Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1987, Side 27

Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1987, Side 27
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987. 39 Fólk í fréttum Bera Nordal Bera Nordal hefur verið skipuð forstöðumaður Listasafns Islands til eins árs, Bera er fædd 25. september 1954 í Rvík. og lauk fil. kand. prófi í lista- sögu frá háskólanum í Lundi 1978. Hún lauk MA prófi í listasögu frá Courtauld Institute of Art í London 1979 og hefúr verið í doktorsnámi frá 1979. Bera hefur verið safiivörður i Listasafríi Islands frá 1980. Maður Beru er Sigurður Ármann Snævarr, hagfræðingur hjá Þjóðhagsstofhun, og eiga þau tvö böm. Foreldrar Sig- urðar em Ármann Snævarr, hæsta- réttardómari í Rvík, og kona hans, Valborg Sigurðardóttir fyrrv. skóla- stjóri. Systkini Bem em: Sigurður, rekstrarfræðingur, kvæntur Ragn- heiði Ástu Þórisdóttur gullsmið, Guðrún, er í doktorsnámi í norrænu í Oxford, Salvör, er í námi í heim- speki og viðskiptafræði í Hí, Ólöf lögfræðinemi og Marta mennta- skólanemi. Foreldrar Bem em Jóhannes Nordal seðlabankastjóri og kona hans, Dóra Guðjónsdóttir píanóleik- ari. Faðir Jóhannesar var Sigurður Nordal prófessor, Jóhannesson Nordal, íshússtjóra í Rvík, Guð- mundssonar, b. í Kirkjubæ í Norður- árdal í Húnavatnssýslu, Ólafssonar, systursonur Vatnsenda-Rósu en bróðir Frímanns, afa Valtýs Stefáns- sonar ritstjóra og hálfbróður Páls, langafa Jónasar Rafnar, fyrrv. bankastjóra, og Ólafs Ólafssonar landlæknis. Móðir Sigurðar var Björg Jósefína Sigurðardóttir, smiðs á Blönduósi Helgasonar. Móðir Bjargar var Guðrún Jónsdóttir, prests á Undirfelli Eiríkssonar, og Bjargar Benediksdóttur Vídalín, systur Ragnheiðar, ömmu Einars Benediktssonar skálds, afa Einars Benediktssonar sendiherra. Systir Bjargar Jósefínu var Katrín, lang- amma Þuríðar Pálsdóttur ópem- söngkonu. Kona Sigurðar Nordal var Ólöf Jónsdóttir, yfirdómara í Rvík, Jens- sonar rektors, Sigurðssonar, bróður Jóns forseta. Móðir Ólafar var Sig- ríður Hjaltadóttir Thorberg, b. í Ytri-Ey á Skagaströnd, Ólafssonar, bróður Kristínar, ömmu Einars Guð- finnssonar, útvegsmanns í Bolung- arvík. Móðir Bem, Dóra, er dóttir Guð- jóns Ólafs, prentara og bókaútgef- anda í Rvík, Guðjónssonar, b. á Moshvoli í Hvolhreppi Einarssonar. Móðir Guðjóns Ó. var Salvör Sig- urðardóttir, b. á Bryggjum í Land- eyjum, Ögmundssonar, af Víkings- lækjarættinni. Móðir Salvarar var Anna Salómonsdóttir, einnig af Vík- ingslækjarættinni. Móðir Dóm var Marta, fósturdóttir Jóns Trausta skálds, bróðir Mörtu er Ellert, faðir Ásgeirs yfirlæknis og Þorkels Stein- ars kennara. Faðir Mörtu var Magnús, b. á Syðri-Sýrlæk i Flóa, Snorrason, og móðir hennar var Oddný Jónsdóttir. Bera Nordal. Afmæli Siguiveig Vigfúsdóttir Sigurveig Vigfúsdóttir er áttræð í dag. Hún fæddist í Tunguhaga á Völl- um. Tveggja ára fluttist hún ásamt fjölskyldunni að Grófargerði á Völl- um og var þar í átta ár. Þá fluttist hún að Dvergasteini í Reyðarfirði. Sigurveig starfaði á sjúkrahúsi Ak- ureyrar í tvö ár, á Vífilsstaðaspítala í sjö ár, síðan í Þvottahúsi Landspít- alans um árabil. Sigurveig giftist 6. febrúar 1942 Pétri Jóhannessyni, starfsmanni hjá Rafmagnsveitu Reykjavíkur. Foreldrar hans vom Jóhannes Lárus Lynge Jóhannsson, prestur á Kvennabrekku, og kona hans Steinunn Jakobsdóttir. Þau eignuðust tvö böm, dreng sem fædd- ist 1943 og lést óskírður nokkurra daga gamall, og dótturina Steinunni Maríu, fædda 1946, en hún er lærð fóstra úr Fósturskóla