Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 33

Dagblaðið Vísir - DV - 08.10.1987, Blaðsíða 33
FIMMTUDAGUR 8. OKTÓBER 1987. 33 dv Fólk í fréttum Amór Guðjohnsen Arnór Guöjohnsen knattspymu- maöur var í íþróttafréttiun DV í fyrradag enda haföi stórblaðið Het Niewsblat útnefnt hann knatt- spymumann ársins og heiðrað hann sem markahæsta leikmann fyrstu deildar í Belgíu. Amór fæddist á Húsavík 30. júh 1961 og flutti með foreldrum sínum til Reykjavíkur 1970. Amór kveðst hafa sparkað bolta frá því hann man eftir sér en hann mun hafa verið sjö ára þegar hann lék sinn fyrsta leik með sjötta flokki Völsunga. Amór gekk í ÍR eftir að hann kom til Reykjavíkur en fyrstu sumrin fór hann þó norður og lék með sínum gömlu félögum í Völsungi. Amór gekk svo í Víking og lék sinn fyrsta leik með meistaraflokki 1978 en fyrsta landsleik sinn lék hann í Sviss gegn Svisslendingum 1979. Hann hafði hins vegar árið áður, sextán ára að aldri, skrifað undir samning við belgíska knattspymufélagið Loc- eren en með því lék hann í fimm ár. 1983 gekk hann til liös við And- erlecht og leikur enn með því félagi. Amór hefur leikið tuttugu og fimm landsleiki og er einhver virtasti knattspymumaður Belgíu. Amór giftist 29. júni 1985 Ólöfu Ragnheiði Einarsdóttur, f. 19. mars 1962. Foreldrar hennar em Einar Einarsson, starfsmaður hjá Trygg- ingastofnun ríkisins, og kona hans, Ólöf Stefánsdóttir. Amór og Ólöf eiga einn son, Eiö Smára, f. 15. sept- ember 1978. Amór á þijár systur: Ragnheiður, f. 1963, er hárgreiösludama í Rvík. Sambýlismaður hennar er Kevin Bergar Hauksson flugkennari og eiga þau tvö böm. Sigríöur Matthild- ur, f. 1965, er snyrtisérfræðingur í Njarðvíkum. Sambýlismaður henn- ar er Stefán Magnús Stefánsson trésmíöameistari og eiga þau einn son. Þóra Kristín, f. 1967. Fcreldrar Amórs em Eiður Guð- johnsen, múrarameistari í Rvik, og kona hans, Arnrún Sigfúsdóttir. Faðir Eiðs var Þórður Guðjohnsen, kaupmaöur á Húsavík, Stefánssonar Guðjohnsen, kaupmanns á Húsavík, bróður Þóm, móður Baldurs Möller, fyrrv. ráðuneytisstjóra, sonur Þórð- ar Guðjohnsen, verslunarstjóra á Húsavík, Péturssonar, organleikara í Rvík, Guðjónssonar, forföður Guðjohnsenættarinnar. Meðal bama Péturs var Martha, kona Ind- riða Einarssonar rithöfundar og móðir Ingibjargar, konu Ólafs Thors forsætisráðherra. Móðir Þórðar er Guðrún, dóttir Lauritz Knudsen, kaupmanns í Rvík, forfóður Knud- senættarinnar. Móðir Stefáns var Halldóra Þórðardóttir, háyfirdóm- ara í Rvík, Sveinbjömssonar, og Kristínar, systur Guðrúnar Knud- sen. Móðir Eiðs er Ragnheiður, systir Loga, framkvæmdastjóra Landakotsspítala, Guðbrandsdóttir, prófessors, Jónssonar þjóðskjala- varðar, Þorkelssonar, prests á Staðastað, Eyjólfssonar. Móðir Ragnheiðar var Elísabet Vigfúsdótt- ir Melsteð, gullsmiðs á Sauðárkróki, Guðmundssonar, bróður Amdísar, ömmu Þorvalds Skúlasonar listmál- ara. Móðir Amórs, Amrún, er dóttir Sigfúsar, trésmiðs í Colorado í Bandaríkjunum, Péturssonar, kaup- Amór Guðjohnsen. félagsstjóra á