Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 12
12 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987. Neytendur Meira að segja fjallalambið ódýrara Við á Neytendasíðu höfum mikið hamrað á því hversu dýrar neyslu- vörur eru hér á landi sé tekið mið af sambærilegum vörum meðal sið- menntaðra þjóða. Er við leitum skýringa á þessum mikla mun vill oft verða fátt um svör, innflytjendur bera þvi við að ísland sé afskekkt og sé því flutningskostnaöur hár eða tollalöggjöf sé óréttlát. Því hefur ís- lenskum innflytjendum lengi staðið ógn af hvers kyns verðsamanburði við önnur markaðssvæði. Það hefur þó margoft verið sýnt fram á að rök þessi séu harla léttvæg og sýndi það sig þegar Verðlags- stofnun bar saman verölag hér og í Bergen í Noregi, en þar reyndist verðlag mun lægra, jafnvel þótt Bergen sé álika afskekkt og Reykja- vík sem þó er í alfaraleið. Innflytj- endur fitna því eins og púkinn á fjósbitanum meðan daglegur rekstur er að sliga hvert heimili í landinu. Nýjasta dæmið, sem við höfum í höndum, tekur þó öðru fram hvað þetta varðar því það sýnir ekki bara verðmun á neysluvörum hér og ann- ars staðar heldur er það lýsandi dæmi um þær ógöngur sem land- búnaðurinn er kominn í, en þær kosta íslenska neytendur stórfé á ári hverju. Þetta dæmi er verð á ís- lensku lambakjöti í Lúxemborg, verð sem er svo miklu lægra heldur en verð á sömu vörum hér að mann setur hljóðan. íslenskir neytendur, a.m.k. sá hluti þeirra sem treystir sér til að kaupa kjöt á núgildandi verði, eru greinilega að halda Lúx- emborgurum lambakjötsveislu því svo virðist sem þeir þurfi einungis að greiða kostnað við pökkun kjöts- ins. Lambakjöt í heilum skrokkum kostar í Lúxemborg 158 kr’ hvert kíló í smásölu. Hér kostar sami skrokkur 313 kr. kg sé miðað við stjömuflokk en 303 kr. ef um fyrsta flokk er að ræða. í heildsölu kostar kjöt í heilum skrokkum af úrvalsflokki (stjömu- flokki) 286,80 kr. kílóið og em þá niðurgreiðslur 53,28 kr. á hvert kíló. Kjötið kostar því í raun 340,08 kr. kílóið. Því nema niðurgreiðslur til Lúxemborgara 182,08 kr. á hvert kíló og er þá ekki reiknað með að kostn- aður við flutning og pökkun sé niðurgreiddur af íslenskum neyt- endum. Svo fleiri dæmi séu tekin um verð kostar lærið í Lúxemborg 245 kr. á kíló, hryggur 260 kr. og hryggur með áfostum skönkum 250 kr. Veislan er svo auglýst sem Agneau d’Islande eða íslenskt lamb og er því fjálglega lýst á umbúðum að kjötið sé af lambi sem nærist á gróðri af söltu engi og lifl úti í guðs grænni náttúrunni árið um kring, ekki orð um kjamfóður. Rollur á beit innan skógræktargirðingar. Kjötið af þessum skepnum er furðu ódýrt í Lúxemborg enda niðurgreitt. -PLP OPIÐ alla daga frá kl. 10. til 22 Laugardaga 11 til 18 Sunnudaga 10 til 16 Góð tæki og þægilegt andrúmsloft. Einnig bjóðum við ykkur upp á hressa eróbikk-leikfimi sem er á mánudögum, miðvikudögum og föstudögum kl. 19.45 í björtum og rúmgóðum sal. Mætum hress VAXTARRÆKTAR- OG ERÓBIKKSTÖÐIN ORKULIND Brautarholti 22 sími 15888 ÍSLENSK-AMERÍSKA FÉLAGIÐ HAUSTFAGNAÐUR á Hótel Loftleiðum nk. laugardagskvöld. Miðasala og borðapantanir fimmtudag og föstudag á Hótel Loftleiðum. Skemmtinefnd Snenl- efnlð selen Ýmsar kenningar hafa verið í gangi um nytsemi selens fyrir líka- mann. Ég ætla ekki að fjalla um þær hér heldur tjalla um það sem vitaö er um selen. Virkni, skort, ráðlagðan dagsskammt og hvaða fæðutegundir gefa mest af selen. Virkni Selen er hluti af ensími, og sem slíkt vemdar selen fitusýrur í frumuhimnum fyrir súrefni og kemur á þann hátt í veg fyrir þrán- un fitusýranna. Á þennan hátt getur selen komið að hluta til í staðinn fyrir E-vítam- ín, sem er ekkert annað en þráa- vamarefni. Skortseinkenni Alvarlegur skortur á seleni getur orsakað hjartatruflanir, sem lýsir sér í því að hjartaö stækkar óeðli- lega mikið og starfsemi þess skerðist. Töluverðar rannsóknir hafa far- ið fram á þvi hvort einhver tengsl séu á miii lítils selens í blóði ein- staklinga og krabbameins. Má í því sambandi nefna krabbamein í bijóstum, þörmum og ristli. Hins vegar vil ég leggja ríka áherslu á það að ekkert hefur komið fram um þaö að eitthvert orsakasam- Hollusta og næring Gunnar Kristinsson band sé á milli myndunar krabba- meins og lítils magns af seleni í blóði. (Understanding nutrition, útg. 1984.) Ofneysla selens Það hefur verið sýnt fram á það að of mikii neysla umfram ráðlagð- an dagsskammt veldur eituráhrif- um á líkamann. Má í því sambandi nefna að viðkomandi einstaklingar geta misst hárið, tapað nöglum af fingrum og tám eða orðið fyrir því að tennur þeirra skemmast. Eituráhrifin geta komið fram í truflun á starfsemi taugakerfis eft- ir neyslu mjög mikils magns í langan tíma (Medical clinics of North America, útg. 1976.) Ráðlagðir dagsskammtar (RDS) og bestu gjafar Ráölagður dagsskammtur af se- leni fyrir fuilvaxinn einstakling er á biiinu 0,05 miliigrömm til 0,2 miliigrömm. Mest af seleni í fseðunni kemur úr flski og skeldýrum. Einnig finnst töluvert magn af seleni í komi og kjöti. Mjólk, grænmeti og ávextir innihalda Utið af seleni. (Human nutrition and dietetics, útg. 1979.) Mikill hluti selens í líkamanum finnst í blóðflögum og skjaldkirth. Einnig finnst nokkurt magn í lifur, nýrum og vöðvum. Irmiheldur lík- aminn allt að 13-20 mg af seleni (Náringslara, útg. í Svíþjóð).

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.