Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Page 34

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Page 34
34 FIMMTUDAGUR 23. JULI 1987. Reynir Pétur Ingvarsson Fleiri tækni- og fræðsluþætti Það þyrfti að vera langtum meira um tæknilega þætti og íræðsluþætti í sjónvarpinu. Það eru uppáhalds- þættimir mínir. Nýjasta tækni og vísindi er t.d. fjandi góður þáttur. Einnig þykir mér mjög gaman að þáttum þar sem verið er að heim- sækja fólk og spjalla við það, eins og Stiklur Ómars sem eru svakalega góðir þættir. I gær horfði ég á spum- ingaþáttinn hans Ómars, Spurt úr spjörunum. Ég held mikið upp á Ómar. Hann er svo hress og léttur að ég efast um að hann stígi nokk- um tíma á jörðina. Sjónvarpið mætti taka fyrir nokkra tónlistarþætti, t.d. sveitatón- list og þýska ljóðatónlist. Ég hef mjög gaman af svoleiðis músík. Ég er líka viss um að fleiri myndu horfa á tónlist í sjónvarpinu ef það kæmi í stereo. Já, þá væri bara eins og maður væri kominn í Heita pottinn. Ég er ekkert sólginn í framhalds- Reynir Pétur Ingvarsson. þætti og er agalega linur við að horfa á svoleiðis. Hér á Sólheimum er horft frekar mikið á sjónvarp og þó aðal- lega video. Þá em oft valdar heldur þurrar myndir, eins og ég kalla það. Myndir sem lítið er varið í, spennu- myndir og svoleiðis. Þá sitja allir spenntir og varla má segja orð. Það finnst mér leiðinlegt því ég hef ekk- ert gaman af glæpamyndum og vildi að videoleigumar byðu upp á meira úrval af fræðsluþáttum. Þá þætti myndi ég sko gleypa í mig. Útvarp hlusta ég stundum á en ég geri það nú minna núna af því að ég er búinn að fá mér leysispilara og hlusta þvi frekar á mína tónlist. Ef ég legg eyrun við útvarpinu þá hlusta ég á Stjömuna og Rás 2. Það mætti vera fjölbreyttara lagaval á Rás 2, t.d. þýsk týrólalög. Annars get ég ekki alveg borið saman þessar stöðvar því ég hef svo lítið hlustað á þær. Jarðarfaiir Útvarp - Sjónvarp Hársnyrtistofan Hársel er flutt í stórt og nýtt húsnæði í Mjódd- inni, Þarabakka 3, annarri hæð. Hún var áður til húsa í Tindaseli 3. Hársel býður upp á alla almenna hársnyringu fyrir döm- ur, herra og börn. Þar á meðal er nýjung sem er Climazon tæki fyrir permanent og litanir og tryggir öruggan árangur. Eig- endur hársnyrtistofunnar eru Agnes og Ingunn og auk þeirra vinna þrjár stúlkur á stofunni. Hönnuður stofunnar er Hilmar Guðjónsson. Þormóður Guðmundsson lést 17. júlí sl. Hann var fæddur á Patreks- firði 23. febrúar 1925. Foreldrar hans voru Anna Helgadóttir og Guðmund- ur Þórðarson. Þormóður bjó mestan hluta ævi sinnar á Patreksfirði og starfaði þá helst við sjómennsku. fluttist síðan til Reykjavíkur og réðst hann þá í vinnu hjá Stillingu hf. Eftirlifandi eiginkona hans er Val- gerður Jónsdóttir. Þeim hjónum varð þriggja barna auðið. Útför Þormóðs var gerð frá Fossvogskirkju í morg- un. Laufey Áróra Guðmundsdóttir lést á Elli- og hjúkrunarheimilinu Grund 12. þessa mánaðar. Útförin hefur farið fram í kvrrþey að ósk hinnar látnu. Guðbjörn Guðbjörnsson, sem and- aðist á vistheimilinu Viðinesi 18. júlí sl.. verður jarðsunginn frá Fossvogs- kapellu mánudaginn 27. júlí kl. 10.30. Guðmundur Óli Ólason prentari. Hraunbæ 112. verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13.30. Gunnar Valgarður