fslands, for- stöðukona Tjamarborgar um tíma. Hún hefur síðustu 15 árin rekið veit- inghúsið Gullna Hanann, áður Halta Hanann, ásamt manni sínum, Birgi Jónssyni, og eiga þau fimm böm. Systkini Sigurveigar em Valgerð- ur, vann við hjúkrunarstörf, gift Ólafi Siguijónssyni b. á Brekku í Fljótsdal, hún er látin, Jón bifreiðar- stjóri, vann almenna verkamanna- vinnu, kvæntur Sigurlaugu Guðmundsdóttur, hann er látinn, Einar bifreiðarstjóri, vann við vega- gerð en hann er látinn, giftur Sigríði Jóhannesdóttur, Guðrún búsett í Danmörku, gift Magnúsi Mogensen mjólkurfræðingi. Foreldrar Sigur- veigar vom Vigfús Jónsson, b. í Tunguhaga á Völlum, og kona hans María Þorgrímsdóttir. Vigfús var sonur Jóns, b. í Nóat- úni á Seyðisfirði, Einarssonar. Móðir Vigfúsar var Snjólaug Jóns- dóttir, b. á Litla-Sandfelli, Stefáns- sonar, b. á Litla-Sandfelli, Magnússonar, sem Sandfellsættin er kennd við. Móðir Jóns á Litla- Sandfelli var Guðrún Erlendsdóttir, b. á Ásunnarstöðum í Breiðdal Bjamasonar, sem Ásunnarstaðaætt- in er kennd við. Móðir Sigurveigar, María, var dóttir Þorgríms, b. í Tunguhaga á Sigurveig Vigfúsdóttir Völlum Þorgrímssonar frá Kirkju- bóli í Fáskrúðsfirði. Móðir Maríu var Valgerður Oddsdóttir, b. á Kolla- leim í Reyðarfirði Bjamasonar. Á sunnudaginn, 13. sept., milli kl. 2 og 6, tekur Sigurveig á móti gestum í veitingahúsinu Gullna hananum, Laugavegi 178. Guðmundur Marinó Ásgrímsson Guðmundur Marinó Ásgrímsson verslunarmaður, Hóbngarði 27, Reykjavík, er áttræður í dag. Guðmundur fæddist á Akureyri og er einn af stofhendum íþróttafélags- ins Þórs. Guðmundur flutti ungur frá Akureyri og vann síðan við ýmis störf til sjós og lands. Lengst af starf- aði hann hjá J. Þorlákssyni og Norðmann eða um fimmtíu ára skeið. Guðmundur kvæntist 1942 Emilíu Benediktu Helgadóttur. For- eldrar hennar vom Helgi Ólafeson, b. í Fagradal í Breiðdal í Suður- Múlasýslu, og kona hans, Björg Guðmundsdóttir. Böm þeirra em: Helgi, húsgagnabólstari, kvæntur Anný Helgadóttur, Öm, viðskipta- fræðingur í Rvík, giftur Esther Sigurðardóttur, Ásgrímur, jarðfræð- ingur, kvæntur Svövu Jakobsdóttur, og Björg, hjúkrunarfræðingur, gift Gísla Sváfiiissyni kennara. Guðmundur átti þrjá albræður sem vom: Pétur, Jakob, lést ungur, og Lúðvík. Hálfeystkini Guðmundar, samfeðra, vom: Hugi, trésmiður í Rvík, Hekla, gift Baldvin Ásgeirs- syni, forstjóra á Akureyri, Hervör, hún er látin, var gift Gísla Jónssyni menntaskólakennara, Harpa, gift Páli Árdal prófessor í Kanada, og Ása, hárgreiðslumeistari í Rvík. For- eldrar Guðmundar vom Ásgrímur Pétursson, fiskimatsmaður á Akur- eyri, og kona hans, Guðrún Jóns- dóttir. Guðmundur Marinó Asgrimsson. Ragnheiður Pétursdottir Ragnheiður Pétursdóttir frá Dröngum í Ámeshreppi, nú vistmað- ur á Hrafnistu, er nítíu og fimm ára í dag. Ragnheiður fasddist á Veiðileysu í Ámeshreppi og giftist 1916 Eiríki Guðmundssyni, b. á Dröngum , syni Guðmundar Péturssonar b. þar og konu hans Önnu Jakobínu Eiríks- dóttur. Þau bjuggu á Dröngum til 1947 er þau fluttu til Akraness en þar stundaði Eiríkur alla algenga verkamannavinnu. Þau fluttust svo til Kópavogs 1954. Eiríkur andaðist 1976. Böm þeirra em: Guðmundur, verkamaður í Kópavogi, giftur Val- gerði Jónsdóttir, Aðalsteinn, lést ungur, Ágústa, gift Magnúsi Jóns- syni, b. í KoOafjarðamesi í Stein- grímsfirði, Anna, gift Kára Þ. Kárasyni, múrarameistara í Rvík, Lilja, gift Friðberti Elí Gíslasyni skipstjóra, en hann lést 1980, Elín, gift Aðalsteini Ömólfssyni, vélstjóra í