Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Qupperneq 31

Dagblaðið Vísir - DV - 27.10.1987, Qupperneq 31
ÞRIÐJUDAGUR 27. OKTÓBER 1987. 31 Sandkom Fréttir Skattlagðir á grafar- bakkanum Þaö er mörg matarholan hjá ríkissjóði samkvæmt frumvarpi að fjárlögum næsta árs og er auð vitað ekk- ert nýtt. Sumt af því sem ríkið innheimtir er jafhvel svo smávægilegt eða smásmugu- legt að efalaust kostar meira að ná því inn og færa það í bækur, endurskoða og bera upp á Alþingi en sem tekjun- um nemur. Þar má fyrst nefna minnsta tekjustofninn sem er gjald af eyðublöðum heillaskeyta, heilar 20 þús- imd krónur. Það hlýtur að vera gaman að rukka þau ósköp upp í 60 milljarða króna hít. Öllu meira munar um gjald á samúðarskeyti Landssímans. Það er þriggja milljóna króna tekjustofn fyrir ríkissjóð á næsta ári og dugir fyrir þokkalegum ráð- herrabíl. Þetta eru lika síðustu forvöð að hafa eitt- hvað af viðkomandi skatt- borgurum. Rólegt hjá Sigga Sveins Nýjasta flskiskipið í flotan- um, Siggi Sveins frá Hnífsdal, sem er búið fullkomnustu tækjum eins og vera ber, ligg- ur við bry ggj u og blæs ekki úr nös. Skipið hefur nefnilega engan veiðikvóta og engar veiðiheimildir og ekki er að sjá að neinu verði þokaö í því efni fyrr en i fyrsta lagi um áramót þegar núgildandi lög um flskveiðistjórnun renna skeiðsittáenda. 18 milljóna reykur Davíð Gíslason læknir hef- ur reiknað það út að ef maður, sem reykir einn pakka af sígarettum á dag, notar peningana til þess að kaupa ríkisskuldabréf eign- ast hann 18,3 milljónir króna á 50 árum. Ef hann heldur bindindið ekki nema í 25 ár eignast hann samt þrjár' milljónir króna. Strax eftir 10 ár hefur tekist að spara fyrir þokkalegri bifreið, 700 þús- und krónur. Á einu ári sparast 51.100 krónur með reikningsaðferð læknisins. Svo má bæta því við að lífs- líkur þess sem aldrei reykir eru sagðar 73,6 ár en þess sem reykir pakka á dag ekki nema 68,1 ár eða hálfu sjötta ára styttri. 102 kílómetr- ar á klukku- stund Nú er það komið á hreint að til þess að vera öruggur um að missa ökuleyflð fyrir of hraðan akstur á greið- færustu götum þarf að þeyta blikkinu upp í 102 kílómetra hraða á klukkustund. 101 kílómetra hraði dugir ekki; maður losnar ekki við öku- skírteinið fyrir að dóla sér á þeirriferð. Þessi mörk hljóta að vera vísindalega flmdin því engar ákvarðanir eru teknar í ís- lenskum umferðarmálum nema eftir nákvæmar rann- sóknir og mikla yflrlegu. En hvemig nákvæmlega þessi hraðamörk urðu ofan á er auðvitað hulin ráðgáta fyrir sauðsvartan almúgann sem á hvort sem er ekkert að vera að brjóta heilann um hvað honum sé fyrir bestu. Fógetinn með allt á hreinu Skímarraunum eigenda nýja veitingahússins í Kefla- vík er lokið. Ætlunin var að láta staðinn heita spænska nafninu E1 Rancho sem mun vera heiti Argentínumanna á bóndabæ. Þá sagði Jón fógeti stopp. Og eigendumir flettu upp í orðabók þar sem spænska heitið var þýtt bú- garður. Þess vegna hefur þessi nýi veitingastaður hlot- ið nafnið Búgarður sem hljómar að vísu örlítið á ská við íslenskan veitingastað. En hvað um það, nafnið er fundið og fógetinn er ánægö- ur. Þrasið um nafngiftina hef- ur svo auðvitað skapað nýja staðnum gríðarlega, ókeypis auglýsingu á Suðumesjum, rétt eins og þegar Starlight var breytt í Glaumberg með þeim árangri að ekki er leng- ur pláss fyrir eigandann í Keflavík einni. Kínafrétt Víkurfréttir í Keflavík segja frá því að nýlega hafi verkalýðsfélögin á Suður- nesjum fengið Kínverja í heimsókn. Þá kom í ljós aö kínversk verkalýðshreyfing hefur öllu fleiri starfsmönn- um á að skipa en sú íslenska þvi þegar þeir vom taldir nýlega reyndust þeir vera um 460 þúsund manns. Þetta þýð- ir að íslenska verkalýðs- hreyfmgin á ekki minnsta möguleika á að jafna metin því við íslendingar emm ekki nema rétt yfir 240 þúsund talsins. Edvard og Carl Það vita allir að Albert Guðmundsson er formaöur Borgaraflokksins. Sárafáir vita hins vegar að varafor- maður flokksins heitir Edvard og ritarinn Carl. En þannig er þetta samt. Vara- formaðurinn, sem er þekktur undir heitinu Július, heitir í