Kristjánsson, sem andaðist í sjúkrahúsinu á Húsa- vík 17. júlí, verður jarðsunginn frá Svalbarðskirkju, Þistilsfirði, laugar- daginn 25. júlí kl. 14. Pétur Pétursson, Engjavegi 49. Selfossi, verður jarðsunginn frá Sel- fosskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 13. Sigríður Guðmundsdóttir, Bryðjuholti, lést á sjúkrahúsi Suður- lands 20. júlí sl. Jarðað verður í Hruna laugardaginn 25. júlí kl. 14. Þorkell L. Ingvarsson, fyrrverandi stórkaupmaður, Dalbraut 27, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Langholtskirkju föstudaginn 24. júlí kl. 15. Jóhann Franksson de Fontenay lést 11. júlí sl. Hann var fæddur í Reykjavík 12. júní 1929, sonur hjón- anna Guðrúnar Eiríksdóttur og Frank Le Sage de Fontenay. Árið 1945 fluttist Jóhann til Danmerkur og lauk þar stúdentsprófi og stund- aði hann nám í verkfræði þar í tvö ár. Árið 1952 fluttist hann aftur til Islands og útskrifaðist hann sem búfræðikandídat frá Bændaskólan- um á Hvannevri árið 1955. Næstu fimm árin starfaði hann sem ráðu- nautur hjá Bnsb. Borgarfjarðar. Árið 1960 réðst hann til Sambandé ísl. samvinnufélaga. Eftirlifandi eigin- kona hans er Ólöf Kristófersdóttir. Þau hjónin eignuðust fjögur börn. Útför Jóhanns verður gerð frá Stór- ólfshvolskirkju í dag kl. 14. Sigríður Dóra Ingibergsdóttir, Brimhólabraut 19, Vestmannaeyjum. sem lést á sjúkrahúsi Vestmannaeyja 15. júlí, verður jarðsett frá Landa- kirkju laugardaginn 25. júlí kl. 14. Magnús Vigfússon frá Þórólfsstöð- um, er andaðist 19. júlí sl., verður jarðsettur frá Kvennabrekkukirkju í dag fimmtudag 23. júlí kl. 14. Valgerður Kristjana Einarsdótt- ir, Reykjalundi. sem lést á Vífilsstöð- um 16. júlí, verður jarðsungin frá Laugarneskirkju í dag fimmtudag 23. júlí kl. 15. Árni Garðar Kristinsson, Mela- braut 55, Seltjarnarnesi, verður jarðsunginn frá Dómkirkjunni í dag fimmtudag 23. júlí kl. 13.30. Guðbjörg Júlía Þorsteinsdóttir, Furugerði 1, verður jarðsungin frá Fossvogskapellu í dag fimmtudag 23. júlí kl. 13.30. Tapað - Fundið Úr tapaðist í Dalalandi. Georg Jensen karlmannsstálúr tapaðist á sunnudaginn sl. í kringum Dalaland 12. Finnandi er vinsamlegast beðin að hringja í síma 38279 á kvöldin. Góð fundarlaun. Áskorun Iffiræðinga: Hvatveiðar ekki réttlætanlegar „Við undirritaðir líffi-æðingar fögn- um auknum rannsóknum á lifandi hvölum hér við land en skorum jafn- framt á ríkisstjóm fslands að virða tímabundið veiðibann Alþjóðahval- veiðiráðsins, hætta hvalveiðum og kosta rannsóknir hvalastofha með öðrum hætti en með ágóða af hval- veiðum," segir í upphafsorðum ásko- runar sem 21 líffræðingur hefur sent ríkisstjóminni. í bréfinu segja líffræðingamir að „vísindaveiðar" séu ekki líklegar til Opið hús fyrir erlenda ferðamenn | Norræna húsinu I „opnu húsi“ Norræna hússins í kvöld 23. júlí kl. 20.30 talar sr. Heimir Steinsson þjóðgarðsvörður um Þingvelli, hvert hfut- verk þeirra hafi verið í vitund þjóðarinnar og sögu. Spjall Heimis verður flutt á dönsku enda er dagskráin í „opnu húsi“ einkum ætluð norrænum ferðamönnum. fslendingar eru þó engu að síður velkomn- ir líka. Að loknu stuttu kaffihléi verður sýnd kvikmyndin „Þrjár ásjónur fslands" með norsku tali. