Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 5

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 5
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987. 5 Fréttir Veiðiþjófar veiða tugi eða hundruð hreindyra - fa allt að eitt þúsund krónur fyrir kílóið Taliö er að veiðiþjófar grandi tugum eða hióidruðum hreindýra á ári hveiju og virðist svo sem þessi veiði- þjófnaður sé „opinbert leyndarmál" á Austurlandi. Samkvæmt upplýsing- um DV er tahð að minnst 10-20% af árlegum veiðikvóta fari í hendumar á veiðiþjófum og einn þeirra manna sem blaðið ræddi við í gær taldi að mun meira væri veitt, eða alit aö háifum kvóta. Veiðikvótinn í ár er 600 hrein- dýr. „Maður heyrir sögur um þetta á hverju hausti," sagði Skarphéðinn Þórisson sem hefur stundað hrein- dýratalningar á Austfjörðum fyrir hönd menntamálaráðuneytisins. Sagði Skarphéðinn að veiðiþjófnaður væri mikil freisting því oft væri auð- velt að ná í dýr og auðvelt að koma þeim í verð. Talið er að um 1.000 krón- ur fáist fyrir kíló af hreindýrakjöti en nýtanlegt kjöt af hreinkú er á bilinu 30 til 40 kíló en af tarfi er nýtanlegt kjöt 60 til 80 kíló. Skarphéðinn kvaðst telja auðvelt aö skjóta nokkra tugi dýra án þess að á stofninum sæist, ekki síst vegna þess að veiðikvótinn nýttist ekki til fulls á hverju ári. Þá sagðist Skarphéðinn hafa séð tilbúinn flugvöll innarlega á Brúardölum, innundir Krilsárrana, en á því svæði halda hreindýrin sig við upphaf veiðitíma. Hins vegar ér það svæði friölýst og umferð þar bönnuð. Ekki sagðist Skarphéðinn sjá annan Samtökin Gamli miðbærinn: Austurstræti að vistgötu „Ég og fleiri kaupmenn við göngu- götuna höfum lýst þvi yfir að við viljum fá fram breytingar á skipulagi Austurstrætisins. Borgarstjóri hefur tekiö vel hugmyndum okkar og meg- um við koma með tillögur og til greina kemur að við tökum þátt í kostnaði við breytíngar," sagði Guðlaugur Bergmann kaupmaður í samtali við DV en hann er formaður samtakanna Gamh miðbærinn. Guðlaugur var spurður að þvi hvemig honum htist á Kvosarskipulagið sem samþykkt hef- ur verið í borgarstjóm. „Við höfum áhuga á að breyta Aust- urstrætínu í vistgötu svipaða Lauga- veginum, þannig að hún yrði göngugata á daginn en akstur heimil- aður á kvöldin. Við teljum rétt að opna Austurstrætíð fyrir umferð og opna gamla rúntinn aftur á kvöldin, þannig að þá veröi hægt að aka um mið- bæinn,“ sagði Guðlaugur. „Við erum líka þeimar skoðunar aö Geirsgata sé ekki sú lausn á umferðar- vandanum frá austri til vesturs um miðbæinn sem talað er um. Við teljum að setja eigi brú yfir hafnarmynnið og em þær tillögur okkar til athugun- ar í hafnarstjóm. Þessi hugmynd leysir bflavandann og um leið er Ör- firisey orðin byggflegt svæði. Við höfum reifað þessa hugmynd lengi,“ sagði Guðlaugur. „Að öðra leyti er ég ánægður með Kvosarskipulagið, það er hið besta skipulag, en ég er að visu á mótí hinni fyrirhuguðu viðbyggingu Alþingis- hússins,“ sagði Guðlaugur Bergmann. -ój Héraðsskólinn Reykjanesi: Mun fæivi nemendur í ár en í fyrra - skólanefndarmaður sendir böm sín til ísafjarðar í ár er útht fyrir að mun færri nem- endur muni stunda nám við Héraðs- skólann á Reykjanesi við ísafjarðar- djúp en gerðu á síöasthönu skólaári. Nú hafa 32 nemendur skráð sig til náms, á