Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Blaðsíða 11
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987.
11
Utlönd
Felldu fjörutíu og 3 1 Wljjijiilsfxiiixxxi
þrjá hermenn jMozambique
Hægri sinnaðir uppreisnarmenn í Mósámhík sögðu á laugardag að þeir hefðu fellt fjörutíu og þrjá hermenn, þar af 22 úr stjómarher Tít<
landsins og 21 frá Zimbabwe, í bardögum í Gaza- og Tetehéruðum pu xír pijií lÉ.iJíwf*1'
landsins í síðustu viku. mmk í
Hafnar neyðarráðstöfunum
Corazon Aquino, forseti Filipps-
eyja, fyrirskipaði : um helgina
sérstakar aðgerðir til þess að finna
og gera upptæk ólögleg vopn á
ej’junum, en hafnaði á sama tíma
notkun nöyðarráðstafana til þess
að draga úr vaxandi ofbeldi í borg-
um landsins.
Aquino fyrírskipaði her og ]<>g-
reglu að hlífa engum í baráttunni
gegn glæpum í landinu, ekki einu i
sinni opinberum embættismönnum. Er talið að þessa hörku megi rekja til
reiði forsetans vegna morðs á einum ráðherra stjómarinnar í síðustu viku.
I tilkynningu sinni sagði forsetinn að þeim mun fleiri sem her og lögregla
tæki og þeim mun háttsettari sem þeir væru, því betra. Hét hún því að sýna
að lýðræði á Filippseyjum væri ekki vamarlaust.
Utför þeldökks leiðtoga
Um fimmtán hundruð manns sóttu útför Erie Mntonga, eins af leiðtogum
þeirra sem leita lýðræðislegrar lausnar á deilum í Suður-Afríku, nú um
helgina, en hann var myrtur skömmú eftir að samtök þau sem hann starf-
aði fyrir höfðu komið á viðræðum milli þeldökkra skæruliða og frjálslyndra
í hópi hvítra manna í landinu.
Mntonga, sem áður fyrr starfaði að skipulagsmálum verkalýðsfélaga í
Suður-Afríku, en undanfarið hefúr verið embættismaður IDASÁ, samtaka
sem leita lýðræðislegrar lausnar á vandamálum þeldökkra í landinu, farrnst
stunginn til bana í bifreið sinni fyrir utan bæinn Ciskei. Höfðu hendur
hans verið bundnar á bak aftur.
Mntonga skipulagði í síðustu viku ferð nokkurra fijálslyndra hvítra S-
Afríkumanna á fund yfirmanna afh'ska þjóðarþingsins, en för þessi var
stjómvöldum í S-Afríku mikiil þymir í augum.
Tólf særðust
í sprengingu
: Sex Bandaríkjarræhn særðust í
sprengingu í veitingahúsi, nálægt
bandarískri hcrstöð í I ionduras. i
Talsmaður bandaríska sendiráðs-
ins i : Hondúras sagði að sex
inntæddir aðilar hefðu einnig
meiðst.
Atök moonista og vinstri manna
': Ti 1 átaka kom um helgina milli
um eitt þúsund unglinga úr hreyf-
ingu moonista. og róttækra vinstri
manna við Berlínarmúrinn.
i Moonistarnir, sem em fyl gj end-
ur suður-kóreanska klerksins Sun
Myung Moon, efhdu þá til mót-
mælagöngu meðfram landamærum
þýsku ríkjanna, þar sem þeir
kröfðust þess að Beriínarmúrinn
yrði rifinn.
: Til átakanna kom þegar um
hundrað og fimmtíu vinstrisinnar
gerðu hróp að moonistunum. Á
tímabili; bárust slagsmálin yfir
landamærin, inn í Austur-Þýáta-
land, en a-þýskir landamæraverðir
skiptu sér ekki neitt af því.