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir. að bæta vemlega þekkingu á fjölda, útbreiðslu og atferli hvala og meta veiðiþol hvalastofha við ísland. Loka- orð líffræðinganna em þessi: „Þrátt fyrir söfnun gagna með hvalveiðum i áratugi hefur ekki reynst unnt að ákvarða stærð og veiðiþol hvalastofiia hér við land. Núverandi „veiðar í vís- indaskyni“ breyta þar litlu um. Hvalveiðar okkar íslendinga em því ekki réttlætanlegar eins og á stendur og við teljum rangt að kenna þær við vísindi." -JFJ Tónleikar Greifarnir með tónleika í Evrópu f tilefni útkomu hljómplötunnar „Sviðs- mynd“ í síðustu viku verða Greifarnir með tónleika í veitingahúsinu Evrópu í kvöld 23. júlí. Á efnisskrá Greifanna verða að sjálfsögðu lögin af nýju plötunni ásamt áður útgefnu efni og nokkrum nýjum lög- um sem ekki hafa heyrst opinberlega áður. Húsið opnar kl. 22 og tónleikarnir hefjast kl. 23.30. Miðaverði er stillt mjög í hóf. Ný blúsplata frá hljómsveit- inni Centaur. Þessi önnur plata Centaurs er full af hress- um blúslögum sem myndu sennilega flokkast undir „Hvítan blús“ þó svo mörg lögin séu eftir fræga svarta blúsara. Lögin eru misjafnlega gömul og sum þeirra all- ólík sinni upprunanlegu mynd. Þetta er fyrsta íslenska platan sem hefur eingöngu blúslög innanborðs svo að blúsgeggjarar og aðrir unnendur hressrar tónlistar ættu ekki að láta þessa plötu fara fram hjá sér. Fimmtudaginn 23. júlí ætlar hljómsveitin að halda blústónleika á hótel Borg. Tón- leikarnir hefjast kl. 22. Hún Júlla er týnd, hún á heima í Fiska- kvísl 3. Ef einhver hefur séð hana eða veit hvar hún er, vinsamlegast látið þá vita f síma 671670. Tímarit OlKBxleg orlofshúa A SpAni til ^ ■ tilu« Ful lf rágengin ati ufcan og g| innan Aaamt ltiti . mm M jög hagataett verö eða f r A ^ Jcr • 1200 þúa . — Greiðalukjör . _ G.Óskarsson & Co. * Simar 17045 oq 15945 ■ Elskuleg dóttir okkar og systir SVAVA KRISTJANA RAGNARSDÓTTIR andaðist á Landspítalanum 21.7. 1987. Kristín Halldórsdóttir Ragnar Lövdal Gunnar Björgvin Ragnarsson Kúabændur, athugið! Sýklamælarnir komnirtil afgreiðslu. ísl. leiðarvísir fylgir. Kr. 9.000,- BOÐlHF Kap'ahraunMB Simi 91 -651800. Ný menntamál 2. tbl., 5. árg., eru komin út. 1 þessu tölu- blaði er enn reynt að grípa á kýlum íslenskra menntamála. 1 efnisflokknum „Homrekur skólakerfisins" segir Guðrún Halldórsdóttir frá eldra fólki sem hefur ekki samkeppnisfærar prófgráður við sér yngra fólk, Hildur Biering og Jóhanna Gestsdóttir fjalla um grunnskólanemend- ur sem hafa flosnað úr skólum og Helga Sigurjónsdóttir greinir frá nemendum sem falla á grunnskólaprófi. í blaðinu er einn- ig efnisflokkur um friðarfræðslu þar sem rifjaðir eru upp gamlir kaflar úr ræðum þingmanna. Guðríður Sigurðardóttir segir frá hugmyndum um friðarfræðslu í skólum og viðtöl eru við kennara og deildarstjóra skólaþróunardeildar. Fyrir utan fasta þætti má svo loks nefna grein Þórðar Helgasonar um þátt þjóðfræðinnar í skóla- starfi. Ný menntamál koma út fiórum sinnum á ári og ritstjóri þeirra er Hannes Ólafsson. Þau eru gefm út af Bandalagi kennarafélaga og eru sefd í stærri bóka- verslunum og í áskrift. Áskriftarsími þeirra er 91-31117. Ýmislegt Minningarspjöld Hellnakirkju fást hjá Magnfríði Sigurbjamadóttur, Hofteigi 16, sími 34982.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.