Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Page 14
14 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. Frjálst.óháð dagblað Útgáfufélag: FRJALS FJOLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELlAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglysingastjórar: PÁLL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SlMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 550 kr. Verð I lausasölu virka daga 55 kr. - Helgarblað 65 kr. Umbúðir eyðist skjótt Léleg umgengni er áberandi í fari margra íslendinga. Mest tengist hún drykkjusiðum þjóðarinnar, sem felast í að taka heilann úr sambandi með mikilli notkun áfeng- is á skömmum tíma. Við það hverfa um tíma ýmsar góðar venjur, sem siðmenntaðar þjóðir temja sér. Um daginn var skýrt frá, að ráðizt hefði verið á líkn- eski af Maríu guðsmóður í garði Kristskirkju. Þessa dagana er verið að segja frá þungum áhyggjum eigenda sumarhúsa af skemmdarverkum á fyrirhugaðri Húsa- fellshátíð. Og alkunn er meðferðin á almenningssímum. Undir annarlegum áhrifum grýta menn frá sér, hvar sem er, hverju sem er, einkum umbúðum. Þetta gera einnig margir, sem ekki geta afsakað sig með að hafa verið ósjálfráðir gerða sinna. Þeir eru einfaldlega ekki búnir að ná áttum í umbúðaflóði nútímaþjóðfélagsins. Töluvert hefur að undanförnu verið rætt um aukna umbúðamengun á fslandi. Hún er brýnt viðfangsefni, en umræðan hefur að ýmsu leyti verið reist á röngum forsendum. Margnota umbúðir eru ekki eins góð lausn og margir halda og brennanlegar umbúðir ekki heldur. Umbúðir ropvatns stinga mest í augun. Einna ill- skástar þeirra eru hálfs annars lítra plastflöskurnar. Þær rúma mikið magn og eru því lengi að tæmast. Ennfremur sjást þær vel og eru auðtíndar. Þær eyðast hins vegar ekki af sjálfu sér í náttúrunni. Næstar koma málmdósirnar, sem mest hafa verið gagnrýndar. Þær er ekki hægt að brenna. Hins vegar verða þær skjótt ryðbrúnar og falla þannig að nokkru leyti inn í landslagið og eyðast síðan að lokum. Gallinn er sá, að allt of hægt ryðga þær og eyðast. Verri eru plastdósirnar nýju, þótt þær brenni. Þeir, sem eru sóðar og taka ekki umbúðir með sér heim, munu ekki brenna dósirnar. Auk þess er slík brennsla oft vandkvæðum bundin, þótt viljann vanti ekki. Og verst er, að plastið ryðgar ekki á sama hátt og málmur. í rauninni eru svo verstar hinar margnota umbúðir, sem margir mæla með. Glerið má að vísu nota aftur, svona fræðilega séð. En reynslan sýnir, að það framkall- ar sérstaka athafnaþrá í fullum og ófullum íslendingum, sem telja, að gosflöskum beri að varpa í nálægt grjót. Nokkrir áhugamenn, sem nýlega hreinsuðu úr nátt- úrunni ropvatnsumbúðir af öllu tagi, bölvuðu glerinu mest. Hver flaska hafði brotnað í þúsund mola, sem ógerlegt var að ná upp. Vinnan við að hreinsa hverja flösku var á við hundrað dósir og þúsund plastflöskur. Engu máli skiptir, þótt unnt sé að skila glerflöskum og fá fyrir þær peninga. íslendingar eru svo ríkir, að þeir þykjast ekki þurfa á því fé að halda, allra sízt yngstu kynslóðirnar, sem eyðslusamastar eru. Gler er þessu fólki einnota umbúðir, hvað sem fræðin segja. Ropvatnsmengun verður því ekki minnkuð hér á landi með því að banna einnota umbúðir, svo sem sum- ir virðast halda og reynt hefur verið í öðrum löndum, þar sem árátta til glerbrota er minni en hér á landi. Við erum einfaldlega ekki eins siðmenntaðir og Danir. Ropvatnsmengun verður ekki heldur minnkuð með því að taka upp brennanlegar plastdósir í stað ryðgan- legra málmdósa. Hún verður fyrst og fremst minnkuð við að taka upp nýlega uppgötvun, dósir sem eyðast á undraskömmum tíma eftir að þær hafa verið opnaðar. Þessari japönsku nýjung þurfum við að kynnast. Hún hentar sennilega vel íslenzkum umgengnisvenjum og getur leitt til, að banna megi aðrar umbúðir ropvatns. Jónas Kristjánsson „Þetta er hvorki sagt út í hött né i kerskni heldur er þetta reynsla margra ríkisstjórna. Ef við lítum t.d. á viðreisnarstjórnina þá náði hún umtalsverðum árangri og naut hvað mests stuðnings og trausts þegar hún fékkst við erfiðleikana .. Góðærin gefast einna verst Allir þekkja máltækið: „Það þarf sterk bein til þess að þola góða daga.