rauninni Edvard Júlíus Sól- nes. Ogritarinn heitir ekki aðeins Ólafur heldur Carl Ólafur Gránz. Ekki sakar að geta þess að báðir em þeir miklir byggingamenn því Edvard er byggingaverk- fræðingur og Carl trésmíða- meistari. Loks má ekki gleyma að- alástæðunni fyrir því að Edvard varð fyrir valinu sem varaformaður. Það var ekki umdeildur stuöningur Ás- geirs Hannesar Eiríkssonar, sem ætlaði sér stólinn, heldur sú staðreynd að Edvard er sérmenntaöur í jarðskjálfta- fræðum. Allur er varinn góður og ekki ráð nema í tíma sétekið. Varaformaður Borgaraflokksins heltlr Edvard og rltarlnn Carl... Þelr eru ekkl í bresku konungstjöl- skyldunni en jafngóóir fy rir þaó. Umsjón: Herbert Guðmundsson Fjölmennt var í dagsferðinni sem SBS bauð öldruðum Stokkseyringum i nýiega en hátt i fimmtíu aldraðir Stokkseyringar þáðu boðið. Þessi mynd er tekin i kaffisamsæti sem ferðalöngunum var boðið í á Hótel Flúöum. DV-mynd Ingi S. Ingason Stokkseyri: Blómleg elli Ingi S. Ingason, DV, Stokkseyri: Félagsstarf aldraðra á Stokkseyri hefur staðiö með blóma um nokkurt skeið. Má það þakka giftudrjúgri samvinnu nokkurra aðila, svo sem sveitarfélags, verkalýðsfélags og SBS. Fyrir hálfu öðru ári var hér opið hús með Ævari Kvaran, þar sem hann sagði frá miðilsstarfi sínu og leikstarfsemi. Þá komu hingað fé- lagsráðgjafarnir Anna Jónsdóttir og Jóna Eggertsdóttir og fjölluðu um starfslok og almenn lífeyrisréttindi aldraðra. Á hverju sumri gengst verkalýðs- félagið Bjarmi á Stokkseyri fyrir sumarferö og er öllum sem orðnir fyrst var skoðuð svepparæktunar- stöð, líklega sú fullkomnasta á landinu. Næst var límtrésverksmiðj- an heimsótt. Að margra mati var þó hápunktur ferðarinnar innlit í byggða- og muna- safn Emils bónda Asgeirssonar í Gröf, sem hann hefur búiö um i af- lögðu fjósi á bæjarhlaðinu í Gröf og að því loknu var öllum boðið í kaffi- sopa hjá þeim hjónum þótt hópurinn væri hálfur fimmti tugur. Loks bauð svo verkalýðsfélagið Bjarmi á Stokkseyri til miðdegiskaff- is að Hótel Flúðum. Tekiö var að kvölda þegar heim var komið en þó þótti við hæfi að kíkja við í leikskólanum á Stokkseyri. sem. verið var að vígja þennan sama dag. JEPPADEKK: Allar stærðir af White Spoke felgum fyrirliggjandi. OPIÐ LAUGARD. 10-13. ÁRMÚLI 1 105 REYKJAVÍK SÍMI 91-685533 Þátttakendum i ferðinni var meðal annars boðið að skoða svepparæktunar- stöðina að Flúðum sem talin er ein sú fullkomnasta á landinu. DV-mynd Ingi S. Ingason eru löggild gamalmenni á félags- svæðinu boðið með. Einnig er árlega farið í dagsferð í boöi SBS. sem áður hét Sérleyfisbílar Selfoss og Ólafur Ketilsson hf.. og áð þessu sinni var sú ferð farin sunnudaginn 11. okt. sl. Ekið var upp Grímsnes og snæddur hádegisverður að Hótel Geysi í boði sveitarstj órnar Stokkseyrarhrepps. Þaðan var rennt upp að Gullfossi. sem var í nokkrum klakaböndum. og sem leið liggur yfir Hvítá hjá Brú- arhlöðum og allt að Flúðum. þar sem því tvisvar verður gamall maður barn. Var ekki annað að heyra á ferða- löngunum en flestir væru ánægðir og aldurforsetinn. sem hefur fióra um nírætt. lét engan bilbug á sér finna. Fvrirhugað er að fá 2 landskunna listamenn til að.skemmta eldri borg- urum í Stokkseyrarhreppi með söng og upplestri áður en þetta ár líður í aldanna skaut og einnig er leikhús- ferð á prjónunum. Akureyri: Sveinborgin senn á veiðar Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: „Það stendur ekkert annað til í bili en að gera skipið klárt og koma því á ísfiskveiðar," sagði Þorsteinn Baldvinsson, framkvæmdastjóri útgerðarfélagsins Samherja lif. á Akureyri, er DV spurði hann um fyrirætlanir fyrirtækisins með tog- arann Sveinborgu sem Samheiji keypti nýlega frá Siglufirði. - Talsvert hefur verið rætt um að Samherji ætli að kaupa annað skip fyrir Sveinborgina sem er nítján ára gamalt skip. „Það mál er ekki komið neitt áleiðis og ákvörðun verður ekki tekin á næstunni hvað sem síðar verður,“ sagði Þorsteinn. Nú er verið að gera Sveinborgina klára á veiðar og áður en skipið heldur á miðin verður skipt um nafn á því.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.