sama tíma í fyma hófu rúm- lega 40 nemendur nám þar. Ástþór Ágústsson, einn skólanefnd- armanna, hefur gripið til þess ráðs aö senda böm sín til náms á Isafirði. Seg- ist hann hafa gripið tfl þessa úrræðis vegna stjómunar á Héraðsskólanum. Kvaöst hann ekki hafa aðra kostí vegna þess hvemig málefnum skólans er komið. Sagði hann að þessi leið væri einhveiju dýrari, þó svo að mötu- neytiskostnaður við Héraðsskólann sé sá hæstí sem hann vití til. Sem dæmi nefndi hann að matarkostnaður á dag hefði veriö um 60 til 70 krónum hærri í Reykjanesi miðað við aðra sambæri- lega skóla. Áður hefur aðsókn að Héraðsskól- anum verið minni en nú. Hins vegar hefur hún ekki verið svona htil nokk- ur undanfarin ár. Málefni Héraðsskólans era til með- feröar í menntamálaráðuneytinu. Sá starfsmaöur ráöuneytisins, sem hefur með máhö að gera, er í leyfi og engar fréttir er að fá varðandi hvemig vinna við máhð gengur. -sme Mannýgir hrútar í Hrútafirði Gyffi Kristjánssom, DV, Akuieyii; Gangnamenn, sem smöluðu Meladal upp af Hrútafirði fyrir skömmu, lentu í baráttu við tvo veturgamla hrúta sem urðu á leið þeima. Hrútamir vora hinir verstu viður- eignar og runnu á gangnamenn er þeir hugðust reka þá til byggða. Urðu lyktir þær að skilja varð hrútana eftir enda ekki á allra færi að eija á hrúta í slíkum ham. Menn gera því skóna að hrútamir hafi varið sig á þennan hátt fyrir tófunni í vetur ög hafi til- einkað sér þessa baráttuaðferð sem gafst vel gegn gangnamönnum. Blaðið Feykir á Sauðárkróki skýröi frá því að sportveiðimenn hefðu fuilan hug á því að fara á vettvang og skjóta hrútana en áhugamenn um sauðfjár- rækt telja hins vegar betri kost aö lauma til þeirra nokkrum gimbrum og freista þess þannig að koma upp mannýgum villifjárstofni. tilgang með flugvellinum en að flylja þaðan ólöglega veidd hreindýr enda hefði enginn kannast við flugvöllinn þegar hann hefði spurst fyrir um til- vist hans. Þá sagði hann að í haust hefðu fjórir hreindýrshausar fundist í Sauðavelli en enginn hefði viljað kannast við hausana. Samkvæmt heimildum DV tíðkast það víða á Austfjörðum að menn skjóti sér dýr, bæði tfl heimanota og einnig tfl sölu, bæði til hótela og matsölu- staða. „Það er erfitt að sanna þetta,“ sagði einn heimfldarmanna DV. „Þama hylmir hver yfir með öðrurn." -ój A hreindýraveiðum. Eru mun fleiri dýr veidd en heimilað er? DV-mynd GVA APPLE STÓRSÝNING í dag og á morgun Við sýnum nú margar stórkostlegar nýjungar. Macintosh II Það er næg ástæða að koma á þessa sýningu einungis til að skoða þessa tölvu. Eða hvað segir þú um vél sem getur valið úr 16.777.216 litum ? HyperCard Það allra nýjast í forritun, sem á eftir að valda jafnmikilli byltingu í forritagerð eins og Macin- tosh hefur haft á vélbúnaðarsviðinu. 4th Dimension Nýjasti forritanlegi gagnagrunnurinn. Nú er forritun á Macintosh orðin ennþá auðveldari. PageMaker 2.0 Allir sem gefa út blöð og bæklinga eða hanná eyðublöð verða að líta á þetta forrit. Word 3.0 Flestir eru þeirrar skoðunar aö þetta sé fullkomnasta ritvinnsluforrit sem skrifað hefur veriö. Sýningin verður á opnunartímaverzlunarinnar frákl. 900 til 1800 Allir geta fengið kaffi og að sjálfsögðu epli með. Apple SKIPHOLTI 19 SfMI 29800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.