Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 27
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987. 39 dv Fólk í fréttum Þráinn Bertelsson Þráinn Bertelsson hefur sagt upp störfum sem ritstjóri Þjóðviljans og af þeim sökum verið í fréttum DV. Þráinn er fæddur 30. nóvember 1944 og nam heimspeki og sálfræði í Dyflinn 1968-1970 og í Marseille í Frakklandi 1971-1972. Hann lauk lokaprófi í kvikmyndastjóm frá Dramatiska institutet í Stokkhólmi 1977. Þráinn var kennari við Eiða- skóla 1965-1966 og Þelamörk í Eyjafirði 1972-1975. Hann hefur ver- ið blaðamaður í Reykjavík og dagskrárgerðarmaður við Ríkisút- varpið og Sjónvarpið. Þráinn stofh- aði fyrirtækið Nýtt líf með Jóni Hermannssyni 1981 og hefur verið aðaleigandi þess frá 1985. Hann var ritstjóri Þjóðviljans frá 1. september 1986 - 1. september 1987 og tekur nú aftur við stórfum hjá Nýju lífí. Þráinn hefur verið afkastamikill kvikmyndaleikstjóri og rithöfúndur og hefur gert eftirtaldar kvikmyndir: Jón Oddur og Jón Bjami, 1981, Snorri Sturluson, 1981, Nýtt líf, 1982, Dalalíf, 1983, Skammdegi, 1984, Löggulíf, 1985. Meðal þeirra bóka sem eftir hann liggja em: Sunnudag- ur, skáldsaga, 1970. Stefnumót í Dublin, 1971. Kópamaros, 1972. Paradísarvíti, 1974, Hundrað ára af- mælið, 1984 og Það var og, 1985. Kona Þráins er Sólveig Eggerts- dóttir, b. á Möðruvöllum í Hörgár- dal, Davíðssonar og konu hans, Ásrúnar Þórhallsdóttur, og eiga þau tvo syni, Álf Þór og Hrafh. Þráinn á eina systur, Ýrr, sem vinnur á Ríkisútvarpinu. Foreldrar þeirra em Bertel Theodór Natel Sig- urgeirsson trésmiður og kona hans, Fjóla Oddsdóttir. Bertel er sonur Sigurgeirs, skipstjóra í Tungu í Önundarfirði, Bjamason- ar, b. í Engidal, Jónssonar, af Amadalsættinni í fóðurætt og Eyr- ardalsættinni í móðurætt. Móðir Bertels var Ólína Ólafsdóttir frá Skeggsstöðum í Svartárdal í Húna- vatnssýslu. Meðal foðursystkina Þráins var Helga, móðir Sigurgeirs Jónssonar, bæjarfógeta í Kópavogi. Þráinn er fjórmennmgur í föðurætt- ina við þá bræður Veturliða og Benedikt Gunnarssyni listmálara, Gunnar Ásgeirsson forstjóra og Valdimar Ömólfsson íþróttakenn- ara. Fjóla, móðir Þráins, er dóttir Odds, b. á Hrafheyri við Amarfjörð, föður- bróður Guðmundar G. Hagalín rithöfundar, föður Sigríðar Hagalín leikkonu. Oddur var sonur Krist- jáns, skipstjóra á Lokinhömrum, Oddssonar. Móðir Fjólu var Símonía KristjanaPétursdóttir, b. á Bala á Kjalamesi, Kristjánssonar, langafa Valgerðar, móður Össurar Skarp- héðinssonar, ritstjóra Þjóðviljans. Kristjana, amma Þráins, var af Fremri- Hálsættinni, en meðal skyld- menna Þráins af þeirri ætt em Styrmir Gunnarsson ritstjóri, Guð- rún Helgadóttir alþingismaður, Magnús Hreggviðsson, forstjóri Þráinn Bertelsson Frjáls framtaks, Jóhanna Kristjóns- dóttir blaðamaður og Þorbjöm Broddason dósent. Afmæli Gunnar Bjömsson og Sigurður Bjömsson Gunnar og Sigurður Bjömssynir frá Stóm-Ökrum verða sextugir í dag. Gunnar Bjömsson er fyrrum bóndi á Sólheimum í Blönduhlíð en nú húsvörður Búnaðarbankans á Hlemmi. Kona hans er Ragnheiður Jóns- dóttir, b. á Sólheimum í Blönduhlíð Bjömssonar og konu hans Valgerð- ar Eiríksdóttur og em böm þeirra Valgerður Jóna, kennari, Ragnar, sálfræðingur, Sigríður Hrafnhildur, blaðamaður og Ingibjörg Ásta, mannfræðingur. Sigurður Bjömsson er bóndi á Stóm-Ökrum í Akrahreppi í Skaga- firði, kona hans er María Helgadótt- ir b. á Tungu í Gönguskörðum Magnússonar og konu hans, Krist- ínar Guðmundsdóttur. Böm þeirra em