Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Blaðsíða 5
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987. 5 Fréttir Það eru engin harðindi í heyskapnum á Gullatúni. Þær fara mjúkum hönd- um um heyið, stúlkurnar Anna Hilda Guöbjörnsdóttir, Freygerður Sigur- sveinsdóttir, Rósa Jónsdóttir og Steingeröur Sigtryggsdóttir. DV-mynd JGH DV á Ólafsfirði: Túnið heitir Gullatún en Gunni í Hlíð á það Jón G. Haukssan, DV, Akureyii: Þær sögðu að túnið héti Gullatún en Gunni í Hlíð, skólastjóri bamaskól- ans og hestamaður, ætti það og hann fengi allt heyið. Þær eru eldhressar, stúlkumar í unglingavinnunni á Ól- afsfirði. „Við rökum með gamla laginu, not- um hrífur. Hjá okkur er engin stór- brotin tækni eða vélar í gangi,“ sögðu þær stöllur. „Það er ágætt að vera í heyskap. llmurinn af heyinu er alltaf jafngóð- ur,“ bættu þær við með fangið fullt af heyi handa honum Gunna í Hlíð. Ritstjóramálið á Þjoðviljanum: Hef heyrt þennan kaffi- húsaorðróm enginn úr útgáfustjóminni rætt máiið við mig, segir Ólafur Ragnar Ráðning ritstjóra á Þjóðviljanum fer í gegnum framkvæmdastjóm AI- þýðubandalagsins til samþykktar eða synjunar. Ólafúr Ragnar Gríms- son er formaður framkvæmdastjóm- ar og DV innti hann eftir því hvort það hefði verið rætt þar að Össur Skarphéðinsson ritstjóri yrði látinn hætta á blaðinu. Ólafúr sagði að enginn úr útgáfú- stjóm blaðsins hefði rætt þetta mál við sig en hann kvaðst hafa heyrt kafShúsaorðróm um að hugmyndir væru uppi um að láta Össur hætta. Guðni Jóhannesson, sem sæti á í útgáfustjóm Þjóðviljans, sagði að málið hefði ekki verið rætt opin- berlega í útgáfustjóminni. Hann kannaðist aftur á móti við að hafa heyrt orðróm rétt eins og Ólafur Ragnar. -S.dór Salmonella í fiskimjöli: „Almennt hreinlæti skiptir öllu máli“ UTSALA Á ÞREMUR STÖÐUM - segir Hannes Magnússon gerlafræðingur „Því miður getur þetta alltaf komið fyrir og illmögulegt að koma í veg fyrir að salmonella berist í fiskimjöl. Ein mesta hættan á salmonellusýk- ingu er þegar menn moka upp í poka mjöli sem hefúr dottið á gólfið í stað þess að láta endurvinna það. Salmon- ellusýkillinn drepst við 60 gráða hita og lifir því ekki af endurvinnslu. Ann- ars er það almennt hreinlæti sem skiptir öllu máli,“ sagði Hannes Magnússon, gerlaffæðingur hjá Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins, í samtali við DV vegna salmonellu í fiskimjöli á Siglufirði. Hannes sagði að talið væri að um 15% mávastofnsins væri sýktur af salmonellu. Fuglinn sækir mjög í loðn- una og fiskúrgang og fúglasaur er því mjög hættulegur. Það gerir ekkert til þótt hann fari í hráefnið vegna þess að salmonellan drepst við bræðslu og þurrkun mjölsins. En fúglasaur getur borist með skóm I skugga hrafnsins: Unnið eftir sænskum leik- arasamningi „Það náðist samkomulag um það við framleiðendur kvikmyndarinnar að láta sænska leikarasamninginn gilda alfarið, þannig að bæði sænskir og íslenskir leikarar væru á sömu kjör- um. Þessi samningur er umtalsvert betri en íslenskir kvikmyndasamning- ar,“ sagði Amór Benónýsson, formað- ur Félags íslenskra leikara. Amór sagði að sænski samningur- inn væri ffá árinu 1985 og hefði verið gerður á milli sænska leikarafélagsins og kvikmyndagerðarmanna. Þetta væri svokallaður verktakasamningur sem mikið væri af í afþreyingariðnaði hérlendis. Verktakinn, í þessu tilfelli leikaramir, tæki að sér verkefni fyrir ákveðnar greiðslur samkvæmt samn- ingnum. Þeir þyrftu því sjálfir að sjá um að standa skil á launaskatti og öðrum launatengdum gjöldum. -JFJ manna inn á gólf verksmiðjuhúsanna. Síðan fellur mjöl á gólfið og því er síðan mokað upp án þess að það sé endumnnið. Hannes sagði að gott væri að hafa mottur með sótthreinsi- efni við allar dyr og væri stjómendum verksmiðjanna ráðlagt það. Hannes sagði salmonellu vera eitt mesta vandamálið sem verksmiðjum- ar ættu við að glíma og ekkert ráð til að koma alfarið í veg fyrir hana. -S.dór Smiðjuvegi 2B Sími 79866 Skólavörðustíg 19 Hringbraut 119 Sími 623266 Sími 611102 F3MARLEY FLOORS Marleyflex Slitsterkar vinyl-gólffiísar MARLEYFLEX vinyl-gólfflísar frá MARLEY FLOORS sameina góða endingu, fallegt útlit, gæði og gott verð. Sérlega hentugar á verslunar- húsnæði, skrifstofur, skóla, sjúkrahús og aðra þá staði sem mikið mæðir á. MARLEYFLEX vinyl-gólfflísar eru asbestfríar og fást í fimm litum. Stærð 30x30 cm og þykkt 2.5 mm. Ávallt fyrirliggjandi. VEGGFÓDRARINN- MÁLNING & JÁRNVÖRUR Heildsala: Síðumúla 4, 108 Reykjavík. Símar 687171 og 687272. Marinó Pétursson hf. 32 Sundaborg, 124 Reykjavík. Sími 681044.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.