Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 8
8 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987. Útlönd Lá við árekstri hjá Reagan . Nærri lá að þyrla Ronalds Rcagan Bandaríkjaforseta lenti í árekstri í lofti við óþekkta flugvél rovrri bú- garði forsetans við Santa Barbara í Kalifomíu í gær. Forsetinn var að koma á búgarð sinn þar sem hann ætlar að dvelja í afelöppun á nsest- unni. Atvikið átti sér stað um sex kíló- metra saðaustur af búgarðinum þegar flugmaður þyrlu forsetans bjó sig tíl iendingar. Að sögn talsmanns forsetaembætt- isins var bin öugvéiin aðeins fáeiná metra írá þyrlu forsetans. Flugmað- ur hennar var síðar handtekinn á öugveliinum í Santa Barbara eftir að önnur þyrla haföi elt hann. Myrtí sjúklinga Þrjátíu og Ijögurra ára gamail aðstoðarmaður á sjúkrahúsi í Cinc- innati í Bandaríkjunum hefúr verið handtekinn og sakaður um að hafa myrt einn af sjúklingum þeim sem hann haföí umsjón með. Talið er hugsanlegt að maðurinn, Donald Haryey, hafi myrt allt að þrjátíu og fjóra sjúklinga á gúkra- liúsinu þótt hann hafi aðeins verið ákærður fyrir eitt morð til þessa. Harvev er lýst sem þægilegum í viðmóti, duglegum og áhugasömum um galdra og aðra einkennilega hluti. Hánn heíúr verið opinberlega ákærður fyrir morðið á sjúklingi sem slas- ast hafði í umferðarslysi en sjúklingurinn lést í marsmánuði síðastliðnum af völdum blásýrueitrunar. Harvey hefur sjálfur sagst bera ábyrgð á dauða þrjátíu og íjögurra sjúkl- inga og kveðst hafa myrt þá með blásýru, rottueitri, hreinsilegi og með því að sprauta lofti í æðar þeirra eða kæfa þá með plastpokum og púðum. Réðust á franska borgara Sendiráð Frakka í Port-Au-Prmce, höfuðborg Haiti, hefúr kralist þess af stjómvöldum í landinu að þau efhi til rannsóknar á árásum sem þrír fransk- ir borgarar hafa orðið fyrir í borginni undanfarið. Meðal annars hafa Frakkar krafist þess að Haitimenn rannsaki tilvik þar sem hópur vopnaðra manna í einkennisbúningum nauðgaði franskri konu. Franska sendiráðið hefúr skrifað utanríkisráðuneyti Haiti bréf, þar sem farið er fram á rannsókn á atviki þegar fimm vopnaðir menn stöðvuðu kon- una, eiginmann hennar og annan karlmann þar sem þau voru á leið heim til sín af veitingastað aðfaranótt þriðjudags. Mennimir rændu fólkið og nauðguðu konunni. SJö létust í fellibyfnum Sjö rnanns létu lífið á Filippseyjum í gær þegár fellibylurinn Betty gekk yfír eyjamar. Miöjórúr manna voru heimdislausar eftir að fellibylurinn eyðiiagði stór hverfi nokkurra bæja á miðbiki eyjanna. Fellibylurinn sleit niður mikið af rafmagnslínum og varð fjöldi bæja algerlega rafinagnslaus. : Að sögn Rauða krossins hefur ekki verið hægt að ásetla skaðann af völd- um veðursins, þar sem samgöngur liggja mjög víða niðri og talið er áð taki nokkra daga að koma þeim í samt lag að nýju. Þeir sem létust af völdum veðurs- ins höföu flestir ákveðið að halda sig á heimilum sínum i stað þess að leita betra skjóls fyrir veðrinu. Þeir urðu síðan undir braki þegar veður- ofsinn rústaði íbúðú- þeirra. Hetja komin heim F'lugþjónninn sem yfirbugaði flug- ræningja í Genf í Sviss fyrir nokkru er nú kominn út af sjúkrahúsi þar sem gert var að sárum hans. Flug- þjónninn fékk skot í kviðarhol þegar hann réðst á flugræningjann scm rændi þotu frá Air Afrique fyrir nokkru. Þurfti hann að gangast und- ir erfiðar aðgerðir en er nú heill heilsu. Lik fallinna þorpsbúa i fjöldagröf í Mósambik. Hægri sinnaðir skæruliðar eru sagðir