Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Side 38

Dagblaðið Vísir - DV - 23.07.1987, Side 38
38 FIMMTUDAGUR 23. JÚLÍ 1987. Kvikmyndahús Bíóborg Angel Heart Sýnd kl. 5, 7.05, 9.05 og 11.15 Arlzona yngri Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Moskítóströndin Sýnd kl. 7 og 9. Krókódila Dundee Sýnd kl. 5 og 11.05. Bíóhúsið Bláa Betty Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Bíóhöllin The Living Daylights Sýnd kl. 5, 7.30 og 10. Morgan kemur heim Sýnd kl. 5. 7, 9 og 11. Innbrotsþjófurinn Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Lögregluskólinn Allir á vakt Sýnd kl. 5, 7 og 11. Morguninn eftir Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Blátt flauel Sýnd kl. 9. Háskólahíó Herdeildin Sýnd kl. 7, 9.05 og 11.15. Bönnuð innan 16. ára. Laugarásbíó Gustur Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Meiriháttar mál Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Martröð á Elmstræti Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Bönnuð innan 16 ára. Regnboginn Velgengni er besta vörnin Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11.15. Á toppinn Sýnd kl. 3.05, 5.05 og 7.05. Dauðinn á skriðbeltum Sýnd kl. 9.05 og 11.05. Þrír vinir Sýnd kl. 3.10, 5.10, 9.15 og 11.15. Á eyðieyju Sýnd kl. 9 og 11.15 Hættuástad Sýnd kl. 3.15, 5.15, 9.15 og 11.15. Gullni drengurinn Sýnd kl. 3, 5, 9 og 11.15. Herbergi með útsýni Sýnd kl. 7. Hrafninn flýgur Sýnd kl. 7 Kvikmyndasjóður kynnir íslenskar myndir með enskum texta Sýnd kl. 7. Stjömubíó Hætturlegur leikur Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. Wisdom Sýnd kl. 7, 9 og 11. Heiðursvellir Sýnd kl. 5. Bönnuð innan 16 ára fæst í blaðasölunni F a járnbrautarstöðinni # i Kaupmannahöfn. LUKKUDAGAR 23. júlí 44459 Litton örbylgjuofn frá FÁLKANUM að verðmæti kr. 20.000,- Vinningshafar hringi i sima 91-82580. Kvikmyndir Hvítflibbaævintýrí EHthvað viUt í Háskólabíói á næstunni myndafyrirtækinu Orion og leik- stjóri er Jonathan Demme. Með aðalhlutverk fara Jeíf Daniels og Melanie GrifBth. Myndin segir frá dálitlu ævintýri sem skattaráðgjafinn Charles Driggs lendir óvænt í á einum af þessum venjulegu dögum í New York. Driggs er einn af þessum dæmigerðu ungu mönnum á uppleið, er varafor- seti í stóru fyrirtæki, íhaldssamur hvítflibbanáungi. Hann er þó stað- inn að því á veitingastað að laumast út án þess að borga og athugul af- greiðslustúlka, Lulu Hankel, tekur eftir því. Þar með bytja þeirra sam- skipti sem eiga eftir að þróast á ævintýralegan hátt uns skötuhjúin leggja upp í ferðalag til heimabæjar Lulu. En Lulu er ekki öll þar sem hún er séð, reyndar hálfgerð ótemja og því alger andstæða hins fágaða unga manns. Það er því dálítið villt- ara líf sem Lulu á eftir að koma Charlie í kynni við. Leikarinn Jeff Daniels í hlutverki Charlie Diggs er vel kunnur fyrir leik sinn í óskarsverðlaunakvik- myndinni Terms of Endearment þar sem hann lék á móti Debru Winger. Einnig fór hann með hlutverk rit- stjórans í Heartbum þar sem hann lék á móti Meryl Streep. Hann hefur þó leikið flest sín hlutverk á sviði hingað til en er nú að hasla sér völl í kvikmyndaheiminum. Melanie Griffith í hlutverki Lulu fór með sitt fyrsta kvikmyndahlut- verk sem eitthvað kvað að í mynd hins þekkta leikstjóra Brian de Palma Body Double. Áður hafði hún m.a. leikið á móti Paul Newman og Joanne Woodward í myndinni The Drowning Pool fyrir nokkrum ár- um. Leikstjórinn, Jonathan Demme, hefur leikstýrt fjölda mynda áður og er einna kunnastur fyrir myndimar Handle with Care og The Last Embrace þar sem Roy Scheider og Janet Margolin fóm með aðalhlut- verk. Þess má geta að mörg tónlist- armyndbönd, sem hann hefur stjómað upptökum á, hafa vakið athygli, þ.