“ Máltæki þetta virðist eiga einkar vel við okkur íslendinga. Því meiri uppgripa og auðsældar sem við njótum þeim mun verr látum við að stjóm. Sjaldan tekst eins illa til við að stjóma þjóðarskútunni og þegar ytri aðstæðúr eru okkur sem allra hagstæðastar. Þá fyrst kastar til að mynda tólfunum í hallarekstri á ís- lenska ríkinu og í skuldasöfnun þjóðarinnar erlendis þegar afli er mestur, viðskiptakjör hagstæðust og velsældin best. Beinin okkar þola auðsjáanlega ekki of góða daga. Góðæri að baki Eitt slíkt tímabil er nú að baki að sögn Þjóðhagsstofnunar. Hún spáir því að ekki sé líklegt að framhald geti orðið á þeim mikla hagvexti sem verið hefur sl. tvö ár. Við höfum náð bylgjutoppinum í hagsveiflunni, seg- ir Þjóðhagsstofnun, og nú hallar undan fæti. Nú er m.ö.o. von til þess að aftur sé hægt að fara að stjóma íslendingum. Eins illa og Islendingar láta að stjóm í góðæri geta þeir verið dug- legir og góðir þegnar í mögm árferði. Sá er a.m.k. dómur reynslunnar. Þegar að er gáð er þetta ekki svo mjög undarlegt. Kynslóð fram af kynslóð hafa íslendingar vanist miklum sveiflum í aflabrögðum. Þegar vel hefur árað hafa landsmenn notið ávaxtanna og iðulega reist sér hurðarás um öxl harðákveðnir í þeirri skoðun sinni að loksins séu hlutimir orðnir eins og þeir eiga að vera og geti auðvitað ekki farið ann- að en batnandi. Þegar jafnreglulega hefur aftur harðnað í ári hafa lands- menn hert sultarólina, aukist að þegnskap og skyldurækni og étið sitt tros. Fáum þjóðum er eríiðara að stjóma í góðæri en íslendingum. Fáum þjóðum mun betra að veita forystu þegar að kreppir og átaks er þörf. KjaHaiinn Sighvatur Björgvinsson alþingismaður fyrir Alþýðufiokkinn Reynsla margra ríkisstjórna Þetta er hvorki sagt út í hött né í kerskni heldur er þetta reynsla margra ríkisstjóma. Ef við lítum t.d. á viðreisnarstjómina þá náði hún umtalsverðum árangri og naut hvað mests stuðnings og trausts þegar hún fékkst við erííðleikana, sem hlutust af aflabresti og verðhruni íslenskra útflutningsafurða í lok 7. áratugarins. Það var eftir að þeir erfiðleikar vom yfirstignir og þegar landsmenn vom komnir vel á leið inn í góðærið, sem sú ríkisstjóm glataði stuðningi sínum og þing- meirihluta. Þá tók við á sömu stundu eitt mesta góðæri og einhver mesta óstjóm íslandssögunnar og síðan má rekja árangur í efriahagsstjómun á íslandi í öfúgu hlutfalli við efna- hagslegt árferði. Þeim mun betri sem ytri aðstæður til árangursríkrar efhahagsstjómunar hafa verið því verri hefur stjómunarárangurinn orðið - og öfugt. í þessu sambandi er ekki nægilegt að tala um gott eða vont fólk í ráðherrastólum; góðar eða vondar ríkisstjómir. Ástæðan er líka sú að það er mismunandi gott - eða mismunandi vont - að stjóma þjóðarskútunni. Á lensi og í góðu leiði lætur hún illa að stjóm en í mótbyr, ágjöf og veltingi fer hún vel í sjó og heldur stefhu. Ekki stórt að óttast Einmitt af þessum sökum tel ég að nýja ríkisstjómin okkar þurfi ekki að vera sérstaklega kvíðin þótt spáð sé að erfiðari ár séu nú fram- undan en em að baki. Það þarf alls ekki að merkja að hlutskipti hennar verði erfiðara eða stjómunarárang- ur hennar verri en verða myndi ef framhald yrði á góðærinu. Það er í ljósi fenginnar reynslu mun líklegra að hægt sé að fá landsmenn til sam- starfs um skynsamlegar leiðir til árangursríkrar stjómar ef ytri að- stæður krefjast aðgátar en ef þær em svo hagstæðar að landsmenn telja að óhætt sé að slaka á klónni. Þetta kann að hljóma sem öfugmæli en er ekki. „Öfugmælið" er reynsla flestra ríkisstjóma á íslandi á liðn- um árum. Sighvatur Björgvinsson „Fáum þjóðum er erfiðara að stjórna í góðæri en Islendingum. Fáum þjóðum mun betra að veita forystu þegar að kreppir og átaks er þörf.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.