Rvík, Pétur, vélvirki hjá Lands- virkjun, kvæntur Svanhildi Guð- mundsdóttur og Álfheiður gift Þóri Kristinssyni múrarameistara í Rvík. Ragnheiður Pétursdóttir. Foreldrar Ragnheiðar vom Pétur Söebech, b. á Veiðileysu í Ámes- hreppi, og kona hans, Anna Ágúst- ína Benediktsdóttir. Ragnheiður á einn bróður á lífi, Óskar Söebech prentara, giftan Lilju Söebech, en hann er nú vistmaður á dvalar- heimilinu á Dalbraut. Jón Sigurðsson Jón Sigurðsson, Kirkjustíg 3, Siglufirði, verður áttræður í dag. Hann fæddist á Molastöðum í Fljótum og var þar til fjögurra ára aldurs er hann fluttist að Bjamar- gili í Fljótum. Þar var hann í tíu ár og síðan á Reykjum í Fljótum í fjög- ur ár. Jón var bóndi á Gili í Fljótum 1938-1947 en fluttist þá til Siglufjarð- ar og vann þar í steypuvinnu og við fleiri störf í tvö ár. Hann vann síðan í Síldarversmiðjum ríkisins í 33 ár en hætti störfum 73 ára. Kona Jóns hét Aðalbjörg Guðmundsdóttir, fædd 11. ágúst 1895 I Langhúsum í Fljót- um. Þau eiga eina dóttur, Helgu, fiskvinnslukonu, sem er gift Haf- steini Hólm, fiskvinnslumanni á Siglufirði. Systkini Jóns vom Jóhannes, síld- armatsmaður á Siglufirði. giftur Laufeyju Sigurpálsdóttur, Páll tré- smiður, giftur Margréti Þorkels- dóttur, þau em bæði látin, Hallgrímur, sjómaður í Rvík, látinn, Gestur, eftirlitsmaður Rafinagn- sveitunnar á Dalvík, giftur Jónu Sigurpálsdóttur, Guðfinna, gift Ein- ari Hallgrímssvni, bæjarstarfemanni á Siglufirði, Snorri, lést ungur, og Sveinn, starfsmaður Áburðarverk- smiðjunnar í Gufunesi. Foreldrar Jóns vom Sigurður Jóns- son og kona hans, Björrúna Hall- grímsdóttir. Leiðrétting Hér í blaðinu í gær gerðust þau mistök að Nikolína Bjamadóttir, Hátúni 12, Eskifirði, var sögð eiga fimmtugsafmæli. Nikolína er látin. Blaðið biður aðstandendur afeökun- ar á þessum leiðu mistökum. Ritstj. 90 ára 50 ára Jón Sigurðsson, Kóngsbakka 14, Reykjavík, er 90 ára í dag. Hjörtur Skúlason, Stökkum, Rauðasandshreppi, er 70 ára í dag. Grétar Sigurðsson, Hrafnhólum 8, Reykjavík, er 50 ára í dag. Jónas Pálsson, Mávahlíð 17, ______________ Reykjavík, er 50 ára í dag. , Arnfinnur Bertelsson, Sæbraut 12, 70 ara Seltjamamesi, er 50 ára í dag. ______________ Karen Karlsdóttir, Fljótaseli 13, Reykjavík, er 50 ára í dag. 40 ára 60 ára Gottskálk Rögnvaldsson, Eyrar- götu 25, Siglufirði, er 60 ára í dag. Ragnar G. Gunnarsson, Vestur- bergi 26, Reykjavik, er 40 ára í dag. Hrafnhildur Guðmundsdóttir, Bollagörðum 33, Seltjamamesi, er 40 ára í dag. Sigurður Björgvinsson, Birkihlíð 46, Reykjavík, er 40 ára í dag. Inga Guðmundsdóttir, Gmndar- gerði 7b, Akureyri, er 40 ára í dag. Hrafn Sigurðsson, Boðagranda 7, Reykjavík, er 40 ára í dag. Guðbjörg Guðmundsdóttir, Vestur- bergi 167, Reykjavík, er 40 ára í dag. Sigurður Guðmundsson, Langa- gerði 27, Reykjavík, er 40 ára í dag. Haraldur Júliusson, Bessahrauni 20, Vestmannaeyjum, er 40 ára í dag. Gunnlaugur Halldórsson, Hraun- tungu 65, Kópavogi, er 40 ára í dag. Hannes Helgason, Birkihlíð 6, Sauðárkróki, er 40 ára í dag. Auður Sveinsdóttir, Kárastíg 7, Reykjavík, er 40 ára í dag. Andlát Sonja Gísladóttir hjúkmna- rkona, til heimilis að Tómasarhaga 43, Reykjavík, andaðist á Landa- kotsspítala 7. september. Jóhann Ágúst Gunnarsson raf- virkjameistari, Huldulandi 6, andaðist þann 7. september í Landspítalanum. Sigurður Ægir Jónsson, Ála- granda 12, Reykjavík, lést á Landakotsspítala 10. september. Einar Eggertsson, Álftamýri 48, er látinn.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.