Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 10
10 FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987. Utlönd Hafnar kröfum um kosn- ingar í náinní framtíð Daniel Ortega, forseti Nicaragua, hefur hafnað með öllu kröfum þeim sem Ronald Reagan, forseti Bandaríkj- anna, hefur sett fram um að efnt verði til frjálsra kosninga í Nicaragua í ná- inni framtíð. Reagan setti fram þá kröfu aö kosningar yrðu hluti af frið- arsamkomulagi milli ríkisstjómar GERIÐHAGSTÆÐ MATARINNKAUP SALTKJÖT sandinista í landinu og skæruliöa kontrahreyfingarinnar, sem nýtur fuMngis bandarískra stjómvalda. Ortega var í gær inntur eftir því, í viðtali við bandaríska sjónvarpsstöð, hvort hann væri reiðubúinn til að bregðast við þessari kröfu Reagans. Sagöi Ortega að engan veginn væri hægt að ganga að þessari kröfu. Raun- ar væri hún fáránleg þvi kosningar hefðu farið fram í landinu 1984 og ættu að fara fram að nýju 1990 sam- kvæmt stjómarskrá landsins. Ortega sagði að friðarsáttmáii sá, sem forsetar fimm Mið-Ameríkuríkja undirrituðu í ágústmánuði, væri það sem friðarvonir byggðust á nú. Sagðist hann vonast til að geta fengiö Mikhail Gorbatsjov, aðalritara sovéska komm- únistaflokksins, til að styðja sáttmál- ann og framkvæmd hans í orði og verki, en Ortega hyggst ræða við sov- éska leiðtogann þegar hann verður í Moskvu vegna hátíðarhalda á sjötíu StjómarherinníNicaraguahófígær Ortega boðaði í ákveðnum héraðum ára afmæli sovésku byltingannnar. framkvæmd einhliða vopnahlés sem landsins fyrir um viku. Stjómarhermenn virða nú vopnahlé í ákveönum héruðum Nicaragua. Á innfelldu myndinni er stúlka á einu af friðar- svæðunum við störf sín. Simamynd Reuter 299,- kr.kg. LONDON- LAMB 435, "" kr. kg. ÚRBEINAÐUR HANGIFRAM- PARTUR 435,- kr. kg. FRAMPARTAR ‘/2 239, kr. kg. HRYGGIR Sjómaðurinn frá Suður-Kóreu, sá eini sem komst lifs af eftir meinta árás norð- ur-kóresks skips á togara frá Suður-Kóreu. Simamynd Reuter Krefjast afsökunar frá Norður-Kóreu Yfirvöld í Suður-Kóreu fóm í gær fram á afsökun af hálfu Norður-Kóreu vegna þess sem kallað var hrottafeng- in árás á suður-kóreskan togara. Að sögn vamarmálaráðuneytisins í Suður-Kóreu var árásin gerð á al- þjóðlegri siglingaleið. Ellefii manna er saknað en einum var bjargað. Norður-kóreskt skip er sagt hafa skotið á togarann og síðan siglt á hann þar sem hann var að sökkva. Annar togari var nærstaddur en tókst að komast undan að þvi er yfirvöld í Suður-Kóreu herma. Frásagnir yfirvalda í Norður-Kóreu af atburðinum em öðmvísi. Skip í njósnaleiðangri í landhelgi Norður- Kóreu hafi sokkið eftir árekstur við norður-kóreskæi eftLlitsbát. Hafi áhöfn suður-kóreska togarans verið beðin í gegnum hátalara að gera grein fyrir sér en snúið við og flúið. Síðar hafi togarinn rekist á eftirlitsskipiö og sokkið. Sjómaðurinn, sem komst lífs af, seg- ir hins vegar aö skotið hafi verið á togarann án viðvörunar. Aquino á ferð um bardagasvæði Corazon Aquino, forseti Filipseyja, hundsaði í gær allar viðvaranir um hugsanlega yfirvofandi uppreisn og yfirgaf höll sína til að