Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 11
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987. 11 Httabylgla á Spáni Hitabylgja stendur nú yfir á Spáni og hefur hitastig í forsíelu farið upp í fjörutíu gráður á Celcfus, að því er spánska veðurstofan skýrði frá í gær. Hitabylgjan staíar af heitu lofti sem borist heftu' með vindum úr Sahara-eyðimörk tnni undanfttrið. i Ferðamenn gripu til þess í gær að kæla sig í gosbrunnum Madrid- borgar og að sögn ríkisúlvarpsins á Spáni hefur orðið að skammta vatn í mörgum bæjum í austanverðri Kataloníu og í Extramadura-héraði. Að sögn veðurstofúnnar er talið að hi Talsraaður þjóðvarðliðsins á Spáni sagði í gær að óttast væri að skógareld- ar gætu brotist út. 1 Extramadura-héraði brunnu um tvö hundruð hektarar af eikartrjám og kjarri í gær. Skór fyrir prinsinn Um þessar mundir er verið að leggja lokahönd á gerð pars af skóm fyrir Karl Bretaprins. Skór þessir eru einkum merkilegir fyrir þá sök að efhiviðurinn í þeim er tvö hundruð ára gamalt rússneskt hreindýra- skinn sem bjargað var úr danska skipinu Catherine von Flensburg. Skipið sökk við Bretlandsstrendur árið 1786 og hefur skinnið þvi legið tvær aldir í sjó. Kostnaður við skógerðina er um 1250 sterlingspund. Það hefur þurft fimm skógerðarmeistara til að íjúka verkinu. Prinsinn mun fa parið fljót- lega en auk þessa skópars verða framleidd níu önnur úr sama efnivið. Þau verða seld á uppboði og and- virði þeirra gefið til góðgerðarmála. TVíhöfða grii Tvíhöfoa grís fæddist á býli einu í Ungverjalandi síðastliðinn miðvikudag. Grísinn var einn af tíu sem móðirin gaut þann dag. Hann er með tvö höf- uð, tvo munna, fjögur augu, tvær tungur en aðeins einn heila. Grísinn getur ekki tekið til sín næringu frá móðurinni, líkt og eðlilegir grísir gera, þann- ig að hann fær næringu um sérstakt rör. Ekki er talið að grísinn geti lifað lengi. Enrlle á þlng Juan Ponce Enrile, fyrrutn vamar- málaráðherra Filippseyja og einn af helstu 8tjómmálaandstæðingum Coraxon Aquino, forseta landsins, var í gær opinberlega lýstur þing- maður í öldungadeild þings landsins og þar með lauk biturri, þriggja máhaða langri baráttu um síðasta sætið á þinginu. Mál Enrilea þurfti að fara fyrir hæstarétt landsins. Þegar úrskurður var kveðinn upp í gær sagðist Aquino rayndu beygja sig fyrir honum þar sem hún tryði á gildi hans sem æðsta dómstóls landsins. Felldu tugi uppreisnarmanna Að sögn sovésku fréttastofúnnar Tass hafa tugir uppreisnarmanna í Afganistan fallið undanfarið og afg- anski stjómarherinn liefur tekið mikið af vopnum herfangi. Að sögn frétrastofttnnar hefur þetta átt sér stað í miklum átökum i Shakardara héraði, sem er skammt fyrir noröan Kabul, höfúðborg Afganistan. Fréttastofan tiltók ekki hvenær bardagar þessir áttu sér stað en vestræn- ir diplómatar i Islamabad segja að í síðustu viku hafi hersveitir Sovétríkja- anna og stjómarhers Afganistan haft uppi miklar sprengjuárásir á svæði þetta. Fréttastofan sagði að meðal þess sem tekiö var herfangi hefðu verið meira en þrjú þúsund fallbyssuskot, kvartmilljón riffilskota og margar þungar