Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 32

Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Blaðsíða 32
44 FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987. Sviðsljós Ólyginn sagði... Lét breyta sér í Michael Jackson Eddie Murphy er með skemmtilegri mönnum. Það sannaðist fyrir skömmu. Hann var farþegi í flugi frá Los Angeles þegar bilun varð í mót- or flugvélarinnar. Farþegum varð mjög brugðið og greip nokkur hræðsla um sig. Eddie var ekki lengi að bregðast rétt við. Hann reis á fætur og bað fólk vinsamlegast að vera ekkert að „stressa" sig á þessu. Bilun- in væri ekkert mál og sló hann bara á létta strengi. Þannig tókst honum að fá fólk til að slappa af og gleyma áhyggjum sínum. Eddie reif utan af sér brandar- ana eins og honum væri borgað fyrir það. Og tókst að skapa fjör um borð. Það hefur löngum þótt eftirsókn- arvert að líkjast fræga fólkinu. Taka þá til fyrirmyndar. En misjafnt er hve fólk gerir mikið í því. Sumir láta sér nægja að greiða sér svipað, aðrir likja eftir klæða- burði þess. En til eru þeir sem taka málin öllu alvarlegar. Eins og til dæmis Valentino Jo- hnson. Hann hefur um árabil verið einlægur aðdáandi Michael Jack- son. Poppstjarnan hefur haft gífurleg áhrif á Valentino og hefur hann reynt að taka sér goðið til eins mikillar fyrirmyndar og hugs- ast getur. „Þegar ég fylgdist með Michael á hljómleikaferðalagi fyrir þremur árum varð ég ákveðinn í að láta breyta mér þannig að ég líktist honum sem allra mest.“ segir Va- lentino. Og þá hófst leikurinn. Hann ræddi við skurðlækni sem leist nú ekkert sérstaklega á málið. En Valentino var svo ákveðinn í þessu að læknir- inn gat ekki annað en fallist á þetta. Aðgerðin tók sinn tíma og kostaði dágóða fúlgu. Hundrað og sjötíu þúsund íslenskar. Gera þurfti rosalegar breytingar á manninum eins og sjá má á mynd- inni. I fjórtán klukkutíma stóðu skurðlæknar yfir andlitinu á hon- um og breyttu og bættu. En þar með var ekki allt búið. í hálft ár þurfti Valentino að jafna sig. Þegar hann leit í spegil fyrst eftir aðgerðina brá honum heldur betur í brún. Hann líktist Michael Jack- son ekki vitund. En smám saman á næstu sex mánuðum fór hann að líkjast goðinu meira. Nú er svo komið að -hann verður að ganga með lífvörð úti á götu. Fólk hreinlega þyrpist að honum. Smástelpur öskra og henda sér um hálsinn á honum. Auðvitað hald- andi hann vera poppstirnið. Hvernig skyldi honum svo líka nýja lífið? 1 Alison Moyet, söngkona meö meiru, gerir þaö gott þessa dagana í fleiru en í söngnum. Eins og íslenskir tón- listarunnendur vita hefur hún sungið hvert vinsæla lagiö á fætur ööru síðustu misseri. En nú er hún alveg heltekin af billj- ardíþróttinni. Segir hún allan sinn fritíma fara í að leika billj- ard. Lætur hún hafa eftir sér að billjard sé alveg frábær leikur sem reyni á nákvæmnina og þolinmæðina. Hún er að sögn þeirra sem þekkja bara orðin ansi sleip í billanum og leggi marga góða spilara að velli. Victoria Principal, sem við þekkjum best sem Pa- melu í Dallas, sér nú fram á nýja og betri tíma. Hún var fyrir löngu komin með hundleiða á hlutverki sínu í sápuóperunni sem var farið að þynnast all- veruléga. En Victoria sagði starfi sínu ekki lausu þar sem hún hafði ekkert annað í að hlaupa. Hún beið eftir öðrum tilboðum og nú er það komið. Henni hef- ur verið boðið að stjórna eigin sjónvarpsþætti tvisvar í viku. Hún var ekki lengi að slá til og segja upp í Dallas. Kveður hún eigin þáttarstjórn öllu meira spennandi en hið þreytta hlut- verk hennar í Dallas. Leikkonan Blair Brown sem leikur Molly Dodd er ung kona í framavon iíkt og persónan sem hún túlkar í þáttunum „ Dagar og nætur Molly Dodd“. Hér á myndinni er hún með syni sinum og fyrrverandi eiginmanni sinum. En á hinni er hún við leik í sjónvarpsþættinum. Á fimmtudagskvöldum er þáttur á dagskrá Stöðvar 2 sem heitir „Dagar og nætur Molly Dodd“. Þeir sem hafa fylgst með þáttunum kannast þá orðið við aðalleikkon- una, Blair Brown. Hún leikur þrjátíu og fjögurra ára einhleypa konu. Sem á að vera hin dæmigerða kona á uppleið, eða að minnsta kosti reynir að vera það. Nú er Blair sjálf komin í svipaða stöðu og Molly. Hún er nýskilinn við mann sinn og býr því ein með fimm ára gömlum syni sínum. En hún segist þó alls ekki vera eins ráðvillt og Molly. Hún hefur sitt nokkuð á hreinu og skilnaðurinn fór fram í mestu vinsemd. Hennar takmark er að halda leik áfram og hyggst leggja hart að sér til að ná langt. „Konur á framabraut eiga ekki að vera bundnar á meðan þær eru að koma sér áfram. Starfið verður að ganga fyrir,“ segir hún. „Ég held að fólk eigi erfitt með að ímynda sér hve miklu maður þarf að fórna tii að ná langt í leik- listinni. Þar gildir bara frumskóg- arlögmálið. En á sínum tíma var ég ákveðin að eiga barnið og vissu- lega er sonurinn það dásamlegasta sem ég hef átt. En hjónabandið verður að bíða betri tíma.“ UppinnMollyDodd Tvíburabræöurnir Ronnie og Donnie giftust tviburasystrunum Dawn og Shaun. Pörin áttu börn á sama degi. Samhentir tvíburar í meira lagi. Tvíbura- tilviljanir? Það gerist margt skrýtið í þessum heimi - tilviljunum háð eða ekki. Eins og það að tvíburabræður giftist tvíburasystrum og eigi börn á sama degi í ofanálag. Þannig vildi það til með tvíbura- bræðurna Ronnie og Donnie Shaw. Þeir áttu tvíburasystur fyrir kær- ustur. Það getur nú svo sem gerst. En var það tilviljun að Donnie bað Shaune sama kvöldið og Ronnie bað Dawn? Þeir segjast ekki hafa haft minnstu hugmynd um bónorð hvors annars fyrr en eftir á. Nú, það var efnt til meiriháttar tvíburabrúðkaups. Og fóru brúð- hjónin tvö saman í brúðkaupsferð. Þegar heim var komið fluttu pörin í íbúðir í sömu götu. Einhverra hluta vegna ekki í sama húsi en tvö hús voru á milli. En sagan er ekki öll sögð því það merkilegasta er eftir. Hjónin tvö áttu dætur á sama degi. Shaune átti á undan en aðeins þrem- ur og hálfum tíma síðar átti systirin. Tilviljanir???

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.