hafa skotið að minnstá kosti sjötiu manns í þorpinu Manjacaze. Símamynd Reuter Fiöklamorð í Mósambik Hægri sinnaðir skæruliðar í Mósambik neituðu í gær að hafa myrt sjötíu manns í þorpinu Manjacaze í suðurhluta landsins. Hin opinbera fréttastofa Aim í Mósambik sagði frá því í gær að um sex hundruð vopnaðir skæruliðar hefðu þust inn í þorpið á mánudag- inn og skotið að minnsta kosti sjötíu manns. Sagði fréttastofan árásina hafa verið svipaða þeirri sem gerð var 18. júlí síðastliðinn en þá féllu Kona á flótta frá þorpinu Manjacaze. Skæruliðar hafa framið fjöldamorð í annað sinn á tæpum mánuði. Símamynd Reuter tæplega fjögur hundruð óbreyttir borgarar. Var það mesta fjöldamorð- ið í sögu borgarastyrjaldarinnar í Mósambik. Yfirvöld í Mósambik segja skæru- liðana njóta stuðnings stjórnarinnar í Suður-Áfríku. Hafa þeir látið til sín taka í Gaza-héraðinu og í fréttatil- kynningu frá l.ágúst sögðust þeir hafa ráðist á herbækistöðvar við Manjacaze. Marmaraþjófur heim gegn tryggingu Haukur L. Hauksson, DV, Kaupmannahöfii; Átján ára Dani hefur verið látinn laus úr grísku fangelsi gegn trygg- ingu sem hljóðaði upp á tíu þúsund' danskar krónur. Getur hann því far- ið heim eftir rúmlega mánaðarlanga fangelsisvist. Daninn var handtekinn í Aþenu 11. júlí síðastliðinn þegar lögreglan þar uppgötvaði fyrir tilviljun að hann bar tíu kílóa marmarastykki frá Akropolishæðinni í bakpoka sín- um. Eftir handtökuna kom í ljós að marmarastykkið hafði mikið fom- fræðilegt gildi. Þótt Daninn hafi litið á marmara- stykkið sem hvem annan stein við göngustíg þá líta Grikkir á hveija steinvölu á Akropolishæð sem hluta af menningararfleifð sinni og taka þungt á öllum tilraunum til að fjar- lægja minnsta rykkom þaðan. Reyndar gengu samningaumleit- anir danska sendiráðsins um að fá Danann lausan vel og því er litið á fangelsunina sem áminningu fyrir aðra Akropolisfara. Leitað var eftir aðstoð kafara til að kanna hvort ekki væri allt i lagi með skips- skrokk franska tundurduflaslæðarans Cantho sem fara á til Persaflóa. Símamynd Reuter íranir leita tundurdufla íranir tilkynntu í gær að þeir myndu æfa tundurduflaleit á alþjóðlegum. siglingaleiðum í kjölfar ásakana Bandaríkjamanna um að írönsk stjórnvöld hefðu látið koma fyrir tund- urduflum fyrir utan Persaflóa. Talsmaður bandaríska utanríkis- ráðuneytisins sakaði einnig í gær írana um að vera að kaupa fleiri tund- urdufl. Hvatti hann Sameinuðu þjóð- imar til þess að íhuga hvort ekki ætti að banna sölu vopna eins og tundur- dufla til Irans og Iraks. Að minnsta kosti fimm tundurdufl hafa fundist i þessari viku fyrir utan Fujairah, hafnarborg í Sameinuðu arabísku furstadæmunum fyrir utan Persaflóa. Olfuflutningaskip i eigu Bandaríkjamanna rakst á eitt tundur- dufl og kom gat á skipið. Bandarískir, breskir og franskir tundurduflaslæð- arar em nú á leið til Persaflóa og búist er við þeim þangað næstu vik- umar. Irakar hafa tilkynnt að þeir hafi flog- ið rúmlega hundrað árásarferðir í gær en neita fullyringum Irana um að fjór- ar íranskar þyrlur hafi verið skotnar niður. Báðir aðilar tilkynntu um særða eftir árásir á borgir og þorp. íranir segjast nú hafa rétt til þess að nota efnavopn í Persaflóastríðinu í hefndarskyni gegn slíkum árásum íraka. Kom það fram í bréfi til Samein- uðu þjóðanna. Einnig gagnrýndu íranir ályktun Sameinuðu þjóðanna um vopnahlé samstundis en höfnuðu henni ekki beint.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.