Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Síða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Síða 14
14 ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987. Frjálst.óháÖ dagblaö Útgáfufélag: FRJALS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaður og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: HÖRÐUR EINARSSON Ritstjórar: JÓNAS KRISTJÁNSSON og ELLERT B. SCHRAM Aðstoðarritstjórar: HAUKUR HELGASON og ELÍAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÚNAS HARALDSSON Auglýsingastjórar: PALL STEFÁNSSON og INGÓLFUR P. STEINSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaðaafgreiðsla, áskrift, ÞVERHOLTI 11, SiMI 27022 Setning, umbrot, mynda- og plötugerð: PRENTSMIÐJA FRJÁLSRAR FJÖLMIÐLUNAR HF„ ÞVERHOLTI 11 Prentun: ÁRVAKUR HF. - Áskriftarverð á mánuði 600 kr. Verð i lausasölu virka daga 60 kr. - Helgarblað 75 kr. Saurgerlasaga Nýlega var sendur hingað dýralæknir frá Evrópu- bandalaginu vegna hugsanlegrar sölu íslenzks dilka- kjöts til Vestur-Evrópu. Hann skoðaði þrjú hin beztu af fimmtíu sláturhúsum landsins og taldi ekkert þeirra þriggja nógu gott að viðhaldi, aðstöðu og búnaði. Okkar kröfur eru vægari, því að sautján sláturhús hafa löggildingu til að slátra sauðfé fyrir innlendan markað. Þau eru mjög afkastamikil, enda telur slátur- húsanefnd, að þau geti annað allri sauðfjárslátrun í landinu og raunar þótt víðar væri leitað. Ýmsir þröngir sérhagsmunir valda því, að tvöfalt fleiri sláturhús til viðbótar, eða 33 alls, hafa undanþágu til rekstrar, þótt þau séu ekki frambærileg samkvæmt hinum vægu heilbrigðiskröfum, sem hér eru gerðar. Undanþágur hafa hreinlega verið veittar á færibandi. Samanlögð afköst hinna samtals fimmtíu sláturhúsa landsins eru 43.450 fjár á dag. í fyrra jafngilti það 19 daga notkun að meðaltali á ári. Þessi lélega nýting af- kastagetunnar stuðlar að háum fjármagns- og rekstrar- kostnaði og gerir slátrun afar dýra hér á landi. Lýsing sláturhúsanefndar á undanþáguhúsunum er löng og ekki fögur. Víða er slátrað í gömlum kofum, jafnvel timburkofum, eða í fiskverkunarhúsum, sem tímabundið er breytt í sláturhús, með skaðlegum áhrif- um á hvort tveggja, fiskvinnsluna og slátrunina. Undanþágurnar eru veittar með pólitísku handafli. Stundum tregðast dýralæknar staðarins og yfirdýra- læknir við að veita leyfm. Þá knýja þingmenn kjördæm- isins landbúnaðarráðherra til að kreista út undanþágu. Þáð gerðist til dæmis í haust í Vík í Mýrdal. Sláturhúsið á Bíldudal í Arnarfirði er hins vegar svo lélegt, að ráðherra treysti sér ekki til að keyra yfir dýra- læknana, enda eru aðeins 30 kílómetrar frá Bíldudal til löggilts sláturhúss á Patreksfirði. Vegna þessa hafa nokkrir þingmenn gengið berserksgang við Austurvöll. Undir forustu Eyjólfs Konráðs Jónssonar og Matthí- asar Bjarnasonar var í skyndi búið til frumvarp til sérstakra laga um þetta hús. Ráðgert var að keyra mál- ið í gegn á einum sólarhring með því að beita afbrigðum. Fjölmiðlar hafa skýrt rækilega frá gangi málsins. Sem betur fer sáu ýmsir aðrir alþingismenn, að mál þetta var Alþingi til hinnar mestu vansæmdar. Þess vegna fékk Bíldudalsfrumvarpið ekki þann forgang, sem ráðgerður var, og málið féll á tíma. Nú er sauðfénu ekið skamman veg til slátrunar á Patreksfirði. Upphlaupið skilur hins vegar eftir óbragð í munni. Það hefur hreyft ýmsum spurningum, sem ekki hefur verið svarað. Er til dæmis rétt hjá sumum þingmönn- um, að sláturhús kaupfélaga megi að mati dýralækna vera skítugri en hin, sem eru í eigu hlutafélaga? Þá