fara í óvænta heimsókn á svæöi sem uppreisn kommúnista hefur því sem næst lagt í rústir. Aquino fór flugleiðs frá Manila, höf- uðborg landsins, í gær og er það í fyrsta sinn sem hún yfirgefur höfuð- borgina í liðlega tvo mánuði. Mikiil órói hefur veriö í stjómmálum á Filipseyjum undanfarið og Juan Ponce Enrile, leiðtogi stjómarandstöðunnar í öldungadeild filipseyska þingsins, sakaði forsetann í gær um að ætla að setja herlög í landinu. Hersveitir, sem tryggar em Aquino, lokuðu í gær útvarpsstöð í Manila og var það liður í hörðum aðgeröum stjómvalda gegn fjölmiðlum sem birta áróður frá uppreisnarmönnum meðal liðsforingja sem andvígir em ríkis- stjóminni. Yfirmaður herja Filipseyja, Fidel Ramos, varaði í gær við því að sam- steypa hægrisinnaðra stjómarand- stöðuhópa væri að undirbúa byltingu sem framkvæma ætti innan mánaðar. Sagði hann að óvíst væri hvort hem- um tækist að koma í veg fyrir bylting- una. Starfsmaður útvarpsstöðvar festir upp tilkynningu um lokun í gær. Simamynd Reuter 299,- kr. kg. SVIÐ 125,- kr. kg. HðATtTN NÓATÚNI17-ROFABÆ 39 17260 17261 a 671200 671220 Njósnir í alþýðusambandinu PáD Vahjálmæan, DV, Oská: Víðtækar persónuqjósnir vom stundaöar frá höfuðstöðvum norska alþýöusambandsins allt til loka sjö- unda áratugarins. Upplýsingmn var safhað um kommúnista og einnig þá meðlimi Verkamannaflokksins sem þóttu vera of róttækir aö mati forystu alþýðusambandsins og Verkamannaflokksins. Þetta kemur fram í bók sem kemur út í dag og skrifuð er af Ronald Bye, fyrrum áhrifamanni í alþýðusam- bandinu og Verkamannaflokknum. Bókin heitir liðþjálfinn og efni hennar hefur orðið tilefni til forsíðu- frétta í norskum fjölmiðlum síðustu tvo daga. Ronald Bye segir frá því er hann kom til starfa í höfuðstöðvum norska verkamannasambandins 1 Osló árið 1968. Á skrifstofunni, sem honum var vísað til, vom skjala- skápar sem geymdu nöfn þúsunda Norðmanna, hvaða skoðanir þeir höfðu, hveija þeir umgengust og tengsl við austantjaldsríki. Bye gerði sér ljóst að skjalasafhið gæti orðið að póÚtískri sprengju áð- ur en varði. Ef frést hefði um njósnastarfsemina árið 1968 hefði getað farið svo að Verkamanna- flokkurmn hefði klofnað. Verka- mannaflokkurinn og alþýðusam- bandið em skipulagslega tengd og sömu mennimir hafa völdin í báðum stofiiunum. Eftir að hafa velkst í vafa um nokkra hríö ákvað Bye að brenna persónuskrána að ráði vinar síns í leyniþjónustunni. Bye segist ekki hafa vitað hver upphafsmaðurinn að njósnunum var né heldur hveijir höfðu aðgang að gögnunum. Hann telur að skrám- ar hafi verið notaðar þegar ganga átti úr skugga um hvort einstökum flokksmönnum Verkamannaflokks- ins og verkalýðsfélaganna væri treystandi til að taka við trúnaðar- starfi. Að öllum likindum hófust persónunjósnimar laust eftir seinni heimsstyijöldina og færðust í auk- ana í kalda stríðinu. Ronald Bye, sem nú er fimmtugur, segir að síðustu árin fyrir 1968 hafi persónuupplýsingunum í höfuð- stöðvum alþýðusambandsins ekki verið ýkja vel við haldið.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.