Dagblaðið Vísir - DV - 09.01.1988, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 9. JANÚAR 1988.
Fréttir dv
AðstoðarfTamkvæmdastjóri Samvinnutrygginga:
Gengur í lið keppinauta
eftir 30 ára starfsferil
Bruno Hjaldested, sem verið hefur
aðstoðarframkvæmdastjóri Sam-
vinnutrygginga, hefur hætt störfum
þar og mun innan tíöar hefja störf
hjá Sjóvátryggingafélagi íslands.
Vistaskipti Brunos hafa vakið at-
hygh tryggingamanna. Hann er
tahnn einn hæfasti maður á lándinu
í vátryggingum. Bruno vildi ekkert
segja um hvers vegna hann hættir
störfum hjá Samvinnutryggingum
eftir 30 ára starf. Sagði það vera af
persónulegum ástæðum.
Hahgrímur Sigurðsson fram-
kvæmdastjóri sagði, þegar hann var
spurður hvort ekki væri eftirsjá að
jafnreyndum starfsmanni og Bruno
að;..það verður hver að meta fyrir
sig. Það er svo hjá flestum fyrirtækj-
um að menn koma og fara.“
Samkvæmt upplýsingum DV hefur
verið þungt á mUh þeirra Brunos og
HaUgríms. Þegar Bruno sagði starfi
sínu lausu sendi hann uppsagnarbréf
tíl stjórnarmanna Samvinnutrygg-
inga en ekki tU síns yfirmanns,
Hallgríms Sigurössonar. Á síðustu
árum hafa Samvinnutryggingar
misst frá sér nokkra af sínum stærri
og traustari viðskiptavinum.
Bruno sagði starfi sínu lausu 1.
desember með sex mánaða fyrirvara.
Hann átti samkvæmt því að láta af
störfum 1. júní 1988. 15. desember
fékk hann greidd laun til 1. júní á
þessu ári. HaUgrímur Sigurðsson
sagðist ekki sjá neitt undarlegt við
þaö, Bruno vUdi hætta og þetta varð
að samkomulagi.
-sme
Vann allar skákimar
Ægir Kristinssan, DV, Fáskrúðsfirði;
Jólahraðskákmót Verkalýðs- og
sjómannafélags Fáskrúðsfjarðar var
í verkalýðshúsinu 28. og 29. des. sl.
Teflt var í yngri og eldri flokki. í
yngri flokki voru tefldar sjö umferðir
og þar sigraði Heiðar Atlason sem
vann allar sínar skákir, fékk sjö
vinninga, í öðru sæti var Davíð Haf-
þórsson með fimm vinninga og í
þriðja sæti Þórður Hansson, einnig
meö fimm vinninga. í eldri flokki
sigraði Magnús Valgeirsson með 16 'A
v. af 17 mögulegum, í öðru sæti Elís
Þór Rafnsson með 16 vinninga og
HUmar Gunnþórsson í þriðja sæti
með 13 /i. Sigurvegarar í hvorum
flokki fengu glæsUega bikara og gull-
peninga í verðlaun sem Verkalýðs-
og sjómannafélag Fáskrúðsfjarðar
gaf til keppninnar.
Sigurvegarar á jólaskákmótinu. Frá vinstri Heiðar Atlason og Magnús Val
geirsson. DV-mynd Ægii
Júlíus Vrfill Ingvarsson:
Ýmis orð betatr ósögð
„UmfjöUun ura Subaru flóðabíl- á landi. starf við. í framhaldi af þessu tel
ana er komin úr böndum og ýmis „Dæmi um þetta eru orð sem ég ég best að sjá hverju fram vindur
orö sem betur hefðu verið látin lét falla í viðtaU við DV f gær í garð í málefnum sem varða Subaru bíla
ósögð, hafa verið látin faUa,“ sagði Karls Steinars Guönasonar alþing- í trausti þess aö hagsmunir neyt-
Júlíus VífiU Ingvarsson hjá bif- ismanns og Jóns Sigurðssonar enda verði ekki fyrir borð borair í
reiðaumboði Ingvars Helgasonar í dómsmálaráðherra sem er yfir- þessu máh,“ sagði Júlíus VifUl
samtali við DV, en það fyrirtæki maður Bifreiöaeftírhts ríkisins Ingvarsson.
hefur umboð fyrir Subaru bíla hér sem viðhöfumjafnanáttgottsara- -ój
Stöð 2 ekki til sölu
„Við höfum ekki hugsað okkur að
selja og ég veit ekki hvaðan orðróm-
ur um það er kominn,“ sagði Valdi-
mar Steinþórsson, annar eigandi
íslenska myndversins hf. sem sér um
aUa tæknivinnu á Stöö 2, þegar hann
var spurður út í hugsanlega sölu á
Myndverinu. Undir þetta tók Ragnar
Guðmundsson, hinn eigandi Mynd-
versins. Hefur SÍS verið nefnt 111
sögunnar sem hugsanlegur kaup-
andi. Þeir Ragnar og Valdimar hafna
því algerlega.
Valdimar sagði að staöa Myndvers-
ins væri sterk þrátt fyrir mikla
uppbyggingu og að Stöð 2 hefði fylli-
lega staðið við sínar skuldbindingar
gagnvart Myndverinu. Tæki fyrir-
tækisins væru aðeins að litlu leyti á
kaupleigusamningum og því væri
fjármagnskostnaður tiltölulega lítih
hjá fyrirtækinu.
