Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Blaðsíða 8
8
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987.
Útlönd
Kona sækíst eftir útnefningu demókrata
Bandarísk kona tilkjTinti í gœr að hún hygðist sækjast eftir útnefhingu
sem forsetaefhi Demókrataflokks Bandaríkjanna fyrir forsetakosningamar
sem fi-am fara í lok næsta árs. Pat Schroeder, fulltrúaadeidarþingmaður fi*á
Coloradofylki, skýrði frá þessari ákvörðun sinni á fréttamannafundi sem
hún hélt á flugvellinum í Denver í gær. Hún er fyrsta konan sem ákveðið
sækist eftir útnefhingu sem forsetaefni.
Harka í baráttunni við eituriyfjasmyglara
Lögreglan í Perú felldi í gær eiturlyöasmvglara og lögregluþjónn særðist
í átökum sem til kom við efnafræðistofu eiturlyfjasala á afskekktu svæði í
landinu að því er innanríkisráðuneytið skýrði frá í morgun.
Talsmaður ráðuneytisins sagði að til skotbardaga hefði komið þegar lög-
reglan braust inn í efhafræðistofuna og fann þar þrjá eiturlyfjasmyglara frá
Kolumbíu ásamt lífvörðum þeirra.
Verið var að framleiða kókaíndeig úr kókalaufum þegar lögreglan kom á
staðinn.
Lögreglan eyðilagði efiiafræðistofuna og lagði hald á um fjögur hundruð
kíió af kókaíndeigi og nærri tvö pund af tilbúnu kókaíni.
Yfirvöld í Perú hafa nú í frammi miklar aðgerðir gegn framleiðendum og
dreifmgaraðilum eiturlyfja í landinu.
Útgöngubann sett á í Karachi
Hermenn stjómarhersins í Pakistan sáu i gærkvöld um að útgöngubanni
væri framfjdgt í Karachi, höfuðborg landsins. útgöngubannið var sett á í
kjölfar mikilla átaka milli lögreglu og þátttakenda í mótmælum stjómarand-
stæðinga en læknar í Karachi segja að átta manns hafi látið lífið í átökum
þessum.
Útgöngubanninu vom ekki sett nein tímatakmörk.
Stjómvöld í Pakistan sögðu í gærkvöld að stjómarherinn myndi halda
áfram að framfylgja banninu.
Óeirðimar í Pakistan hófust fjórum dögum eftir að lögreglan handtók
fjölda manna sem taldir vom tengdir sprengingunni í Saddar, stærstu borg
Pakistan, en liðlega sjötiu manns fómst þar í sprengitilræði þann 14. júlí.
Komust óáreitt inn Persaflóann
Olíuskipin frá Kuwait, sem hafa verið endurskráð í Bandaríkjunum, kom-
ust í gær óáreitt um Hormuz-sund, inn Persaflóann og til Kuwait. Olíuskipin
sigldu leið þessa undir vemd tveggja herskipa úr bandaríska flotanum.
Búist hafði verið við að íranir myndu reyna að leggja til atlögu við skip-
in, en ekki kom til neinna ái-ása á leiðinni.
íranir hafa þó lýst því yfir að þeir muni ekki heimila að skip þessi verði
notuð til að flytja oh'u frá írak. Telja embættismenn í íran hættu á að
Kuwait reyni að aðstoða (raka með því móti en stjómvöld í Kuwait hafa
stutt írak, bæði hemaðarlega, fjárhagslega og stjómmálalega, í styijöld
þeirra við íran.
Bendla S-Afríku
við fjöldamorð í
bæ í Mosambík
Stjórnvöld í Mosambík segja að Suð-
ur-Afríka hafi staðið óbeint á bak við
fjöldamorð sem framin voru í bænum
Homoine síðastliðinn laugardag.
Skæruliðai- stjómarandstöðunnar í
Mosambík réðust þá á bæinn sem er
um fimm hundruð kílómetra norður
af Maputo. höfuðborg landsins, og
myrtu nær fjögur hundruð manns, þar
á meðal mörg börn, konur og gamal-
menni.
í yfirlýsingu frá miðstjóm Frelimo-
flokksins. sem fer með stjóm Mósam-
bík. segir í gær að árásin hafi verið
gerð af skæruliðum sem séu í raun
angi út úr stjómarher Suður-Afríku.
I yfirlýsingunni segir að hundmð
skæmliða hafi undanfarið komið inn
í Mosambík frá Suður-Afríku og að
flugvélar frá S-Afríku hafi séð um að
koma birgðum og vopnum til skæru-
liðasveitanna. Hafi vopnunum verið
varpað niður í fallhlífum i Gaza- og
Inhambane héruðum.
I yfirlýsingunni segir að auk þess
að þrjú hundmð og áttatíu almennir
borgarar hafi verið myrtir í árás
skæmliðanna hafi sjötíu særst. Þetta
mun vera mesta mannfall sem orðið
hefur í einni árás skæmliða frá því
að þeir hófu baráttu sína gegn stjóm-
völdum fyrir ellefu árum.
í tilkynningu stjómvalda er tekið
fram að mannfall í árásinni geti hafa
orðið mun meira en nú er talið því að
skæmliðamir hafi tekið margt fólk
með sér eftir árásina og nokkrir þeirra
hafi þegar fundist myrtir.
Tvö af fórnarlömbum uppreisnarmanna í Mozambik en stjórnvöld segja
að nær fjögur hundruð hafi verið myrtir. Simamynd Reuter
Ná ekki samkomulagi
um skil á sendimönnum
Tveir starfsmanna íranska sendiráðsins í Paris fá sér gönguferð innan girðing-
ar sendiráðsbyggingarinnar. Ekki virðist í sjónmáli að löndin skili sendimönnun-
um í bráð. Símamynd Reuter
í gær rann út frestur sá sem Frakk-
ar höfðu sett til samninga um skil á
sendimönnum írana í París til síns
heima. Samningaumleitanir milli
þeirra og íranskra stjórnvalda um að
ríkin tvö, sem slitu stjórnmálasam-
bandi sín á milli í síðustu viku, skili
hvort annars sendimönnum hafa eng-
an árangur borið.
Ríkin hafa enn ekki getað komið sér
saman um hvaða önnur ríki skuli fara
með hagsmunamál þeirra hvors gagn-
vart öðru. Akvörðun um það er
grundvallarskilyrði þess að saman
dragi um skil á starfsfólki og embættis-
mönnum sendiráðanna.
Talsmaður franska utanríkisráðu-
neytisins sagði í gær að búist væri við
samkomulagi um að Italir myndu fara
með hagsmuni Frakka í Iran fram-
vegis. Frakkar hafa þegar samþykkt
að Pakistanir fari með hagsmunamál
Irana í Frakklandi, að því tilskildu að
íranir samþykki ítali sem fulltrúa
Frakka.
Strangur vörður hefur verið um
sendiráð Frakka í Teheran og sendi-
ráð íran í París undanfama viku. Er
embættismönnum og starfsmönnum
haldið innan dyra.
í gær meinuðu íranir hópi franskra
borgara að ganga um borð í flugvél á
flugvellinum í Teheran en hópumn
var á leið til Parísar. Talsmenn stjóm-
valda í París sögðu að málið væri í
athugun en ekki væri ljóst enn hvort
um aðgerðir að undirlagi stjómvalda
væri að ræða því að aðrir franskir
borgarar hefðu fengið að fara óáreittir
á sama tíma.