Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Qupperneq 9
FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987.
9
Útlönd
Einkeherir landeigenda
reiðubúnir til átaka
Vil ia ráðstefnu um frið á árinu
Nýjasta boð Gorbat-
sjovs aðgengilegt
Óeirðir vegna verkfalla í Bangladesh
til átaka við stjóm landsins ef reynt
verður að framfylgja nýju lögunum
um nýtingu ræktanlegs lands.
Corazon Aquino, forseti Filippseyja,
undirritaði fyrr í vikunnni nýja lög-
gjöf sem ætlað er að leysa vanda
þúsunda smábænda á eyjunum sem
nú hafa ekkert jarðnæði. Er ætlunin
að skipta ræktanlegu landi á eyjunum
milli þeirra og ákvæði í lögunum, sem
takmarka hversu mikið land má vera
í eigu einstaklings, getur orðið til þess
að sumum af stærri plantekrum lands-
ins verði skipt niður.
Aquino hefur verið sökuð um að
ætla ekki að framfylgja þessum nýju
lögum fyllilega vegna þiýstings frá
stærri landeigendum. Hún bar þessar
ásakanir af sér í gær og sagði að land-
næði það sem er í eigu fjölskyldu
hennar myndi verða það fyrsta sem
skipt yrði i samræmi við lögin.
Stórbændur á eyjunum hafa margir
komið sér upp einkaheijum sem eru
vel þjálfaðir og búnir fullkomnum
vopnum. Er búist við að til átaka geti
komið milli þessara einkaheija og
stjómarhersins ef Aquino reynir að
framfylgja lögunum.
Að lokinni heimsókn sinni í Israel
hvetur utanríkisráðherra Egypta-
lands, Abdel-Maguid, til þess að
alþjóðlega ráðstefnan um frið i Mið-
Austurlöndum verði haldin á þessu
ári. Að minnsta kosti þyrftu menn
að koma sér saman um á þessu ári
hvenær halda skyldi slíka ráðstefnu,
sagði utanríkisráðherrann áður en
hann flaug frá Israel í gær.
Abdel-Maguid hafnaði tillögu
Shamirs, forsætisráðherra Israels,
um að haldin yrði ráðstefha án þátt-
töku utanaðkomandi ríkja. Lagði
egypski utanríkisráðherrann
áherslu á að frelsissamtök Palestínu-
manna tækju þátt í ráðstefnunni.
Egyptar líta á samtökin sem eina
fúlltrúa Palestínumanna en í apríl
lokuðu þeir skrifstofum samtakanna
í Kaíró þar sem þeir höfðu sætt
gagnrýni þeirra vegna sambandsins
við Israel. Egyptar em eina araba-
þjóðin sem heldur uppi stjómmála-
sambandi við ísraela.
Skiptar skoðanir Israela um al-
Utanríkisráðherra Egyptaiands, Abdel-Maguid, svarar spurningum frétta-
manna um árangur heimsóknar sinnar i ísrael. Við hlið hans situr Shimon
Peres, utanrikisráðherra ísraels. Símamynd Reuter
þjóðlega friðarráðstefnu eru engu
minni en áður þrátt fyrir heimsókn
Abdel-Maguid en Palestínumenn eru
óvenju samtaka í kröfum sínum.
Hvetja þeir Egypta til að koma á
aftur samskiptum við frelsissamtök
Palestínumanna og einnig fara þeir
fram á að samtökunum verði boðin
þátttaka sem óháðum aðila í friðar-
viðræðunum.
í gær að tilboðið virtist stefna i rétta
átt og liti vel út. Þá er haft eftir heirn-
ildum hjá Atlantshafsbandalaginu að
tilboðið virðist fúllnægja krofrun
manna þar einnig.
Viðræður Bandaríkjamanna og Sov-
étmanna um eyðingu meðaldrægra og
skammdrægra kjamorkuvopna hafa
undanfamar vikur virst vera í sjálf-
heldu. Hafa aðilar sakað hvor annan
um að flækja mál og tefja fyrir samn-
ingum. Tillaga Gorbatsjovs. sem hann
opinberaði i viðtali við dagblað í Indó-
nesíu, gæti komið skriði á viðræðum-
ar að nýu.
Gorbatsjov sagði í viðtalinu að hann
væri reiðubúinn til þess að eyða vopn-
um þessum i Asiu jafnt sem Evrópu
og virðast tillögur þessar i f>TSta sinn
ná til vopna sem draga 500 til 1000
kílómetra.
