Dagblaðið Vísir - DV - 14.08.1987, Qupperneq 13
FÖSTUDAGUR 14. ÁGÚST 1987.
13
Neytendur
Besti sjávarrétturinn 1987:
Skilafrestur rennur
út á morgun
„Vélin er sérsmíðuð fyrir okkur í konar búnaður sem allur er tölvu-
Frakklandi. Með henni fylgir margs stýrður. Vélin nýtir deigið mjög vel,
hún er bæði hljóð og lyktarlaus en
tekur mikið rafinagn. Hins vegar af-
kastar vélin á við 40 manns en alls
verða 8 manns sem vinna við hana,“
sagði Steindór R. Haraldsson, fiam-
leiðslustjóri Marska hf. á Skaga-
strönd, í samtali við DV.
I pönnukökuvélinni, sem er með 8
pönnum, er hægt að baka eina pönnu-
köku á sekúndu. Þegar viðbótarbún-
aðurinn við hana verður kominn getur
vélin skilað pönnukökunum upprúl-
luðum með fyllingu, 60 á hverri
mínútu.
Marska hefur nýlega gert stóran
samning við söluaðila í Svíþjóð um
sölu á 50 tonnum af rækjurúllum til
áramóta. Það þýðir um 100-150 tonn
á næsta ári. Þessar rækjurúllur eru
meðal framleiðsluvara Marska sem
framleiðir alls fimm tilbúna sjávarrétti
sem seldir eru í neytendaumbúðum
bæði innanlands og utan.
Marska stendur fyrir uppskrifta-
samkeppni um „besta sjávarréttinn
1987“ með DV. Skilafrestur rennur út
á morgun, svo þeir sem ætla að senda
inn uppskriftir verða að drífa í því
strax í dag. Tekið verður við uppskrift-
um sem póstlagðar eru 15. ágúst.
Við spurðum Steindór hvort hann
byggist við því að landsmenn lumuðu
á einhveijum nýjum uppskriftum.
„Ég tel það alveg fúllvíst að þeir
lumi á góðum og hagkvæmum upp-
skriftum. Það þarf að vinna að sífelldri
markaðs- og vöruþróun í matvæla-
framleiðslunni og því verðum við alltaf
að vera á höttunum eftir góðum upp-
skriftum," sagði Steindór.
Marska er einmitt að leita að hent-
ugum uppskriftum sem fyrirtækið
gæti tekið í framleiðslu bæði fyrir inn-
lendan og erlendan markað.
„Við eigum völ á topphráefhi í fiam-
leiðslu okkar. Það er enginn vandi að
selja fyrsta flokks vöru. Markaðurinn
vill fá tilbúna rétti úr fersku hráefni
og það höfúm við,“ sagði Steindór.
Vegleg verðlaun eru í boði fyrir þrjár
bestu uppskriftimar, sælkeraferð til
Evrópu fyrir tvo, örbylgjuofn og græn-
metiskvöm.
Munið að senda uppskriftimar
merktar með dulnefhi og siðan dul-
merkið í lokuðu umslagi til DV.
Seinasti skiladagur er á morgim. Ut-
anáskriftin er: Besti sjávarrétturinn
1987, c/o DV, Þverholti 11,105 Reykja-
vík.
-A.BJ.
Forsíða hins nýja uppskriftahett-
is
Gotttil
glóðarinnar
Hinir fomu fjendur í land-
búnaðargeiranum hafa nú tekið
sig saman og gefið út uppskrifta-
hefti fyrir grillsteikingar. Þarna
er að sjálfsögðu um seljendur
lambakjöts og kjúklingabændur
að ræða en eins og kunnugt er
hafa þessir aðilar lengi eldað
saman grátt silfur. Það er svo
Osta- og smjörsalan sem hefur
gengið í milli.
Uppskriftaheftið hefur að
geyma almennar leiðbeiningar og
varúðarreglur varðandi glóðar-
steikingu. Þá em einnig upp-
skriftir að glóðuðum kjötréttum,
brauði, fiski, ávöxtum og græn-
meti, ásamt öllu hugsanlegu
meðlæti, s.s. kartöflusalati, sós-
um og kryddlegi. Loks em
uppskriftir að sex kryddsmjörs-
tegundum.
Heftið fæst í öllum matvöru-
verslunum og er það ókevpis.
-PLP
Steindór R. Haraldsson við afkastamestu pönnukökuvél landsins en hún bakar
eina pönnuköku á hverri sekúndu.
Helgarmarkaöur
0KKARVERÐ
Ný lambalæri
383,- kr. kg.
Lambahryggur
372,- kr. kg.
Lambaslög
70,- kr. kg.
Lambaframpartar
292,- kr. kg.
Lambasúpukjöt
327,- kr. kg.
Lambakótilettur
372,- kr. kg.
Lambalærissneiðar
497,- kr. kg.
Lambagrillsneiðar
294,- kr. kg.
Lambasaltkjöt
345 - kr. kg.
ambaskrokkar, 1. flokkurj
264,50 kr. kg.
lægra en hjá öðrum
Marineruð lambagrillsteik
325,- kr. kg.
Marineraðar kótilettur
401,- kr. kg.
Marineraðar lærissneiðar
548,- kr. kg.
Marineruð rif
175,- kr. kg.
Hangikjötslæri
420,- kr. kg.
Hangikjötsframpartar, úrb.
321,- kr. kg.
Hangikjötslæri, úrbeinað
568,- kr. kg.
Hangikjötsframpartar
487,- kr. kg.
Lambahamborgarhryggur
327,- kr. kg.
Londonlamb
514,- kr. kg.
10 kg. nautahakk
295,- kr. kg.
KJOTMIÐSTOÐIN Laugalæk 2, s. 686511
Opið kl. 7.00-16.00 laugardaga.