vélbyssur. Eldamir slokknaðír Slökkviliði á grísku eyjunni Rhodos tókst í gær að ráða endanlega niður- lögum skógareldanna sem geiaað hafa á eynni undanfarna daga. Úllönd Sprenging í efiia- biigða- stöð Að minnsta kosti fimm manns létu lífið og sextíu slösuðust við spreng- ingar í efnabirgðastöð nálægt flug- velli í Seoul í Suður-Kóreu í gær. Búist er við að fjöldi látinna sé meiri þar sem talið er að nokkrir hafi lok- ast inni í birgðastöðinni. Að sögn vitna náðu eldtungurnar úr birgðastöðinni tuttugu metra upp í loftið. Allt lék á reiðiskjálfi á flug- vellinum og þrjú hús jöfnuðust við jörðu. Flestar rúður innan tveggja kílómetra radíusar brotnuðu. Flug- umferð varð ekki fyrir truflunum vegna sprengingarinnar. Þrjátíu og sjö ára gamall maður missti átta ára gamla dóttur sína og eiginkonu er kviknaði í húsi hans. Tvö önnur börn voru í húsinu og slö- suðust þau alvarlega. Nágranna- kona mannsins komst með naumindum úr rústum húss síns en það hrundi tuttugu sekúndum eftir að hún heyrði í sprengingunum. Fullyrt er að tala látinna hefði orðið hærri ef ekki hefði verið svo fábýlt í kringum efnabirgðastöðina sem að mestu var umkringd ökrum. Mikill eldur varð við sprengingu í efnabirgðastöð i Seoul í gær og biðu fimm manns bana. Simamynd Reuter Tjalda vegna húsnæðiseklu Haukur L. Haukssan, DV, Kaupmannaha&u Nú eru skólar að byrja og húsnæðis- leit námsfólks í helstu skólaborgum og bæjum Danmerkur í alglevmingi. Framboð er eins og fyrr miklu minna en eftirspum og því hefur Thor Peders- en, húsnæðismálaráðherra Dana. beðið bæjar- og sveitarfélög um að gera átak til að finna húsaskjól fyrir nemendur. Mælir ráðherrann með stofnun húsnæðismiðlana og auglýs- ingaherferða vfirvalda á hverjum stað svo að fólk með laus herbergi gefi sig fram. Á Kaupmannahafnarsvæðinu er reiknað með að 90 prósent umsækj- enda um húsnæði á stúdentagörðum fái neitun. Námsmannasamband Dan- merkur reiknar með að nemendur við tækniháskólann við Kaupmannahöfh, sem ekki fá húsaskjól, slái upp tjöldum á skólalóðinni eins og í fyrrahaust til að vekja athygli á stöðu sinni. VATNSDÆLUR • HJOLATJAKKAR • HJOLKOPPAR • SÆTAAKLÆÐI NÝKOMIÐ! LEGUR 0G PAKKDÓSIR í ÖXLA OG DRIF SENDUM í PÓSKRÖFU Spjcer’ 4* V A R A HLUTAVERSLUNIN SIÐUMULA 3 0 3 7 2 7 3 KVEIKJUHLUTIR • BREMSUKLOSSAR • STYRISEIMDAR • HJÖRULIÐIR LUKKUGETRAUN: Einu sinni í mánuði drögum við úr nöfnum kaupenda og seljenda um 5 daga ferð til Hamborgar með ferðaskrifstofunni Sögu. Verður þú sá heppni í ágúst? AMC Cherokee Laredo, árg. 1986, GMC Jimmy Super Sierra 6,2 dis- Ford Capri 2,8 i árg. 1982, dökk- gullsans, sjálfskiptur, ekinn 19.000 il árg. 1982, rauður, sjálfskiptur, grár, vökvastýri, low profil dekk, m., verð kr. 1.190.000. Skipti á rafmagn i rúðum og læsingum, sportfelgur, sportstólar, einn ódýrari. breið dekk og felgur, ekinn 43.000 meiri háttar, ekinn 77.000 km, m., verð 890.000. Skipti á ódýrari. verð kr. 490.000. Skipti á ódýrari. Allar gerðir bíla vantar á söluskrá- mikilsala Opið laugardaga kl. 10-18. BÍLATORG NOATUN 2 - SIMI 621033

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.