Sigríður sagnfræðingur, Bjöm, Sigurður Bjömsson og Gunnar Bjömsson frá Stóru-Ökrum. framkvæmdastjóri Ungmennasam- bands Skagafjarðar, Kristín, banka- starfsmaður í Rvík., Gísli, íþrótta- þjálfari hjá Ungmennasambandi Skagafjarðar, Helga Gígja, banka- starfsmaður á Sauðárkróki, Gunnar. bóndi og kennari á Stóm-Ökrum. Auður Herdís, verslunarmaður í Varmahlíð í Skagafirði, María Aðal- heiður, rakaranemi í Rvík. og Helgi, námsmaður á Stóm-Ökrum. Gunnar og Sigurður eiga þijár systur. Þær em: Gunnfríður Ingi- björg, maður hennar er Hólmsteinn Jóhannesson b. á Þorleifsstöðum í Akrahreppi, Ingunn, maður hennar er, Geir Axelsson fyrrv. b. á Brekku- koti i Akrahreppi. Herdís. maður hennar er, Sveinn Jóhannsson b. á Varmalæk í Lýtingsstaðahreppi. Foreldrar þeirra em Bjöm Sig- ui'ðsson b. á Stóru-Ökrum og kona hans, Sigríður Gunnarsdóttir. og vom þau hjónin bræðraböm. Faðir þeirra bræðra. Bjöm. var son- ur Sigurðar b. á Svðra-Vallholti í Seyluhreppi, Gunnarssonar. hrepp- stjóra á Skíðastöðum i Skefilsstaða- hreppi Gunnarssonar af Skíðastaða- ættinni. Móðir Bjöms var Herdís Ólafsdóttir b. í Brekkukoti í Blöndu- hlíð Bjömssonar af Valadalsætt. Móðir þeirra. Sigríður. var dóttir Gunnars b. á Svðra-Vallholti. Gunn- arssonar frá Skíðastöðum. Móðir Sigríðar var Ingibjörg Ólafsdóttir. b. í Kálfárdal í Skefilsstaðahreppi Rafhssonar og Sigríðar Gunnars- dóttur frá Skíðastöðum og vom foreldrar Sigríðar systkinaböm. Þeir bræður verða að heiman í dag. Jóhannes Zoega Jóhannes Zoega hitaveitustjóri, Laugarásvegi 49, verður sjötugur í dag. Hann lauk prófi í vélaverkfræði frá Tækniháskólanum í Berlín 1941 og vann við rannsóknir og störf i Múnchen 1941-1945. Jóhannes var verkfræðingur hjá Hamri hf. í Rvík 1945-1951 og forstjóri Landsmiðj- unnar í Rvík 1952-1962. Hann var hitaveitustjóri í Rvík frá 1962 og hefur haft umsjón með lögn hita- veitu í Rvík, Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ á þessu tímabili. Kona hans er Guðrún Benedikts- dóttir alþingismanns og skjalavarð- ar í Rvík Sveinssonar og konu hans Guðrúnar Pétursdóttur, em þau hjón fjórmenningar. Böm þeirra em: Tómas læknir, Guðrún verkfræðing- ur, Benedikt stærðfræðingur. og Sigurður hagfræðingur. Systkini Jóhannesar em: Unnur, gift Jóni Sigurðssyni, sjómanni á Neskaupstað, og Reynir, gjaldkeri á Neskaupstað. Foreldrar þeirra vom Tómas Zo- ega, sparisjóðsstjóri á Norðfirði, og kona hans, Steinunn Símonardóttir. Tómas var sonur Jóhannesar Zoega, Jóhannes Zoega hitaveitustjóri. skipstjóra í Rvik, Tómassonar Zo- ega, formanns á Bræðraparti á Akranesi, Jóhannessonar Zoega. Bróðir Jóhannesar Zoega skipstjóra var Geir, rektor, afi Geirs Hallgríms- sonar seðlabankastjóra og Geirs Þorsteinssonar, forstjóra Ræsis hf. Móðir Tómasar var Guðný Hafliða- dóttir, tómthúsmanns í Nýjabæ í Rvík Nikulássonar, systir Ólafar, móður Bjama Jónssonar vígslubisk- ups. Kona Hafliða var Guðfinna Pétursdóttir b. í Engey Guðmunds- sonar, langafa Guðrúnar Péturs- dóttur, móður Bjama Benediktsson- ar forsætisráðherra og tengdamóður Jóhannesar Zoega. Móðir Jóhannesar hitaveitustjóra, Steinunn, var dóttir Símonar b. á Iðunnarstöðum í Lundarreykjadal Jónssonar, b. á Efstabæ í Skorradal Símonarsonar, sem Efstabæjarættin er kennd við. Systur Símonar vom Halldóra, amma Sveinbjöms Bein- teinssonar skálds og allsherjargoða og Hildur, amma Péturs Ottesen al- þingismanns á Ytra-Hólmi á Akra- nesi, Jóns Helgasonar ritstjóra, Magnúsar Ásgeirssonar skálds og