæðamótinu
Jóhann Hjartarson hefur staðið sig
vonum framar á millisvæðamótinu í
Szirák í Ungverjalandi. í gær hafði
hann hvítt á móti Spánverjanum De
La Villa. Upp kom Grunfeld-vöm og
sigraði Jóhann örugglega í tuttugu og
átta leikjum.
Tefldar hafa verið fimm umferðir af
sautján. Fyrir fimmtu umferð var
Salov frá Sovétríkjunum efstur með
þrjá og hálfan vinning en þegar blaða-
maður DV hafði samband við Jóhann
í gærkvöldi var Salov enn að tefla, en
með tapaða stöðu.
Jóhann er því að öllum líkindum
kominn í efsta sæti með þrjá og hálfan
vinning ásamt þeim Salov, Ljubojevic
og Nunn. Portisch fylgir þeim fast á
eftir með þrjá vinninga en staðan er
að öðru leyti óljós vegna fjölda bið-
skáka.
Á morgun teflir Jóhann við Bouazis
frá Túnis og verður Jóhann þá mefe
svart. -KGK
Akureyri:
Stálu peningum
Jón G. Hauksson, DV, Akureyii:
Tveir ölvaðir unglingspiltar á Akur-
eyri stálu 1200 krónum í peningum frá
tveimur stúlkum, sem hafa umsjón
með mini-golfinu við sundlaugina á
Akureyri. Lögreglunni tókst að hafa
uppi á piltunum. þeirhöfðu verið spila
golf og verið með stæla. Þegar þeir
gerðu sig líklega til að fara með kylf-
urnar í burtu fóru stúlkumar og
leituðu aðstoðar hjá sundlaugarverð-
inum. Á meðan skiluðu piltarnir
kylfunum en stálu þess í stað pening-
um úr peningakassa stúlknanna í
afgreiðslu mini-golfsins.
Veðrið á morgun:
Þurrt og
bjart að
mestu
Fremur hæg, norðvestlæg átt
verður á landinu á morgun. Smá-
skúrir verða á stöku stað norðaust-
anlands en annars þurrt og bjart
um sunnanvert landið. Hiti verður
á bilinu 8 til 15 stig.
Grímsnes:
Sumarbústaður
brann
Nýr sumarbústaður í Kiðjabergs-
landi í Grímsnesi brann til kaldra
kola í gærmorgun. Lögreglunni á Sel-
fossi barst tilkynning um bmnann
laust fyrir klukkan átta í gærmorgun.
Þegar slökkvilið kom á vettvang var
bústaðurinn fallinn. Sennilegt er talið
að kviknað hafi í út frá ísskáp sem
tengdur er gasi.
Að sögn lögreglunnar á Selfossi vom
tveir menn i bústaðnum í nótt en þeir
vom nýfamir til veiða þegar þeir sáu
reyk frá bústaðnum, skömmu síðar
urðu sprengingar og varð bústaðurinn
alelda á svipstundu. Aðrir bústaðir eða
gróður vom ekki í hættu. -sme
Í
i
i
i
:
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
í
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i
i