Dagblaðið Vísir - DV - 11.09.1987, Síða 33
FÖSTUDAGUR 11. SEPTEMBER 1987.
45
blenskur flugmadur
í bandarískri bók
í Bandaríkjunum kom út bók í
sumar um tuttugu og fimm flugmenn
um víða veröld sem þykja hafa haft
afgerandi áhrif á þróun flugsam-
gangnd í gegnum tíðina. Þar er einn
kaflinn helgaður íslenskum flug-
manni, Alfi-eð Elíasson. Hann var
einn af stofnendum Loftleiða og var
forstjóri félagsins um áraskeið.
Höfundur bókarinnar telur Alfreð
vera tákn Loftleiða og að Loftleiðir
hafi án efa verið brautryðjandi í lág-
um fargjöldum á Norður-Atlants-
hafsflugleiðinni. Höfundi finnst
félagið ekki hafa notið sannmælis
varðandi það atriði.
Höfundur bókarinnar, Ron Davies,
á að baki fjölbreyttan starfsferil sem
blaðamaður um flugmál og sem rit-
höfundur. Hann hefur starfs síns
vegna átt þess kost að fylgjast með
flugmálum á íslandi, þar á meðal
starfsemi Loftleiða og ferli Alfreðs
Elíassonar.
f bókinni er Alfreð skipað á bekk
með heimsfrægum nöfnum flugsög-
unnar en kaflinn um hann er sextán
síður með einni mynd.
Nei, þetta eru ekki tvær Fergiar
heldur er hér um að ræða Söru
Ferguson sjálfa og unga breska
stúlku sem sigraði í samkeppninni:
„Hver er líkust Söru?“
Hertogaynjan sjálf var fengin til
að færa henni blóm þegar úrslitin
voru kunngerð. Heather Dunbar
heitir stúlkan en hún varð alveg yfir
sig hissa þegar henni var tilkynnt
að hún hefði sigrað í keppninni.
Steinhissa sagði hún við Söru: „Er
ég virkilega lík þér?“ og tók við
blómunum með bros á vör.
Meryl
Streep
í nýrri mynd
Bandaríska leikkonan geðþekka
Meryl Streep er þessa dagana að
undirbúa sig fyrir tökur á nýrri kvik-
mynd þar sem hún fer með aðal-
hlutverkið. Hún mun leika Lindy
Chamberlain sem fékk lífstíðarfang-
elsisdóm fyrir að drepa lítið stúlku-
barn sitt en fékk náðun eftir þriggja
ára fangelsisvist. Það verður spenn-
andi að bíða eftir þeirri kvikmynd
því seint verður nokkur svikinn af
leik leikkonunnar. Myndin er tekin
af henni á blaðamannafundi í Ástral-
íu í fyrradag þar sem myndin verður
tekin. Með henni er einn aðstand-
andi myndarinnar, Fred Schepsi.
ÞaA er alltaf gaman að fylgjast með frábœrum leik Meryl Streep. Hún er um þessar mundlr að undlrbúa slg fyrir
tökur á nýrri kvlkmynd þar sem hún fer með aðalhlutverkið. Simamynd Reuter
Sviðsljós
ólyginn
sagði...
Jane Wyman
fyrri eiginkona Ronalds Reag-
an, segir að hún hefði aldrei
getað hugsað sér að verða for-
setafrú. Auðvitað hefði hún
viljað að hjónabandið hefði en-
dað öðruvísi en raun bar vitni
en ekki ef hún hefði lent í spor-
um Nancyar. Jane segist ekki
þola stjórnmál og hefði heldur
ekki líkað það umstang og þá
ábyrgð sem forsetahjónin kom-
ast ekki hjá því að axla. Hún
lýkur þó máli sínu á að segja
að Nancy standi sig reglulega
vel sem „fyrsta dama" Banda-
ríkjanna og vart sé hægt að
ímynda sér hana betri.
Lisa Bonet
sem leikur elstu dótturina í þátt-
unum um Fyrirmyndarföðurinn,
er nú að verða með eftirsóttari
yngri leikkonum heimsins. Hún
hefur að undanförnu fengið
nokkur kvikmyndatilboð. Þau
tilboð eru öll nokkuð svipuð.
Alls staðar eiga kyntöfrar henn-
ar að njóta sín til hins ýtrasta -
mismunandi mikið þó. Lisa er
mjög ánægð með að kvik-
myndaframleiðendursýni henni
áhuga en segist þó í framtíðinni
kjósa að fá tilboð um að leika
eitthvað annað en kynveru.
Madonna
hélt hún hefði leikið stóran leik
um daginn þegar hún var á ferð
á Florida og lét bóka sig inn á
hótel undir dulnefni. Þannig
bjóst hún við að fá frið fyrir öll-
um utanaðkomandi og óðum
aðdáendum. En annað kom á
daginn. Dulnefnið sem hún
valdi sér vakti svo mikla athygli
að móttaka hótelsins, sem hún
bjó á, fylltist af forvitnu fólki
sem spáði og spekúleraði í það
hver þetta væri. Nafnið þótti
þannig að augljóst var að hér
var um dulnefni einhverrar fræ-
grar persónu að ræða. Ginger
Rogers var nafnið.