Borðeyri, Sigfussonar. Móðir Péturs var Sigriður, systir Jóns, afa Jónasar Ámasonar rithöf- undar, dóttir Jóns, skálds á Hellu- vaði, Hinrikssonar, og Friðrika Helgadóttir, b. á Skútustöðum, Ás- mundssonar, forföður Skútustaða- ættarinnar. Afmæli Olafur Guðmundsson Jón G. Þorieifsson Ólafur Guðmundsson kaupmað- ur, Sörlaskjóh 62, Reykjavlk, er sjötíu og fimm ára í dag. Ólafur fæd- dist í Reykjavík og var alinn þar upp hjá foreldrum sínum. Um ferming- araldur var hann í vinnu hjá Sveini Þorkelssyni, kaupmanni við Vestur- götuna í Reykjavík, en Sveinn styrkti Ólaf til verslunarskólanáms. Ólafur lauk verslunarskólaprófi frá VÍ og nokkm síðar hóf hann störf hjá Heildverslun Garðars Gíslason- ar þar sem hann starfaði í nokkur ár. Ólafur var svo um nokkurt skeið verslunarstjóri hjá Páli Hallbjöms- syni á Leifsgötunni en stofnaði svo verslunina Lund við Sundlaugaveg ásamt Guðmundi Guðmundssyni sem hafði verið samstarfsmaður hans hjá Heildverslun Garðars Gíslasonar. Nokkm síðar keypti Ól- afur svo hlut Guðmundar í verslun- inni en Ólafur verslaði í Lundi fram yfir 1980 en þá seldi hann verslunina. Á árunum eftir stríð byggði Ólafur ásamt þremur bræðmm sínum myndarlegt íbúðarhús í Skjólunum en þar hefur hann búið síðan. Ólafur tók foreldra sína til sín og bjuggu þau hjá honum síöustu æviárin. Ólafur tók mjög virkan þátt í fé- lagsstarfi Góðtemplarareglunnar og var m.a. æðstitemplar stúkunnar Frónar um tuttugu ára skeið. Systkini Ólafs vom sjö en elsti bróðirinn, Sigurður, sem lengi vann í Félagsprentsmiðjunni, er látinn. Ekkja hans er Eygló Þorgrímsdóttir. Ásta, f. 1914, er gift Óskari Jónssyni verkamanni. Einar, f. 1915, er tré- smiður, giftur Sybil Malen. Magnús kaupmaður, f. 1917, er gjftur Sesselju Sigurðardóttur. Sigríður, f. 1920, er gift Áma Jónssyni frá Bergi. Þor- valdur er prentari í Félagsprent- smiðjunni. Sigríður Emma er gift Ólafur Guðmundsson. Hans Bjamasyni trésmiö á Selfossi. Foreldrar Ólafs vom Guðmundur frá Stekkjartröð í Grundarfirði Magnússon og kona hans, Valgerður Víglundsdóttir frá ísafirði. Olafur er þessa dagana sjúklingur á Landakotsspítala. Jón G. Þorleifsson, Gnoðarvogi 24, Reykjavík, er sextugur í dag. Jón Guðmundur er fæddur og uppalinn á Flateyri við Önundar- fjörð en hefur stundað sjómennsku frá þrettán ára aldri. Hann var bæði á togurum, bátum og varðskipum en fór í land 5. janúar 1976 og hefur síðan þá unnið við fiskvinnu, al- menna verkamannavinnu og í byggingavinnu. Sambýliskona Jóns er Ólöf Matthí- asdóttir, f. 15. júli 1941. Foreldrar hennai' em Matthías Guömundsson, skipstjóri í Reykjavík, og kona hans, Hinrika Ólafsdóttir. Systkini Jóns, samfeðra, em Bjöm, fyrrverandi sjómaöur í Hafh- arfirði, Sigríður, gift Halldóri Baldvinssyni, vaktmanni í Hafnar- 75 ára Steinunn Matthíasdóttir, Hæli I, Gnúpverjahreppi, er sjötíu og fimm ára í dag. Hún verður að heiman á afmælisdaginn. 