Fyrirtæki Valdimars og Ragnars,
Texti hfi, hefur nýlega hætt mynd-
bandadreifingu og hafa Steinar hf.
yfirtekið Wamer-umboðið sem Texti
var með.
„Sambandið á ekki krónu“
„Sambandið á ekki krónu í Stöð 2,
ekki snifsi af hlutabréfum,“ sagði
Jón Óttar "Ragnarsson sjónvarps-
stjóri. Hann sagði að Stöö tvö heföi
fengið ýmis kauptilboð, bæði frá inn-
lendum og erlendum aðilum en þeim
hefði verið hafnað jafnóðum.
Jón bætti því við að uppbyggingin
hefði verið hröð hjá Stöð 2 og því
heföu fylgt:...rosalegar tekjur og
rosalegur kostnaöur." Hann sagði að
nú ynnu 130 manns hjá Stöð 2 og
áskrifendafjöldi væri orðin 32.000.
Ekki fjölmiðlamatur
Guðjón B. Ólafsson, forstjóri Sam-
bandsins, sagði ekkert kannast viö
að Sambandið hefði í hyggju að
kaupa sig inn í Myndver og bætti
við: „Ég vill ekki ræða það hvort ein-
hverjir menn komi og bjóði Sam-
bandinu eitt og annað - það er ekki
fjölmiðlamatur." Þegar Guðjón var
spurður um innihald fréttar sem
birtist í Tímanum nýlega sagðist
hann ekki hafa lesið Tímann og því
ekkert geta um það sagt. En eru fjöl-
miðladraumar Sambandsins fyrir bí?
„Þaö er ekki í deiglunni að fara út
í neina fjölmiðlastarfsemi,“ sagði
Guðjón. -SMJ
Mannsins er enn saknað
Inga Jóhanns Hafsteinssonar er Lögreglan leitar sérstaklega ein- kvölds 2. nóvember.
enn saknaö. Ingi Jóhann sást síðast hvers sem getur gefið upplýsingar Ingi Jóhann er 35 ára gamall, 185
á Skagaströnd að morgni 3. nóvemb- um með hvaða hætti Ingi Jóhann fór sentímetrar á hæð, breiðleitur með
er. Hans hefur verið leita'ð í Húna- á milli Skagastrandar og Blönduóss ljóst, liðað hár.
vatnssýslu en án árangurs. aö morgni 3. nóvember eða síðla -sme
„Kuldinn óþægilegur en
ekki banvænn“
- segir rektor Menntaskólans í Reykjavík
„Kuldinn í skólanum fór niður í
13 gráður sem er óþægilegt en eng-
an veginn banvænt og hættum við
því ekki kennslu," sagði Guðni
Guðmundsson, rektor Menntaskól-
ans í Reykjavík, í samtali við DV.
Málsatvik eru þau að vatn fraus
í leiðslum á neðstu hæð skólans og
var því ekki hægt að hita hluta
skólans upp. Ástandið var verst í
nokkra daga meðan sem mest frost
ríkti í höfuðborginni. Nú er hita-
stigið skárra samfara hlýnandi
veðri en þó er enn nokkuö kalt í
einstaka stofum. Unnið er að við-
gerð. Guðni sagði nemendur ekki
hafa kvartað við sig vegna kuldans
og reyni þeir að færa sig milh stofa
svo köldustu stofurnar eru notaðar
eins lítið og unnt er. -JBj
„Ekki forsvaranlegt að halda
uppi kennslu í kuldanum“
- segir aðstoðarlandlæknir
um ætti ekki að vera óþægilegt þó
ekki væri talað um ákveðnar gráð-
ur en allir vissu að mjög óþægilegt
væri að sitja í skólastofu í 13 gráða
hita þó ekki væri það beinlínis
hættulegt heilsu manna. Við þetta
hitastig þyrfti fólk að vera á hreyf-
ingu eða mjög vel klætt. -JBj
„Mér finnst ekki forsvaranlegt
að halda uppi kennslu í skólanum
við svona lágt hitastig," sagði Guð-
jón Magnússon aðstoðarlandlækn-
ir er hann var inntur álits á
kuldanum í Menntaskólanum í
Reykjavík. Guðjón sagöi regíur
finnast um að hitastig á vinnustöð-
Helgi Seljan, Karvel Pálmason og undirleikari þeirra, Sigurður Jónsson,
skemmta eldri borgurum í félaginu Hananú í Kópavogi í kvöld.
Nýársfagnaður hjá
Hananú í
Félagið Hananú í Kópavogi, sem
er félag Kópavogsbúa 50 ára og eldri,
heldur sinn árlega nýársfagnað í
Félagsheimili Kópavogs að Fannborg
2 í kvöld.
Aðalskemmtikraftar kvöldsins
verða þeir Karvel Pálmason alþingis-
maður og Helgi Seljan, fyrrum
alþingismaður, ásamt undirleikara
Kópavogi
þeirra, Sigurði Jónssyni. Þeir félagar
slógu eftirminnilega í gegn á nýárs-
fagnaði félagsins í fyrra og kom ekki
annað til greina en að fá þá aftur í ár.
Þá mun Sif Ragnhildardóttir
skemmta gestum, auk þess sem ýmis
heimatilbúin skemmtiatriði verða á
boðstólum.
-S.dór