Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Side 20
20 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. Iþróttir _________ Glæsilegt hjá Einari í Róm kastaði 78,94 og sigraði í spjótkastinu Einar Vilhjálmsson gerði sér lítið fyrir og sigraði í spjótkasti á Grand Prix mótinu í gærkvöldi. Hann kast- aði spjótinu 78,94 metra sem er nokkuð frá Norðurlandameti hans, 82,96 m. Annar í spjótkastinu var Bretinn Michael Hill sem á 3. besta afrekið í ár, hefur kastað 85,24 m. í gærkvöldi kastaði hann 78,76. Röð næstu manna varð þannig: 3. David Ottley, Bretlandi..76,90 4. Peter Borglund, Svíþ.....76,74 5. Nicu Roata, Rúmenía......75,24 6. Jim Connolly, USA........72,70 7. Peter Yates, Bretlandi...71,10 -SMJ Aouita fyrstur undir 13 mín. í5.000 m hlaupi þegar hann setti heimsmet í Róm Hlauparinn írábæri, Said Aouita frá Marokkó, gerir það ekki enda- sleppt þessa dagana. Fyrir fáeinum dögum bætti hann heimsmetið í 2.000 m hlaupi þegar hann hljóp á 4:50,81 mín. í gærkvöldi bætti hann um bet- ur og bætti heimsmetið í 5.000 m hlaupi. Hann hljóp á 12:58,39 mín. og varð þar með fyrstur til að hlaupa 5.000 m á undir 13 mín. Heimsmetið korn á Grand Prix mótinu í Róm í gærkvöldi, sama móti og Einar Vil- hjálmsson keppti á. Aouita átti sjálfur eldra metið, 13:00,40, sett í Osló fyrir tveim árum. „Ég kom til Rómar til að sigra en ekki setja nýtt heimsmet," sagði Aouita sem var manna mest hissa á metinu. Hann sagðist hafa ætlað sér að spara kraftana þar til á heims- meistaramótinu og þar að auki hefði mikil orka farið í 2.000 m hlaupið. Yfirburðir Aouita voru miklir í hlaupinu og þegar 1.000 m voru eftir var hann 60 m á undan Sydney Maree þannig að lokaspretturinn var eingöngu kapphlaup við tímann. Afrek Aouita bar auðvitað hæst á mótinu en meðal annarra afreka má nefha að Robert Emmijan, USSR, stökk 8,45 í langstökki og sigraði með yíirburðum. Þá sigraði Calvin Smith, USA, örugglega í 200 m hlaupi á 20,22 sek. og í 100 m hlaupi á 10,15 sek. -SMJ • Said Aouita frá Marokkó bætti enn einu heimsmetinu við frábæran feril í Róm í gærkvöldi. Símamynd Reuter • Dæmigerð mynd. Baráttuglaðir Ólafsfirðingar sækja að Friðriki, markverði Fram, sem tekst að blaka boltanum yfir á síðustu stuni DV-mynd G. Ben Skin og skúrir í baráttuleik - Fvam sigraði Leiftur, 1-3, í tvísýnum hörkuleik á Ólafsfirði Jón Kristján Sigurðssan, DV, ÓlaMrðt ' „Ég er sáttur við leikinn en ekki úrslit- in,“ sagði Óskar Ingimundarson, þjálfari Leifturs, í gærkvöldi er lið hans hafði beðið lægri hlut, 1-3, gegn íslandsmeistur- um Fram. „Vítaspymudómurinn var vægast sagt óréttlátur og sló það liðið út af. laginu,“ hélt Óskar áfram. „Eftir að við höfðum jafnað vorum við að mínum dómi nær sigr- inum en Fram. Eini möguleiki okkar gegn þeim var að berjast til síðasta blóðdropa og okkur tókst að jafha, baráttan dugði þó ekki til sigurs.“ Ótrúleg stemmning var fyrir leikinn á Ólafsfirði og var fjölmenni gífurlegt í brekkunum ofan við keppnisvöllinn. Þar voru 700 áhorfendur saman komnir en staðarmenn eru 1150. Leikurinn sjálfur fór rólega af stað og virtust fslandsmeistaramir óvanir möl- inni, héldu boltanum þó öllu meira en vom helst til rýrir uppi við mark heima- manna á upphafsmínútunum. Á 14. mínútu kom þó fyrsta marktækifæ- rið og féll það í hlut gestanna. Ragnar Margeirsson skallaði að marki en Þor- valdur Jónsson varði stórkostlega vel. Eftir þetta jafhast leikurinn og Leifturs- menn skapa sér ágæt færi. Á 18. mínútu á Þorsteinn Jakobsson þrumuskot frá vítateigslínu en rétt yfir markslána. Örskömmu síðar á Halldór Guðmunds- son fast skot sem fer rétt framhjá. Á næstu augnablikum á Guðmundur Steinsson síðan tvö ágæt færi honum en bregst bogalistin í bæði skiptin uppi við mark þeirra Ólafsfirðinga. Á 35. mínútu skora síðan Framarar. Sending