á.m. myndbandið með hljómsveitinni UB40 og Crissie Hynde, I got you babe. -BTH Something Wild heitir bandarísk frumsýnd verður í Háskólabíói í kvikmynd í léttari kantinum sem næstu viku. Myndin kemur frá kvik- Við upptökur á Something Wild. Jeff Daniels, leikstjórinn Jonathan Demme og Melanie Gritfith bera saman bækur sínar. Á ferdalagi Geithellnar og Ingólfur Leið ferðamanna til Austíjarða að sunnan liggur um Álftaflörð sem er syðstur Austfjarða. Það er tæplega réttnefhi að kalla Álftafjörðinn fjörð því hann er gmnnt lón sem lokast af sandrifi, Starmýrarfjörum. Ut- rennslið er um Melrakkanesós. Upp af Álftafirði gengur Geit- hellnadalur og er dalurinn að líkind- um kenndur við bæinn Geithellnar en staðurinn sá er frægastur fyrir það að þeir fóstbræður og fyrstu landnámsmenn, Ingólfur Amarson og Hjörleifur Hróðmarsson, dvöldust þar fyrsta veturinn sinn á íslandi, segja munnmæli. Þessi ferð þeirra félaga var könnunarferð til að líta á aðstæður í landinu sem seinna varð heimaland Ingólfs en Hjörleifi varð ekki langra lífdaga auðið og féll fyr- ir þrælshendi í Vestmannaeyjum. Ef eitthvað er að marka munnmælin hefur Ingólfur setið veturinn í Geit- hellnum og velt fyrir sér hvar og hvemig hann skyldi velja sér bústað á eyjunni. Honum hugkvæmdist að taka með sér öndvegissúlumar, varpa þeim fyrir borð og reiða sig á að guðir og góðir vættir létu súlum- ar skola á land „á einhveijum kósí stað“, eins og nútímasagnfræði hlýt- ur að orða það. Það er kunnugt af sögunni að önd- vegisskraut Ingólfs bar að landi þar sem nú heitir Davíðsborg og tjömin sem ambáttir Ingólfs skoluðu skítugt línið heitir senn Davíðstjöm og við hana stendur brátt Davíðshús. Ekki hefur Ingólf órað fyrir þess- um örlögum þar sem hann sat fyrir ellefu hundmð árum á Geithellnum. Geithellnar urðu síðar stórbýli og em það enn. Dalurinn komst í byggð og var hún blómleg fram á þessa öld eða þangað til að afkomendur land- námsmanna tóku upp á því að feta í fótspor Ingólfs og setjast að í Dav- íðsborg og næsta nágrenni. Þröngur Geithellnadalur er nú að mestu í eyði og fáir ríða þær sex klukkustundir sem tekur að ferðast á hesti dalinn endilangan. Geit- hellnaá liðast um dalinn, ýmist í gljúfrum eða að hún steypist niður fossa. -pal Geithellnaá í Geithellnadal. Hellirinn sem áin, dalurinn og bærinn eru kenndir við fylltist af sandi og aur og sést ei meir. Útvarp - Sjónvaip Mortein, höfuðpaur A-ha, segir frá sér og sínum á rás 2 í kvöld. RÚV, rás 2, kl. 19.30: A-ha íviðtali innan um vinsældalista Vinsældalistamennirnir, þeir verða lög með þeim félögum. Auk Gunnar Svanbergsson og Georg þess verða 30 vinsælustu lögin leikin. Magnússon, náðu um síðusu helgi Lagið Living Daylights var í fimmta tali af A-ha tríóinu, þeim Mortein, sæti vinsældalistans í síðustu viku, Pál og Magne, eftir vel heppnaða en hvar það lendir nú kemur í ljós konserta í Laugardalshöll. Þeir þegar líða tekur á þáttinn. Margir ræddu við þá um margt og mikið sem spá því efsta sæti og jafnvel 10 næstu margan langar að vita og spiluð vikurnar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.