Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Blaðsíða 13

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.1987, Blaðsíða 13
MÁNUDAGUR 10. ÁGÚST 1987. 13 Neytendur viKncSAV0RN FYW,R QLUQGA. HUROtR. °S*EI0AR: GRiNOVCRK, TiMBURHUSOC «■ Eg hélt að hann meinti þetta Ódyr viðarvörn 1 Besd sjávarrétturinn 1987: Meistarakokkar Gísli G. ísleifsson, lögfræðingur Verðlagsstofnunar, skrifar: Það hefur að mínu áliti alltaf verið ljóður á ráði manna að gera öðrum upp skoðanir og leggja síðan út frá þeirri ímynd á þann veg sem að þeim þykir hentugast. Þetta þurfti þó að koma fyrir „tals- mann neytenda", Jónas Bjamason, í grein í DV þann sjötta þessa mán- aðar sem á að teljast svar við þeirri setningu minni um væntanlegan grænmetismarkað í grein í DV þann 30. fyrra mánaðar sem hljóðar svo: „Þó virðist okkur það vera til bóta, miðað við þær upplýsingar sem að við höfum“. Um þetta segir Jónas:„Lögfræð- ingi Verðlagsstofnunar finnst það vera til bóta að þessi svokallaði grænmetismarkaður ætli ekki að starfa samkvæmt lögum“. Til skýringar fyrir neytendur alla, en ekki bara þá sem Jónas talar fyr- ir, þá á grænmetismarkaðurinn væntanlegi að vera uppboðsmarkað- ur, svipað og fiskmarkaður. Þetta er eins fjarri samráði og hugsast getur. Ég er því hræddur um að fullyrð- ingin í tilvitnaðri setningu Jónasar verði að fara ofan í kokið á honum sjálfum og vona ég að honum verði ekki bumbult af. Jónasi bauðst að tala við mig þeg- ar hann hringdi í Verðlagsstofnun út af grein minni en þáði það ekki heldur skrifaði grein 1 DV sem í rauninni er ekki svaraverð. Það eina sem má vera Jónasi til afsökunar er að hann haldi að í grein minni sé verið að fjalla um núverandi græn- metismarkað í tilvitnaðri setningu, en þar er átt við væntanlegan mark- að, eins og skýrt kemur fram, samanber: „... dálítið erfitt með að tjá okkur um væntanlegt fyrirkomu- lag á grænmetismarkaðnum sem þeir hyggjast koma á fót“. í upphafi greinar minnar kemur skýrt fram að það er skoðun mín og Verðlagsstofhunar að samráð það sem að nú ríkir í grænmetissölu er lögbrot. Jónas er því að slást við vindmyllur þegar hann gefur í skyn að ég styðji lögbrot. Bið ég hann því að lesa grein mína aftur og þá ekki eins og sumir lesa Biblíuna. En meðal annarra orða, Jónas, enun við íslendingar ekki allir neyt- ÓDÝR OG HAGKVÆM VIÐARVÖRN SEM ENDIST KJÖRVARI er hefðbundin viðarvörn og til í mörgum litum. Ef einkenni viðarins eiga að halda sér, er best að verja hann með Kjörvara. iK má/ning« Samkeppr)in um Besta sjávarréttinn 1987, á vegum Marska og DV, stendur yfir þessa dagana. Dómnefnd er skipuð valinkunnum mönnum, þremur mat- reiðslumeisturum, einum matvæla- verkfræðingi og loks á blm. DV sæti í nefhdinni. endur? Lifir hér ekki hver á öðrum. bæði með vörur og þjónustu og erum því allir nevtendur - ekki bara þeir sem að fara út í búð og kaupa vörur - heldur líka bændur. sjómenn. kennarar, lögfræðingar. verkamenn. og jafnvel verkfræðingar? Er ein- hver hópur nevtenda öðrum rétt- hærri, og þá hvaða hópur? Þá væri æskilegt að Jónas aflaði sér einhverrar lögfræðiþekkingar áður en hann skrifar meir um lög- fræðileg atriði. þ\d kunnátta hans í þeirri fræðigrein virðist svona álíka og mín í verkfræði. Svo vona ég að Jónasi takist að slökkva bálið í kringum Verðlags- stofhun sem ég á að hafa kveikt en var ekki nema stormur í vatnsglasi hans. Meistarakokkar Hilmar B. Jónsson og Úlfar Ey- steinsson eru landsþekktir sem meist- arakokkar. Hilmar fylgir forseta okkar, Vigdísi Finmnbogadóttur, þeg- ar hún fer í opinberar heimsóknir og eldar krásir ofan í útlenda heiðurs- gesti, sem hann og gerir hér á landi. Þar fyrir utan er hann ritstjóri eina íslenska tímaritsins sem fjallar um mat, Gestgjafans. Úlfar er þekktastur fyrir sérlega góða matreiðslu sína, einkum á sjávarfangi alls konar. Úlfar rekur nú veitinga- staðinn Úlfar og ljón á Grensásvegin- eina uppskrift í hvert umslag, eigin nafh og heimilisfang í öðru umslagi, merktu sama leyninafni. Sami maður má senda margar uppskriftir, gætið þess að merkja þær greinilega. Ef svo ólíklega vill til að ekki berist hæfar uppskriftir að mati dómnefridar og Marska fellur keppnin niður. -A.BJ. Erlendis er grænmeti og ávextir selt á sannkölluðum mörkuðum. Þá fer verðið oft lækkandi eftir því sem á daginn liður. Þar vilja menn heldur selja við lágu verði heldur en að sitja uppi með framleiðsluvörur sinar að vinnudegi loknum. Myndin er af erendum markaði. A.Bj. hægt verði að nota hjá Marska í fram- tíðinni. Undirritaður,Anna Bjamason blaðamaður á DV, hefur séð um neyt- endasíðuna í áraraðir og hefur reynslu bæði í matargerð og skrifum um mat. Skilafrestur í samkeppninni er til 15. ágúst næstkomandi. Sendið uppskrift- imar ykkar merktar leyninafni, aðeins Dómnefndin í samkeppni Marska og DV um Besta sjávarréttinn 1987. um en það er einn af bestu sjávarrétta- veitingastöðum höfuðborgarinnar. Dr. Einar Matthíasson er matvæla1 verkfræðingur hjá Iðntæknistofhun Islands. Iðntæknistofhun aðstoðaði Marska við þróun á þeim réttum sem þar em framleiddir í dag og vom allir réttimir prófaðir hjá stofnunni áður en þeir fóm í framleiðslu. Steindór R. Haraldsson er mat- reiðslumeistari og jafhframt fram- leiðslustjóri Marska á Skagaströnd. Hann hefur átt einna mestan þátt í þróun þeirra rétta sem framleiddir em hjá Marska og er óþreytandi við að afla nýrra uppskrifta. Hann hefur mikla trú á að út úr þessari sam- keppni komi fínar uppskriftir sem í dómnefhdinni Tækifæri sem margir hafa beðið eftir. Hressingardvöl við Svarta- hafið. 2ja, 3jaog4raviknaferðir. íslensk hjúkrunarkona er með í ferðum. 5000 kr. afsláttur fyrir ellilífeyrisþega. í þessum ferðum er hægt að fara í sérferðir t.d. til Istambul og Saloniki í Grikklandi, auk ýmissa ferða um Búlgaríu. Bæklingur á skrifstofunni. -r: ERUM FLUTTI MIÐBORGINA FERDA&WALhf Hafnarstræti 18 Símar: 14480-12534

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.