berst að vítateignum og hrekkur knötturinn af leikmanni Leifurs og inn fyrir vömina. Þar kemur Einar Ásbjöm Ólafsson aðvífandi og setur boltann í markið af stuttu færi. Á lokamínútu hálfleiksins vom heima- menn mjög nærri því að jafna er Halldór Guðmundsson haföi Friðrik Friðriksson og markið eitt framundan. Friðrik sá hins vegar við honum og sat því við 0-1 í leik- hléinu. Liðin sóttu á víxl í upphafi síðari hálf- leiks og áttu bæði ágæt færi. Heimamenn skomðu meira að segja umdeilt mark á 56. mínútu sem var dæmt af. Lét Þóroddur Hjaltalín mótmæli Leifturskappa sem vind um eym þjóta. Á 79. mínútu jafna síðan Ólafsfirðingar við mikinn fögnuð áhorfenda - bámst köllin um allan fjörð og jafhvel til hafs. Markið varð til með þeim hætti að Leift- ursmenn fengu innkast nærri vítateig Framara. Boltinn barst inn í teiginn þar sem stiginn var darraðardans. Úr þvögu hrökk knötturinn til Steinars Ingimund- arsonar sem skoraði frá markteigslínu. Tveimur mínútum síðar fá Framarar víti og heimamenn verða sem steinrunnir. Vítið varð til með þeim hætti að Einar Ásbjöm skaut boltanum að markinu. Knötturinn fór hins vegar ekki lengra en svo að hann hrökk af einum vamarmanni Leifturs og niður í vitateiginn. Þóroddur Hjaltalín blés umsvifalaust í flautu sína og benti fingri á vítapunkt. Sagði knöttinn hafa farið í hönd. í annað sinn á fáum mínútum dauf- heyrðist Þóroddur við mótmælum Ólafs- firðinga. Úr spymunni skoraði Pétur Ormslev en Þorvaldur Jónsson, frábær markvörður Leifursmanna, var nærri því að verja. Þegar 5 mínútur lifðu af leik kom Am- ljótur Davíðsson inn fyrir Guðmund Steinsson. Blés Amljótur lífi í leik Fram- ara og átti sjálfur hörkuskot að marki sem Þorvaldur varði glæsilega. Frá Þorvaldi barst þó knötturinn fyrir fætur Kristjáns Jónssonar sem skoraði. Staðan var þar með orðin 1-3 og úrslit- in ráðin. Ólafsfirðingar léku mjög vel í þessum leik, börðust af grimmd bæði í vöm og sókn. I raun er aldrei að vita hver úrslit hefðu orðið hefði vítið margnefnda ekki komið til. Vandasamt er að taka einn stakan leik- mann úr þessu kraftmikla liði en varla er á nokkum hallað þótt frammistaða Þor- valdar í markinu sé orðuð sérstaklega. Framarar léku sómasamlega og stóðus álagið á Ólafsfirði. Pétur Amþórsson va besti maður liðsins. „Við vissum að hverju við gengum,1 sagði Ásgeir Elíasson, þjálfari Fram, efth leikinn. „Við höfum ekki spilað á möl í mörg á: ef frá er talinn bikarleikurinn við Fylki fyrra. Við emm óvanir að spila við að stæður sem þessar og samleikur okka mótaðist af því. Það kemur mér ekki i óvart að Leiftur skuli leiða í annarri deild Þetta er hörkulið." -JÖC 8vítas| Gyifi Kristjánssan, DV, Akuieyii: „Þetta er það leiðinlegasta sem maður lendir í - það er algert grís hvort liðið kemst áfram,“ var það fyrsta sem Þor- steinn Bjamason, markvörður Keflvík- inga, sagði þegar ljóst var að vítaspymu- keppni þurfti til að fá fram úrslit í leik Þórs og ÍBK í mjólkurbikamum í gær- kvöldi. Vítaspymukeppnin var æsispennandi enda mistókust óvenju margar spymur. Þórsarar bytjuðu á því að skora úr tveim fyrstu spymum sínum og vom þar að verki Jónas Róbertsson og Kristján Kristjáns- son. Á meðan tókst Sigurði Björgvinssyni að skora úr sinni spymu en Baldri Guð- laugssyni, markverði Þórs, tókst að verja frá Óla Þór og Gunnari Oddssyni. Þá skaut Skúli Rósantsson yfir en Þorsteinn bætti fyrir það með því að verja frá Guð- mundi Val. En Keflvíkingar skutu yfir í sinni síðustu spymu og Þórsarar sigmðu því, 4-3. Leikurinn sjálfur einnkenndist af mik- illi hörku beggja liða - dæmigerður bikarleikur. Keflvíkingar mættu eins og grenjandi ljón, greinilegt að þeir ætluðu ekki að láta atburði síðustu daga hafa áhrif á sig. Fyrri hálfleikur var lélegur

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.