70 ára_______________________ Jón Pálsson, Laugarbraut 17, Akra- nesi, er sjötugur í dag. Stefanía Guðmundsdóttir, Tungu- vegi 5, Hafnarfirði, er sjötug í dag. Hún verður ekki heima á afmælis- daginn. Áslaug Ásmundsdóttir, Álfalandi 4, Reykjavík, er sjötug í dag. 60 ára Þóra Aradóttir, Grensásvegi 56, Reykjavík, er sextug í dag. ívar H. Stefánsson, Haganesi, Skútustaðahreppi, er sextugur í dag. Guðmundur Óskarsson, Giljalandi 30, Reykjavík, er sextugur í dag. 50 ára_______________________ Unnur Sigurðardóttir, Klifshaga 2, Öxarfjarðarhreppi, er fimmtug í dag. Andlát Indiana Eyjólfsdóttir, Suðureyri, Súgandafirði, lést í Fjórðungssjúkra- húsinu á ísafirði 7. október. Óskar Árnason hárskerameistari lést þriðjudaginn 6. október. Rósinkransa Jónsdóttir frá Bolung- arvík, andaöist að Hrafnistu 6. október. firði, Sigfinnur, sjúkrahúsprestur í Reykjavík, Kristófer, héraðslæknir í Ólafsvík, Valborg, meinatæknir í Reykjavík, gift Bjama Pálssyni, fyr- verandi skólastjóra Núpsskóla, og Guðríður hjúkrunarfræðingur, gift Hans Schröder, vélstjóra í Kópavogi. Foreldrar Jóns vom Þorleifur Jónsson, lögregluþjónn í Hafnar- firði, og Magnea ðlafsdóttir. Faðir Þorleifs var Jón, b. í Efra-Skálateigi í Norðfjarðarlireppi, Þorleifsson, b. í Efra-Skálateigi, Jónssonar, b. í Sómastaðagerði, Þorleifssonar. Móðir Þorleifs var Guðríður Páls- dóttir. Móðir Jóns, Magnea, var dóttir Ólafs, b. á Hóli í Bolungarvík, Hafliðasonar, og konu hans, Soffiu Amfríðar Guðmundsdóttur. Edvald E. Friðriksson, Þómnnar- stræti 131, Akureyri, er fimmtugur í dag. Þórir Pálsson, Svarfaðarbraut 8, Dalvík, er fimmtugur í dag. Hörður G. Pétursson, Stífluseli 10, Reykjavík, er fimmtugur í dag. Þórunn Einarsdóttir, Grænuhlíð 19, Reykjavík, er fimmtug í dag. Albert Kemp, Skólavegi 14, Búða- hreppi, er fimmtugur í dag. Guðbjörg Svala Lárusdóttir, Hjallavegi 5A, Njarðvik, er fimm- tug í dag. 40 ára Sigrún Jónsdóttir, Rauðalæk 7, Reykjavík, er fertug í dag. Þorbergur Egilsson, Gunnlaugs- götu 10, Borgarnesi, er fertugur í dag. Sveinn Gíslason, Hraunbraut 45, Kópavogi, er fertugur í dag. Hann verður ekki heima á afmælisdag- inn. Anne Mary Pálmadóttir, Hvamms- tangabraut 21, Hvammstanga, er fertug í dag. Jón Þór Sigurðsson, Sæbóli, Hvammstanga, er fertugur í dag. Sigurjón Jónsson, Heiðargerði 11, Akranesi, er fertugur í dag. Jóhanna Valdemarsdóttir, Breið- vangi 73, Hafnarfiröi, er fertug í dag. Sérverslun með blóm og skreytingar. Laugavegi 53, simi 20266 Setulum wn Ltnd allL Olafur Guðmundsson Ólafur Guðmundsson, Austur- bergi 36, Reykjavík, er áttræður í dag. Olafur er fæddur á Glæsistöðum í Vestur-Landeyjum og ólst þar upp. Hann fór sextán ára til Vestmanna- eyja og var þar sjómaður í fjögur ár. Ólafur starfaði síðan hjá aðventsöfn- uðinum í Reykjavík og vígðist kristniboði 1928. Hann var við nám í kristniboðsskólanum í Onsrud í Noregi 1934-1935, var kristniboði á íslandi 1928-1976 og ferðaðist víöa um landið en var síðustu árin hjá bókaforlagi. Kona Ólafs var Ásta Lilja Guðmundsdóttir, f. 5. október 1901, d. 22. apríl 1986. Foreldrar hennar voru Guðmundur Jónsson, verkamaður í Reykjavík, og kona hans, Jónína Sigriður