Karami-nefndin komin frá Svíþjóð
Þriggja manna rannsóknamefnd sneri um helgina aftur til Beirút, höfuð-
borgar Líbanon, frá Svíþjóð, þar sem reynt var að fa framseldan liðhiaupa
úr her kristinna manna í Líbanon, en hann er talinn bera ábyrgð á morðinu
á Rashid Karami, forsætisráðherra Líbanon, fyrr á þessu ári.
Haft var eftir nefiidarmönnum að liðhlaupinn, Elie Sleibi, myndi verða í
vörslu sænskra yfirvalda til 10. september, og að það væri nægur timi til
að fara fram á framsal eftir venjubundnum leiðum.
Nefndin, sem skipuð var einum rannsóknaraðila frá dómsmáiaráðuneyti
Líbanon, auk tveggja embættismanna úr iögregiu landsins, fór í síðustu
viku til Stokkhólms, í þeirri von að fá hinn grunaða framseldan.
LAND-ROVER
á leið um landið!
5JMIJJI 21 22 23 ■■■■■■■ 7 |i
mmw”'—
MWLAND- 9 ~
■k -RQVER mmm
i8Hp5íiIíbb6
ngH I I I IB
Söluferð mei Land-Rover um landið
Sýningarstaðir hjá ESSO-söluskálum
á landsbyggðinni!
Sölumenn okkar kynna nýju Land-Rover bílana næstu vikur víða um
landið og á sýningu bændasamtakanna BÚ ’87. Nú er Land-Roverinn
gjörbreyttur: Nýtt útlit, sami undirvagn og er í Range-Rover, nýtt mæla-
borð og klæðningar. „Langi Land-Roverinn er besti akstursbíll sem ég
hef prófað“, segir Ómar Ragnarsson. :
- Komið og kynnist nýju |rt
Land-Rover 90 og 110 gerðunum. i
- Þér gerið ekki betri jeppakaup.
- Eigum bíla á kynningarverði.
Norðurland eystra
I
Föstudagur 07. ágúst:
Húsavík
Mývatn
kl. 10.00-16.00
kl. 17.00-21.00
Laugardagur 08. ágúst:
Kópasker kl. 10.00 - 14.00
Raufarhöfn kl. 15.00 - 17.00
Þórshöfn kl. 18.00 - 23.00
Austurland
Sunnudagur 09. ágúst:
Vopnafjörður
Egilsstaðir
Mánudagur 10. ágúst:
Q Reyðarfjörður
R Eskifjörður
Bil Djúpivogur
Suðurland
Þriðjudagur 11. ágúst:
Höfn
Klaustur
Vík
E
kl. 10.00-13.00
kl. 15.00-23.00
kl. 10.00-13.00
kl. 14.00-17.00
kl. 19.00-21.00
kl. 09.00- 13.30
kl. 15.30 - 18.00
ki. 19.00-22.00
Miðvikudagur 12. ágúst:
Hvolsvöllu kl. 09.00 - 15.00
Hella kl. 16.00-22.00
Fimmtudagur 13. ágúst:
UjJSelfoss kl. 09.00- 16.00
iH Hveragerði kl. 17.00 - 20.00
Vesturland
Mánudagur 24. ágúst:
Bj) Akranes
3 Borgarnes
kl. 10.00-14.00
kl. 15.00-22.00
Norðurland vestra
Þriðjudagur 25. ágúst:
Borðeyri kl. 10.00 - 12.00
Hvammstangi kl. 13.00 - 16.00
Víðihlíð kl. 17.00-20.00
Miðvikudagur 26. ágúst:
IBIönduós kl. 09.00- 13.00
Varmahlíð kl. 14.00 - 16.00
Sauðárkrókur kl. 17.00 - 22.00
14. ágúst - 23. ágúst:
Sýning í Reykjavík á BÚ ’87
Bændur og aðrir athafnamenn:
- Komið og heilsið
upp á gamlan
kunningja!
IIQII Id II !■
Möldursf.
Tryggvabraut 12 • Akureyri
Símar 96-23515 og 96-21715