Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Qupperneq 32

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Qupperneq 32
32 FIMMTUDAGUR 23. JÚLI' 1987. Erlend myndsjá Hvað hugsarforsetinn? Það er ekki auðvelt að geta sér til um hvað Ronald Reagan Bandaríkjafor- seti er að hugsa á þessu augnabliki. Nema ef ske kynni að hann hafi verið að dást að leggjum jámfrúarinnar, Margaretar Thatcher. Það hefur að minnsta kosti löngum farið vel á með þeim skötuhjúum og svo var líka í síðustu viku þegar Margaret sótti Ronald heim í Hvíta húsinu. Skæðar tungur segja að í þessum tveim leiðtogum sé saman komið það argasta íhald sem íyrirfinnist á jörðu hér. Hvort sem eitthvað er hæft í því þá styðja þau ávallt vel hvort við annars bak, samhæfa gjama stefnumið sín í alþjóðamálum og hafa raunar stórbætt sambúð Bretlands og Bandaríkj- anna á undanfömum árum. Túristum boðið í þrælamið- stöðina Goree-eyja, sem liggur skammt fyrir utan höíúðborg Afríkuríkisins Seneg- al, var eitt sinn einhver mesta þræla- miðstöð álfunnar. Þangað söfnuðu þrælasalar blökkumönnum, flokkuðu þá eftir aldri og kynferði, neyddu ofan í þá mat ef þeir þóttu of horaðir og bjuggu þá undir sölu til þrælakaup- enda. Nú er Goree safn þar sem túristar fá að skoða menjar þrælaverslunar- innar. Þeim em sýndir hlekkir, sagðar sögur af höfðingjum Aírikuættbálka, sem seldu sína eigin þegna fyrir romm, og því lýst hvemig hundruð þúsunda Afríkumanna hóíú frá eyjunni ferð sína til annarra heimshluta þar sem þeir voru gerðir að húsdýrum. Þó að- eins tveir þriðju hlutar þeirra því íúllur þriðjungur lét lífið á leiðinni. Slys í pólskum skemmtigarði Slys em sem betur fer fátíð í skemmtigörðum, en þó getur alltaf eitthvað bilað þar eins og annars staðar. Um síðustu helgi brotnaði stoð í einu af tækjunum í skemmti- garði í Varsjá, höíúðborg Póllands. Vagnar af tækinu þeyttust sitt á hvað með fólkið innanborðs. Betur fór þó en á horfðist því enginn lét lífið í slysinu og enginn meiddist alvarlega. Tuttugu og fimm hlutu minniháttar meiðsl, þar af sextán böm. Bátafólkið enn á ferð Þrátt fyrir að stjómvöld í Víetnam stefni nú að uppbyggingu á efnahag lands- ins og úrbótum á kjörum almennings þar reyna enn margir Víetnamar að komast á brott til annarra landa og vænlegri kjara sem þeir telja að bíði sín. Ef til vill hafa heimsóknir þær sem stjómvöld í Víetnam heimila erlendis frá ýtt undir útþrá heimamanna að nýju því miklar sögur fara af lífsgæðum á Vesturl- öndum. Víetnömsku flóttamennimir flýja ýmist á láði eða legi. Margir fara þeir á misjafnlega traustum fleyjum út á rúmsjó og talið er víst að nokkur fjöldi fa- rist við þessar flóttatilraunir því oft em farkostimir komnir að því að sökkva þegar skip finna þá. Svo var um júnkuna sem olíuskipið Carla A. Hill fann um tvö hundmð og fimmtíu kílómetra úti af Singapore um daginn. Á fleytunni, sem var átta metra löng, vom fimmtíu og tveir Víetnamar, þrekaðir og hræddir. Áhöfn olíuskipsins tókst að bjarga fólkinu í tæka tið, þótt litlu mætti mana. Hópurinn var svo settur á land í Hong Kong og þaðan mun hann halda til Bandaríkjanna þar sem fólkinu hefur verið veitt landvistarleyfi. Meðal flóttamannanna vom sextán böm, tíu drengir og sex stúlkur. Talið er fullvíst að júnkan hefði sokkið innan skamms og fólkið allt farist hefði olíuskipið, sem siglir undir stjóm sænska skipstjórans Kjell Landin, ekki átt leið um þessar slóðir. Hreinsað til eftir kosn- ingarnar Ekki var kosningabaráttunni í Portúgal fyrr lokið en hafist var handa við að þrífa stræti höfuð- borgarinnar, Lissabon. Ekki veitti af því baráttugleði manna braust meðal annars út í því að líma áróð- ursspjöld upp um alla veggi bygginga, á ljósastaura og jafnvel glugga verslana. Kosningunum lauk með sigri sósíaldemókrata. Hreinsununum lýkur óhjákvæmilega með sigri hreinsunardeildarinnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.