er ekki síður athyglisvert, að í umræðunni á Al- þingi taldi enginn þingmanna sig knúinn til að ræða málið frá sjónarhóli neytenda og með hagsmuni þeirra í huga. Af 63 þingmönnum voru margir fúsir að þjóna sérhagsmunum, en fáir fúsir að þjóna neytendum. í rannsókninni, sem væntanlega siglir í kjölfar upp- hlaupsins, verður vonandi fjallað um, hvort eftirlit með sláturhúsum og leyfisveitingar þeirra séu eða eigi að vera fyrir neytendur eða einhverja aðra og þá hverja. Einnig hvers konar handalögmál stjórni undanþágum. Þótt málið hafi til þessa verið Alþingi til vansæmdar, er hægur vandi að veita umræðunni framvegis í þann farveg, að leiði um síðir til heilla fyrir landsmenn. Jónas Kristjánsson Fiskeldi við Eiliðaárnar. Fiskeldi í Reykjavík Nýlega hélt atvinnumálanefnd Reykjavíkur ráðstefnu um fiskeldi í Reykjavík. Ráðstefnan var mjög fjölsótt. Þar voru flutt mörg fróðleg erindi og umræður voru fjörlegar. Athyglisvert er að Reykjavík er á vissan hátt vagga fiskeldis á ís- landi. í Laxalóni hefur frumkvöð- ullinn Skúli Pálsson barist lengi, sem alþjóð er kunnugt, og í Kolla- firði hefur rikið lengi rekið fiskeldi. Nú eru að opnast nýjar víddir, ný útsýn. Fjögur fyrirtæki stunda nú kvíaeldi í Eiðsvík. Eldið viröist ganga vel og á vafalaust mikla framtíð fyrir sér þarna í firðinum. Það er skemmtileg framtíð að hugsa sér flóann nýttan til fiskeld- is, lifandi atvinnugrein sem gæti blómstiað í nágrenni höfuöborgar- innar. Vandséð er að til sé betri nýting á flóanum og sjálfur hef ég margoft lýst þeirri skoðun minni að engin atvinnugrein búi yfir öðr- um eins vaxtarmöguleikum og fiskeldið. Sjálfsagt er þó að mörgu að hyggja þegar framtíð fiskeldis á fló- anum er skoðuð. Ef menn láta sig dreyma um framleiðslu nokkur þúsund tonna af laxi árlega þarna, reyna að rýna í framtíðina og sjá fyrir sér sjókvíar víða um flóann, báta á ferð með fóður og gæslumenn, sláturfisk á leið í land og seiði á leið út í kvíar, er eins og allt iði af lífi þarna. En hvernig verður nábýliö viö höfuð- borgina? Fiskeldi við höfuðborg Á ráðstefnunni gerði hafnarstjóri grein fyrir aðstæðum til kvíaeldis á hafnarsvæðinu. Borgarverkfræð- ingur gerði grein fyrir lóðaúthlut- unum vegna kvíaeldisins en það þarf talsverða aðstöðu í landi. Fróðleg erindi voru einnig flutt um náttúrulegar aðstæður. Ljóst er aö nokkrar meginútrásir skolpkerfis borgarinnar koma út í sjó á Sundunum. Umfangsmiklar mælingar hafa verið gerðar á mengun frá holræsum á Sundun- um. Af þeim virðist ljóst aö haga megi frárennslismálum borgarinn- ar á þann veg að þau hafi engin áhrif á fiskeldi i flóanum. Gera verður þær kröfur til borgaryfir- valda aö þau hafi vakandi áhuga á þróun mála á þessu sviði og stuðli á þann hátt að því að fiskeldi geti dafnað þama. Fram kom að straumar eru tals- verðir í Eiðsvíkinni þannig að mengun vegna fóðurleifa ætti að vera hverfandi. Norðmenn búa við nokkuð aðrar aðstæður í þessu til- Kjallarinn Guðmundur G. Þórarinsson alþingismaður fyrir Framsóknarflokkinn liti í lygnum og lokuðum fjörðum. Mengunar- og sjúkdómavandamál þeirra stafa að talsverðu leyti af þessum náttúrulegu aðstæðum. Mælingar á hitastigi sjávar eru til frá Reykjavíkurhöfn en ekki í Eiösvíkinni sjálfri. Ekki er unnt að nota mælingar frá höfninni beint til að meta hitastig í Eiðsvíkinni þó leiða megi að því líkur. Hita- mælingar eru heldur ekki til samfelldar yflr nægilega langt tímabil. Fram kom aö sum árin hefur hitastig verið undir frostmarki allt að 35 daga. Ekki er ljóst hversu mikla