þýðanda, Leifs Ásgeirssonar prófess- ors, langamma Inga Sigurðssonar lektors og Helga H. Jónssonar fréttamanns. Móðir Steinunnar Sím- onardóttur var Herdís Jónsdóttir, systir Magnúsar á Vilmundarstöð- um, langafa Guðrúnar Hannesdótt- ur, móður Hannesar Pálssonar bankastjóra. Þowarður Ömótfsson Þorvarður Ömólfsson, fram- kvæmdastjóri Krabbameinsfélags- ins, Vorsabæ 3, Reykjavík, er sextugur í dag. Þorvarður er fæddur á Suðureyri við Súgandafjörð og lauk lögfræði- prófi 1966. Hann var í námi við háskólann í Uppsölum 1967-1968 og var stærðfræðikennari við Kvenna- skólann í Reykjavík 1948-1974. Þorvarður var framkvæmdastjóri Félagsstofhunar stúdenta 1968-1973, Bamavinafélagsins Sumargjafar 1973-1975 og Krabbameinsfélags Reykjavíkur frá 1975. Þorvarður hefur verið í stjóm Fannborgar hf. (Skíðaskólans í Kerlingarfjöllum) frá stofnun félagsins 1974. Hann var í samstarfsnefnd um reykingavamir 1977-1980 og reykingavamanefnd frá 1980. Þorvarður var varamaður i Bamavemdarráði íslands 1967—1974 og varaformaður ráðsins 1972-1974. Hann var formaður Bind- indisfélags íslenskra kennara 1969-1973 og ritstjóri blaðsins Tak- marks frá stofhun þess, 1976. Kona Þorvarðar er Anna tann- smiður Garðarsdóttir, skógarvarðar á Selfossi, Jónssonar, og konu hans, Móeiðar Helgadóttur. Foreldrar Þorvarðar vom Ömólf- ur Valdimarsson, kaupmaður á Suðureyri við Súgandafjörð, af Am- ardalsættinni, og kona hans, Ragnhildur Kristbjörg Þorvarðs- dóttir, af ætt Stefáns Péturssonar, prests á Desjarmýri. 70 ára_____________________ Skarphéðinn Jónsson, Kringlu, Miðdalahreppi, er 70 ára í dag. 60 ára_________________________ Laufey Lárusdóttir, Skaftafelli 2. Hæðum. Hofshreppi. er 60 ára í dag. Þorgils Eiríksson, Evrarvegi 16. Selfossi, er 60 ára í dag. ----■_ 50 ára_________________________ Margrét Pétursdóttir, Egilsstöðum 2. Egilsstaðahreppi. er 50 ára í dag. Lárus Arnar Kristinsson, Eyjavöll- um 1. Keflavík. er 50 ára í dag. Svavar Símonarson sjómaður. Viðimel 41, Reykjavík, er 50 ára í dag. 40 ára________________________ öm Oddgeirsson, Dvergholti 2, Mosfellsbæ, er 40 ára i dag. Sigurður Rúnar Hrólfsson, Flúða- seli 80, Reykjavik, er 40 ára í dag. Þorvarður ömóHsson, fram- kvæmdastjóri Krabbameinsfelags- ins. Árni 0. Thorlacius, Túngötu 1. Bessastaðahreppi, er 40 ára í dag. Harry Erik Jóhannesson. Strand- götu 18. Miðneshreppi. er 40 ára i dag. Sigurlaug Anna Sigtrvggsdóttir, Tungusíðu 13. Akureyri. er 40 ára í dag. Þórhildur Jónsdóttir, Arnarvatni I. Skútustaðahreppi. er 40 ára í dag. Jón Árnason stýrimaður. Skál. Mosfellsbæ. er 40 ára í dag. Finn Jansen bifvélavirki. Hraunbæ 168, Revkjavík. er 40 ára í dag. Vilborg Þorfinnsdóttir, Fjólu- hvammi 11. Hafnarfirði. er 40 ára í dag. Gunnar L. Björnsson flugvirki, Lindarflöt 30. Garðabæ. er 40 ára i dag. Guðmundur Hannesson, Reyni- grund 40, Akranesi, er 40 ára í dag. Olga Guðmundsdóttir, Látraströnd 56, Seltjarnarnesi, er 40 ára í dag. Sævar Karl Ólason klæðskeri, Smáragötu 4, Reykjavík, er 40 ára í dag. __________________Andlát Sölvi Ólafsson, fyrrv. kaupmaður, Hringbraut 99, Keflavík, lést á gjörgæsludeild Landspítalans mið- vikudaginn 12. ágúst. Guðmunda Sigríður Jónsdóttir, Langholtsvegi 94, andaðist á Landakotsspítala að morgni 12. ágúst. Pétur Pétursson, Fjólugötu lla, lést af slysförum þann 12. ágúst. j Matthildur Björg Matthíasdótt- ir, Vesturbergi 142, lést á gjör- gæsludeild Landakotsspítala 12. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.