Bandaríkjamenn og talsmenn
NATO vara þó við því að sýna of mikla
bjartsýni og segja að ekki verði ljóst
hvað felst í tillögunum fyrr en búið
er að þýða þær frá orði til orðs, enda
felist oft miklar takmarkanir í smáa
letrinu í tilboðum Sovétmanna.
Einkaherir, sem stórir og auðugir ið sér upp, hafa undanfamar vikur
landeigendur á Filippseyum hafa kom- verið á æfingum og em nú reiðubúnir
Hermenn úr einkaher eins af stærri landeigendum á Filippseyjum á æfingum
en þeir hafa undirbúið sig fyrir átök við ríkisstjórn landsins undanfarið.
Simamynd Reuter
Díana, prinsessa af Wales. þurfti í gær að bera opinberlega til baka sögu-
sagnir af ofdrykkju og óliíhaði sem undanfarið hafa gengið fjöllunum hærra
á sfðum dagblaða í Bretlandi.
Sagði prinsessan í v'firlýsingu að þrátt fyrir fréttir þessar gæti hún fullviss-
að bresku þjóðina um að hún drykki ekki í óhófi og væri ekki í neinni
hættu að verða alkóhólisti.
Prinsessan gaf út yfirlýsingu þessa við athöfh þar sem hún var heiðruð
af Lundúnaborg.
Yfirlýsing þessi brítur þá hefð að breska kmnufjölskyldan bregðkt ekki
við þvi sem birtist. í dagblöðum. Undanfarið hefur mikið verið skrifað um
ævintýri Díönu og raágkonu hennar, Söm Ferguson, og þær sagðar drekka
mikið af kampavíni.
Bandarískir embættismenn og leið-
togar Atlantshafsbandalagsins bmgð-
ust í gær af varúð við nýjasta tilboði
Mikhail Gorbatsjovs, aðalritara sov-
éska kommúnistaflokksins, í afvopn-
unarviðræðunum en sögðu að það
virtist aðgengilegt. Gorbatsjov lagði í
gær fram tillögur þar sem hann býður
upp á að útiýmt verði öllum meðal-
og skammdrægum kjarnorkuvopnum
í bæði Evrópu og Asíu. Einn tals-
manna bandarískra stjómvalda sagði
Mikhail Gorbatsjov, aðalritari sovéska kommúnistaflokksins, sem hér heils-
ar ritstjóra dagblaðs i Indónesiu, lagði i gær fram nýtt boð í afvopnunarvið-
ræðunum. Simamynd Reuter
Miklar óeirðir bmtust út i Dakka, höfuðborg Bangladesh, í gær, í kjölfar
verkfalls. Allt að hundrað manns meiddust í óeirðunum og beitti lögreglan
táragasi til þess að dreifa mannfjöldanum.
Um fjögur hundmð mótmælendur réðust á eina af stöðvum hersins í
Bangladesh og brenndu hana til grunna.
Lögreglan skýrði frá því í gær að um áttatíu hefðu verið handteknir í
átökum við sveitir óeirðalögreglu.
Svo virtist sem almenningur í Bangladesh styddi verkfall þetta sem stóð
í fimmtíu og fjóra tíma og var boðað að undirlagi tuttugu og eins stjómar-
andstöðuflokks. Verkfallsmenn vilja neyða Hossein Mohammad Ershad,
forseta landsins, úr embætti á þeim forsendum að hann stjómi með einræðis-
legum aðferðum í skjóli hervalds.
Þotu frá skandínavíska flugfélaginu SAS hlekktist í gær á í flugtaki á
flugvellinum í Bangkok. Þotan, sem er af gerðinni DC 10, rann út af flug-
brautinni rétt fyrir flugtak og brotnaði fi-amhjól undan henni. Farþegar
urðu að forða sér um nevðarútganga þotunnar og tókst það án þess að
nokkur þeirra meiddist.
Hundrað sextíu og finun farþegar voru í þotunni og dvöldu þeir á hóteli
vfir nóttina en héldu síðan ferðum sínum áfram.
Miklar siysfarir á Ítalíu undanfarið
Miklar slysfarir hafa undanfainð orðið í umferð á Italíu og fyrri hluta
vfirstandandi mánaðar létu firnm hundruð fjörutiu og níu manns lífið á
vegum landsins.
Þrátt fyrir mikla herferð fyrir varúð i umferðinni. af hálfu lögreglu og
annarra yfirvalda á ítalíu. hefur Ijöldi slvsa undanfarið verið um sjö pró-
sent meiri en á sambærilegum tíma í fyma. Meiðsl á mönnum hafa verið
meiri og fleiri en í fyrra og á síðustu þrem vikum hafa nær þrettán þúsund [
ítalir slasast í umferðinni.
Díana
ekki vera alki