Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Síða 23
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987. 23 Iþróttir Sljóri West Ham þurfti lögregluvemd „Rekið Lyall,“ hrópuðu áhorfendur á Upton Park á þriðjudagskvöld eftir að Bamsley úr 2. deild hafði slegið West Ham út í deildabikamum enska, 2-5, í framlengdum leik. West Ham skoraði tvö fyrstu mörk leiksins í fyrri hálíleik. Bamsley jafnaði og skoraði þijú mörk á sex mínútna kafla í fram- lengmgunni. Fyrri leik liðanna í Bamsley lauk með jafntefli, 0-0. Eftir leikinn þurfti John Lyall, stjóri West Ham, að fá lögregluvemd til að komast úr áhorfendastúkunni. Hann hefur verið stjóri West Ham í 13 ár eða verið lengur í starfi en nokkur annar stjóri í 1. deild nú, lengstum notið mikilla vinsælda þó annað sé uppi á teningnum nú. West Ham er meðal neðstu liða deildarinnar og það var mjög umdeilt þegar félagið seldi markaskorarann Frank McAvennie til Celtic í síðustu viku. Á árum áður var Lyall leikmaður hjá West Ham - hætti ungur vegna alvarlegra meiðsla. Undir stjóm hans hefur West Ham tvívegis sigrað í FA-bikarkeppninni, komst í úrslit Evrópukeppni bikarhafa 1976 en tapaði 2-4 fyrir Anderlecht á Heysel-leikvanginum í Brússel. -hsim Rossi Paolo j leggja skóna á hilluna. verður líklega að Verður Rossi1 að hætta? Paolo Rossi, einn frægasti knatt- spymumaður heims, á nú við svo alvarleg meiðsli að stríða að allar líkur era á aö knattspymuferli hans sé íokiö. Rossi var skorinn vegna slæmra hnémeiðsla i júní í sumar. Aðgerðin viröist hafa misheppnast Hnéð stokkbólgnar ef Rossi reynir eitthvað á þaö. Hann hefur leikið með Hellas Veróna síðustu árin en gerði áöur garðinn frægan með Ju- ventus. Rossi var um langt árabil fastamaöur í ítalska landsliðinu. Hann var markakóngur á HM á Spáni 1982 þegar ítalska liðið varö heimsmeistari. -hsín^j • John Lyall. TVeir leikir í stórbikar Evrópu Knattspymusamband Evrópu, UEFA, hefur ákveðið að hafa tvo leiki í hinum svokallaða „super-cup“ - ekki einn á hlutlausum velli eins og undan- farin ár. Porto, Portúgal, sigraði í Evrópubikamum í vor, keppni meist- araliða, en Ajax, Hollandi, í Evrópu- keppni bikarhða. Fyrri leikur liðanna í stórbikamum verður í Amsterdam í næsta mánuði á leikvelli Ajax. Leik- dagur hefur enn ekki verið ákveðinn. Síðari leikurinn verður í Porto 13. jan- úar. í fyrra léku Steua Búkarest og Dynamo Kiev í stórbikamum í Monaco. Steua sigraöi 1-0 og áhorf- endur vora aðeins 8456. Reikna má með að áhorfendur muni skipta tugum þúsunda, verði jafnvel á annað hundr- að þúsund, með hinu nýja fyrirkomu- lagi. -hsim Gunnar skor- aði 5 mörk Gunnlaugur A. Jónssom, DV, Svipjóð: Þorbjöm Jensson og Gunnar Gunn- arsson í sænska liðinu IFK Malmö hófu keppnistímabilið í 1. deildinni sænsku með glæsibrag. Malmö lék gegn IFK Kristianstad og sigraði 31-27. Gunnar skoraði 5 mörk en Þorbjöm lék ekki. Þessi sigur kom mjög á óvart þar sem Kristianstad var álitið sigur- stranglegt í deildinni. Sömu sex úti- leikmennimir lékú allan leikinn fyrir Malmö-liöið en meiðsli hijá liðsmenn. -SK KR-ingar með herrakvöld Galvaskir KR-ingar verða heldur bet- ur í sviðsljósinu á fóstudagskvöldið. Þá fer fram hið margrómaða herrakvöld KR í Domus Medica við Egilsgötu. KR- ingar hita að sjálfsögðu upp með ljúf- fengum fordrykk og síðan verður boðið upp á næstu leikfléttu sem er gómsætur kvöldverður. Eins og áöur kemur „leynigestur" í heimsókn til að skemmta. Að þessu sinni kemur ræðumaður kvöldsins að austan. Það er Sverrir Hermannsson, alþingismaöur og fyrrverandi ráðherra. Veislusijóri er Þorarinn Ragnarsson, gamalkimnur spretthlaupari, sem hef- ur nú staldrað við - á hlaupunum - og er með herbúðir í Staldrinu við Stekkja- bakka. Þeir sem hafa áhuga á að tryggja sér miða (kr. 2.000) fá þa hjá húsvörðum í KR-heimilinu og Sportvöruversluninni Spörtu, Laugarvegi 49. -SOS Askrifénduií Takið vel á móti blaðberunum DV býður aukna þjónustu. Blaðberar okkar á Stór-Reykjavíkursvæðinu bjóða nú áskrifendum að áskriftargjaldið verði fært á EURO eða VISA-reikning mánaðarlega. Meðþessum boðgreiðslum vinnstmargt: # Þærlosaáskrifendur viðónæðivegnainn- heimtu. f Þæremþægilegur greiðslumátisem tryggir skilvísar greiðslur þráttfyrir annireðaijaivistir. t Þærléttablaðberan- umstörfinenhann heldurþóóskertum tekjum. t Þærauka öryggi. Blaðberaremtii dæmisoftmeðtölu- verðar fiárhæðir sem geta glatast. Umboðsmenn og blaðberar úti á landi munu um næstu mánaðamót, í byrjun nóvember, bjóða áskrifendum EURO ogVlSA boðgreiðslur með svipuðum hætti. Hafið samband við afgreiðslu DV ki.9-20vfrka daga, laugardaga kl. 9-14, ef óskað er nánari upplýsinga. Síminner 27022.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.