Jónsdóttir. Ólafur og Ásta eignuðust fjögur böm og komust þijú þeirra upp. Þau em Sigríður, f. 10. desember 1930, kenn- ari í Fjölbrautaskólanum í Breið- holti, gift Manho Candi, tæknifræð- ingi í Straumsvík, Hanna, f. 19. febrúar 1934, sjúkraþjálfari í Skods- borg í Danmörku, gift Uffe Jörgen- sen yfirlækni, og Olafur, f. 20. janúar 1940, umsjónarmaöur í Landsbóka- safninu. Systkini Ólafs vora ellefu: Guörún, f. 24. janúar 1898, hún er látin, gift Anton Þorvarðssyni, b. á Glæsistöð- um í Landeyjum; Kristín, f. 27. maí 1899, gift Gústaf Stefánssyni, vél- stjóra í Vestmannaeyjum, þau era bæði látin; Guðbjörg, f. 5. mars 1901, gift Halldóri Jóhannssyni, b. á Syðri-Úlfsstöðum í Austur-Land- eyjum, þau era bæði látin; Sólveig, f. 12. nóvember 1902, saumakona í Reykjavík, dó 1939; Sigurbjörg, f. 8. mars 1904, gift Guömundi Amasyni, verkamanni í Reykjavík; Bjami, f. 17. janúar 1906, bílstjóri í Vest- mannaeyjum, giftur Jóhönnu Guðmundsson sem er látin; Júlíus, f. 21. mai 1909, skólastjóri og prest- ur, giftur Gerdu Guðmundsson; Guðný, f. 4. október 1910, gift Aðal- steini Sveinssyni, farmanni hjá Eimskipafélaginu, hann er látinn; Guðmundur, f. 4. desember 1912, sjó- maður í Vestmannaeyjum, hann er látinn; Gísh Kristján, f. 29. janúar 1915, hátasmiður í Reykjavík, hann er látinn, giftur Þórunni Guöjóns- dóttur. Foreldrar Ólafs era Guðmundur Gíslason, b. á Glæsistöðum, og kona hans, Sigríður Bjamadóttir. Foreldr- f9\ 5 Olafur Guðmundsson. ar Guðmundar vora Gísh, b. í Sigluvík, Eyjólfsson, og kona hans, Guðrún Ólafsdóttir frá Álfhólum í Landeyjum. Móðir Ólafs, Sigríður, var dóttir Bjama, útvegsbónda í Herdísarvik, Hannessonar, b. og hreppstjóra á Hólum í Stokkseyrar- hreppi, Einarssonar, spítalahaldara í Kaldaðamesi, Hannessonar, lög- réttumanns í Kaldaðamesi, Jóns- sonar. Móðir Hannesar á Hólum var ; Kristín Guðmundsdóttir, sýsluskrif- 1 ara í Langholti í Flóa, Eiríkssonar, b. í Bolholti, Jónssonar. Móðir Bjama var Kristín Bjamadóttir, b. og hreppstjóra í Laugardælum, Sím- onarsonar. Móðir Sigríðar var Sólveig Eyjólfsdóttir. Elías Vestfjörð Sigurðsson Elías Vestfjörð Sigurðsson, aug- lýsingateiknari og framkvæmda- stjóri, Bræðraborgarstíg 10, Reykjavík, er fertugur í dag. Hann fæddist í Reykjavík og lauk gagn- fræðaprófi frá Gagnfræðaskóla Vesturbæjar 1963. Elías nam auglýs- ingateiknun við Myndhsta- og handíðaskólann 1970-74. Hann starf- aði á ýmsum auglýsingastofum þar til hann setti á stofn sína eigin stofu, Auglýsingastofu Ehasar Sigurðsson- ar, 1981, en henni veitir hann for- stöðu nú í dag. Systkini Elíasar vora fimm. Fjögur þeirra era á lifi og búa þau í Reykja- vík: Hafþór f. 1943; Ragnar f. 1945; Þorsteinn f. 1949; Sigþór f. 1953 en hann er látinn; og Hjördís f. 1959. Foreldrar Ehasar era Sigurður H. Þorsteinsson frá Miðvík í Sléttu- hreppi, Norður-ísafjarðarsýslu, en hann er látinn, og eftirlifandi kona hans er Matthildur Elíasdóttir frá Elhða í Staðarsveit á Snæfehsnesi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.