hættu er hér um að ræða en í mörgum fræðibókum eru dauða- mörk lax talin -0,5°C. Hætta virðist því nokkur á undirkælingu í yfir- borði. Norðmenn hafa orðið fyrir tjóni af undirkælingu og hætt er við að köld ár gætu orðið erfið þó nokkur mismunur sé eftir því hvar er á flóanum. í nágrenni Reykjavíkur eru þrjár laxveiðiár, Elliöaárnar, Korpa og Leirvogsá. Á ráðstefnunni ræddu menn nokkuð stofnblöndun á laxi eða erfðafræðilega mengun eins og sumir kalla. Upplýst var að 10% af laxi, sem veiddist í norskum ám á sl. ári, var eldislax sem slapp. Ef fiskeldi vex fiskur um hrygg á flóanum og þar verða framleidd nokkur þúsund tonn af laxi árlega og eitthvaö af honum sleppur, eins og verða vill, velta menn því fyrir sér hver áhrif það muni hafa. Vafalaust gengur hann upp í árnar þegar hann verð- ur kynþroska og blandast hinum náttúrulegu stofnum. Og fyrsta spurning hlýtur auðvitað að verða: gerir það nokkuð til? Aukin haf- beit, þar sem milljónum seiða af ýmsum stofnum er sleppt, mun auðvitað leiða til stofnblöndunar í mörgum ef ekki öllum íslenskum ám. Kynbætur Fram komu hugmyndir um að nota geldfisk í kvíaeldi, en hann virðist ekki leita upp í árnar, eða velja stofna til kvíaeldis á flóanum þannig að stofnblöndun í ánum verði sem minnst. í mínum huga er svarið við þess- ari spurningu undir ýmsu komið. Norðmenn leggja mikla áherslu á kynbætur á eldislaxi. Reynt er með margvíslegum aðferðum að fá fram hraðvaxna stofna sem seint verða kynþroska og hafa mikið viðnáms- þrek gegn sjúkdómum. Margt virðist benda til að í framtíðinni verði með kynbótum leitaö að eld- islaxi sem hafi „húsdýrseiginleika" þ.e. sé gæfur og láti sér vel líka að vera í eldiskvíum, líkt og alisvín og alifuglar, og hafi álíka margt ólíkt villta laxinum og alisvín og alifuglar villtum tegundum. Sjálf- sagt tekur þetta langan tíma, en ef menn áætla að þar komi að fram- boð og eftirspurn eftir laxi mætist standa þeir best i samkeppninni sem minnstan framleiðslukostnað hafa. Það hafa þeir sem hraðvaxn- asta stofninn hafa meðal annars. íslendingar munu því verða að hefja kynbætur. Þegar þessu stigi er náð er blöndun eldislax og villts lax sjálfsagt óæskileg. Öðru máli gegnir með hafbeitar- laxinn. Hann þarf að hafa sömu eiginleika og villti laxinn, rateigin- leika, kunna að varast hættur í náttúrunni, leita sjálfur fæðis o.s. frv. Blöndun hans við villtan lax í ánum er því annars eðlis og líklega ekki eins áhættusöm þegar til lengri tíma er litið. Fareldi Þó nauðsynlegt sé að hafa þessa hluti í huga er ólíklegt að nein hætta sé á ferðum í náinni framtíð. Menn þurfa aö fylgjast með þróun- inni. Sambýlið við höfuðborgina hefur því margar hliöar. Reykjavík ætti að geta lagt eldismönnum til ódýrt heitt vatn, e.t.v. bakrennslisvatn. Þetta þarf atvinnumálanefnd borg- arinnar sérstaklega aö skoða. Þannig mætti koma upp fareldi þar sem fiskurinn væri alinn í hita í kerum á landi meðan hann er smár og hitastigið hefur mest áhrif á vaxtarhraða og flytja hann síðan út í sjókvíar. Þetta er auövitað reikningsdæmi sem þarf að skoða. Þegar allt er lagt saman eiga möguleikar til sjókvíaeldis við Reykjavík að vera góðir. Köld ár gætu gert strik í reikninginn en bæta má aðra þætti eldisins og stuðla að auknu fiskeldi á flóanum með margvíslegum aðferðum. Þessari atvinnugrein þurfa borg- aryfirvöld markvisst að hlúa að. Guðmundur G. Þórarinsson „Þegar allt er lagt saman eiga mögu- leikar til sjókvíaeldis við Reykjavík að vera góðir.“

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.